Morgunblaðið - 29.04.1971, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRlL 1971
BLÓÐ-
TURNINN
u
69 •
sagði Priestley kuldalega. — Og
kannski viljið þið nú segja, að
þessi heppni Woodsprings hafi
verið „laun dyggðarinnar".
Hann hefur hjálpað þeim Glap-
thornefeðgum og nú verður
hann erfingi að fólgnum
fjársjóði. Og er ekki iðjusamur
maður verður sinna launa?
Nokkrar sekúndur liðu áður
en Jimmy gat svarað þessu. —
En ekki gat Woodspring vitað
fyrirfram, hernig mundi fara
fyrir Benjamín og turnin-
um, sagði hann loksins.
— Vitað? sagði Priestley i
fyrírlitningartón. — Auðvit-
að vissi hann það fyrirfram, þar
sem hann hafði sjálfur komið
því í kring!
— En hann var nú i London
nóttina, sem það gerðist, á því
er enginn vafi.
— Hvar ætti hann annars
staðar að vera? Engu að síður
vil ég halda því fram, að Wood-
spring kom í kring þessu hruni
á turninum og dauða Benjamíns.
Ný kjólaefni
tekin upp í dag
Glæsilegt úrva
Austurstræti 9.
Nýtl fró SÖNDERBORG
Hið niargeftirspurða frotté prjónagarn
ROMA og FIRENZE frá Sönderhorg er
komið.
Verzlunin DALUR,
Framnesvegi 2.
Verzlunin HOF,
Þingholtsstræti 1.
Og þannig er hann líka sekur
um slagið sem varð Símoni að
bana. Og ég er líka viss um,
að það var hann, sem olli dauða
Calebs. Hvaða sönnun höf-
um við fyrir sekt Benjamíns,
hvað það síðastnefnda snertir?
Enga.
Appleyard ætlaði eitthvað að
fara að malda í móinn, en Prest-
ley þaggaði niður í honum með
skipandi bendingu.
-— Hlustið þið nú á mig, sagði
hann. —- Allar sannanir ykkar
hvíla á þeirri sannfæringu ykk-
ar, að það hafi verið Benjamín,
sem las úr ritningarstöðunum í
bibílunni. Hvenær - gerði hann
það? Þið verðið að muna, að
hann fór úr Klaustrinu ung-
barn, og kom þangað ekki eftir
það nema sjaldan og skamma
stund í einu. Hafði hann nokk-
urt tækifæri til að afrita ritn-
ingarstaðina og merkin, sem
þeim fygldu? Las hann svo úr
þeim borð í skipinu sínu, þegar
hann átti frí? Kann að vera, en
ég efast nú samt stórlega um
það. 1 mínum augum er það
miklu líklegra, að Woodspring
eigi heiðurinn af því að hafa
lesið úr þeim. Bökamaður er lík
legri til að geta lesið úr svona
dulmáli. en vélstjóri. Við vitum,
samkvæmt eigin ummælum
Woodsprings, að hann hafði
áhuga á þessari biblíu. Og þar
sem hann kom oft i Klaustrið
hafði hann ágætt tækifæri til
að afrita ritningarstaðina.
— Með því að ganga út frá
þessu, álykta ég þannig: Hr.
Woodspring las það mikið úr
ritningarstöðunum, að hann
vissi, að i turninum voru járn-
bogar og væru þeir rofn-
ir mundi koma í Ijós mikil auð-
legð. Þangað til fyrir skömmu
var turninn opin hverjum
þeim, sem vildi -athuga hann.
Vafalaust hefur Woodspring not
að tækifærið og, athugað hann
vandlega. Hann sá járnbogann
að innanverðu og hefur trúlega
vitað um hinn að utanverðu. Þá
var vandalítið fyrir hann að
álykta, að gullið væri geymt
milli þessara tveggja járnboga.
Honum kann að hafa ver
ið óljós merking viðvör-
unarinnar. En með ofurlít-
illi umhugsun kann honum að
hafa verið ljóst, að ef rúmið
milli járnboganna væri tæmt,
mundi turninn detta. Hann hef-
ur sennilega getið sér þess til,
eins og ég gerði, að innan bog-
anna væri aðallega sandur, sem
gull í einhverri mynd væri falið
í.
— En hvernig átti hann að
hagnast á þessari vitneskju
sinni? Símon Glapthorne vildi
ekki selja turninn og ólíklegt,
að Caleb eldri sonurinn mundi
vilja það hedlur. Eignin hlaut
að verða seld áður en lyki, en
Woodspring var ekki ungur
lengur og gæti ekki beðið eftir
því til eilífðar nóns. Auk þess
kynni eignin að verða seld í
einu lagi og dýrar en hann
hefði efni á. Til þess að geta svo
tryggt sér ágóðann, sem ritning-
arstaðirnir gáfu til kynna, varð
hann að hafast eitthvað að, og
það tafarlaust.
Fyrsta skrefið var að koma
sér vel við fjölskylduna til þess
að tryggja sér greiða leið áfram.
En þá kom að nauðsyninni á að
ryðja Caleb úr vegi, þar eð
hann hefði getað orðið þrándur
í götu, engu síður en
Símon sjálfur. Þið hafið að ég
_held skýrt réttilega aðferðina
við morðið á Caleb. En þið vilj-
ið kannski leyfa mér að útskýra,
hvers vegna mér finnst Wood-
spring líklegri morðingi en
Benjamín. Ég skal þá taka hlut-
ina á réttri röð.
Kassinn með Nomrodskot-
unum. Þið hafið fullvissað yk-
ur um, að hann var keyptur, ein
hvern tíma á síðustu mánuðum
á einhverjum öðrum stað en
Lydenbridge. Benjamín kynni
að hafa keypt hann en það gæti
Woodspring líka hafa gert.
Hann er vanur að ferðast víðs-
vegar til þess að vera á bóka-
uppboðum. Og hér kemur eitt
atriði, sem ykkur kynni að hafa
sézt yfir. Woodspring getur
— Eiguin við að skipta um sæti, fröken?
keypt hlut í búð þar sem hann
er óþekktur, án þess að eiga
það svo mjög á hættu að verða
þekktur aftur seinna.
— Það er ég nú ekki svo viss
um, sagði Appleyard. Hár-
kollan hans er nú svo áber-
andi, að hver sem hefði einu
sinni séð hann, myndi þekkja
hann aftur.
— Einmitt, sagði Priestley. —
Það var einmitt það, sem ég átti
við. Þó að maður, sem ekki not-
ar hárkollu að jafnaði, setji
hana upp, þá er það enginn al-
mennilegur dularbúningur. Hins
vegar ef maður, sem notar hana
að staðaldri, hættir því snögg-
lega, þá gjörbreytir það útliti
hans. Utlitið verður algjörlega
eðlilegt, en bara alveg frábrugð
ið. Mig grunar, að sá sem keypti
skotin, hafi verið bersköllóttur
maður, sem tók ofan hattinn
áberandi og þerraði á sér skall-
ann með vasaklútnum sínum.
— Þetta er sennilega alveg
rétt hjá yður, sagði Jimmy. ,—
Dyravörðurinn í hótelinu í
London, ætlaði ekki að þekkja
Woodspring í fyrstu.
Priestley lét sem hann heyrði
ekki þessa framítöku. —- Það
væri aðalvandinn í því fólginn
Til sölu
Mercedes Benz 220 S árg, 1965 sjáfskiptur, vökvastýri.
Fallegur bíll. Til mála kemur að greiða bílinn með skulda-
bréfum að einhverja leyti. Líka Sunbeam Arow árg. 1970,
ekinn 6 þús. km., sjálfskiptur.
Okkur vantar nýlega bíla á söluskrá.
BÍLASALA MATTHÍASAR
Höfðatúni 2 — Sími 24540—24541.
Hoppdr. 4.b Verzlunarshólons
Vinningsnúmer:
nr. 1 1187 nr. 5 1079
—- 2 551 — 6 1252
— 3 545 — 7 821
— 4 1564 — 8 931.
Vinningshafar hafi samband við Örn Sigurðsson, sími 50408.
Hrúturinn, 31. marz — 19. apríl.
l>ér gengur vel að kynna þér ýmis málefni í dag.
Nautið, 30. apríl — 30. maí.
Staðir, sem eru langt fjarri og furðu hugmyndir eiga hug þinn
allan.
Tvíburarnir, 21. inaí — 20. júní.
Reyndu aS halda jafnvæBÍ og vera athugull. Þú ert tojartsýnn, og
misreiknar citthvað smá.vegis, en því má fljétt kippa í lag.
Krabbinn, 31. júni — 23. júlí.
Efasemdir eru úreltar. Reyndu aS fá aliar upplýsingar sem, full-
komnastar.
Ljénið, 33. júlí — 23. ágúst,
Ekki er rétt aS álíta, að öll ringulreið eigi rétt á sér. Þú ert
nógu greindur og hvatvís til að rata rétta leið út úr ógöngunum.
Meyjan, 33. ágúst — 22. september.
Þú hefur ckki beðið um neitt og ekki þegið neitt heldur, svo að
þér er óhætt að segja það, sem þú vilt. Haltu þig við það, sem þú
þekkir bezt.
Vogin, 23. septembcr — 22. oktöber.
Fjölskyldumálefni og félagsmál eru efst á baugi. Þú þarft ekki
að velja eða hafna, og þvi lítið til að kvarta undan.
Sporðdrekinn, 23. októbor — 21. nóvember.
Biddu um það. sein þú álítur þitt. Þú sérð hlutina í nýju ljési,
Bogmaðnrlnn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú þarft að leggja fyrirætlanir þínar fyrir annarra dóm i dag.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Ef þú litur í eigln barm, verður þér ljóst, að þú legðir ýmsa
gamia siði og nýja á hilluna, öllum að skaðlansu.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Það er trúlega óhentugt og óráðlegt að álíta alltaf að allir aðrir
eigi að sjá fyrir þfnum þörfum.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Segðn vinutn þinum hug þinn aiian.