Morgunblaðið - 26.06.1971, Page 2

Morgunblaðið - 26.06.1971, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNf 1971 A 1 — Stjórnar- myndun Framhald af bls. 28 þessum viðræðum segir m.a.: „1. Við myndun ríkisstjórnar ber eftir mætti að forðast úti- lokun hluta þeirra afla, sem eiga heima í sameiginlegum stjórn- málasamtökum jafnaðar- og sam vinnumanna. 2. Ákjósanlegast væri, að vænt anleg ríkisstjórn byggi við sem traustastan meirihluta, svo að tryggður sé framgangur þeirra umfangsmiklu aðgerða, sem framkvæma verður. Af þessum ástæðum telur þing flokkurinn nauðsynlegt, að Al- þýðuflokknum verði boðin þátt- taka í þeim viðræðum, sem nú eru að hefjast og flokksstjórn Alþýðuflokksins ritað viðeig- andi erindi þar um. Auk framangreindra atriða vill þingflokkur Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna taka fram, að útilokað sé að hann geti staðið að myndun rikis- stjórnar án þess, að fyrst fari fram úttekt á þeim efnahags- vanda, sem fráfarandi rikis- stjórnarflokkar skilja eftir sig og ýtarlegur málefnasamningur verði gerður um lausn þeirra vandamála. Þingflokkur samtak- anna leggur því, til, að nú þeg- ar verði tilnefndir menn til þess að kanna ástand og horfur efna- hagsmálanna. Við athugun þessa verði tekið fullt tillit til þeirrar óhjákvæmilegu nauðsynj- ar að auka stórlega kaupmátt launa Iáglaunafólks, bæta al- mannatryggingar og afnema skatta af þurftarlaunum og söluskatt af brýnustu lífsnauð- synjum. Að sjálfsögðu mun þingflokk- ur samtakanna eða fulltrúar hans gera frekari grein fyrir ýmsum stefnumálum sínum i framhaldandi viðræðum flokk- anna, svo sem varðandi brott- för bandaríska varnarliðsins o. fl. málefnum, sem hann tel- ur nauðsyn á að fjallað sé um í hugsanlegum stjórnarsátt- mála.“ ÓLAFUB JÓHANNESSON Morgunblaðið hafði i gær sam- band við Ólaf Jóhannesson og spurðist fyrir um gang viðræðn- anna; hann sagði: „Viðræðurn- ar eru hafnar og stóðu yfir í allan dag. Tíminn að undan- förnu hefur verið notaður til að afla ýmissa upplýsinga, en frek- ari athugun mun fara fram um helgina á ýmsum gögnum." Að- spurður um það, hvort tilboðið til Alþýðuflokksins þýddi, að hugmynd hans um þriggja flokka stjórn stjórnarandstöðu- flokka væri úr sögunni, sagði Ólafur Jóhannesson: „Nei, en við teljum æskilegt, sérstaklega með tilliti til landhelgismálsins, að það sé sem breiðastur grund- völlur undir ríkisstjórn. Við höfum alltaf lagt áherzlu á sem mesta þjóðareiningu um land- helgismálið." — Er þá tilboðið til Alþýðu- flokksins til komið vegna land- helgismálsins? „Það má segja, að það sé svo að þessu leyti, annars má rekja það til tillögu Hannibals. Það er byggt á því, að Alþýðuflokkur- inn geti átt samleið um mörg þau mál, sem þessir flokkar leggja nú áherzlu á.“ HANNIBAL VALDUVIARSSON Morgunblaðið hafði einnig samband við Hannibal Valdi- marsson í gær og bað hann að skýra viðhorf sitt eftir viðræð- umar, sem nú hafa farið fram. Hann sagði: LESIO .... "■■IIMiHBW? lakmartanir á í DHOIECn „Þetta er byrjun á viðræð- mn. Við höfum ekki enn feng- ið svar við okkar eindregnu óskum um, að Alþýðuflokknum verðl boðið til viðræðnanna. En hins vegar fengu tilmælin þær jákvæðu undirtektir, að Alþýðu- flokknum var ritað bréf í dag og þess óskað, að hann tæki þátt í viðræðunum." — Er þátttaka Alþýðuflokks- ins úrslitaskilyrði af ykkar hálfu? „Nei, þátttaka hans er ekki úrslitaskilyrði, en við lögðum á það þunga áherzlu, að Alþýðu- flokknum yrði boðið án skil- yrða.“ — Þú hefur lýst því, að i for- ystu Alþýðubandalagsins sitji einungis kommúnistar. Er það einhverjum erfiðleikum háð fyr- ir ykkur að taka sæti í rikis- stjóm með Alþýðubandalag- inu? „Við höfum ekkert gert ann- að en að taka þátt í viðræðum um myndun vinstri stjómar og leggjum áherzlu á, að að henni geti staðið fjórir flokkar." BAGNAB AKNALDS Ragnar Arnalds sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær: „Viðræðurnar eru á byrjunar- stigi; það er ekkert hægt að segja um þær að svo stöddu.“ — Var Alþýðuflokknum boð- in þátttaka vegna kröfu SFV? „Já, en við alþýðubandalags- menn höfum verið ótvirætt já- kvæðir gagnvart því, að Al- þýðuflokkurinn taki þátt í þess- um viðræðum. En við töldum, að þessir þrír flokkar ættu fyrst að ganga úr skugga um, hvort þeir gætu staðið saman að málinu, en síðan væri rétt að leita til Alþýðuflokksins, eftir að möguleikar á stjórnarmynd- un hefðu verið kannaðir.“ — Þýðir þetta tilboð til Al- þýðuflokksins þá, að stjórn þriggja flokka stjórnarandstöð- unnar sé úr sögunni? „Nei, það þýðir það ekki. Það var nokkur ágreiningur um vinnubrögð, en þó að þessi hafi orðið niðurstaðan og þó að Al- þýðuflokkurinn svari neitandi, er víst, að viðræðurnar halda áfram.“ Skipaðar hafa verið undir- nefndir, er vinna munu að könnun einstakra mála í dag, laugardag, en næsti sameigin- legi viðræðufundur fulltrúanna verður á sunnudag kl. 18. Frá lagningu hornsteinsins. Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagnsstjóri, ávarpar viðstadda gesti. Homsteinn að bækistöð Rafmagnsveitu Rvíkur 1 GÆR lagði borgarstjórinn í Reykjavik homstein að bæki- stöð Rafmagnsveitunnar við Ár- múla. Lengi hefur staðið til að byggja yfir starfsemi Rafmagns veitunnar, en hún rekur starf- semi sína að mestu í leiguhús- næði. Þ. 22. júlí 1969 úthlutaði borgarráð Reykjavíkur Raf- magnsveitunni lóð undir bæki- stöð sína við Suðurlandsbraut 34 og Ármúla 31, og er hún um 26.000 ferm. að stærð. Ákveðið var, að fyrsti áfangi byggingaframkvæmda yrði hús- næði fyrir birgðageymslu, verk- stæði, mælastöð og aðstaða fyr- ir vinnuflokka, ásamt rými fyr- ir bifreiðar og vinnutæki, en þar var þörfin brýnust fyrir bætt húsnæði. Við það flyzt öll starfs semi, sem nú hefur aðsetur sitt að Barónsstig 4, i nýju bæki- stöðina. Fljótlega var hafinn undir- búningur að framkvæmdum og samið við arkitektana Guðmund Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, leggur hornsteininn Bafmagnsveitu húsinu. að nýja Kr. Kristinsson og Gunnlaug Halldórsson um uppdrætti að byggingunum. Almenna bygg- ingafélagið h.f. sá um jáma- teikningar, Verkfræðistofa Guð- mundar og Kristjáns um teikn- ingar hita-, vatns- og hreinlæt- islagna, Rafteikning s.f. annað- ist raflagnateikningar og Þor- varður Jónsson uppdrætti af fjarskiptalögnum. Reynir Vil- hjálmsson garðarkitekt sá um verklýsingu á frágangi lóðar. Kaffi orsök blödru- krabba? London, 25. júní. AP. BANDABÍSKIR vísindamenn hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að kaffidrykkja sé sennilega ein af helztu orsökum krabbameins í blöðru. Kemur þetta fram í grein í brezka læknaritinu LANC ET og segir þar ennfremur, að konum sé miklu hættara við blöðrukrabba en körlum. Ræða tengingu geimfara Houston, 25. júní. NTB—AP. I DAG lauk í Houston í Texas viðræðum sovézkra og banda- rískra sérfræðinga um ýmsar tæknilegar breytingar, sem gera þarf á geimförum beggja til þess að unnt sé i framtíðinni að tengja þau saman á geimferðum. Viðræður þessar fóru fram í þremur starfsnefndum og lögðu talsimenn nefndanna niðurstöðum ar síðan fram og báru saman bækur sínar. Er þetta liður í ráð- stefnu geimvisindamanna, sem standa á yfir þessa viku, en í henni taka þátt 22 Bandaríkja- menn og 18 Rússar. Að gefnu tilefni 1 MAlHEFTI rifsins „Spegillinn“ þessa árs birtist grein, sem mér hefur verið eignuð. Eift vi'kublað anna hér lét að því liggja, að þessi ritsmið væri eftir mig. Hef ég orðið fyrir hálfgerðum leið- indum af þessum áburði. Að gefnu tilefni verð ég að koma þvl hér á framfæri, að ég teldi það vafasaman heiður fyr- ir mig að vera höfundur að rit- smíð sem þessari, þar sem vegiS er úr launsátri og til þess eins, að manni skilst, að veita „grjófa- þorpslegri" illgimi og öfund út- rás. Með þökík fyrir birtirtguna. Steingrimiir Sigurðsson. Otboð á jarðvinnu fór fram i maíbyrjun 1970, og var samið við Hlaðbæ h.f., sem hóf fram- kvæmdir á lóðinni í júní. Útboð á byggingaframkvæmd- um I. áfanga bækistöðvarinnar, sem áætlaður er 21.897 rúmm- að stærð, fór fram í september, og var tekið tilboði Istaks h.f. Ráðgert er, að þessum áfanga verði lokið í febrúar 1972. Bygging fyrir starfsemi ann- arra deilda Rafmagnsveitunnar mun fara fram siðar, en undir- búningur er hafinn. Tómas Á. Tómasson. Nýr sendi- herra — og tveir skipta um staði BLAÐINU barst í gær eftirfar- andi fréttatilkynning frá ufanrík- isráðuneytinu: Hinn 10. júni var Guðmundur 1. Guðmundsson leystur frá störf um sem sendiherra í London. Hon um hefur verið falið að taka við starfi sendiherra í Washinig'ton. Sama dag var Niels P. Sigurðs- son leysitur frá störfum sem sendiherra hjá Atlantshafsbanda- laginu. Honum hefur verið failið að taka við starfi sendiherra í London. Sama dag var Tómas Á. Tómasson leystur frá störf- um sem skrifstofustjóri í utan- ríkisráðuneytinu. Honum hefir verið falið að taka við starfi sendiherra hjá Atlantshafsbanda laginu. Ofangreindar breýtingar eru miðaðar við 1. ágúst 1971. U tanrikisráðuneytið, Reytkjaví’k, 25. júní 1971. ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.