Morgunblaðið - 29.04.1971, Side 3

Morgunblaðið - 29.04.1971, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRlL 1971 3 BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur samþykkt að ráðizt skuli í nýja vatnsveitu sem fyrst vegna fyrirsjáanlegs vatnsskorts á Akureyri. Eftir nákvæmar at- huganir hefur verið ákveðið að gera aðveitu frá Hörgárdal og fá þaðan vatn úr svokölluðu Vagla landi. Fram til þessa hafa Akur eyringar fengið mest af neyzlu- vatni sinu úr Hesjuvallarlind- um og Sellandslindum, en það- an fæst nú ekki lengur nægi- legt vatn og hefur orðið að brúa foilið með yfirborðsvatni. Bæjar menn þurfa 9.240 rúmmetra vatns á sólarhing, en í jan,- marz getur framleiðslan farið niður í 4.320 rúmmetra á sólar- hring úr Iindunum og afgangur- inn fæst með nýtingu yfirborðs- vatns. — Kostnaðurinn við vatnsveituframkvæmdirnar í Hörgárdal verður um 44 millj- ónir og verður væntanlega haf- izt handa við verkið á þessu sumri. Ráðgert er að verkinu Tilraunaboranir gerðar í Vaglalandi í Hörgárdal. Akureyringar vilja: Heldur lindarvatn en hreinsað yfirborðsvatn úr Glerá — 44 millj. kr. vatns- veituframkvæmdir að hefjast verði lokið haustið 1972. Verk- fræðiskrifstofa Sigurðar Thor- oddsen hefur annazt alla verk- fræðilega útreikninga. í viðtali við Sigurð Svan- bergsson, vatnsveitustjóra á Ak- ureyri fyrir skömmu, kom fram að aðdragandinn að þess- ari ákvörðun hefur verið all- iangur. Vatrasveita Akureyrar var stofnuð árið 1914 með því að hafin var lindarvatnstekja í Hesjuvallarlindum. Þær lindir voru fullvirkjaðar árið 1958 og var þá fengið viðbótarvatn frá Seilandi i Glerárdal. Úr Hesju- vallarlindum og Sellandslind- um fást 170 1 vatns á sekúndu yfir sumartímann, en á vetrum getur það farið allt níður í 50 1 á sekúndu þegar áhrifa frosta og fleira gætir, og fór vatns- skortur alvarlega að gera vart við sig á Akureyri um 1961. Til þess að reyna að bæta úr þessu var komið upp bráðabirgðaað- stöðu við Fosslæk á Glerárdal og tekið þaðan yfirborðsvatn. Yfirborðsvatn þetta er látið síga í gegnum sand og siðan klórað, en engu að síður er yfir borðsvatn ekki æskilegt til notk unar ef hægt er að komast hjá því. — Það var árið 1963 að við leituðum til Jóns Jónssonar jarð íræðings og fengum hann til aðstoðar við okkur í leit að framtíðarvatnsbóli fyrir bæinn, sagði Sigurður. Leitin beindist fyrst og fremst að Hlíðarfjalli. Komið höfðu fram hugmyndir um að fá mætti þaðan það við- bótarvatn, sem Akureyringa skortir með því að bora í berg- ið neðan við skriður Hrapp- staðaskála. En með rannsóknum komst Jón að því að þarna er um tertiera bergmyndun að ræða og reynsla sýnir að von- laust er að vinna úr því neyzlu- vatn svo nokkru nemL Þá var leitinni beint að ýmsum stöðum írammi í Eyjafirði, en þar er ekki um nein framtíðarvatnsból að ræða — Þá fengum við Pétur Pálmason verkfræðing frá Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen með okkur til þess að athuga svæðin fyrir norðan Akureyri. Leituðum við á svæð inu frá Gæseyri meðfram Hörgá inn að Efstadalsá og beindist leitin einkum að eyr- unum fyrir framan Krossa- staðaá. Jón Jónsson ráðlagði að gerð væri rannsóknarborun þar. Boruð var 26 m djúp hola og var þá komið niður á fast- an jarðveg. Úr holunni komu 15 1 á sek. og við dælingu var niðurdráttur í holunni um 1 m. Sýnishorn af vatni þessu sýndi að þarna var um gott neyzluvatn að ræða. Síðar voru boraðar þarna fleiri tilrauna- holur og gáfu þær svipaðan ár- angur. Á sama tíma og þessar athug- anir voru gerðar var gerð athug- un á þvi að reisa hreinsistöð við Glerá og taka neyzluvatnið það an. Sumarið 1969 fóru Sigurður Svanbergsson og Pétur Pálmason til Noregs til þess að skoða vatns hreinsistöðvar með tilliti til þess að slík stöð yrði reist á Akureyri, og virtist ekkert til fyrirstöðu að hægt væri að hreinsa vatn úr Glerá og gera það hæft til drykkjar. Aðspurður um hvers vegna fall ið hefði verið frá þessari hug- mynd sagði Sigurður: — Kostn- aðaráætlun var gerð um vatns- hreinsistöð við Glerá og á vatns- lögnum og vatnstöku úr Hörgár- daL 1 ljós kom að kostnaður við hreinsistöðina yrði um 35 millj. en 44,6 millj. við vatnstökuna i HörgárdaL En þrátt fyrir þetta virtist vera meiri áhugi fyrir lindarvatninu úr Hörgárdal og á fundi, sem haldinn var i stjórn Vatnsveitunnar 30. marz s.l. var ákveðið að taka vatnið frá Vögl- um. Samþykkti bæjarstjórn þau málalok. — Persónulega tel ég að þarna sé um sálrænt atriði að ræða. Jafnvel þóaðvatnið úr Glerá hefði komið til með að standast fullkomlega samanburð þegar búið væri að hreinsa það, situr það i mönnum að þarna er um yfirborðsvatn að ræða og þeir kjósa lindarvatnið frekar þó að það verði heldur dýrara. Síðan hélt Sigurður áfram og sagði að sótt hefði verið um lán til Lánasjóðs sveitarfélaga til þessara framkvæmda og ef það lán fæst standa vonir til þess að hægt verði að hefjast handa í sumar. Á þá að vera hægt að ljúka verkinu fyrir haustið 1972. Um 20 menn vinna hjá Vatns- veitunni og yfir sumartímann vinna þar margir skólapiltar. Að lokum sagði Sigurður að framkvæmd þessi væri mjög að- kallandi bæði vegna vaxandi iðn aðar og fólksfjölgunar á Akur- eyri, og til stórvandræða horfði ef ekki yrði hægt að hefjast handa sem allra fyrst. Tónleikar um helgina: Dómkórinn og Söng- skóli Dómkirkjunnar Nokkrir af starfsmönnum Vatnsveitunnar, Sigurður Svanbergs- son er lengst til vinstri. SÖNGSKÓLI fyrir ungt fólk hef ur starfað í vetur á vegum Dóm- kirkjunnar. Þar hefur það feng- ið að kynnast nótnalestri, tón- fræði og raddmyndun. Jafn- framt hafa neimendur verið æfð- ir í samsöng og er ætlunin að bjóða áhugasömum áheyrend- um að heyra niðurstöðu þess- arar vinnu á tónleikum í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar laugar- daginn 1. mai kl. 5 s.d. Fyrri hluta efnisskrárinnar flytur Dómkórinn einn, en það eru nokkur lög úr „Passíu" Atla Heimis Sveinssonar og verkefni eftir Anton Heiller, sem er aust- urriskt nútíma-tónskáld og org- anleikari og orðinn mjög þekkt- ur fyrir kór-tónsmíðar sínar. Mun það verða í fyrsta skipti að íslenzkur kór flytur verk eftir Anton Heiller. Síðari hluta efnisskrárinnar flytja nemendur söngskólans, með aðstoð kirkjukórsins. Sam- anstendur hann af íslenzkum og erlendum verkefnum og má nefna ,,Mótettu“ fyrir tvo kóra eftir Heinrieh Schútz. Sunnudaginn 2. maí fer kór- inn til Skálholts og endurtek- ur samsönginn í Skálholtskirkju kl. 430. Nokkrir einsöngvarar koma fram á tónleikunum, en söng- stjóri verður Ragnar Björnsson. Basar og kaffi- sala Skag- firðingafélagsins KVENNADEILD Skagfii-ðimga- félagsins í Reykjavík heldur siinin árlega basar og kaffisölu í Lind- arbæ laugardaginn 1. maí næst- komandi. klukkan 2 síðdegis. Þar verður margt góðra muna á boðstólum, sem konurnar hafa meðal annara unnið sjálfar Eninfremur verður veizlukaffi. Ágóðanum verður varið til kaupa á afmælisgjöf í tilefni af 100 ára afmæli Sauðárkróks, sem haldið verður hátíðlegt 2. til 4, júlí næstkomandi. Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir Skagfirð inga i Reykjavík og inágrenni og aðra velunnara staðarins að heimisækja konurnar í Lindarbæ þeranain dag. (FréttatiKkynming) STAKSTEIMAR Endurskoðun skólakerfis A?ísir ræðir skólamálin í for- ustugrein sinni í gær og segir ni. a.: „Tekjur fræðslnkerfisins hafa nndanfarinn áratng aukizt marg- falt meira en tekjnr þjóðarinnar liafa aukizt á sama tíma. Ef tek- ið er tillit til verðbólgunnar, ha.fa tekjur fræðshikerfis*;is aukizt um 150% eða meira í raunveru- legum verðmætum frá árinu 1958 til árslns 1971. Þessi mikla tekjuaukning kemur fram í gif- urlegum skólabyggingum og margiislegiim endurbótum í skólamálum. Samt er skólakerfi okkar eng- an veginn gott. Fyrir dyrum standa veigamiklar breytingar á þvi, svo sem bætt kennara- menntun, Ienging skólaskyldunn- ar, aukinn sveigjanleiki i náms- brautum, bætt aðstaða dreifbýl- isins og margt fleira, sem skóla- menn hafa á undanförnum ár- um bent á, að gera þurfi. Þessar umbætur koma fram i þremur fmmvörpum, sem ríldsstjórnin lagði fram á alþingi í vetur. 1 framkva'mdinn i mun þessi endurskoðun kosta verulega mik- ið fé. Kostnaður við skólakerfið á enn eftir að aukast vernlega á næstn árum, til viðbótar við þá aukningu, sem þegar er orðin. Og það mun ekki duga neinum að sjá eftir þessiim peningmn, svo nauðsynlegar eru hina.r væntanlegu umbætur. Enda munu flestir fslendingar vera því sammála, að skólakerfið sé homsteinn atviimulifs og menn- ingarlifs þjóðarinnar." Bætt innlhald Síðan segir Vísir: „Nú þegar skólamálin em að verða svona mikilvægur þáttnr í f jármálum þjóðarinnar, er eðli- legt, að menn spyrjl, hvert sé og hvert eígi að vera innihald skólakerfisins, burtséð frá hin- um ytra aðbúnaði þess. Til hvers ætlnmst við af skólakerfinu? Hvemig stuðlar það að því markmiði að búa nemendur á sem virkastan hátt nndir lif og starf í þjóðfélagi, sem er stöð- ngum breytingum háð? Flestir eru sammála um, að nú taki skólakerfið mjög lítið tillit til atvinnulífsins, þótt vís- indi, tækni og stjómunarkunn- átta séu einmitt þau atriði, sem at\Tnnulífið þarf nú mest á að halda. Flestir eru líka sammála um, að skólakerfið standi sig ekki nógu vel í að ná því bezta úr hverjum einstaklingL Margir óttast, að kerfið stuðli að meðal- mennsku, steypi of marga i sama mót, framleiði ósjálfstæða og óábyrgar hópsálir. Skólakerfið á að stuðla að þvf, að nemendurnir verði sjálfstæð- ar og hugsandi persónur, fram- takssamir og ábyrgir borgarar, þroskaðir einstaklingar. Skóla- kerfið á að stuðla að því, að nemendurnir læri að tjá sig á sjálfstæðan, gagnrýninn, ábyrg- an og þroskaðan hátt. Skóla- kerfið á að gera bömin og unglingana að betri einstakling- nm en foreldramir em. Velgengni þjóðarinnar er um þessar miindir að gera henni kleift að byggja upp sómasam- legan aðbúnað skólakerfisins. En jafnframt mim færast aukinn þungi í kröfiir um bætt innihald kerfisins, einkum þó að það nái hinn bezta úr hverjnm ein- staklingi."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.