Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNl 1971 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvnmdaatjóri Hsraidur Sveinsaon. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjóifur KonráS Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstraeti 6, sími 10-100 Augfýsingar Aðalstraati 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 12,00 kr. eintakið. ÓLAFÍA - EÐA EKKI ÓLAFÍA? T gær hófust umræður á ný milli vin®tri flokkanna svonefndu um stjórnarmynd- un. Nú er vika liðin frá því að forseti fól Ólafi Jóhannessyni stjómarmynd- un, en á þessari viku hefur í rauninni ekkert gerzt. Þetta eru ámælisverð vinnubrögð en þau eru um leið staðfest- ing á því, sem á allra vitorði er, að samkomulagið milli vinstri flokkanna er ekki gott og mörg deilumálin þarf að leysa áður en hægt verður að koma saman ríkisstjórn — ef það tekst þá, sem allt er í óvissu um. Augljóst er, hvers vegna Samtök frjálslyndra og vinstri rnanna leggja áherzlu á, að Alþýðuflokkurinn taki þátt í viðræðum um myndun vinstri stjómar. Það er yfir- Iýst stefna SFV að vinna að sameiningu jafnaðarmanna í einum flokki og þess vegna er ofur skiljanlegt, að sam- tökin vilji ekki taka þátt í stjórnarmyndun án aðildar Alþýðuflokksins. Yrði það gert mundi sameining þess- ara flokka ekki komast á dag- skrá í náinni framtíð. En margt bendir til að formaður samtakanna, Hannibal Valdi- marsson, leggi jafnvel meiri áherzlu á þetta sameiningar- mál en stjórnarmyndunina sjálfa. Önnur meginkrafa SFV er sú, að „fram fari úttekt á þeim efnahagsvanda, sem frá- farandi ríkisstjómarflokkar skilja eftir sig“, eins og segir í samþykkt samtakanna. Jafnframt er þess óskað, að ítarlegur málefnasamningur verði gerður um lausn þess vanda. Skiljanlegt er, að þessi ósk sé borin fram. Auð- vitað á þjóðin kröfu til þess, að vinstri flokkarnir, sem héldu því mjög stíft fram í kosningabaráttunni, að efna- hagsvandinn væri býsna mik- ili, gert grein fyrir þvi, hvernig þeir hyggist leysa hann. Fráfarandi stjórnar- flokkar skýrðu þjóðinni frá meginetefnu sinni í þeim málum fyrir kosningar og bentu báðir á, að nauðsyn- legt væri að feta sig smátt og smátt út úr verðstöðvun- inni. Jafnframt var vakin athygli á því, að stærð vand- ans hlyti mjög að markast af þeim kjarasamningum, sem gerðir verða í haust. Stjórn- arandstöðuflokkamir gerðu hins vegar enga tilraun til þess að skýra fyrir kjósend- um, hvernig þeir mundu bregðast við vandamálunum, þegar verðstöðvunartímabil- inu lýkur. Nú hafa Samtök frjálslyndra og vinstri manna lagt fram ósk, sem jafngildir því, að vinstri flokkarnir geri grein fyrir því áður en stjórn verður mynduð, hvem- ig þeir vilja leysa þennan vanda. Verður óneitanlega fróðlegt að fylgjast með við- ræðum vinstri flokkanna um þessi atriði. Fyrirsjáanlegt er, að þess- ar viðræður munu dragast talsvert á langinn. Þó er aug- ljós nauðsyn á því, að sem fyrst verði úr því skorið, hvort grundvöllur er fyrir hendi um myndun vinstri stjórnar eða ekki. Á meðan þessar viðræður fara fram er ekki um annað að gera fyrir þjóðina en að fylgjast af þolinmæði með þessum stjórnarmyndunartilraunum. Það er ekkert nýtt fyrir- brigði að viðræður vinstri flokkanna um stjórnarmynd- un taki langan tíma. Hvort Ólafía fæðist eða ekki skal engu um spáð. En sjálfsagt er að gefa vinstri flokkunum næði til að bera saman bæk- ur sínar, því að mótsetning- arnar eru margar í málflutn- ingi þeirra og skoðunum, eins og skýrt hefur komið fram í skrifum máilgagna þeirra frá kosningum og yfirlýsingum forystumanna þeirra frá því að úrslitin urðu kunn, og þeim veitir því ekki af um- burðarlyndi almennings. Heimköllun bandarísks herliðs frá Vietnam CJamþykkt öldungadeildar ^ Bandaríkjaþings, sem felur í sér áskorun til forset- ans um heimköllun alls bandarísks herliðs frá Víet- nam er ekki bindandi fyrir forsetann og talið er ólíklegt að hún nái fram að ganga í fulltrúadeildinni. Engu að síður er hún talsvert áfall fyrir stefnu Nixons og sýnir, að jafnvel þótt hann hafi mótað þá stefnu að flytja herlið Bandaríkjanna heim smátt og smátt fullnægir það ekki lengur kröfum áhrifa- mikilla aðila í landinu um skjótan heimflutning. Þessi samþykkt sýnir einnig, að þeim öflum vex nú fylgi, sem fyrir hvem mun vilja losa Bandaríkin við Víetnam og allt það, sem því fylgir. Sú staðreynd mun tvímælalaust hafa mikil áhrif á utanríkis- stefnu Bandaríkjanna í fram- tíðinni. Krabbameinsfélag Islands 20 ára Suðurg-ata 22, hús Krabbamein sfélags íslands. í HVÍTU HÚSI VIÐ SUÐURGÖTU ER HÁÐ BARÁTTA GEGN KRABBAMEINI Við erum stödd í hvítu reisu legu húsi að Suðurgötu 22. Fyr ir utan er glampandi sólskin og blaktandi iauf hávaxinna trjáa í garðinum fyrir utan gerir út- sýnið yfir tjörnina enn feg- urra en ella. I>arna er ekkert sem minnir á sjúkdóma eða aðr ar dekkri hliðar lífsins, heldur einkennist allt af lífi og feg- urð. Segja má að j>essi lífs- mynd sé í fullu samræmi við þá starfsemi sem fram fer innan veggja hússins að Suðurgötu 22, en þar hefur Krabbameins- félag íslands aðsetur fyrir starfsenii sína, starfsemi sem miðar að því að auka heilsu- farslegt öryggi manna og forða flestum frá því að verða hin- um óútreiknanlega sjúkdómi, — krabbameininu, — að bráð. Daglega eru 35—40 konur rannsakaðar í Krabbameinsleit arstöðinni að Suðurgötu 22, og auk þess eru 12 manns skoðað- ir á viku í allsherjarkrabba meinsskoðun. Þessar tölur segja ekki mikið um það starf sem þarna er unnið og því geng um við um leitarstöðina með Halldóru Thoroddsen fram- kvæmdastjóra Krabbameinsfé- lags Islands til þess að kynnast starfseminni nánar. Krabbameinsfélag Islands er nú orðið 20 ára gamalt, en það var stofnað 27. júní 1951. Tíu árum eftir stofnun félagsins keypti það ásamit Krabbameins félagi Reykjavikur háilifa hús- eignina að Suðurgötu og flu.ttu starfsemi sina þangað sem áð- ur hafði farið fram í einu her- bergi í Blóðbankanum. Skömmu síðar var allt húsið keypt og því breytt með tilliti tíl starfsemi þeirrar sem rekin var á vegum félaganna, — skrif stofur voru innréttaðar á efstu hæð og léitarstöðvar á 1. hæð og í kjallara. Hefur starfsemin í dag nú sprengt þetta hús- næði utan af sér og eru félög- in þvi búin að kaupa húsið við hliðina, það er að segja Suður- götu 24 og verður hluti af starf seminni fluttur þangað nú á þessu ári. 1 anddyri Suðurgötu 22 situr ung stúlika, Ingibjörg Karls- dóttir og svarar í síma. Þarf hún að leysa úr miklu spum- ingaregni daglega frá 8.30—5. Imgibjörg sagði að mest væri að gera hjá sér fyrri hluta dags, en þá tæki hún á móti rann- sóknarbeiðnum, svaraði fyrir- spurnum um rannsóknir, veitti upplýsingar um vinningsnúmer í happdrætti Krabbameinsfé- Alma Þórarinsson yfirlæknir er fyrir miðju á myndinni, en nieð henni eru meinatæknar er vinna að frumgreiningu. (Ljósm. Kr. Ben.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.