Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.06.1971, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNl 1971 16 Hraunkarl. Yfirlýsing brezkra togaraeigenda: Við verður brugðið hart — ef íslendingar kjósa einhliða útfærslu MORGUNBLABINU hefur borizt eftirfarandi samþykkt frá Félagi brezkra togaraeigenda: „Við í Félagi brezkra togara- eigenda eigum erfitt með að trúa því að íslenzfca ríkiastjómin, hvemig sem hún er skipuð, muni e<kki virða alþjóðlegar S'kuldbind- ingar. Við erum því tregir til að halda, að ísland muni ekki hlýða ákvæðum í samningi Breta og íslendinga frá 1961, þar sem svo er kveðið á um að öllum deilum um fiskveiðilögsögu íslendinga skuli vísað til Alþjóðadómstóls- ina til úrskurðar. Okkur er fyrir imunað að sjá að það sé í þágu íslenzkra hagsmuna að grípa til neins konar ráðstafana — ein- hliða eða samkvæmt ákvæðum samningsins frá 1961 — að mnánnsta kosti fyrir alþjóðaráð- stefnu SÞ um landgrunnið, sem íyrirhugað er að halda 1973, en víðtækur undirbúningur fyrir þá ráðstefnu er hafinn víða um lönd. Enn fremur mundi það vera séaistáklega afleitur tími í ljósi þess að íslendingum er brýn þörf á vinsamlegri afstöðu til útflutn- imgs til EBE, ef það verður stækkað. Brezkur fiskiðnaður hefur ítrekað að hann sé fús að taka þátt í hvers konar áætlunum um tatemiarkaninr, sem um sé samið á alþjóðavettvangi með það íyrir augum að vernda fiskistofna. Við lýsum akkur enn reiðubúna til að semja og starfa að slíku, jafnt á höfunum umhverfis ísland sem annars staðar. Við vonum, að hvetns kyns ótti á fslandi um fiski stofniana á því svæði verði upp- rættur eftir leiðum áhrifaríkrar f DAG opnar Alda Snæhólm Einarsson má 1 verk asýni ng u í Menntaskólanum í Hamrahlið. Á sýningunnd eru 29 olíumálvehk, ýmisit máluð á léreft eða mash- omít. Verður sýningin opin alla daga frá kl. 17—22, en henni lýk U(T 4. júlí. Alda ©r ekkja Hermanns Ein- arssonar, fiiskifræðings, sem lengi starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum. Voru þau lengi búsett SKORTUB er orðinn á raforku á Vestf jörðuni og eru áform um úrbætur, sem Valgarð Thorodd- «en rafmagnsveitustjóri skýrði blaðamönnum frá. Byrjimarfram kvæmdir eru stækkun Mjólkár- virkjunar um 1,2 millj. kwst. með því að fá miðlun úr Langa- vatni. Er aetlunin að byggja stiflu i sumar við Langavatn oj á að opna tilboðin í verkin 5. alþjóðlegrar samvinnu frekar en einhliða útfærslu. Ef íslendinigar kjósa þá leiðina engu að síður að hafna með íyrirlitningu alþjóðasamningum, skulu þeir ekiki vera í vafa um, að við slíkt verður ekki unað baráttulaust! Og að þessu sinmi skyldu íslendingar ekki vænta þess að slíkt yrði takmarkað við Bireta eina. Áðrar fiskveiðiþjóð- ir í Vestur-Evrópu, sem hafa hagsimuna að gæta í Norðurhöf- um — og sérstaklega aðildarlöijd Efnahagsbandalags Evrópu munu vafalaust sjá sig tilneydd- ar að bregða við hart. Mi'kilvægi brezks fiskiðnaðar á höfunum við ísland sést greini- lega, sé höfð í huga sú stað- reynd að milli einn sjötti og einm fjórði af úthafsfiski Bireta — þorakur, ýsa og svipaðar tegund- ir — er veiddur á þeim miðum. Fiiskisfkip, sem stunda veiðar á fjarlægum miðum, veiða venju- lega milli 40—60% afla síns þar og sum sfeipin — einíkum þau sem eru milli 135—139 fet á lengd — treysfa algerlega á þessi mið. Fiskaflinn á Islandsmiðum er breytilegur frá ári til árs miðað við hversu há hlutföllin eru í Napólí, 25. júní — NTB-AP MALTA hefur krafizt endur- skoðunar á varnarsamningi þeim, sem veitir Bretlandi og NATO heimild til þess að hal'a herbæki- stöð á eynni og hefur Bretland fallizt á þau t.ilmæli. Skýrði tals- erlendis, og nam AJda þá málara- Jist í einkatímum í Istambúl, Róm og Lima, en þar var hún í fjögur ár í listaskóla og lauk þaðan prófi. Áður en hún fluttist út var hún og við nám hjá Ásmundi Sveinissynd. Þetta er þriðja sýn- ingin sem Alda heldur hér heirna, en hún hefur auk þess tekið þátt í samisýningum perúíslkria lista- mianna í Iúma. júlí. Verður stíflan byggö í 500 m hæð yfir sjó og því aðeins hægt að vinna við hana í 3 mán- uði á ári. Aimenna byggingafélagið hef- ur gert mynzturáætlun fyrir virkjun Dynjandissvæðisins og nú er búið að fela verkfræðing- uim að fara yfir hana og draga út valikosti, sem eru margir. — Samkvæsnit mynztuiúæiCluninni samanburði við veiðar á öðrum svæðum. Árið 1970 voru fiskveiðar í Norður-íshafi það miklar að unnt var að minnka ásókn Breta á ís- landsmið í tiltölulega lágt mark, en engu að síður var þýðing ís- landsmiða enin mikil: 60% allra landana í Fleetwood var á fiski af íslandsmiðum, 50% landana í Grimsby, 38% í Hull, 30% í Norður Shield og 14% í Aber- deen. Mörg þessara fiiskiskipa sem leggja upp í þessum höfnum eru ekiki þanníg útbúin að þau geti leitað á aðrar slóðir en svæðin umhverfis fisland. Ef þau væru neydd til að hverfa þaðan myndu þau þurfa að leita á mið nær heimalandi sinu — ef þau héldu yfirleitt áfram veiðum — og myndu þar með raska ró þeirra sem veiða á nálægari mið- um. Þar af leiðandi myndi hagur þessara skipa almenmt versna svo um munar. Hagsmundr i þessu máli eru því ekki sér'hags- munir Breta. En því má ekki gleyma að um það bil 84% af verðmæti aflans alls, sem þessi þjóð veiðir, eru veidd utan 12 mdlna fiskveiðdlögsögu Breta.“ maður brezka utanríkisráðuneyt- isins frá þessu í dag. Hann sagði, að stjórnir Bretlands og Möltu hefðu sent frá sér sameiginlega tilkynningn í þessa átt til þess að koma í veg fyrir misskilning. ítalski flotaforinginn Gino Bir indelle, sem er yfirmaður fyrir sameiginlegum flotavörnum NATO 1 Suður-Evrópu, hefur verið kallaður til aðalstöðva NATO í Napólí frá firamian- greindri bækistöð á Möltu. — í tillkymningu frá aðalstöðvunum sagði, að flotaforinginin væri þeg ar kominn til ítalíu samkvæmt málaleitan Horacio Rivero flota- foringja, sem er Bandaríkjamað- ur og yfirmaður henstyrks NATO í Suður-Evrópu. í tilkynningu þessari voru ekki tilgreind nán- ard atri'ði, en eftir áreiðanlegum heimildum á Ítalíu er haft, að Birindelli flotaforingi hafi í reynd verið beðinm að yfirgefa eyna af sfjórn Möltu. þörf er á. Növerandi virkjun er 4 Mw. að stanrð, en heildaraflið sem þarna má fá til viðbóter er 18— 19 Mw, svo þama getur orðið um stóra virkjun að ræða. Og virkjunin yrði hagkvæm að því leyti, að hægt er að framkvæma hana í smááföngum. Um þörfina fyrir viðbótarraf- magmi á þessu svæði, sagði Val- giarð, að reiknað væri með að hún væri við núveramdi aðstæð- uir helmingi meiri en það afl sem búið er að virkja, sem er 4 Mw. Ef rafmagnsnotkun til hitunar ykist verudega eða til iðnaðar, þyrfti meira. — Á slóðum FI Framliald af bls. 13. Fjöllin sem blasa við af hálsin um hjá Kalmanstungu eru auk jöklanna Strúturinn, Hafursfell, Hádegisfellin nyrðra og syðra. Þessi fjöll eru öll úr móbergi, dökkleit á litinn, hæð Strútsins hefur verið nefnd, hæð hinna er nálægt 1000 metrum. Bak við syðra Hádegisfellið er hinn litfagri Prestahnjúkur. 1 átt til Oksins eru lægri fjöll, Selja- fjall og Bæjarfell sem eru hjá Húsafelli. Vegurinn liggur gegnum tún- ið i Kalmanstungu. Býlið er með sama snyrtibragnum og myndarsvipnum og önnur býli í Hvítársíðu. Sérstaklega vekja athygli heyin annars bóndans, en þar er tvíbýli Þau standa þar í röðum í túninu, algróin og áratuga gömul. Sá sem þess ar línur ritar tók þátt í því í æsku sinni að rista torf á þau ásamt heimasætunum sem nú eru löngu giftar og eiga vax- in börn. Hinn bóndinn átti lengi hey sem var sett upp ár- ið sem hann fæddist. Nú hefur leiðin verið rakin upp Hvítársíðu allt til Kal- manstungu. Sé farið í hina átt- ina niður Síðuna verður útsýn- ið allt annað. Þá er snúið baki í fjöllin og horft niður í hér- aðið, sem líka hefur sína töfra þótt jöklarnir láti meira yfir sér. Nú skulu taldir upp einstak- ir staðir sem eru þess virði að skoða þá. Frá Síðumúlaveggjum að Bjarnastöðum er náttúran ekki margbreytileg. Þar er helzt að dveljast við ána, horfa ofan í strengina og undrast að menn skuli hafa riðið þetta vatns- fall. Víða er hún nokkuð straumþung. Bóndinn sem bjó á Háafelli fyrir aldamótin reið hana hvar sem hann kom að henni þegar hann var ungur. Hann renndi sér aftur af hest- inum um leið og hann greip sundtökin og hélt sér i taglið yfir ána. Þegar kemur inn í Hallmund Mótmæli Saimeiniuðu þjóðunum, 24. júní AP. JACOB A. Malik, sendiherra Sov étrikjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum hefur borið fram harðorð mótmæli við bandarísk stjórn- vöid, sökum þess að tima- sprengju var komið fyrir í gær við heimili hans i New York. Hefur Malik krafizt þess, að bandarísk yfirvöld geri nauðsyn legar ráðstafanir til þess að finna imerm þá, sem komið höfðu sprengjunni fyrir og að hindra frekari hermdaraðgerðir gagn- vart sovézku sendinefndinni. Tímasprengjan fannst kl. 15.00 að ísl. tima í gær við innganginn að bústað sendiherrans og var það klu'kkustuind áður, en sprengjan sikyldi springa. arhraun eykst fjölbreytnin mjög. Barnafoss er i Hvítá nokkurra mínútna akstur frá Bjarnastöðum ef farið er þar suður yfir ána á brúnni. Hraun fossar heita þessir litlu, tæru fossar i gljúfrinu neðan foss- ins. Á fossbrúninni er steinbogi og þar er djúpur tær hylur í lind í gljúfrinu til hliðar við fossinn. Víða koma vatnsmiklar kalda vermslindir undan hrauninu annars staðar en við Barnafoss. Við Gunnlaugshöfða spotta- korn ofan við Barnafoss við Hvítá er ein þessara linda. Hún er talin af kunnugum meira en 10 rúmmetrar á sekúndu. Innan við Fljótstungu er Víð- gelmir í hrauninu eins og fyrr getur, en umhverfi Kalmans- tungu er iangauðugast af náttúruundrum. Hvítá rennur í Geitá mun ofar en hún gerði áður. Þessar ár runnu áður samhliða og mynduðu milli sín langa og mjóa tungu að mestu hulda sandi og hrauni og heitir enda Svelti. Hvitá breytti farvegi sínum um 1930 en þá komu í ljós þeir fegurstu skessukatlar sem til eru, þar sem hafði ver- ið foss í ánni. Þeir eru rúman kílómetra frá veginum niður með skógivaxinni hlið Tung- unnar. Fyrir norðan Stiútinn eru hellarnir Surtshellir og Stefáns heilir. Þeim hefur víða verið lýst og verður það ekki gert hér. En norðan í Strútnum um þriggja kílómetra leið frá veg- inum inn í Surtsheiii er gil í Strútnum. Þetta er Draugagil- ið. Það hefur skorið sig inn í móbergið og er auðvelt að ganga inn í það. Það er þröngt í botninn, víða tveir til þrír metrar og svo endar það í hengiflugi. Gilið er þar á að gizka 60 metra djúpt, að minnsta kosti var gizkað á að ekki stæði mikill hluti af Hall- grímskirkjuturni upp úr gilinu ef honum væri komið þar fyr- ir. En það skal þó tekið fram að hann yrði að vera á hvolfi, því að annars kæmist hann alls ekki fyrir. Klettar þess eru margvíslegir, þar er mikið bólstraberg. Svartárgljúfrið i Geitland- inu er hrauntröð eins og fyrr segir. Áin hefur sorfið sig nið- ur í tröðina á ýmsa vegu, sums staðar er hægt að standa kioí- vega yfir hyldjúpum skorum og farvegum. Xnn undir jökiin- um eru iitlir hraunheilar i Geit- landinu. Vegur hefur verið ruddur á Strútinn svo að þangað hef- ur stundum verið fært á fjalia- bílum. Gaman er að koma á Strút og ég ráðlegg mönnum að fara þangað gangandi. Nú hefur eflaust gieymzt að geta einhverra náttúrudásemda og væri því ráðlegt fyrir menn að fara og leita þeirra og munu þeir þá eflaúst finna margt, en þessa grein læt ég hér enda. Alda Snæhólm Einars- son opnar sýningu Miðlun í Mjólkár- virkjun eykur raf- orku á Vestfjörðum er búið að kaupa þær jarðir, sem Vamarsamningur við NATO endurskoðaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.