Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNl 1971 11 sögðu Att við bæinn Ai-narhói, se* *m stóð nálægt því, þar sem Ingólísstyttan er í dag); þar er »ú græn þúfa og sönn bæjar- prýði að. Nú eru aftir kotin að fjölga upp í holtunum, að sama skapi sem húsin á fletinum. Væri nær að úthluta þeim, sem þurrabúðdr vilja reisa þar í nánd, svæði einhvers staðar við sjóinn, öllum saman, svo þar af mætti verða fiskimainna- þorp, sem minnd væri óprýði að. Sýnist mér þeir, sem slóra svo margan dag hvort sem er, og eru að slabba um strætin með hendur í vöeum, eða styðjast fram á búðarborðið í brenni- vínssníkjum, ekki vera of góðir til að aka þangað steinum tii bæjargjörðar. En ekki er held- ur fullnægt fegurðarinraar kröf um í bænum sjálfum: nýju hús- unum er hróflað upp öldungis í blindni, án nokkurrar að- gæzlu á því, hvað laglegast sé, eða haganlegast verði síðar meir þegar þrengjast fer. Nýja strætið (Langastétt)1), sem gengur j afnaíðis StröndinniZ) (ef við eigum að dirfast, að kalla röndina með sjónum einis og fjölfarnasta strætið í Lund- únaborg) mátti verða failegt stræti, því konungsgarðurinn?) blasti rétt á móti þvi, en þegar vestureftir dregur hefur tekizt svo ólaglega tál, að það beygist allt til hægri handar ndður und ir hús Jóms Gíslasonar4) sæll- ar minningar. Bæjarmenn segja að öðru hafi ekki orðið við kom ið, því gamla húsið hans Thor- oddsensS) hafi orðið að ráða Stefnunni; en þar var hægt úr að ráða: láta strætið halda sinni stefnu eftir sem áður, og húsið fyrst um sinn lenda þar sem verkast vildi, því nærri má geta, að það sem nælt er sam- an úr fjölum muni einhverntíma trosna, og var þá kostur að þoka hússtæðinu þangað, sem vera bar, er byggja skyldi í ann að sinn. Svo er ævinlega með farið, þegar menn vilja ná bugðum af strætum. Þar að auki er strætið of mjótt þegar vestur eftir dregur. ímyndaðu þér þessa götu beina, og tvær aðrar jafnsíðis henni eftir endilöng- um Austurvelli, en þessar aftur þverskornar af öðrum þremur neðan frá sjó og uþp undir tjörn, — þó það sé nú einnig aflaga borið, þar eð húsdn á Austurvelli, svo fá sem þau eru, siysast þó til að standa þvert fyrir öllum þeim, sem þessi stefna hefði átt að vera ætluð; ímyndaðu þér kauptorg upp frá sjónum fyrir miðri ströndinni, og annað torg fallegra, með norð urvegg kirkjunnar á eina hlið, og til hinna þriggja: háskóla menntabúr og ráðstofu, en á miðju torgmu heiðursvarða þess manns, er slíku hefði til leiðar komið; setlu enn framar suður með tjöminni að austanverðu skemmtiigöng, og kirkjugarð hinu megin suranan til á Hólia- vélli — og þá sérðu, hvemig mig hefir dreymt að Reykjavík eigi að líta út einhvern tíma.“ Við sjáum, að þarna kemur fram hugmyndin um aðaltorg í Reykjavík eiras og um var rætt inngangi Ferðabókaríninar. is hefði til hugar komið, að Tóm as tryði einu orði af þvi, sem hann lét þarna flakka, mundu flestir fyrst af öliu hafa hugsað, að hið mikla ferðalag hefði gert haran alveg óðan. Þeir urðu að minmsta kosti orðlausir. Svo víða sem Fjölnis er getið, ýmist til ills eða góðs, veit ég ekki til, að neinum samtíðarmannd fynd ist taka því að brigzla Tómasi um þessa höfuðóra, hvað þá að samsinna þeim. En hvað hefur Tómas hugsað sjálfur, þegar hann skrifaði þetta? Hann kallar það draum um það, sem eigi að verða ein- hvern tíma. Hann vissi, að „í upphafi var orðið“, hugmyndir eru til alls fyrstar. En hann hef ur vafalaust búizt við, að þessa yrði langt að bíða, líklega enn lengra en raun hefur orðið á. Það má sem sé hédta furðulegt, hvað margt af þvi hefur komið bókstaflega fram, sem áfang ar á lemgri leið. Vera má, að Tómas hafi heýrt að tii stæði að koma upp nýjum kirkjugarði suður með Tjörn í stað gamla garðsins við Aðal- strætti. Þetta var gert einum fjórum árum síðar, enda ekki mikið stórræði. Hugmyndin um skemmtigöng við Tjörnina komst ekki í framkvæmd fyrr en á 20. öld. Kauptorgið upp frá sjónum er enn ekki til og vafa- samt, að um það verði hugsað1). Veðráttan hér er ekki hentug fyrir verzlun undir beru lofti. En litum nú á hitt torgið, fal- lega torgið, sem Tómas kallar, og hvað þar hefur gerzt. Þetta torg, fyrir norðan kirkjunar, er vitaniega Austur- völlur. Tómas hvorki dreymdi né vildi láta sig dreyma um, að Alþingi yrði aranars staðar en á Þingvelli, hvenær sem það yrði endurreist. En nú fór svo, að þingið var sett I Reykjavík, og þegar það loks eignaðist sitt eigið hús, var það við Austur- völl. í Alþingi'shúsinu var síð- an á árunum 1882—1908 mennta búrið (Landsbókásafn, sem á dögum Tómasar hét Stiftsbóka- safn) og reyndar um tíma bæði forngripasafn og landsskjalasafn. Og í sömu húskynnum við Aust urvöli var Háskóli íslands meira en heíming þess tíma, sem hiann hefur starfað, 1911—-1940. ítáð- stofan, ráðhús Reykjavikur, er ekki risin upp en/n þá. En svo skrýtilega yill til, að aðalskrif- stofur borgarinnar eru nú í húsi Reykjavíkur Apóteks, við Aust- urvöll, þótt það húsnæði sé til bráðabirgða eins og safnarana og háskólans á sinmi tíð. Og hvað þá um heiðursvarðaran á miðju 1) Þess má þó geta, að Rosen örn stiftamtmaður gaf út auglýsingu 20. febrúar 1849 þess efnis, að haldinn skyldi markaður tvisvar á ári á Lækjartorgi. Þótt ekki yrði úr framkvæmd, *ýnir það þó, að hugmynd Tómasar um kauptorg hef ur ekki verið nein fjar- stæða. — P.L. Páll, Briem torginu? Jú, þar stendur nú stytta Jóns Sígurðssonar. Eins og margir muna, var hún fyrst reist fyrir framan Stjórnarráðs húsið, En 1932 var hún flutt þangað, sém hún er nú. Tómas Sæmundsson sá það betur 1834 en aðrir 1911, að heiðursvarði þjóðiskörungsáns átti heima á miðjum Austurvelli — og hvergi nema þar.“ FYBSTU LAGAÁKVÆBIN UM SKIPULAGSMÁL Þess var áður getið, að Páll Melsted þakkaði þeim Ulstrup bæjarfógeta og Krieger stift- amtmanni, að hér skyldi stofnuð byggingarnefnd árið 1839. Það mun rétt vera, að þeasír menn hafi þar átt góðan hlut að máli. Þegar árið 1833 hafði Kriegeir farið fram á það, að settar yrðu hér reglur um byggingarmálefni. Mun hvort tveggja hafa vakað fyrir honum að koma meiri reglu á það, hvernig bærinn byggðist og þá ekki síður að fá sett ákvæði til að spoma við brunahættu. Embættiskvörnin malaði hægt í þá daga ekki síð ur en nú, og þegar ekkert hafði gerzt árið 1836, var málið lagt fyrír hina nýstofnunðu bæjar- stjórn — fyrsta fund hennar. Það var þó ekki fyrr en 29. maí 1839, að markinu var náð. Þanra dag gaf Friðrik konungur sjötti út „Opið bréf um stofnun byggingarnefndar í Reykjavík“. Bjarni Thorarensen, er var mik ill aðdáandi þessa konungs, sagði um hann:. „ . . . skjöldunginn ísland á einn allra, sem reyndist því beztur, og sem því til hjálpar hve'rgi var seiran . . o.s.frv. Það mátti þó varla tæpara standa, að konungur yrði of seirm að gefa út þetta opna bréf, því að haran safnaðist til sirana feðra nokkrum mánuðum siðar, og mun bréf þetta einraa síðast af hans velgerningum við íslendinga. í inngangi bréfsiras, sem gefið var út af eiravaldskonungi og hefur því óvéfengjanlegt laga- gildí, kemur fram, að megin- markmið með því er „að afstýra húsbrunum.“ Jafnframt eru þó settar reglur um skipulag, lóða máf og húsagerð. Sigurður Giiðnmndsson í 1. gr. er mælt fyrir um skip un byggingarnefndarkinar, og eiga þar sæti „býfógetinn", „elds varnarforstjórinn“, tveir bæjar- fulltrúar skipaðir af amtmarani eftir tillögu bæjarstjórnarinnar og aðrir tveir skipaðir af amt- manni án tilnefningar, en stefna skal að því „að nefna menn, er skynbragð bera á húsasmíði, þeg ar slikir til eru.“ Af þessu síðaat nefnda má ráða, að Friðrik kon ungur hafi talið heldur þuran- skipaða sveit húsasmiða í Reykjavík á vordögum 1839, en vissulega voru þeir þó til. Um verkefni byggingarnefnd- arinnar segir meðal annars á þessa leið: „í sameiningu hér með uppá leggst það nefndinni, til þess að staðurinn eftirleiðis geti byggð ur orðið eftir vissu uradirlagi, með amtsiras samþykki, að ákvarða, hvar þau auðu pláss og strætira eiga að grundvall- ast.“ Þetta eru, að ég ætla, fyrstu lagaákvæði, sem hér voru sett um skipulagsmál. Þau munu formlega hafa gilt alít til 1921, en Oþna bréfið frá 1839 gllti að hluta allt til ársíns 1944. Bygg- ingamefnd Reykjavíkur er þvi með allra elztu nefndum hér í borg og hér á landi. Raunar veit ég ekki til, að hér finnist eldri nefnd nema sáttanefndin, sem stofnuð var með tilskipun 1795. Skipuiagsuppdrættir voru háðir samþykki byggingarnefnd ar allt til ánsiras 1965, er núver- andi byggingansamþykkt tók gildi. STÖRF BYGGINGARNEFNDAR A» SKIPULAGSMÁLUM Til eru allar gerðabækur byggingarnefndar frá fyrsta fundi til þessa dags. Er þar að firana ómetanlegar upplýsingar um byggingu Reykjavikur frá 1840 til okkar daga. Ekki verður séð, að byggingar nefndira hafi nokkurn tíma, með an hún fór ein með skipulags- mál, gert ráð fyrir heildarskipu lagi bæjarins af raokkru tagi. Yfirleitt lætur hún sér nægja að leysa úr aðkallandi vanda- málum, ákveða legu einnar og eiinnar götu í senn, eftir þvi sem þörf krafði. Ákvörðunarvald um lagningu gatna, þ.e. hvort og hvernig HUGMYNDIRNAR HAFA ORÐIÐ AB VERULEIKA Merkilegt er það, hvað þessar hugmyradir Tómasar hafa kom- ið fram. í ræðu, sem dr. Sigurður Nor dal flutti í sambandi við 50 ára afmæli Háskólans, gerði hann ritgerð Tómasar að umræðuefni. Þar aegÍT m.a.: „Ef nokkrum lesendum Fjölra 1) Austurstræti. 2) Hafnarstræti. 3) Stjómarráðishúsið. ' 4) Hús Jóns stóð nálægt horni • AustunstTætis og Aðalstræt is horðanmegim. 5) Þar reis hús íséifoldarprent : smiðju og virðist hlykkur inn haldast enin. Reykjavik 1810 Sr. Tómíis Saemtindsson verk skyldi framkvæmit, var hins vegar í höndum bæjárstjórn arinnar sjálfrar: Ef kannaðar eru fundargerðir bæjarstjórnar- ininar á næstu áratugum, kemur í ljós, að þýðingarmiklar ákvarð anir um legu gatraa og vega eru teknar af bæjarstjórn. Gæti sú verið skýringin, að valdsvíð byggingamefndar hafi verið a.m.k. fyrst í stað takmarkað við hina eiginiegu kaupstaðar- lóð, sem aðeins tók yfir kvosina eða svo hafi verið litið á, að það væri bundið við sjálfa meg- inbyggðina. Má þanraág skýra ýmsar sam- þykktir bæjarstjórnar um lagn ingu vega til Fossvogs, að Skóla vörðu o.s.frv., þar sem ekki verð ur séð, að byggingarnefnd hafi átt neiran hlut að máli. Fyrsti fundur byggingarnefnd ar var haldinra 1. ágúst 140, og er þar fjallað um erindi Siem- sens kaupmanns, þar sem hann biður um að fá útmælda lóð „til at opföre en smuk Bygning", eins og stendur í fundargerð- inní, sem skráð er á dörasku. Nefndin taldí sig ekki geta heim ilað þann sitað, sem um var sótt. eii vísaði á annan stað. Þar reis síðan húsið, Hafnar- stræti 23, sem allir Reykvíking- ar kanhast við. Ákvörðun lóð- armarka þess húss skapar nú nokkurn vanda, þegar fram- lengja skal Lækjargötu til norð urs. Þetta gat enginn séð fyrír þá, en sýnir hversu skipulags- ákvarðanir geta verið afdrifa- ríkar. Árið 1852 var tekin mjög af- drífarík ákvörðun. Þá var á- kveðin lega og breidd Lækjar- götu og þar með húsalínan vest an megin. Var það í sambandi við byggingu hússins, sem nú er Lækjargata 2. Var breidd göt- unnar frá læknum, sem þá rann opinra til sjávar að húsinu, á- kveðin 11V* alin. SKIPULAGNING „VESTAST f VESTURBÆNUM" Árið 1866 er gerð mjög merki leg ályktun I byggiragamefnd. Þar er ákveðin lega og breidd HMðarhúsavegar eða Vestúrgötu, sem nú heitir, notkun lands, húsagerð og sitthváð annað. Ég ætla, að þetta sé ýtarlegasta á- kvörðun um skipulag, sem bygg iragarnefnd hefur nokkum tíma tekíð, sem aðalstjórravald skipu iagsmála, a.m.k. fyrir 1921. Var svo mikið við þessa fundargerð haft, að hún var lesin upp í heilu lagi á bæjarsitjórnarfundi nokkrum dögum seinna. Bæjar fógeti, sem þá fór m.a. með það vald, sem borga rst j óra er nú fengið, hét bæjarfulltrúum þvi að senda þeím afrit af fundar- gerðinni. Á fundi bæjarstjórnar 14. des. 1866 var fundargerðin lögð að nýju fyrir bæjarstjórnina, sem féilst á hana. Minnist ég þess ekkí að hafa séð þess getið, að fundargerð byggingarnefndar væri lögð fyrir bæjarstjórn nema í þetta skipti, unz laga- breytíng var gerð í byrjun þess arar aldar þess efnis, að gerðir nefndarinnar skyldu eftirleiðis háðar staðfestingu bæjarstjóm- ar. Hér fer á eftir sá hluti fund- Framhald á bis. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.