Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 30
1
30
MORGU3NTBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971
Góður leikur
í flóðljósum
FVRSTI leikurinn í fljóðljósun
ffln á Melavellinum var leikinn
sL föstudagskvöld, en þá léku
Reykjavíkurúrval og pressulið.
Er skemmst frá því að segja, að
leikur þessi var mjög skemmti
Jegur á að horfa, og var mjög
ánægjulegt að horfa á knatt-
spyrnuna leikna i ljósunum. —
Pressuliðið reyndist vera mun
sterkari aðili leiksins (þó svo að
það væri valið eftir að Reykja-
víkurúrvalinu hafði verið stillt
upp) og sigur þess 4:1, var mjög
sanngjarn.
Það var ánægjulegt að sjá það
að leikmennimir lögðu sig alla
fram um að leika vel, en það hef
ur oft viljað brenna við í leikj-
um sem þessum að lítill áhugi
hefur verið fyrir hemdi á þeim
hlutum. Oft á tíðum sýndu liðin
afbragðsgóða knattspymu, og á-
horfendur fengu einnig að sjá
íimm falleg mörk. En þau féllu
þannig:
20. mín. Pressuliðið var í sókn,
sem lauk með mjög föstu skoti
Hafliða Péturssonar utan víta-
teigs. Magnús Guðmundsson
varði en missti boltann frá sér og
Eirikur Þorsteinsson sem fylgdi
vel á eftir náði að skalla boltann
yfir Magnús og í netið. 1:0.
31. mín. Eiríkur fékk boltann
einn og óvaldaður innan vítateigs.
Hann lagði hann vel fyrir sig, og
skoraði með algjörlega óverjandi
þrumuskoti í þverslá og inn. 2:0.
60. mín.: Guðgeir Leifsson skor
aði beint úr aukaspyrnu af 25 m
færi neðst í bláhorn marksins.
Guðgeir vakti mikla athygli fyr
ir skot sín, sem voru mjög föst
©g góð. 3:0. Fallegasta mark leiks
Sns.
81. Eiríkur Þorsteinsson náði
boltanum af Magnúsi markverði
úti i teignum og gaf fyrir mark
ið. Þar kom Ágúst Guðmunds-
son aðvífandi og negldi í netið.
4:0.
88. min. Há sending frá Jóhann
esi Atlasyni inn í teig pressiiliðs
ins lenti á höfði Baldvins Bald-
vinssonar, sem skallaði í netið.
4:1.
Þannig lauk þessum leik, og
voru þetta vægast sagt óvænt úr
slit. — Leikmennimir jafnt sem
áhorfendur voru mjög ánægðir
með Ijósin, og er ekki að efa að
mjög gaman verður að fylgjast
með Bikarkeppninni á Melavell-
inum þegar slagurinn byrjar þar
fyrir alvöru.
— gy.
„Unglingarnir66 léku
sér að „öldungunum“
— unnu 31 - 22 í mjög
skemmtilegum leik
HVAÐ er það, sem áhorfendur
að handknattleik vilja helzt sjá?
Fyrst og fremst vilja þeir sjá sitt
Hð sigra. En þegar um er að ræða
lið, sem ekki er beint hægt að
gera upp á milli? Þá vilja menn
líklega helzt fá að sjá skemmti-
legan leik með mörgum mörk-
um, góðri markvörzlu og
skemmtilegum tilþrifum. Og
þetta var einmitt það, sem leik-
urinn á milli „öldunganna“ og
„unglinganna“ bauð upp á. „Öld-
ungarnir“ voru landsliðið í hand-
knattleik og „unglingamir“ voru
landslið leikmanna undir 23 ára
aldri. Þó vom flestir „ungling-
arnir“ leikmenn, sem hafa leikið
með aðallandsliðinu. Þessi leikur
fór fram í íþróttahúsinu á Sel-
tjamamesi á mánudagskvöldið
og var hann óvenjulega skemmti-
legur á að horfa, enda þótt aldrei
væri um mikla spennu að ræða.
„Öldungamk“ tóku stirax for-
ystuma með tveimur mörkum
Viðars og Geirs, en tveir ÍR-ingair
jöfnuðu fyrir „unglingania", þeir
Brynjólfur og Vilhjálmur, og síð-
ain bætti Vilhjálmur öðrum tveim
<-A v «
Brynjólfur hefur leikið á Geir og er kominn í gott færi og skorar
örugglega. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
ur mörkum við og voru „ungling-
arnir“ þar með búnir að ná þeinri
forystu, sem þeir héldu til leiks-
loka. Var miikið skorað í fynri
hálfleik og geklk leikurinn yfir-
leitt þannig fyrir sig, að fyrir
hvert marlk, sem „öldungarnir"
skoruðu, skoruðu „uniglingamnir“
tvö mörk. Var staðan í hálfleik
18:10, „unglingunum" í vil. Hafði
Vilhjáimur Sigurgeireson verið
langdrýgstur yngri leikmann-
anna að skora, tók m. a. fimm
vítaköst og skoraði úr þeim öll-
um.
í síðari hálfleik mættu „öld-
ungarnir" mjög áikveðmir til leiks
og var Geir ákveðinn mjög og
skoraði á skömmum tima sex
mörk. En þrátt fyrir þetta fram-
tak hans tókst þeim eldri aðeins
að minnlka muninn um tvö mörk,
niður í sex rnarka mun um miðj-
an hálfleikiinn, En þá tóku þeir
yngri völdin aftur í sínar hend-
ur og bættu stöðu sína emn betur
og sigruðu að lokum með niu
marka mun, skoruðu 31 mark
gegn 22.
„Unglingarnir" komust mjög
vel frá leiknum. Liðið var heil-
steypt og engan veikan hlekk
þar að finna. Lék það af miklum
krafti allan tímann, gaf aldrei
eftir í vörninni og var ákveðn-
ara og lék betri sóknarleik en
lið „ölduniganna". Er ekki ástæða
til að hrósa einum liðsmanni öðr-
um fremur, að undaniskildum
markvörðumum, þeim Ólafi Bene-
diktssyni og Guðjóni Erlendssyni.
Stóðu þeir í majrkinu sinn hálf-
leikinn hvor og vörðu oft snilld-
, arlega. Gefur markatal an ekki
rétta rnynd af frammistöðu
þeirra, þar sem alltaí er skorað
meira af möoikum á völlum eins
og þessum, sem ekki eru af fullri
stærð, heldur en á völlum af
fullri stærð, eins og í Laugar-
dalshöllinmi. Ætlaði stundum vart
að linna klappi áhorfenda, sem
hrifust að vonum mjög af
frammistöðu þessara ungu
manna.
,Öldungarnir“ höfðu ekki eims
sterku liði á að skipa og í öðrum
æfingaleikj um landsliðsims, þar
sem sumir af beztu landsliðs-
mönnunum léku með yngxa lið-
inu, t. d. sjálfur fyrirliðiinn, Ól-
afur Jónsson. Þá voiru þeir marg-
ir hverjir ekki eins frískir og þeir
yngri og sú leifcreynsla, sem þeir
eiga yfir að búa, virtist koma
þeim að takmörkuðu gagni.
ÞeÍTra beztu menn voru Geir og
Gísli Blöndal, en einnig áttu Við-
ar, Steíán Jónsson og Sigurberg-
ur ágætan leik. Hjalti stóð í
markinu mestallan timiann og
varði oft ágætlega, en féll alger-
lega í skugganm af hinmi írá-
bæru frammistöðu yngxi mark-
miammamna.
Eins og áður var sagt, gefur
þessi leikur ekki rétta mynd af
getu liðanna, þar sem salurinm,
sem leikið var í, var mun minni
en salur LaugardalshaHarinmar,
en það er á völlum af þeirri stærð
sem landsliðin leika sína þýðimg-
armestu leiki. Þvi geta „öldung-
arnir“ ekki verið þekktir fyrir
annað en að skora á „ungling-
ama“ að leika við þá anniam leik
og harm í Laugardalshölliinmi. Ef
sá leikur fer fram, er óhætt að
benda handknattleifcsunmemdum
á að láta sig efcki vamta.
Mörkin skoeruðu: „Unglingarn-
ir“: Vilhjálmur 11 (7 víti), Ágúst
Svavarsaon 5, Ólafur Jónsson,
Sigfús og Björgvim 3 hver, Axel,
Brynjólfur og Jón Karlsson 2
hver. „Öldungamir": Geir 8,
Gísli BÍöndal 4, Viðar 3, Stefán
Jómsson, Sigurbergur og Amar
(1 víti) 2 hver og Þórarinn Ragn-
arsson 1.
Dómarar voru Bjöm Kristjáms-
son og Sveinm Krástjánsson og
dæmdu þeir vel. — sh.
Kvikmynd
um íþrótta-
hátíð
Á sambandsráðsfundi ÍSÍ er
haldinn var á dögunum var frum
sýnd kvikmynd sú, sem tekin var
af íþróttahátíð ÍSÍ 1970. Kvik-
mynd þessi var tekin aí Ásgeiri
Long og Rúnari Gunnarssyni,
textann samdi Þorsteinn Einars-
son og þulur með myndinni er
Helgi Skúlason.
Sýning kvikmyndairinnar tók
nærri tvær klukkustundir.
Að sögn Sigurðar Magnússon-
ar, útbreiðslustjóra ÍSÍ, er ætlun
in að sýna myndina senn opinber
lega, bæði í Reykjavík og úti á
landi.
' Þessi mynd var tekin í leik
Tottenham Hotspur og Kefla-
víkur í gærkvöldi, en þá mætt
ust liðin á heimavelU Totten-
ham, White Hart Lane, í Lon-
I don. Svo sem við mátti búast
sigraði Tottenham með yfir-
burðum í leiknum — 9 mörk-
um gegn engu. Staðan í hálf-
leik var 4:0. Þar með er þátt-
I töku Keflvíkinga í EUFA-
bikarkeppninni lokið, en sem
kunnugt er sigraði Tottenham
einnig i leiknum á Laugardals
velli, og þá 6:1, þannig að sam
anlögð markatala er 15:1.
Myndin var tekin er Alan
Gilzean var að skora eitt af
mörkum tTottenham í gæir-
kvöldi. Þorsteinn Ólafsson
markvörður gerir tilraun til
vamar, svo og Einar Gunnars-
son, en báðir ern aðeins of
seinir til að geta bjargað. —
Gísli Torfason er einnig við-
1 staddiir. (Símamynd AP).
Kastmót ÍR
Fjórða kaistimót iR fór fram
sl. laugardag á Melavelhnum, og
þar urðu úrsilt þessi:
Sleggjukast: m
Erlendur Valdimarsson, fR 54,22
Óskar Sigurpálsson, Á 48,26
Guðm. Jóhannesson, HSH 37,22
Elías Sveinsson, iR 33,30
Jón Þ. Ólafsson, fR 32,78
Stefán Jóhannsson, Á 31,16
Kringlukast: m
Erlendur Valdimarsson, ÍR 51,26
Guðm. Jóhannesson, HSH 41,06
Jón Þ. Ólafsson, lR 39,76
Elías Sveinsson, fR 37,54
Þróttur N vann
1. UMFERÐ
Austri — Huginn 7—2.
Leiiknir — KSH. Leiknir vamn.
2. UMFERÐ
Þróttur — Austri 12—3.
ÚRSLIT
Þróttur — Leiknir 8 — 2.
Það er því lið Þróttar frá Nes-
kaupstað, eem leikur í aðal-
keppninni.
Meistaraflokkur kvenna;
Fram-Víkingur 4:0
EINN leikur fór fram í meistara
flokki kvenna í Reykjavikurmót
inu i handknattleik á sunnudag
og sigraði þá Fram Víking með
4—0. Leik Vals og Ármanns var
aflýst, þar eð Ármannsstiilkurn-
ar vo-ru ekki í númeruðum bún-
inguni, en sú regla var sett fyr-
ir ári siðan. Verður að teljast
einkennilegt af Ármenningum
að liafa ekki kippt þessu í lag,
svo og af mótsstjórn HKRR, að
ganga ekki úr skngga um að al)t
sé í Jagi áður e*i boðað er til leiks
ins og áhorfendur látnir borga
fjrir leik, sem þeir síðan fá ekkJ
að sjá.
Framstúlkurnar sýndu mikla
yfirburði oig hefðu átt að sigra
með meiri miun. Þær eru mun
frískari og í betri þjálfun. Arm-
ars er markatalan næsta hlacgi-
leg, í fyrri hálfleikf hver hálf-
lei'kur, 10 minútur) skoruðu
Framistúlikumar 3 mörk, en að-
eins eitt í seinni hálffleik. Hjá
Framiiðinu voru Oddný og Krist-
in beztar. — ihj.