Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971
FyrrverancU heimkynni kúnna í Saltvík breyta nú mikið
um svip og verða notuð sem setustofa framvegis (Ljósm.
Ólafur Jensson).
„Saltvík 71“ undirbúin:
Fjósið skiptir um
svip og hlutverk
UNDIRBÚNINGUR fyrir
Saltvík 71 stendur nú sem
hæst, Um helgina unnu fé-
lagar úr Kiwanisklúbbnum
Esju við að breyta fjósinu i
Saitvík í viðkunnanlega setu-
stofu. Haganlega útbúnum
sætum hefur verið komið
fyrir i básunum og flórinn er
orðinn fagurgrænn. Hafði
einhver sem kom inn í fjósið
orð á því, að þetta væri
snyrtilegasti flór, sem hann
hefði séð. Olíulampar lýsa
upp básana og mjólkurbrús-
ar, sem lokið hafa sínu rpp-
runalega hlutverki eru not-
aðir sem rusladallar í setu-
stofunni. Gunnar Ingibergs-
son húsgagnaarkitekt átti
hugmyndina að þessum
breytingum á fjósinu í Salt-
vík, en vinnan við breyting-
una tók félaga úr Esju þrjá
dagparta.
Kiwanisklúbburinn Esja er
tæplega eins árs gamall og
hefur það að meginmarkmiði
að vinna fyrir æskuna. Klúbb
félagar eru 30 talsinis, en for-
seti er Ólafur Jensson.
Karlakórinn Þrymur.
Karlakórinn Þrymur í söngför
LAUGARDAGINN 29. maí held-
ur Karlakórinn Þrymur á Húsa-
vik í söngför til Suðurlandsins.
Þá um kvöldið heldur kórinn
fyrstu söngskemmtunina í Borg-
amesi. Á hvítasunnudag syngur
kórinn í Selfossbíói kl. 5 síðdeg-
Is. Um kvöldið verður haldið til
Vestmannaeyja en þar verður
sungið á annan dag hvítasunnu.
Siðasta söngskemmtunin verður
svo þriðjudaginn 1. júní i félags
hefmilinu á Seltjamamesl. —
Þrymsfélagar hafa æft vel að
undanförnu en síðastliðin tvö
ár hefur kórinn haft stjórnanda
frá Prag.
Haustið 1969 réðust til Húsa-
víkur hjónin Vera og Jaroslav
Lauda til tónlistarkennslu. Þau
hafa kennt við Tónlistarskóla
Húsavíkur og auk þess hefur
Jaroslav stjórnað kariakórnum
og Lúðrasveit Húsavíkur. Frú
Vera hefur annazc allan undir-
leik hjá Þryxn. Dvöl þessara
tékknesku hjóna hefur verið tón
listarlífi í Húsavík mikil upp-
lyfting. Á söngskrá Þryms að
þessu sinni eru bæði erlend og
innlend lög. Mörg þeirra eru í
útsetningu söngstjórans og skal
sérstaklega vakin athygli á þjóð
lagaútsetningu hans. Siðast fór
karlakórinn í söngför til Vest-
fjarða. Var það vorið 1965.
í kórnum eru 38 söngmenn.
Stjórn kórsins skipa: Hjörtur
Tryggvason formaður, Haukur
Haraldsson ritari, Þorsteinn Jóna
son gjaldkeri.
Frá vinstri: Bjarni Bjarnason læknir, formaður Krabbameins-
félags fslands; Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafé-
Iagsins Dagsbrúnar, og Sigurður Samúelsson prófessor, for-
maður Hjartaverndar.
Istanbul:
Sinfóníuhlj óms veitin:
Japanskur einleikari
leikur á fiðlu
NÆSTU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á þessu
starfsári verða haldnir fimmtu-
daginn 27. maí kl. 21.00 í Há-
skólabiói. Stjórnandi verður
Mayumi Fujikawa.
Bohdan Wodiczko og einleikari
Mayumi Fujikawa fiðluleikari
frá Japan. Á efnisskrá er sin-
fónía nr. 6, „Pastoral-sinfónían",
eftir Beethoven og fiðlukonsert
í D-dúr eftir Tsjaikovský.
Mayumi Fujikawa fæddist ár-
ið 1946 í Japan, þar sem hún í
fyrstu nauit kennslu föður síns,
en sáðar prófessoran na Soh og
Sai'to við Tónl ist.a rskóiann i
Tokyo. Hún var á meðal þeima
fyrstu, sem urðu „Alex de
Vries“jstyrksins aðnjótandi, svo
að hún gat gerzt nemandi Franz
Wigys prófessors við Tónlistar-
skólann í Antwerpen, þar sem
hún útskrifaðist með framúr-
skarandi vitnisburði. Árin 1968
og 1970 var hún nemandi Leon-
ids Kogians í Niee, og vakti
mikla aithygli er hún hlaut 2.
verðlaun á alþjóðleg’u tónlistar-
keppninni í Moskvu, Tsjaiik-
ovský-keppninni, 1970. Mayumi
Fujikawa hefur haldið fjölda
tónleika síðan hún hilaut verð-
launin í Moskvu, m. a. í Sovéf-
rikjunum, Belgíu, Holllandi,
Frakklandi, Þýzkalandi og Jap-
an. Nýlega hélt hún fyrstu tón-
leika sina í Bandaríkjunum með
Mjómsveitinni í Filadelfíu undir
stjóm Eugene Onmandy og hlaut
þar frábærar móttöfcur.
Lokatónleifcar SinifóniuiMjóm-
sveitar Islands á þessu starfsári
verða haldnir í Háskólabíói mánu
daginn 31. mai og hefjast kl.
20.30. Stjórnandi er Böhdan
Wodiczko og einleikari verður
þýzki píanóieikarinn Wilhelm
Kempff, sem leifca mun ptanó-
konserta efitir Bach og Mozart.
Vinstri beygj-
ur bannaðar
— á mótum Kringlumýrar-
brautar og Sléttuvegar
UMFERÐARYFIRVÖLD hafa
bannað allar vinstri beygjur á
gatnamótum Kringluniýrarbraut
ar og Sléttuvegar á þeim for-
sendum að þar hafi orðið mjög
harðir árekstrar hvað eftir ann-
að. Hafa gatnamót þessi valdið
töluverðum áhyggjum, en er nú
búizt við að eitthvað lagist.
Mbl. hafði i gær tal af Gutt-
ormi Þormar, yfirverkfræðingi
og kvað hann braut sem Krimglu
mýrarbraut í raun ekki gefa til-
efni til silitora gatnamóta sem
þessara. Sléttuvegurinn hafi
verið hugsaður sem bráðabirgða
lausn á meðan Bústaðavegur-
inn er ekki kominn vestur yfir
Kriglumýrarbraut á brú. Bkki
kvað Guttormiur þess að vænta
fyrir en a. m. k. að þremur árum
liðnum.
Guttoimur kvað enn eniga um-
ferðahnúta haía myndazt vegna
þessara ráðstafana, en þær
myndu eflaust þynigja eiitthvað
umferð á gatnamótum Mikta-
brautar og Kringluimýrarbraut-
ar og eins umferð um Hamra-
hlíð.
Mann-
ræningi
gripinn
Istanbul, 25. maí. AP.
SAMKVÆMT óstaðfestum heim
ildum AP-fréttastofunnar var í
dag handtekinn í Istanbul, einn
þeirra níu manna, sem hvað
mest hefur verið leitað að,
vegna ránsins og morðsins á ísra
elska ræðismanninum Ephraim
Elrom. Maðurinn, sem var hand-
tekinn í dag, Nahit Tore, er 24
ára gamall og nemur hagfræði.
Hann er félagi i TPLA, tyrk-
neska „frelsishernum“ og er
hann sagður hafa verið meðal-
göngumaður milli þeirra sem
rændu Elrom og þeirra, sem tóku
síðan að sér að myrða hann.
Dagsbrúnarmenn gefa
200 þúsund krónur
Þakklætisvottur fyrir
heilsugæzlustarf
Vilja koma upp
Decca-kerfi
strax
Á FUNDI í skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Öldunni sem hald
inn var 15. maí sl. var fjallað
um Decca kerfið, svonefnda. —
Lýsti fundurinn furðu sinni á
störfum nefndar, sem skipuð
var fyrir mörguni árum og átti
að athuga uppsetningu staðar-
ákvörðunarkerfis við strendur
íslands, Decca-kerfis.
1 fréttatiilkymiiinigu frá Öld-
uuni kemur fram að niefndin hef
ur ekki skilað áliiti þrátit fyrir
marg iitrekaðar kröfur. Krafðist
fundurinn 15. maí sd. að nefndin
verði þegar í stað látin Ijúka
sitönfum og hafizt verði handa
strax við að korna upp staðsetm-
inigafcerfi (Decoa) sem nái út
fyrir landgrunnið. Loks benti
fundurinn á að bætt aðstaða til
gtaðsetningar skipa, verður að
tooma við útfærslu landhelginn-
ar.
HINN 21. apríl sl. voru forsvars-
menn Hjartaverndar og Krabba-
meinsfélags fslands kvaddir á
íund forystumanna Dagsbrúnar
og Styrktarsjóðs Dagsbrúnar-
manna, og hvoru féiagi um sig
afhent hundrað þúsund króna
gjöf, í tilefni af 10 ára afmæli
styrktarsjóðsins á þessu ári, sem
þakklætisvott fyrir gott heilsu-
gæzlustarf í þágu almennings á
undaniörnum árum.
Prófessor Sigurður Samúels
son, formaður Hjartaverndar, og
Bjanni Bjartn.ason, læknir, for-
maður Krabbamemsfélags Is-
lands, þökkuðu fyrir hönd fé-
laga sinma þessa höfðinglegu og
góðu gjöf og, eiras og prófessor
Sigurður komist að orði, ekki síð-
ur þanm hlýhug, sem gjöfunum
fylgdi.
Albert í
höfn í
sumar
VARÐSKIPIÐ Albert mun liggja
í Reykjavíkurhöfn í sumar, en
Landhelgisgæzlan leggur venju-
lega einhverjum af skipum sín-
um yfir sumartimann. Að sögn
Péturs Sigurðssonar, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar, er ekki
þörf á að hafa öll skipin úti þeg-
ar vertíð lýkur á vorin og er þá
unnið að viðgerðum og viðhaldi
skipanna og áhöfninni gefið sum
arfrí. Sagði Pétur að til greina
kæmi að fleiri skipum yrði lagt
i sumar, en ekki væri búið að
taka endanlega ákvörðun um
það.
Albert kom til hafnar í Reykja
I vík um helgina.