Morgunblaðið - 29.04.1971, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1971
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkyaemdastjóri Hsraidur Sveinsson.
Rilstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstraeti B, sími 10-100
Auglýsingar Aðalstraeti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands.
f lausasölu 12.00 kr. eintakið.
NÝ FORYSTA
S JÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Cjálfstæðismenn völdu sér
^ nýja forystu á Lands-
fundinum sl. þriðjudagskvöld.
Jóhann Hafstein, forsætisráð-
herra, var kjörinn formaður
Sjálfstæðisflokksins og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri,
var kjörinn varaformaður.
Það féll í hlut Jóhanns Haf-
stein að axla á örlagastund
mikla byrði. Líklega hefur
enginn íslenzkur stjórnmála-
maður verið kallaður til for-
ystu við jafn erfiðar og ör-
lagaþrungnar aðstæður. Mik-
ill stjómandi hvarf skyndi-
lega af sjónarsviðinu og Jó-
hanni Hafstein var falin yfir-
stjórn þjóðarskútunnar og
forysta Sjálfstæðisflokksins.
A 19. Landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins vottuðu Sjálfstæðis-
menn Jóhanni Hafstein þakk-
ir sínar fyrir það, hve vel
hann hefur haldið á málum,
með eftirminnilegum hætti, í
þeirri einhuga kosningu er
hann hlaut, sem formaður
S j álfstæðisflokksins.
„Ég finn að slíku fólki má
aldrei bregðast," sagði hinn
nýkjörni formaður Sjálfstæð-
isflokksins og bætti því við,
að hann mundi engu lofa
öðru en því að gera sitt
bezta. Með það loforð Jó-
hanns Hafstein ganga Sjálf-
sfæðismenn glaðir og sigur-
reifir frá þessum Landsfundi
til kosningabaráttunnar, sem
framundan er.
Um kosningu varafor-
manns urðu nokkur átök á
Landsfundinum eins og
kunnugt er. Greir Haligríms-
son, sem staðið hefur í
frémstu röð hinna yngri for-
ystumanna Sjálfstæðisflokks-
ins, var kjörinn varaformað-
ur en dr. Gunnar Thoroddsen
hlaut einnig mikið fylgi
í varaformannskosningunni.
Gunnar Thoroddsen var vara-
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins á árabilinu 1961—1965 er
hann hvarf til sendiherra-
starfa í Kaupmannahöfn.
Hann hefur í áratugi verið í
hópi áhrifamestu stjómmála-
manna landsins og gegnt
bæði ráðherrastörfum og
embætti borgarstjóra í
Reykjavík. Það var því ekki
óeðlilegt að verulegur hluti
Sjálfstæðismanna æskti þess,
að hann yrði varaformaður á
ný. Úrslit varaformannskosn-
ingarinnar á landsfundinum
sýna, að Gunnar Thoroddsen
nýtur mikils trausts meðal
Sj álf stæðismanna.
Með kjöri Geirs Hallgríms-
sonar til varaformanns geng-
ur ný kynslóð fram fyrir
skjöldu í Sjálfstæðisflokkn-
um. Geir Hallgrímsson hefur
notið mikilla vinsælda og sÍt
vaxandi trausts sem borgar-
stjóri í Reykjavík. Nú hefur
hann haslað sér völl á sviði
landsmála og er ekki að efa,
að forystuhæfileikar hans
munu ekki síður njóta sín á
þeim vettvangi. Þegar Geir
Hallgrímsison ávarpaði lands-
fundarfulltrúa að loknu vara-
formannskjöri, gerði hann
m.a. að umtalsefni þá kosn-
ingu, sem fram fór milli
hans og Gunnars Thorodd-
sens, og sagði: „Mér þykir
vænt um það handtak, sem ég
hlaut frá Gunnari Thorodd-
sen, sem ég hef starfað með
árrnn saman og met rnikils.
Ég veit, að í því handtaki
felst stuðningur og vitnis-
burður um, að við Sjálfstæð-
ismenn göngum sameinaðir
til kosninga í vor.“ Geir Hall-
grímsson þakkaði það traust
er honum hafði verið sýnt og
sagði að sér þætti vænt um
að mega starfa með Jóhanni
Hafstein, sem kjörinn hefði
verið formaður með slíkum
einhug.
Nítjánda Landsfimdi Sjálf-
stæðisflokksins er nú lokið.
Þessa landsfundar var beðið
með eftirvæntingu. Hann var
haldinn á miklum tímamótum
í sögu Sjálfstæðisflokksins og
athyglin beindist ekki síz.t að
því, hversu Sjálfstæðismönn-
um mundi takast að skipa for-
ystu flokks síns. Niðurstaða
í þeim málum fékkst með
þeim lýðræðislega hætti að
atkvæðin skáru úr. Þannig á
það að vera í stórum flokki
og slík vinnubrögð eru til
marks um styrkleika, en ekki
veikleika. Heilbrigður ágrein-
ingur er líklegur til að efla
flokkinn og skapa innan hans
vettvang fyrir frjóari um-
ræður.
Kjör nýrra forystumanna
setti að vonum svip sinn á
þennan landsfund, en þar
urðu einnig líflegar umræður
um hina ýmsu þætti þjóð-
málanna. Nú, þegar forystan
hefur verið valin, hlýtur
næsta verkefni Sjálfstæðis-
flokksins að vera það að
beina athygli sinni að við-
fangsefnum komandi ára. Að
baki er áratugur velmegunar,
erfiðleika og nýrra framfara.
Framundan eru örlagaríkar
þingkosningar og verkefni
áttunda áratugsins. Það er
ekki sízt undir hinum nýju
forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins komið hversu til
tekst.
Þormóður Runólfsson
Þankabrot
Hemill
á framfarir
ÞAÐ mun nú nokkuð langt síðan helztu
sérfræðingar okkar um landbúnaðarmál
komust að þeirri niðurstöðu, að ein meg-
in orsök óhóflega mikils framleiðslu-
kostnaðar íslenzkra landbúnaðarvara
væri smæð búanna hérlendis. Það gef-
ur raunar auga leið, að hin stórkostlega
nýja tækni, sem rutt hefur sér til rúms
í landbúnaði, getur því aðeins verið f jár-
hagslega hagkvæm, að framleiðsla
hvers einstaks bús aukist í réttu hlut-
falli við fjárfestingu í vélum og öðrum
tækniútbúnaði. Stærstu kostnaðarliðirn-
ir við nútíma tæknivæðingu eru vextir
og afskriftir, og hefur það lítil áhrif á
þá hvort vélarnar eru notaðar lengri eða
skemmri tíma á ári hverju. Því fleiri
vinnustundir sem þessir kostnaðarliðir
dreifast á árlega, þvx hagkvæmari verð-
ur tæknin að öðru jöfnu. Þetta er ein-
föld rekstrarhagfræði, sem ekki er þörf
á að rökstyðja frekara. Jafn augljóst er,
að slíkri rekstrarhagkvæmni verður
ekki við komið þar sem framleiðslu-
aukningin takmarkast um of af land-
rými eða erfiðleikum á að koma fram-
leiðsluvörum á markað.
Með þetta í huga verður það að telj-
ast næsta furðulegt, að allt fram á þenn-
an dag hefur íslenzk löggjöf hvatt
bændur, með styrkjum og annarri fyrir-
greiðslu, til að skipta stórum jörðum í
smærri og smærri einingar, sem og til
að stofna nýbýli á stöðum, sem ekki
geta, sumir hverjir, talizt heppilegir
með tilliti til markaðs. Höfundur þess-
ara orða bjó um skeið í sveit, nánar til
tekið á árunum 1950—’58, á stórri og
góðri jörð, þar sem endurnýja þurfti
flest mannvirki. Hann komst þá að raun
um það, að næstum útilokað mátti heita
að fá fjármagn til slíkra hluta. Að
vísu munu hafa verið til einhverjir
sjóðir, sem ætlað var að lána til slikrar
uppbyggingar, en þeir voru f járvana og
því gagnslausir. Ef hins vegar hefði ver-
ið farið út í það, að skipta þessari jörð
og stofna nýbýli (þegar var búið að
stofna eitt slíkt), þá var hægt að fá
mikla og margháttaða fyrirgreiðslu. En
frekari skipting jarðarinnar hefði leitt
til þess, að þar var orðið óbúandi. Er
þetta eitt dæmi þess, hversu hæpið það
getur verið að grípa inn í þróun at-
vinnulífsins með lögum, settum af mis-
vitrum mönnum.
Því ber að fagna frumvarpi því, sem
Pálmi Jónsson frá Akri og fleiri þing-
menn hafa nýverið lagt fram á Alþingi.
Felur það meðal annars í sér brotthvarf
frá þvi stefnumiði, að skipta og fjölga
bújörðum í landinu, heimild til að veita
framlög til sameiningar jarða, heimild
til að synja utn framlög og lán til end-
urbyggingar á eyðijörðum og fleira í
þessum dúr. Er þess að vænta að þetta
frumvarp, ef að lögum verður, geti bætt
nokkuð fyrir sum þau axarsköft, sem
gerð hafa verið i íslenzkum landbúnað-
armálum i krafti hinna gömlu laga.
En áreiðanlega þarf enn margt að
laga og mörgu að breyta áður en ís-
lenzkur landbúnaður getur talizt fylli-
lega samkeppnisfær við erlendan. 1
þessu sambandi skal lögð áherzla á það,
að núverandi fyrirkomulag á lánum,
niðurgreiðslum og styrkjum til bænda
er á marga lund mjög óheppilegt. Það
er t.d. Ijóst, að niðurgreiðsla á landbún-
aðarafurðum kemur ójafnt niður á
bændur, og að þeir fá mest sem sízt
þurfa á aðstoð að halda. Þetta ber að
skilja svo, að þeim mun stærri og öfl-
ugri sem búin eru — því meira sem þau
framleiða — því hærri styrki fá þau
frá því opinbera í formi niðurgreiðslna.
Og svipað má raunar segja um styrki
til jarðræktar og mannvirkjagerðar.
Stórbændurnir eru venjulega aðsóps-
meiri í öllum framkvæmdum en þeir
sem minna mega sin og fellur því þessi
aðstoð að miklu leyti í þeirra hlut.
Hvort sem það nú stafar af því, að
sumum hinna fátækari bænda finnist
þeir með þessu móti verða afskiptir,
eða það stafar af hreinni óforsjálni, þá
er það staðreynd, að alltof margir hafa
freistazt til að leggja út í stórfram-
kvæmdir sem bú þeirra geta engan
veginn risið undir sökum lítillar fram-
leiðslu. Þess eru því miður æði mörg
dæmi, að einstakir bændur séu hlaðnir
slíkum skuldaböggum, að þeir verði að
taka ný lán árlega til þess eins að
standa straum af vöxtum og afborgun-
um eldri lána. Þegar svo er komið er
gjaldþrot að sjálfsögðu aðeins tíma-
spursmál.
Hér munu lánastofnanir eiga nokkra
sök. Af þeirra hálfu er áreiðanlega of
lítið af því gert að kynna sér efnahag
manna áður en lán eru veitt. Raunar
mætti svo virðast í ýmsum tilvikum, að
sumir menn hafi svo til ótakmarkað
lánstraust, og það þó efnahagur þeirra
sé raunverulega í molum. Með slikum
vinnubrögðum er engum greiði gerður,
en mörgum ógreiði. Með þessu er verið
að festa fé í óarðbærum framkvæmd-
um meðan marga forsjála og duglega
framtaksmenn skortir fyrirgreiðslu til
að auka rekstrarhagkvæmni búa sinna.
Það er sem sé ekki góð hagfræði að
dreifa fjármagni, hvort sem það er í
formi lána eða styrkja, út á milli fólks
eftir föstum, fyrirfram settum reglum,
alveg án tillits til þess, hvort viðtak-
endur kunni með fé að fara eða ekki.
Slíkt fyrirkomulag verkar sem hemill
á allar eðlilegar framfarir og hlýtur að
leiða til ófarnaðar. Þegar til lengdar
lætur er það öllum fyrir beztu að þeir,
sem tefla of djarft og ekki kunna fót-
um sínum forráð í atvinnurekstri, snúi
sér að öðru.
Akureyri:
Lýsa stuðningi við
verzlunarskólamálið
Akureyri, 28. apríl.
EINS og getið hefur verið í
Mbl. samþykkti bæjarstjórn Ak-
ureyrar í gær með atkvæðum
allra bæjarfulltrúa áskorun til
ríkisvaldsins um að stofnsetja
verzlunarskóla á Akureyri hið
fyrsta. Til grundvallar samþykkt
inni lá einróma álit fræðsluráðs,
sem gert hafði ályktun um mál-
ið.
Nú hefur bæjarstjóri staðfest,
að auk ályktunar fræðsluráðs
Akureyrar, hafi bæjarstjóm ný-
lega borizt bréf um málið frá
stjónnum tveggja félagasamtaka
í bænum — Verzlunarmarmafé-
lagsins á Akureyri og Félags
verzluniar- og skrifstofufólks á
Akureyri.
í báðum bréfunum kvað bæj-
arstjóri koma fram mikinm
áhuga á verzlunarskólamálinu
og eindregiran stuðning við það.
Stjónnir félaganna heita á bæj-
arstjónn að vinna að því og beita
áhrifum sínum til þess, að hér
á Akureyri verði sem fyrst kom-
ið á fót verzlunarskóla, er verði
ríkisstofnuun. — Sv. P.
Góð markaðs-
skilyrði fyrir
freðfisk
Osló, 28. apríl — NTB
TRAUST og trygg markaðsskil-
yrði fyrir freðfisk munu líklega
haldast í ár, bæði í Evrópu og
Norður-Ameríku. Kom þetta
fram á fundi, sem fulltrúar fisk-
íðnaðarins i Kanada, Danmörku,
Islandi og Noregi gáfu á fundi
sínum í Osló í dag.
Á þessum fundi kom það fram,
að frá því að síðasti fundur fu'll-
trúa þessara landa var haldinn
í október í fyrra, hefði markað-
urinn þrengzt. Framleiðslan á
þessu ári hefði hins vegar verið
aðeins minni til þessa en á sama
tímabili i fyrra og væru birgðir
því litlar.