Morgunblaðið - 29.04.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1971
11
Úr Breiðavíkurhreppi
á Snæfellsnesi
SÍÐASTLIÐIÐ sumar var vot-
viðrasamt og því erfitt til hey-
skapar, en þó miklum mun
betra en sumarið 1969.
Heyfengur bænda hér á sl.
sumri mátti heita sæmilegur og
heyin vel verkuð, en nokkrir
bændur þurftu að afla sér heyja
bæði vegna slæmrar gras-
sprettu og kals í túnum, sem
bar talsvert á sums staðar.
Og nu, er maður litur til baka
og sér veturinn, sem senn er
liðinn, er ekki hægt annað að
segja en að hann hafi verið góð
ur, mjög snjóléttur og frost væg.
Það má því gera sér vonir um,
að klaki fari fyrr úr jörð en
síðastliðið vor. Sauðfé kom
seiát á hús í vetur, misjafnt eft
ir staðháttum, sums staðar ekki
fyrr en um miðjan desember.
Skepnuhöld hafa verið frekar
góð, en nokkuð hefur borið á
doða í kúm og júgurbólgu. Einn
ig veiktust nokkrar kindur af
riðuveiki, en batnaði flestum af
viðeigandi lyfjum. Ég hef haft
hér lyf j aaf greiðslu í áraraðir
fyrir Búnaðarfélagið og nú fyr
ir héraðsdýralækninn, sem situr
í Stykkishólmi, og hefur það
margri skepnunni bjargað að
hafa lyfin við höndina.
Færri ær voru settar á sl. haust
en haustið 1969 og stafar það af
því, að bændur gátu ekki sett
á lömb haustið 1969 til viðhalds
fj árstofnunum, vegna lítilla og
slæmra heyja.
Kúafjöldi stóð í stað. Mjálkur
framleiðsla jókst á el. ári um
18% miðað við árið 1969. Mjólk
in fer til mjólkurstöðvarinnar í
Borgarnesi, en reynzt hefur
kostnaðarsamt að koma mjólk-
irtni frá sér, og er það vegna
þess, að við höfum orðið að
gera út bíl til að flytja mjólkina
frá okkur í næstu sveit, Staðar
sveit, til móts við mjólkurbíl-
inn, sem flytur hana í Borgar-
nes ásamt mjólkinni úr þremur
öðrum nærliggjandi hreppum.
Af þessum sökum hefðu bænd
ur orðið að gefast upp við að
framleiða mjólk, ef ekki hefði
fengizt stjrrkur til flutninganna.
Það er áhugamál okkar að þessu
flutningsfyrirkomulagi verði
breytt, og það sem allra fyrst.
Sauðfjárafurðir fara að mestu
leyti til KB. Borgfirðinga og einn
ig mjólkin. Viðskipti bænda eru
því að mestu leyti þar. Bændur
fá vörur fluttar til sín með
mjólkurbílum og öðrum bílum
sem eru á vegum þedrra manna,
sem flytja mjólkina.
Við höfum ekki aðrar sam-
göngur en í sambandi við mjólk
urflutningana, nema að mjög
litlu leyti að sumrinu.
Samgöngur hafa versnað hjá
okkur síðan vegurinn var lagð-
ur undir Ólafsvíkurennl.
Bíllinn sem heldur uppi áætl
unarferðum milli Reykjavíkur
— ólafsvíkur og Hellissands, fer
örsjaldan Útnesveg og aldrei nú
í vetur, að undantekinni einini
ferð í suðurleið um áramót,
sem enginn vissi af, nema kann
ski álfamir, sem byggja úthrepp
inn. Þeir hafa ef til vill notað
tækifærið og tekið sér far með
bílnum í bæinn.
Við vonum að breyting verði
á samgöngumálum okkar til
baitnaður áður en langt uim líður.
Sérleyfishafar áðurnefndira leiða
vilja veita okkur betri þjón-
ustu.
Af vegamálum er það að segja
að nýlega boðaði hreppsnefnd
Neshrepps til sameiginlegs fund
ar Breiðavíkurhrepps til að
ræða vegamálin. Þar var sam-
þykkt að leggja áherzlu á, að
öllu því fé sem verður til ráðstöf
unar í Útnesveg árið 1971 verði
varið til nýbygginga á vega-
kaflanum frá Móðulæk að
nyrðri enda Hellissandsflugvall
ar. Það er ríkjandi almennur
áhugi fyrir því að lokið verði
við áðumefndan vegarkafla á
næsta sumri, og einnig að verstu
kaflamir á áður uppbyggðum
Útnesvegi frá Heiðaskarði að
Móðulæk verði lagfærðir. Það
er einnig mjög aðkallandi að
bera ofan í veginn á sfórum
svæðum. Það er víða ekki hægt
orðið að hefla veginn, vegna
þess að ofaniburðurrnn er horf
inn, enda ekki verið borið í
veginn, að heitið geti í mörg
ár. En umferð um þennan veg
hefur farið sívaxandi á sumr-
um. Ferðamaimastraumurinn
hefur aukizt með hverju ári. Ég
hef rabbað við margt af ferða
fólki og hefur það lokið upp
einum munni um að hér á nes-
Lnu væri mikil náttúrufegurð og
margt að skoða.
Svæðið frá Malarrifi að
hreppamörkum Breiðavíkur-
hrepps og Neshrepps er nú í
eyði, en huldufólkið býr þar í
næði og á þessu svæði er stór
kostleg náttúrufegurð. Lón-
drangar em mikilfenglegir og
að þeim mikil prýði.
Um þá er eftirfarandi vísa:
Um Lóndranga yrkja má
eru þeir Snæfellsprýði.
Yzt á tanga út við ejá
aldan stranga lemur þá.
Svo er önnur vísa um Álfa-
byggðina:
í úthreppnum er álfabyggð
ekki má þá styggja.
Við átthagana halda tryggð
þar hallir sínar byggja.
Já, margar eru álfahallirnar
og undursamleg náttúrusmíð,
sem fyrir augun ber, ef ferðazt
er í ró og næði um áðumefnt
svæði.
Á þorranum í vetur héldu
Staðsveitvmgar þorrablót og var
Breiðvíkingum boðið á þenn-
an mannfagnað.
Séra Þorgrímur Sigurðsson,
prófastur að Staðarstað, setti
samkomuna og bauð gesti vel
komna. Þar næst tóku allir til
matar sínis og urðu vel mettir,
því þar var fram borinn mikill
og góður matur, hangikjöt, svið,
súr hvalur, hákarl, harðliskur
o.m.fl.
Svo eftir að allir höfðu fyllt
iður sín var hafizt handa um að
skemmta fólkinu. Margt var tii'
skemmtunar, mest heimatilbúið.
Meðal skemmtiatriða má nefna
upplestur, samtöl, söng, íþróttir,
íréttir úr sveitunum o.fl. Margir
skemmtu.
Að loknum skemmtiatriðum
var stiginn dans af miklu fjöri
langt fram eftir nóttu. Að sáð
ustu var veitt kaffi og brauð
með. Áður en haldið var heim,
þakkaði Finnbogi Lárusson fyr
ir hönd Breiðvíkinga. Að end-
ingu fluttu þeir séra Þorgrím
ur Sigurðsson, prófastur Staðar
stað 'og Þórður Gíslason barna-
kennari, ölkeldu, kveðjuorð.
Þessi þorrafagnaður var mjög
vel sóttur, fór vel fram og var
Staðsveitungum til sóma.
Mörg undanfarin ár hafa ver
ið haldin þorrablót til skiptis í
Staðarsveit og Breiðavík, og
boðið á víxl. Þetta hefur verið
mjög vinsælt í báðum sveitun
um og stuðlað að kynningu
fólksins.
SjónVarp er komið á tólf heim
ili hér í sveit, en sjónvarpsskil
yrði eru mjög slæm, og það svo
að sums staðar sést ekkert og
annars staðar illa, en úr þessu
þarf að bæta hið bráðasta, sem
við vonum að verði gert.
Nú hefur vetur kvatt, en sum
arið heilsar okkur. Það vorar í
sálum manna og dýra. „Lóan er
komin að kveða burt snjóinn,
kveða burt leiðindin, það getur
hún“. Ég heyrði fyrst í lóunni
á annan páskadag. Þá söng hún
dýrðindí og hrossagaukinn
heyrði ég hneggja. Já, blessaðir
farfuglarnir eru nú að koma til
okkar og boða okkur sumarkom
una með sínum blíða söng.
„Þá er úti vetrarþraut, þegar
spóinn vellur graut“.
Megi sumarið sem í hönd fer
verða öllum landsmönnum í
sveit og við sjó gjöfult og gleði
ríkt.
Gleðilegt sumar.
Finnbogi G. Lárusson.
Melvin Laird
varnarmálaráðherra
Laird búinn
að fá nóg
Madison, Wisconisin,
27. apríl. AP.
MELVIN Laird, varnarmála
ráðherra Bandarikjanna sagði
í viðtali við stúdentablaðið
Daily Cardinal við Wiscon-
sinháskóla, að hann hefði
tekið ófrávíkjanlega ákvörð-
un um að láta af embætti ár-
ið 1973. Ráðherrann sagði:
„4 ár í embætti vamarmála-
ráðherra eru meira en nóg.“
ÞMt ER EITTHUHÐ
IVRIR niLH
Brídge:
Undanúrslit sveita-
keppni íslandsmótsins
UNDANÚRSLIT sveitakeppni ís-
landsmótsins í bridge fara fram
í Reyikjavík um næstu helgi. —
Kepþnin hefst laugardaginn 1.
miaí klukkan 14.00 og verður
spilað í Domus Medica við Egils-
götu.
24 sveitir taka þátt í keppn-
imni og hefur þeim. verið skipt
í 6 riðla. Sveitimar eru þessar:
1. riðill
Sveit Einars G. Einarssonar,
ísafirði.
Boga Sigurbj ömssonar,
Siglufirði.
Jóns Haukssonar,
Vesfcm aamaeyj um.
Skúla Thorarensen,
Keflavik.
2. riðill
Sveit Halldórs Sigurbjörnssoinar,
Akranesi.
Stefáne Guðjohnaen,
Reykjavík.
Sigurðar Emilssonar,
Hafnarfirði.
Hauks Guðjónssonar,
Vestmannaeyjuim.
3. riðill
Sveit Jóns Arasonar,
Reykjavík.
Páls Árnasonar,
Selfossi.
Hannesar Jómssonar,
Akranesð.
BöðvarS Guðmumdssonar,
Hafnarfirði.
4. riðin
Sveit Hjalta Elíassonar,
Reykjavík.
Amair Vigfússonar,
Selfossi.
Guniniars Kristinssonar,
Y estmaninaeyj um.
Magnúsar Þórðarsonar,
Kópavogi.
5. riðill
Sveit Einars V. Kristjánssonar,
ísafirði.
Páls Pálssonar,
Akureyri.
Þórarins Hallgrímissonar,
VopnafirðL
Sigurðar Magnússonar,
Keflavík.
6. riðiU
Sveit Valdimars Sigurjónssonar,
Akranesi.
Kristmanns Guðmundss.,
Selfossi.
• Guðlm. Guðlaugssonar,
Akureyri.
Björns Eysteinssonar,
Hafnarfirði.
SigurvegaramÍT í riðlunum,
það er sex sveitir, keppa til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinin,
og fer sú keppni einnig fram í
Reykjaví'k og hefst 20. maí nk.
Er þá einnig keppt í Domus
Medica við Egilsgötu.
Ákveðið hefur verið, að Evr-
ópumeistaramótið í bridge fyrir
árið 1971 fari fram í Grikklandi
á tímabilinu 18. nóv. til 28. nóv.
Ekki er vitað hvort íslenzk sveit
tekur þátt í keppnirmi, en vænt-
anlega verður það ákveðið mjög
fljótlega.
ÁLAFOSS
2 NNGHOLTSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK, SÍMI 22090
Er ánægja mælanleg í fermetrum?
Spyrjið þær þúsundir kaupenda, sem síðastliðin
tvö ár hafa keypt 120 þúsund fermetra af Álafoss
gólfteppum. Fermeter eftir fermeter af aukinni
heimilisánægju. Hvernig er yðar gólf? Veita þau
Iyður sömu ánægju? Eða megum við auka
ánægju yðar um nokkra fermetra? Vinsamleg-
ast látið okkur vita ef svo er.
ánægjaí
fermetrum