Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971 /■ _ * ► li: ar ii i st uttu máli NÝ PLANTA Á STRÖNDUM? Eyþór Einarsson, grasafræð ingur var nýlega í 10 daga að rannsóknarsitörfuim á Hom- ströndunrL Gekk hann úr Homvtk og til Fnrufjarðar og athugaði grös og jurtir. Á þesisum stað fann hann eina vafanaplöntiu, sem aidrei hefur fundizt norðar en á Snæfells- nesi. Heitir hún Vatnalaukur. SagðS Eyþór að þetta væri ósköp óásjáleg planta, stend- ur ekki upp úr vatni og því auðvelt að láta sér sjást yfir hana. Auk þess verði vatna- jtirtir helzt út umdan við plöntuskoðun. BAKNAHEIMILI VIÐ RAUFARHÖFN Raufarhöfn, 28. september. Á vegum Raufarhafnar- hrepps var í sumar starfrækt barnaheimili að Höfða, sem er býli um 4 km sunnan við þorpið. Þarna dvöldu um 30 börn mánuðina júli og ágúst, alla virka daga. Umhverfið er þarna fagurt og þrifalegt, gott hús, sem hefur staðið ó- notað í nokkur ár. Leiktækj- úm var komið fyrir í túninu og m.a. bátum og bilum. Al- menn ánægja ríkti með þetta framtak og létti mjög áhyggj- um af kvenfólkinu og auðveld aði því að stunda fiskvinnuna. — Ó. Á. STARF AUGLÝST Starf forstöðumanns Bygg- ingastofnunar landbúnaðarins er auglýst laust til umsóknar I nýútkomnu Lögbirtinga- blaði. Er umsóknarfrestur til 1. nóvember, en starfið á að veita frá 1. janúar. FJÖLBREYTTUR AFLI TIL AKRANESS Akranesi, 28. september. Togarinn Víkingur kom inn í höfn í morgun með um 170 lestir af fiski, sem afiaðist á heimamiðum. Aflinn er mestmegnis karfi, sem fer til frystingar í hrað- frystihúsinu Heimaskaga hjá Heimaskaga og H. B. og Co. Vélskipið Grótta fékk góð- an afla, þar með talinn fal- legan kola á útleið til Bret- lands. Aflinn verður væntan- lega seldur í Grimsby. SHdarskipin hafa fengið lít- ið eða ekki neitt. — h.j.þ. SÁ SEM ÓK A TRIPPI Aðfaramótt sl. sunnudags var ekið á trippi skammt frá bænum Hvammi í Holta- hreppi í Skagafjarðarsýsilu. Sá sem ók á trippið hafði samband við bóndann í Hvammi og bað bann að af- Mfa það. Þeir fóru báðir á staðinn og var trippið dautt. Kvaðst maðurinn ætla að fara beint til lögreglurmar á Sauð- árkróki. En hanin hefur ekki gert það. Og bóndamim skild ist að maðurinn væri á leið til Reykjavíkuir og sé hann staddur þar, er hann beðinn að hafa samband við rann- sóknarlögregluna í Reykjavífc, en við lögregluna á Sauðár- króki, sé hann úti á landi. Stjórnmálamenn frá Afríku í heimsókn Kynna mál sín í ýmsum löndum NÝR BÁTUR Fáskrúðisfirði, 22. sept. f dag var sjósettur 26 lesta bátur hjá Trésmiðju Austur- lands hér á Fáskrúðsfirði og hlaut hann nafnið Fjóla BA 150. Eigandi er Erlendur Magnússon, Reykjavik. Báturinn er frambyggður, smíðaður úr eik og í honum er 170 hestafla Gardnervél. Fjóla verður útbúin fyrir tog, línu ■ og handfæraveiðar. 1 bátnum eru 511 venjuleg sigl- inigatæki, svo sem ratsjá og dýptarmælir. Báturinn er teiknaður af Agli Þorfinns- syni í Keflavík. — Albert. Heimsmeistara- mótið í plægingu HEIMSMEISTARAKEPPNIN í plægingu er árlegur viðburður, sem vekur mikla athygli meðal þeirra, sem gjörst fylgjast með ræktunarmálum og er keppt um gullplóg. Danskir bændur og norskir, svo nefndar séu þjóðir, sem okkur eru nákomnar, senda jafnan þátttakendur. Fór meist- aramótið fram í Danmörku í fyrra og varð þá danskur maður sigurvegari. Norðmenn hafa llka hreppt gullplóginn. Að þessu sinni fer heimsmeistarakeppnin fram í Bretlandi við bæinn Som- erset og efnt verður til mikillar landbúnaðarsýningar af þessu tilefni. Keppnin stendur yfir dag ana 1.—2. október og munu norsk ir og danskir bændur og búnaðar menn fjölmenna til keppninnar. EKKI hefur fengizt mikill afli hjá togurunum í sumar á mið- um við Nýfundnalamd og Græn- land. Hefur aflinn minnkað á þeim stöðum frá ári til árs, að því er Friðrik Steinsson hjá Fiskifélaginu tjáir okkur. 1 sumar hefur Grænlandsafl- DAGANA 2.—4. október verður í kynningarheimsókn á íslandi sendinefnd frá Sameiningarbanda lagi Afríkurikja, er höfuðstöðvar hefir í Addis Abeba, að því er segir í frétt frá utanríkisráðu- neytinu. Formaður sendinefndarinnar verður forseti Máretaniu, Mokt- inn verið minni en undanfarin ár, enda hafa fáir togarar lokið túrnum, þó að þeir hafi leitað þangað. Aðeins einn islenzkur togari, Maí, fór eina ferð á Nýfundna- landsmið fyrir skömmu, en gekk ekki vel, miðað við hinn langa úthaldstíma. air ould Daddah. f för með hon- um verður Hamdi ould Moukn- ass, utanríkisráðherra Máretaníu, og nokkrir aðriir eimibættis- menn þess lands, og auk þess utanrikisráðherra Alsír, A. Bouteflika, utanrikisráð- herra Kamerún, J. Kencha, utanríkisráðherra Kenya, dr. N. Mungai, utanríkisráðherra Mali, Sissoko höfuðmaður, og ut- anríkisráðherra Zambíu, E. Mud enda. Ennfremur framkvæmda- stjóri Sameiningarbandalags Afr íkuríkja, Diallo Telli, varafram- kvæmdastjóri bandalagsins, Mohammed Sahnoun, og einnig framkvæmdastjóri frelsisnefndar bandalagsins í Dar Es Salaam, George S. Magombe. Sendinefndin hefir undan- farna daga verið í New York og rekið erindi sitt hjá Sameinuðu þjóðunum, en fer þaðan til Was- hington, Ottawa, Reykjavíkur Stokkhólms, Helsinki, Oslo og Kaupmannahafnar. Sendiför þessi er framhald af hinni svonefndu Kaunda-sendi- för 1970, þegar farið var til ítal- íu, Sambandslýðveldisdns Þýzka- lands, Bretlands, Frakklands og Sameinuðu þjóðanna, en þjóð- höfðingjafundur Sameiningar- bandalags Afríkuríkja ákvað í október 1970 að sendinefndir skyldu fara til allra aðildarrikja Atlantshafsbandalagsins, Japans, og Sviss til að ræða vandamál Afríku og leita stuðnings. Síðar á að fara tiil þeirra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem eft ir eru og til Japans og Sviss. Á íslandi mun sendinefndin ræða við ríkisstjómina, sitja boð forseta fslands að Bessastöðum og boð ríkisstjómarinmar. Á sunnudagsmorgun, 3. októ- ber, munu hinir erlendu gestir hafa blaðamannafund. Ráðherra í Grímsey Lítið að hafa við Grænland og á Nýfundnalandsmiðum Sjúkraflug- vél vantar Tryggvi eygir ekki möguleika á kaupum NORÐURFLUG á Akureyri er að reisa 800 fermetra húsnæði fyrir liðlega 3 millj. kr. á Akur- eyrarflugvel'li fyrir verkstæði, vörugeymslu, skrifstofu og af- greiðsiu. — Er það gjörbreyting frá því er við unnum við aliar viðgerðir svo að segja úti í snjó- skafli eða í óupphituðu húsi. sagði Tryggvi Helgason er Mbl. hringdi til hans í gær. En allt er ekki fengið með því. Sjúkraflugvélin, sem nú er notuð, er orðin 14 ára gömul, og hefur raunar aldrei haft ís- varnartæki, og telur Tryggvi nauðsynlegt að fá aðra flugvél í staðinn, betur búna og með nýrri tækjum. Hafði hann hug á að kaupa lítið notaða Píper Aztec flugvél, sem væntanlega mundi ekki kosta nema um 5 milljónir. En þetta litla fyrir- tæki orkar ekki meiru en að koma upp verkstæði og af- greiðslu í húsinu. Horfir ekki vel, því að hvergi fæst ennþá lán til sjúkravélar- kaupanna, og enga fyrirgreiðslu er að hafa. — í fyrra var annað hvort að fara í húsbygginguna eða kaupa flugvél, segir Tryggvi. Ég treysti mér satt að segja ekki til að fá enn eina vél og hafa engan stað til að gera við hana. Og ég trúði því að úr rætt ist með flugvélakaupin. Tryggvi á stærri flugvél, sem hann notar til farþega- og póst- flutninga og hefur líka orðið að nota hana til sjúkraflugs, þegár ekki var fært á litlu vélinni ís- vamarlausri. Verður að sjálf- sögðu að nota hana alveg til sjúkraflutninga, ef ekki fæst önnur og gamla vélin fer í viðgerð eða verður að leggjast tii hliðar. En það er dýrt. Til dæmis kostar sjúkraflug með stóru vélinni frá Raufarhöfn til Reykjavíkur 31 þúsund krónur, en er helmingi ódýrara með sjúkravélinni litlu. Fastar ferðir Norðurflugs um Norðausturland hafa gengið vel. 1. júní byrjuðu fastar viku- legar ferðir til Húsavíkur, Kópa- skers, Raufarhafnar, Þórshafnar og Vopnafjarðar. Uppistaðan í fiutningunum er póstbáturinn, en einnig eru teknir farþegar í sæti. Hefur þetta gengið vel. — kynnti sér flugvallarmál Grímsey, 28. sept. HINGAÐ komu í dag góðir gestir að sunnan. Það voru þeir Hanni- bal Valdimarsson, samgöngu- ráðherra, Brynjóifur Ingólfsson ráðunjeytisstjóiri, Agnar Kofoed- Hansen, flugmálastjóri og Hauk- ur Claessen, flugvallarstjóri. Komu þeir hingað þeirra erinda að kynna sér flugvöllinn hér og öryggisbúnað hans, en hvorugt hefur verið í nógu góðu lagi um nokkurt skeið. Þá svipuðust þeir einnig um eftir hafnargarðinum margumtalaða, en urðu, eins og aðrir, frá að hverfa án þess að sjá hann. Grímseyingar vænta þess, að þessir gestir okkar verði reynslunni ríkari eftir þessa heim sókn til Grímseyj ar, en hún stóð í um tvær klukkustundir. Er Hannibal liklega fyrsti samgöngu ráðherrann, sem heimsæklr Grímsey. Síðastliðinn sunnudag var sett hér upp ljósmyndastofa, sú fyrsta sem hér hefur verið. Kom Ijós- myndarinn hingað að tilhlutam Búnaðarsambands Eyjafjarðar, sem vinnur nú að undirbúningi Búendatcils Eyjafjarðarsýsiu, og voru mynduð öll hjón, sem náðist í í Grímsey. Einnig tók Ijósmynd arinn margar aðrar myndir fyirir Grimseyinga og vakti þessi heim sókn hans mikla ánægju. — Fréttaritárj. Yfirgaf slysstaðinn - og skildi slasaðan farþega eftir SAUTJÁN ára stúlka handleggs- brotnaði og meiddist á höfði og fæti, þegar bíl var ekið út af Hafnarfjarðarvegi, rétt norðan Sléttnvegar í fyrrinótt. Ökumað- urinn — 23 ára — yfirgaf bíl- flakið og reikaði um í Fossvogs- kirkjugarði, þar til slökkviliðs- menn. sem kom á slysstað, sáu til hans og tóku hann. ökumaðurinn reyndist vera undir áhrifum áfengis. Ökumaðurinn sagði við yfir- heyrslu, að hann gæti ekki gert «ér grein fyrir því, hvað yfír hann hefði komið við slysið. Hann segist hafa farið iinn í kirkjugarðinn og lagzt þar fyrir skamma stund, en þegar sann- leikurinn rann upp fyrir honutn, varð hann hræddur og segist hann þá hafa reikað um í garðin um, án þess að vita, hvað hann settí. að taka til bragðs. Þá komu slökkvUiðsmenmimir auga á hann við kapelluma og tóku með sér til lögreglunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.