Morgunblaðið - 26.06.1971, Síða 15

Morgunblaðið - 26.06.1971, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNl 1971 15 lagsins og afgreiddi minningar spjöld félagisins o,g fl. 1 húsinu eru raunverulega þrjdr leitarstöðvar. Leitar- stöð-B, Leitarstöð-A og Leitar stöð-C. 1 Leitarstöð-B fara fram skipuOagðar hóprannsóknir á íkonum eingöngu með tihiti ti!l krabbameins í möðurlMi. I Leit arstöð-A gefist almennmgi kost ur á alÍLSherjarkrabbameins- skoðun að eigin ósk, og i Leit- arstöð-C fer fram í tengslum við Leitarstöð-A, speglun á melitingarfærum. Má segja að Ingiibjörg sé tengiliður milli þessara Leitar- stöðva og hins almenna borg- ara. Þegar Ingibjörg hefur tek- ið við umisókn um allsherjar- skoðun, eða sent konu bréf þar sem hún er hvött til þess að koma til skoðunar, fer viðkom- andi á fund einhverrar af fjór- um starfandi hjúkrunarkonum á staðnum og taka þær ná- kvæma skýrslu aif henni. Kristín Grimsdóttir, starfs- stúlka hjá Leiitarstöð-A, sem hefur aðstöðu í litlu herbengi á I. hæð, skýrði svo frá Sínu starfi og þvd sem fram fer á stöðinni — Hingað koma þeir sem óska eftir að fá krabbameins- skoðun. Við getum aðeins tek- ið á móti 12 manns yfir viik- una og er því stundum dálitill biðliisti hér. Rannsókn þessi er mjög timafrek og heildarkostn aður við hana á mann er um það bil 3000 krónur. Af því borgar viðkomandi aðeins 1000 krúnur, en Krabbameinsfélag ið greiðir afganginn. — Þegar maðurinn kemur í ifyrsta sinn er tekin af honurn blóðprufa, sem send er til rannsóknar, þá er tekin þvagprufa. Að svo búnu þarf maðurinn að vera á kjötlausu fæði í 6 daga til þess að hægt sé að ganga úr skuigga um hvort nokkurt blóð sé í saur hans. Næst fer fram lungnamyndataka og loks er framkvæmd á honum ristillspegl un. Þegar þetta er allt búið þá skoðar læknir hann íitarlega og síðan er haft samband við heimálislækni viðkomandi og honum skýrt frá niðurstöðum rEinnsóknarinnar. Öll heildar- rannsóknin fer fram innan veggja þessa húss að undan- skiiinni myndatökunni. Þegar Kristín hafði lokið máli S'ínu sýndi Halldlóra Thor- oddsen okkur tvær rannsóknar stofur sem tilheyra leitar- stöð-A og C. Stofur þessar eru litlar og rannsóknimar tíma- frekar og í því sambandi sagði Halldóra að mest áherzla væri lögð á að taka til rannsóknar fólk komið yfir fertugt. — Það kemur svo sjaldan nokkuð út úr rannsóknum á yngra fóllki að meiri nauðsyn er að að rannsaka þá sem eldri eru orðnir, en hins vegar er eng- um bannað að koma tii rann- sóknar þó ungur sé að árum, sagði HafidAr*. Niðri í kjalilara hússins rák- umst við á tvær konur sem Eygló Bjarnadóttir litar sýni. voru að fara til rannsóknar í Leitarstöð-B, sem þar er til húsa. Stöðin er opin frá kl. 9— 5 daglega. F.h. er skoðana- beiðnum veitt móttaka og kon- unuim raðað niður á dagana á vissum tíma, og undirbúin skoðun og sýnistaka, sem fer fram milli kl. 1—4 e.h. Eins og áður segir er að jafnaði tekið á móti 35—40 konurn þar á dag. Störf leitarstöðvarinnar eru tvíþætt. Annars vegar eru fjöldarannsðknir til að leita að krabbameini á byrjunarstigi í móðurMfi, en hins vegar er brjóstaskoðun, sem er mjög timaf rek skoðun. Alma Þórarinsson yfirlæknir leitarstöðvar-B. var að rann- saka sýni, sem tekin höfðu ver ið úr konum, þegar við tókum hana tali. — Sagði Atona að 3-4 meinatæknar ynnu við að rannsaka þau sýni sem tekin væru og væru rannsökuð um 75 sýni á dag. — Mjög mikil nákvæmnisvinna er að undir búa sýnin til rannsóknar, svo og rannsóknin sjálf. —■ Fyrst sýndi Alma okfcur sýni, sem tekin höfðu verið úr leghálsi og leggöngum kvenna. Voru sýnin hviit og komið fyrir milli tveggja þunnra glerja, sem merkt voru með nafni kvenn- anna og númeri i spjaidskrá stöðvarinnar. Hvert sýni er síðan sett í 22 litarböð til þess að fá ákveðinn Mt á hvern ein- stakan hluta frumunnar, sem gerir rannsókn á þeim mögu- lega, Eftir að sýnið er búið að fara í gegnurn litarböðin bek- ur það á sig þrjá meginMiti þ.e.a.s. rauðan ldt, bláan og grænan. Hægt er að lita um 19 sýni samtímis og tekur Mtun- in um 10 min. Að þessu loknu eru sýnin merkt á ný nákvæm- lega og send upp til meinatækn anna, sem síðan rannsaka þau. Ef eitthvað sést afbrigðilegt í sýninu er heimilislækni gert viðvart, sem hefur síðan sam- band við kvensjúkdómal'ækni, er tekur þá vefjasýni hjiá við- komandi, sem send eru til Rannsóknarstofu H.l. til frek- ari rannsókna. Til nánari skýr ingar leyfði Alma okkur að skoða eðMIegt sýni í smásjá og síðan sýni sem var afbrigði- Legt. Eðlilega sýnið var ljós- rautt á lltinn með litlum reglu legurn hringlaga kjörnum, sem fengið hafa á sig svartan lit við meðferðina í ldtabaðinu. 1 afbrigðilega sýninu mátti hins vegar sjá hvernig kjarnarnir höfðu breytzt úr sínu uppruna- lega formi og orðið óregiuleg- ir og stærri. Sagði Alma að sýni þetta yrði sent 4M Ólafs Jenssonar sérfræðings í frumugreiningu, til frekari ákvörðunar, en síð- ar, ef ástæða þætti til, yrði tekið vefjasýni hjá viðkomandi konu, og sent til sjúkdóms- greiningar hjá Rannsókna- stofu Hásikólans. Okkar starf er einungi's frumrannsókn, sagði Alma. 1 skrifstofu í kjallara húss ins var Guðlauig Guðmundsdótt ir hjúkrunarkona að vinna við spjaldskrá og færa niðurstöð- ur rannsókna í leitarstöðinni inn á hana og færa skýrslur. Hún er ein af fjórum. hjúkr- unarkonum, sem starfa við stöð ina. Auk þess íerðast hún mik- ið um landið á vegum félagsins og aðstoðar við að taka S'ýni og skipuleggja leitarstöðvar, sem hin ýmsu krabbameinsfé- lög reka. Sagði Guðlaug að konunum væri fyrst sent bréf og þær beðnar að mæta á ákveðnuim degi. Er sama skipu lag notað og við sams konar rannsðknir í leitarstöðinni í Suðurgötu, en hins vegar virð- ast konur úti á landi vera áhuigasamari um þessa rann- sókn en reykvískar konur. Úti á landi er þátttakan almennt betri hjá konum eða uim 90% en í Reykjavík um 75%. — Sem dæmi um áhuga kvenna i dreifbýlinu fyrir þessum rann sóknum sagði Guðlaug litla sögu: — í fyrra fór ég til Austfjarða og aðstoðaði við töku sýna hjá konum i Jökul- dal. Hver einasta kona kom til okkar og sú sem lengst þurfti að fara til þess að láta rann- saka sig fór 100 km vega- lengd og kippti sér ekki upp við það. Guðlaug er nýkomin úr ferð um Vestfirði og sagði hún að þátttaka þar hefði almennt ver ið mjög góð, o,g einhvern næstu daga leggur hún upp í ferð til Selfoss til þess að taka sýni þar. Ferðir þessar taka mjög mislangan tima, en verða lengst um hálfur mánuður. Er það Alma Þórarinsson, sem skipuleggur þessar ferðir í sam ráði Við læknana á hverjum stað. Mjög náið samstarrf hefur verið frá upphafi milli Krabba meinsifélags íslands og Krabba- meinsfélags Reykjavíkur og hefur Jón Oddgeir Jónsson unnið mikið fyrir bæði félögin. Jón hefur annazt skipulag fræðslustarfs um krabbamein og f 1., verið framkvæmdastjóri happdrættisins og auk þess unnið að stofnun nýrra krabba meirtsfélaga og deiida úiti um land. Jón hefur aðsetur fyrir starfsemi sína uppi á annarri hæð í húsinu, en innan skamms mun hann fá aðstöðu í Suður- götu 24 og var hann önnum kafinn við að undirbúa flutn- ingana þegar við tókum hann tali. — Jón Oddgeir byrjaði fyrst að starfa fyrir krabba- meinsfélögin árið 1962, en árið 1968 hóf hann, í samvinnu við Bjarna Bjarnason lækni for- mann Krabbameinsfélags Is- iands, skipule.gt starf við að stofna nýjar deildir úti á landi. Fyrsta árið sitofnuðu þeir 3 deildir, árið 1969 5 deildir, árið 1970 8 deildir og það sem af er þessu ári hafa þeir stofnað 3 deildir og eru þá endarnir komnir saman og deildirnar komnar með jöfnu miMitoili um allt landið. 1 stuttu rabbi við Jón kom fram að happdrætti Krabbameinsfélagsins sem er einn helzti tekjuliður félagsins hefur aldrei verið í jafnmilklum bióma og í ár. Dregið var i happdrættinu 17. júní sl. o,g munu tekjur af því vera brúttó, um 2% milljón króna. Miðarnir eru sendir í pósti inn á hvert heimili á landinu og sagði Jón að fólk tæki þessari sendingu féiagsins yfirleitt mjög vel og styrkti starfsemina með því að kaupa miðana, en hvert stykiki kostar 50 krónur. Með happdrsettismiðunum hefuir félagið sen.t Mitið dreifi- bréf, þar sem Fréttabréf Krabbamieinsfélagsins er kynnt. Einmitt þegar við vorum í heimsókn var Björ.g Ólafsdótt- ir að ganga frá fréttabréfum i póst. Sagði hún að fjögur fréttabréf væru gefin út á ári og kostar áskriftin 100 krónur. 1 þessurn bréfum er birt ýmiiss konar fræðsluefni og er Bjarni Bjarnason yfirliæknir ritstjóri blaðsins. Áskrifendur í Reykja vik eru um 1300 talsins, en úti á landi eru alls 3000 áskrifend- ur. Að lokum bauð HaMdóra okkur inn á skrifstofu sína sem er í tengslum við skrifstofu Bjarna læknis. A'Mir veggirnir á skrifstoifunni eru þaktir möppum, sem hafa að geyma skýrsiu.r um krabhamein frá ár inu 1954 og fram til þessa dags. Árlega eru skráð á miili 400—500 tilifel'h og eru skýrsl- urnar því orðnar æði margar. Halldóra vinnur að skráningu á krabbameinstilfellum ásamt Guðrúnu Bjarnadóttur, en auk þess fer hún með fram- kvæmdastjórn félagsinis eins og áður segir. — Störf min hér eru fjöl- breytt, sagði Halldóra, og yrði of langt mál að rekja þau öll. upphaflega var ég ráðinn til starfa á skriifstofu félagsins, Sem var þá til húsa í Bióð- bankanum. Ég hef þvi horft á . félagið stækka og eflast og fyftgzt -með því óeigingjama starfi sem unnið hefur verið þvi til framdráttar og eflingar. Langar mig sérstaklega til þess að geta þess góða starfs sem stjórn Krabbameinsfélags ís lands hefur unnið á liðnum. ár- um en hana skipa: Bjarni Bjarnason læknir, formaður, Hjörtur Hjartarson fram- kvæmdastjóri, gjaldkeri, Jónas Hallgrímsson læknir ritari: meðstjórnendur eru frú Sigríð- ur J. Magnússon, dr. med. Friðrik Einarsson yfirlæfcnir, Helgi EMasson fræðsLumálá stjóri, Erlendur Einarsson íor- stjóri, Matthías Johannessen ritstjóri og Jónas Bjarnason læknir. Halldóra Thoroddsen framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags- ins og Gnðrún Bjarnadóttir vinna við krabbameinsskráning- una. Björg Óiafsdóttir gengur frá fréttabréfum (t.v.) og Asbjörg ívarsdóttir vinnnr við uppgjör á happdrættinu, sent hefur gengið óvenjulega vel þetta ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.