Morgunblaðið - 26.05.1971, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971
3
Strandið í Sandgerði í gær
Landreisa Vaxa skipshunds
af Fjalshamri
Skipshundurinn Vaxi í bíl
blaðamanna Morgunblaðsins
biður eftir því að komast um
borð.
EINS og sagt er frá í frétt á
baksíðu var Fjalshamar, sem
strandaði við Sandgerði i gær-
morgun, að ná i skipshundinn
Vaxa, þegar óhappið varð, Um
nóttina hafði skipið siglt frá
Keflavik áleiðis suður fyrir
land, en þá tóku skipverjar eft-
ir því að skipshundurinn var
ekki um borð og var talið lík-
legast að hann hefði stolizt í
land svo litið bar á, þvi hann
hafði sézt í tygjum við mynd-
arlega tík í Keflavik daginn
áður.
Þegar blaðamenn Morgun-
blaðsins korou til Sandgerðis i
gærmorgun og höfðu spurnir
af hvarfi skipshundsins Vaxa
hringdu þeir í lögregiuna í
Keflavik og var lögreglan þá
með hund í óskilum, sem við
nánari athugun reyndist vera
Vaxi. Höfðu keflviskir drengir
komið með hundinn til lögregl-
unnar og fylgdu þeir hundin-
um í lögreglubifreiðinni til
Sandgerðis þar sem blaðamenn
irnir tóku hann að sér til þess
að koma honum út í Fjalsham-
ar á trillunni Þorra.
Heldur var greyið sultarlegt
eftir landreisuna og var því Efri mynd: Vaxi borðaftt 4 prins póló og 5 pylsur i verzlun í
farið með hann í matvöruverzl Sandgerði um hádegi. Neðri mynd: En bezf fór vim Vaxa, þog-
un i Sandgerði og keypt þar ar hann var aftur kominn í skotið sitt í brúmii á Fjalshamri.
snarl handa honum. Fyrst var Ljósm. M^- Kr- Ben.
Frá vinstri: Vaxi á leið út i Fjalshamar strandaðan í fylgd með slysavarnafélagsmönnum úr
Sandgerði. — Vaxi horfir á skipið sitt á þurru. — Skipvecjar taka Vaxa um borð og fagna
greyinu. Ljósmyndir Mbl. Kr. Ben.
boðið upp á niðurskorið hangi-
kjöt, en ekki líkaði Vaxa það,
en hins vegar borðaði hann
með beztu lyst 4 prins póló og
5 pylsur. Virtist hann þá sadd-
ur og var siðan haddið niður
á bryggju þar sem Slysavarna-
félagsmennirnir Sigurður Guð-
jónsson og Kristinn Lárusson
voru í Þorra ásamt fleiri mönn
um, sem ætluðu að ræða við
skipverja á Fjalshamri og
kamna aðstæður á strandstað.
Ekki var Vaxi fús á að fara
um borð í triiluna og tók á rás
upp bryggjuna. Hófst þá mikið
kapphlaup, sem endaði með
því að Vaxi fór um borð í trili-
una.
Skipverjar á Fjalshamri fögn
uðu Vaxa, þó að þeim hafi ugg
laust verið svolitið súrt til hans
Framhald á bls. 11
um allt land
fljótt þægilegt og ódýrt
Allir vita að flugferð er fljótleg og þægileg, en sumir halda enn,
að ódýrara sé að aka. Samkvæmt nýjustu útreikningum F.Í.B.
kostar 120 þúsund krónur á ári að reka lítinn einkabíl miðað við
16 þúsund kílómetra akstur. Það þýðir kr. 7,50 á hvern km.
Berum kostnáðinn saman við flugfargjöld:
EINKABIFREIÐ FLUGFARGJALD
Til Akureyrar eru 448 km um 6.600 kr. báðar leiðir 3.140 kr. báðar leiðir
Til ísafjarðar eru 536 km um 8.000 kr. báðar leiðir 2.920 kr. báðar leiðir
Til Egilsstaða eru 730 km um 11.000 kr. báðar leiðir 4.280 kr. báðar leiðir
Og það er bara einn í fjölskyldunni sem greiðir fullt fargjald,
aðrir fjölskyldumeðlimir hálft gjald.
Hjón með tvö börn, 2—12 ára, greiða þá aðeins 6.280 kr. báðar
leiðir milli Reykjavíkur og Akureyrar og 8.560 báðar leiðir milli
Reykjavíkur og Egilsstaða. Fjölskylduafsláttur er í gildi allt árið.
Flugið slítur hvorki fólki né bíl, sparar tíma, léttir ferðina.
^FLUGFÉLAG ÍSLANDS
STAKSTEINAR
Ungt afturhald
Kappræðufundur ungra sjálf-
stæðismanna og ungra fram-
sóknarmanna bar órækan vott
um stöðnun og stefnuleysi Fram-
sóknarflokksins. Ljóst virðist, að
ungu mennirnir innan Fram-
sóknarflokksins hafa nú gefizt
upp og eru nú dyggir fylgisvein-
ar afturhaldsins. EUert B.
Schram minnti á það í upphafs-
ræðu sinni á fundinum að ungir
menn úr báðum þessum flokk-
um hefðu deilt á staðnaða
stjórnmálastarfsemi og þvi gæti
íundurinn orðið prófsteinn á
málefnalegar stjórnmálaumræð-
ur. Ræður ungu framsóknar-
mannanna einkenndust hins
vegar af uppdöguðu stjórnmálá-
karpi og sífelldum tUraunum til
þess að blása upp íhaldsgrýlu.
Ekkert gat betur lýst einhuga
samstöðu þeirra með ráðandi
afturhaldsöflum í Framsóknar-
flokknum. Sú skelegga barátta,
sem ungir framsóknarmenn hófu
á þingi sinu í fyrrahaust, hefur
nú gjörsamlega hjaðnað niður.
Á kappræðufundinum í fyrra-
kvötd lýsti Baldur óskarsson því
yfir, að unga fólkið myndi styðja
unga framsóknarmenn; val þess
væri auðvelt. Á þessari stundu
virðist Baldur óskarsson hafa
gleymt einnig megin orsök inn-
anflokksbaráttu ungra fram-
sóknarmanna. Þegar Framsókn-
arflokkurinn hafði gengið frá
framboðslistum sínum í fyrra
sumar, kom í ljós, að nær engin
endumýjun hafði átt sér stað
og ungir framsóknarmenn kom-
ust hvergi í tryggt sæti. Það
voru því eðlileg viðbrögð ungra
framsóknarmanna í fyrra haust
að hefja baráttu gegn afturhald-
inu í Framsóknarflokknum, sem
bælt hafði hreyfingu þeirra nið-
ur. En það eru dapurleg örlög,
þegar þessir hinir sömu ungu
menn kikna enn á ný undan oki
afturhaldsins tæpu ári eftir að
þeir risu upp og ætluðu að koma
breytingum til leiðar. Unga
fólkið í landinu gétur því ekki
skipað sér i raðir Framsóknar-
flokksins, nema það kjósi aftur-
haldið að Iífsskoðun; því trúa þó
engir aðrir en ungir framsókn-
armenn.
Nýtt flokkakerf?
Baldur Óskarsson lýsti því
einnig hátiðlega yfir á þessum
fundi, að ungir framsóknar-
menn hefðu Iagt grundvöll að
nýju flokkakerfi á íslandi. Hér
á Baldur við samvinnu ungra
framsóknarmanna og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna.
Það er athyglisvert, að ungir
framsóknarmenn skuli telja
þetta grundvöll að nýju flokka-
kerfi og nýsköpun stjóramál-
anna. Samtök frjálslyndra og
vinstri manna eru stofnuð sem
kosningavél utan um Hannibal
Valdimarsson og Björa Jónsson
vegna persónulegra pólitiskra
hagsmuna þeirra. Enginn stjórn-
málaflokkiir hefur viðhaft upp-
dagaðri og úreltari vinnubrögð
í flokksstarfi og í engum öðr-
um f'lokki hafa hrossakaup og
skúmaskotabarátta verið meira
ráðandi við ákvörðun framboðs-
lista.
Það er því táknrænt fyrir
unga framsóknarmenn, að þeir
skuli nú telja samstarf við þessl
iippflosnuðu samtök gnmdvöll
nýs flokkakerfis. Fátt sýnir bet-
ur, hvemig gamla Framsóknar-
afturhaldinu hefur tekizt að ná
tangarhaldi á ungu mönnunum i
flokknum, mönnum, sem fyrir
tæpu ári sýndu a.m.k. í orði þá
djörfnng að hyggja á breyting-
ar innan Framsóknarflokksins.
Þegar svo er komið, er ekki
nema að vonum, að Tómas Karls-
son skuli hafa gefið sér þá stað-
reynd á fimdinum, að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi vinna einn
mann í Reykjavík.
<
*