Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 20
I 20 MORGUÍNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971 Verkamenn Óskum að ráða nokkra verkamenn nú þegar. I TURN H/F., Suðurlandsbraut 10, sími 33830. Atvinna Stúlkur óskast til verksmiðjustarfa. Upplýsingar hjá verkstjóra. AXMINSTER H/F., Grensásvegi 8. ■— VANTAR 5 HERB. ÍBÚÐ — Höfum kaupanda að 5 herb. íbúð á 1. hæð (eða götuhæð) með möguleikum á 2 baðherbergjum. Þyrfti að vera staðsett innan 15 mkiútna göngu frá Miðborginni. Til greina kemur að eignin verði greidd út að fullu. FASTEIGNAÞJÓNUSTAN, ‘ Austurstræti 17 (Silli & Valdi) Sími 2 66 00. Síðasti innritunardagur Getum bætt við okkur nokkrum stúlkum á námskeið fyrir sýningastúlkur og ljós- myndafyrirsætur. Ai) öðru leyti er skólinn fullsetinn. Kennsla hefst mánudaginn 4. október. Innritun og upplýsingar í síma 38126 dag- lega frá kl. 20—23. Hanna Frímannsdóttir. — Bókmenntir Framhald af bls. 16. Menningarsjóð og Þjóðvinaíélag- ið; að margra áliti var tilgang- urinn að draga úr veldi Máls og menningar. Júel J. Júel, stassj- ónisti, hefur líka fengið ýmislegt að láni frá Ólafi Thors, á sama hátt og engum blandast huguff um hver er forsætisráðherrann í Atómstöðinni. Það skal sagt Peter Hallberg tii hróss, að yfirleitt reynir hann að skýra samviskusamlega og án alls hugaræsings frá viðkvæmum deilumálum, en að vonum stend- ur hann með hinum róttæku rit- höfundum, sem gerðu veg fé- iagslegra bókmennta sem mest- an. Annars hefði hann varla get- að sett sig inn í hið kiljanska andrúmsloft af jafnmiklum skilningi og raun ber vitni. Höf- uðkostur Húss skáldsins er þó hve skilmerkilega höíundurinn vinnur úr hinu viðamikla efni og túlkar allt með ljósum hætti. Bók hans er samt nokkuð þiwr á köflum, en það er erfitt að kom- ast hjá slíku þegar um verk af þeseu tagi er að ræða. f kafla um Sjö töframenn ger- ir Peter Hallberg grein fyrir taó- ískum áhrifum í skáldskap HaM- dó<rs. Hann nefnir smásöguna Temúdjín snýr heim, „þar sem hann lætur sigurvegarann Dséngis-kan mæta taóismanum.*- Að ®ögn Hallbergs hafði HaUdór ákveðið að semja skáldsögu „um andstæðurnar Dséngis-kan og Laó-tse.“ Sagan átti að heita Meistarinn handan við Hima- laya. Eftir margra ára umhugs- un varpaði hann hugmyndinni frá séa- „vegna vanþekkingar á staðháttum í Austurlöndum** og einnig af þeim sökum, að önnur efni gerðust heimtufrek. En til þess að gjalda Bókinni um veg- inn gamla þakkarskuld var sag- an um Temúdjín skrifuð. Að- dáendur taóismans geta huggað sig við það, að þótt Meistarinn handan við Himalaya hafi ekki enn séð dagsins ljós, er víða að finna bergmál frá Bókinni um veginn í verkum Halldórs Lax- ness. íslandsklukkun ni, Atómstöð- Bakari óskast Duglegur bakari óskast strax. Upplýsingar í síma 12273 og 10900. JÓN SÍMONARSON H/F., Bræðraborgarstíg 16. Heimavinna Get tekið að mér i aukavinnu heimabókhald, bréfaskriftir á ensku og Norðurlandamálunum (nema finnsku), þýðingar. Fullkomin þagmælska. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 10. okt. merkt: „Heimavinna — 6652". Sendisveinn óskast strax. C. Þorsteinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 — Sími 24250. Athugið! 150—200 ferm. húsnæði óskast til leigu undir vélsmiðju i Reykjavík. Tilboð merkt' „Vélsmiðja — 6658" leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 10. næsta mánaðar. Sölusfarf Gróið tímarit óskar eftir manni eða konu til sölu á auglýs- ingum og innheimtu. Um hálfsdagsstarf getur verið að ræða fyrir röskan aðila. Starfið býður upp á mjög góðar tekjur. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi laugardaginn 2. okt. merkt: „Sölustarf — 6663". iirni og Gerplu gerir Peter Hall- berg veruleg skil í bók einni, þó án þess að kannanir hans freisti til frekari umræðna. Hann minn- ist einnig á Silfurtúnglið og tel- ur sennilegt, að leikritagerð Bertolts Brechts hafi verið fyrir- mynd þess. Lokakafli Húss skáldsins nefn- ist Stíllinn. Huglægni og hlut- lægni. f þessum kafla e>r margt athyglisvert að finna um vinnu- brögð Halldórs Laxnesa, þróun stílsins og samruna siðrænnar boðunar og fagurfræðilegra lög- mála. Hallberg teflir fram Sölku Völku og íslandsklukkunni sem andstæðum. Hann sýnir fram á huglægni í Sölku Völku og síð- an breytingar til hlutlægni, sem verða með íslandsklukkunni. En áður ræðir hann sérkenni Vefar- ans mikla frá Kasmír, hinnar miklu stílæfingar Laxness, þar sem ný bókmenntaáhrif eru „allmikið á ringulreið“. Hall- berg lítur á Stein Elliða sem mál pípu höfundarins og nefnir „nið- andi orðaflaum'* hans í bókinni sem dæmi um huglægni. Hallberg telur, að eftir Sölku Völku stefni Halldór að meiri hlutiægni í frásögn. En hann hittir áreiðanlega naglann á höf- uðið þegar hann segir: „Sumum lesendum kann að falla bezt hin agaða og stranga frlás'agnarlist fslandsklukkunnar, þar sem skáldið gætir þess stöðugt að halda sér í hæfilegri fjarlægð við frásögnina. Aðrir finna ef til vill sérstaka töfra í áhyggjulaus- um stíl Sölku Völku, einmitt vegna þess að þa.r finna þeir svo greinilega hjartslátt skáldsins sjálfs.“ Ljóst er, að Halldór Lax- ness hefur ekki að fullu getað orðið við kröfunum um hlut- lægni; hlutlægnin, sem fléttast svo meistaralega inn í skáldverk hans, er veigamikill þáttur sér- kenna hans sem sagnamanns. Áköfustu Laxnesslesendur skilja þetta atriði vel. Halldór Laxness heillaðist á sínum tíma af stílhugsjón Ernest Hemingways. Hann þýddi Vopn- in kvödd eftir Hemingway og 1 formála bendir hann á skyld- leika með frásagnarstíl Hem- ingways og íslendingasagna. Áhrifin frá Hemingway í verk- um Laxness telur Hallberg óbein þótt bein áhrif komi fyrir. í hand riti frá 1932 að Sjálfstæðu fólki er skráð hvað eftir annað: „Hvergi sála<rlífslýsingar!“ En var það Hemingway, sem kenndi Halldóri að meta íslendingasög- urnar? Hallberg skrifar: „Það er vel hugsanlegt, að hraður og seiðsterkur stíll Hemingways hafi átt nokkurn þátt í, að Hall- dóir tók að sjá fornbókmenntir þjóðar sinnar í nýju ljósi. Hann hefur að minnsta kosti komið auga á, að þessar gömlu sögur geta jafnvel kennt sagnamönn- um nútxmans margt.“ Hallberg gerir grein fyrir því hvernig Halldór nálgast vísvit- andi frásagnarlist íslendinga- sagna i íslandsklukkunni, hlut- lægni ve-rður meira áberandi en áður og myndræn áhrif aukast. Um myndrænu áhrifin er ræki- lega fjallað og einkar skemmti- lega, enda íslandsklukkan kjörin til þess. Eins og fyrra bindi Húss skáldsins fylgir siðara bindinu Heimildaskrá og skýringar. í síð- ara bindinu eru auk þess Nafna- skrá og Ritskrá, en allar skrám- ar auka gildi bókarinnar og eru ágætur leiðarvísir fyrir lesendur og áhugamenn um verk Halldórs Laxness. Mál og menning hetfur gert Hús skáldsins myndarlega úr garði og þýðandinn Helgi J. Halldórsson augsýnilega vandað sitt verk. Jóhann Hjálmarsson. H JÁLPRÆDI SHERI N N VAKNINGASAMKOMUR Á HVERJU KVÖLDI KL. 8,30. RÆÐUMAÐUR FRÚ BRIGADÉR INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR. -- ALLIR VELKOMNIR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.