Morgunblaðið - 29.09.1971, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971
/■ _ * ►
li: ar ii
i st uttu máli
NÝ PLANTA
Á STRÖNDUM?
Eyþór Einarsson, grasafræð
ingur var nýlega í 10 daga að
rannsóknarsitörfuim á Hom-
ströndunrL Gekk hann úr
Homvtk og til Fnrufjarðar
og athugaði grös og jurtir. Á
þesisum stað fann hann eina
vafanaplöntiu, sem aidrei hefur
fundizt norðar en á Snæfells-
nesi. Heitir hún Vatnalaukur.
SagðS Eyþór að þetta væri
ósköp óásjáleg planta, stend-
ur ekki upp úr vatni og því
auðvelt að láta sér sjást yfir
hana. Auk þess verði vatna-
jtirtir helzt út umdan við
plöntuskoðun.
BAKNAHEIMILI VIÐ
RAUFARHÖFN
Raufarhöfn, 28. september.
Á vegum Raufarhafnar-
hrepps var í sumar starfrækt
barnaheimili að Höfða, sem
er býli um 4 km sunnan við
þorpið. Þarna dvöldu um 30
börn mánuðina júli og ágúst,
alla virka daga. Umhverfið er
þarna fagurt og þrifalegt,
gott hús, sem hefur staðið ó-
notað í nokkur ár. Leiktækj-
úm var komið fyrir í túninu
og m.a. bátum og bilum. Al-
menn ánægja ríkti með þetta
framtak og létti mjög áhyggj-
um af kvenfólkinu og auðveld
aði því að stunda fiskvinnuna.
— Ó. Á.
STARF AUGLÝST
Starf forstöðumanns Bygg-
ingastofnunar landbúnaðarins
er auglýst laust til umsóknar
I nýútkomnu Lögbirtinga-
blaði. Er umsóknarfrestur til
1. nóvember, en starfið á að
veita frá 1. janúar.
FJÖLBREYTTUR AFLI
TIL AKRANESS
Akranesi, 28. september.
Togarinn Víkingur kom inn
í höfn í morgun með um 170
lestir af fiski, sem afiaðist á
heimamiðum.
Aflinn er mestmegnis karfi,
sem fer til frystingar í hrað-
frystihúsinu Heimaskaga hjá
Heimaskaga og H. B. og Co.
Vélskipið Grótta fékk góð-
an afla, þar með talinn fal-
legan kola á útleið til Bret-
lands. Aflinn verður væntan-
lega seldur í Grimsby.
SHdarskipin hafa fengið lít-
ið eða ekki neitt. — h.j.þ.
SÁ SEM ÓK A TRIPPI
Aðfaramótt sl. sunnudags
var ekið á trippi skammt frá
bænum Hvammi í Holta-
hreppi í Skagafjarðarsýsilu.
Sá sem ók á trippið hafði
samband við bóndann í
Hvammi og bað bann að af-
Mfa það. Þeir fóru báðir á
staðinn og var trippið dautt.
Kvaðst maðurinn ætla að fara
beint til lögreglurmar á Sauð-
árkróki. En hanin hefur ekki
gert það. Og bóndamim skild
ist að maðurinn væri á leið
til Reykjavíkuir og sé hann
staddur þar, er hann beðinn
að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna í Reykjavífc,
en við lögregluna á Sauðár-
króki, sé hann úti á landi.
Stjórnmálamenn frá
Afríku í heimsókn
Kynna mál sín í ýmsum löndum
NÝR
BÁTUR
Fáskrúðisfirði, 22. sept.
f dag var sjósettur 26 lesta
bátur hjá Trésmiðju Austur-
lands hér á Fáskrúðsfirði og
hlaut hann nafnið Fjóla BA
150. Eigandi er Erlendur
Magnússon, Reykjavik.
Báturinn er frambyggður,
smíðaður úr eik og í honum
er 170 hestafla Gardnervél.
Fjóla verður útbúin fyrir tog,
línu ■ og handfæraveiðar. 1
bátnum eru 511 venjuleg sigl-
inigatæki, svo sem ratsjá og
dýptarmælir. Báturinn er
teiknaður af Agli Þorfinns-
syni í Keflavík.
— Albert.
Heimsmeistara-
mótið í plægingu
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
plægingu er árlegur viðburður,
sem vekur mikla athygli meðal
þeirra, sem gjörst fylgjast með
ræktunarmálum og er keppt um
gullplóg. Danskir bændur og
norskir, svo nefndar séu þjóðir,
sem okkur eru nákomnar, senda
jafnan þátttakendur. Fór meist-
aramótið fram í Danmörku í
fyrra og varð þá danskur maður
sigurvegari. Norðmenn hafa llka
hreppt gullplóginn. Að þessu
sinni fer heimsmeistarakeppnin
fram í Bretlandi við bæinn Som-
erset og efnt verður til mikillar
landbúnaðarsýningar af þessu
tilefni. Keppnin stendur yfir dag
ana 1.—2. október og munu norsk
ir og danskir bændur og búnaðar
menn fjölmenna til keppninnar.
EKKI hefur fengizt mikill afli
hjá togurunum í sumar á mið-
um við Nýfundnalamd og Græn-
land. Hefur aflinn minnkað á
þeim stöðum frá ári til árs, að
því er Friðrik Steinsson hjá
Fiskifélaginu tjáir okkur.
1 sumar hefur Grænlandsafl-
DAGANA 2.—4. október verður
í kynningarheimsókn á íslandi
sendinefnd frá Sameiningarbanda
lagi Afríkurikja, er höfuðstöðvar
hefir í Addis Abeba, að því er
segir í frétt frá utanríkisráðu-
neytinu.
Formaður sendinefndarinnar
verður forseti Máretaniu, Mokt-
inn verið minni en undanfarin
ár, enda hafa fáir togarar lokið
túrnum, þó að þeir hafi leitað
þangað.
Aðeins einn islenzkur togari,
Maí, fór eina ferð á Nýfundna-
landsmið fyrir skömmu, en gekk
ekki vel, miðað við hinn langa
úthaldstíma.
air ould Daddah. f för með hon-
um verður Hamdi ould Moukn-
ass, utanríkisráðherra Máretaníu,
og nokkrir aðriir eimibættis-
menn þess lands, og auk
þess utanrikisráðherra Alsír,
A. Bouteflika, utanrikisráð-
herra Kamerún, J. Kencha,
utanríkisráðherra Kenya, dr.
N. Mungai, utanríkisráðherra
Mali, Sissoko höfuðmaður, og ut-
anríkisráðherra Zambíu, E. Mud
enda. Ennfremur framkvæmda-
stjóri Sameiningarbandalags Afr
íkuríkja, Diallo Telli, varafram-
kvæmdastjóri bandalagsins,
Mohammed Sahnoun, og einnig
framkvæmdastjóri frelsisnefndar
bandalagsins í Dar Es Salaam,
George S. Magombe.
Sendinefndin hefir undan-
farna daga verið í New York og
rekið erindi sitt hjá Sameinuðu
þjóðunum, en fer þaðan til Was-
hington, Ottawa, Reykjavíkur
Stokkhólms, Helsinki, Oslo og
Kaupmannahafnar.
Sendiför þessi er framhald af
hinni svonefndu Kaunda-sendi-
för 1970, þegar farið var til ítal-
íu, Sambandslýðveldisdns Þýzka-
lands, Bretlands, Frakklands og
Sameinuðu þjóðanna, en þjóð-
höfðingjafundur Sameiningar-
bandalags Afríkuríkja ákvað í
október 1970 að sendinefndir
skyldu fara til allra aðildarrikja
Atlantshafsbandalagsins, Japans,
og Sviss til að ræða vandamál
Afríku og leita stuðnings. Síðar
á að fara tiil þeirra aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins sem eft
ir eru og til Japans og Sviss.
Á íslandi mun sendinefndin
ræða við ríkisstjómina, sitja boð
forseta fslands að Bessastöðum
og boð ríkisstjómarinmar.
Á sunnudagsmorgun, 3. októ-
ber, munu hinir erlendu gestir
hafa blaðamannafund.
Ráðherra í Grímsey
Lítið að hafa við
Grænland
og á Nýfundnalandsmiðum
Sjúkraflug-
vél vantar
Tryggvi eygir ekki möguleika
á kaupum
NORÐURFLUG á Akureyri er
að reisa 800 fermetra húsnæði
fyrir liðlega 3 millj. kr. á Akur-
eyrarflugvel'li fyrir verkstæði,
vörugeymslu, skrifstofu og af-
greiðsiu. — Er það gjörbreyting
frá því er við unnum við aliar
viðgerðir svo að segja úti í snjó-
skafli eða í óupphituðu húsi.
sagði Tryggvi Helgason er Mbl.
hringdi til hans í gær.
En allt er ekki fengið með
því. Sjúkraflugvélin, sem nú er
notuð, er orðin 14 ára gömul,
og hefur raunar aldrei haft ís-
varnartæki, og telur Tryggvi
nauðsynlegt að fá aðra flugvél
í staðinn, betur búna og með
nýrri tækjum. Hafði hann hug
á að kaupa lítið notaða Píper
Aztec flugvél, sem væntanlega
mundi ekki kosta nema um 5
milljónir. En þetta litla fyrir-
tæki orkar ekki meiru en að
koma upp verkstæði og af-
greiðslu í húsinu.
Horfir ekki vel, því að hvergi
fæst ennþá lán til sjúkravélar-
kaupanna, og enga fyrirgreiðslu
er að hafa. — í fyrra var annað
hvort að fara í húsbygginguna
eða kaupa flugvél, segir Tryggvi.
Ég treysti mér satt að segja
ekki til að fá enn eina vél og
hafa engan stað til að gera við
hana. Og ég trúði því að úr rætt
ist með flugvélakaupin.
Tryggvi á stærri flugvél, sem
hann notar til farþega- og póst-
flutninga og hefur líka orðið að
nota hana til sjúkraflugs, þegár
ekki var fært á litlu vélinni ís-
vamarlausri. Verður að sjálf-
sögðu að nota hana alveg til
sjúkraflutninga, ef ekki fæst
önnur og gamla vélin fer
í viðgerð eða verður að
leggjast tii hliðar. En
það er dýrt. Til dæmis kostar
sjúkraflug með stóru vélinni frá
Raufarhöfn til Reykjavíkur 31
þúsund krónur, en er helmingi
ódýrara með sjúkravélinni litlu.
Fastar ferðir Norðurflugs um
Norðausturland hafa gengið
vel. 1. júní byrjuðu fastar viku-
legar ferðir til Húsavíkur, Kópa-
skers, Raufarhafnar, Þórshafnar
og Vopnafjarðar. Uppistaðan í
fiutningunum er póstbáturinn,
en einnig eru teknir farþegar í
sæti. Hefur þetta gengið vel.
— kynnti sér flugvallarmál
Grímsey, 28. sept.
HINGAÐ komu í dag góðir gestir
að sunnan. Það voru þeir Hanni-
bal Valdimarsson, samgöngu-
ráðherra, Brynjóifur Ingólfsson
ráðunjeytisstjóiri, Agnar Kofoed-
Hansen, flugmálastjóri og Hauk-
ur Claessen, flugvallarstjóri.
Komu þeir hingað þeirra erinda
að kynna sér flugvöllinn hér og
öryggisbúnað hans, en hvorugt
hefur verið í nógu góðu lagi um
nokkurt skeið. Þá svipuðust þeir
einnig um eftir hafnargarðinum
margumtalaða, en urðu, eins og
aðrir, frá að hverfa án þess að
sjá hann.
Grímseyingar vænta þess,
að þessir gestir okkar verði
reynslunni ríkari eftir þessa heim
sókn til Grímseyj ar, en hún stóð
í um tvær klukkustundir. Er
Hannibal liklega fyrsti samgöngu
ráðherrann, sem heimsæklr
Grímsey.
Síðastliðinn sunnudag var sett
hér upp ljósmyndastofa, sú fyrsta
sem hér hefur verið. Kom Ijós-
myndarinn hingað að tilhlutam
Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
sem vinnur nú að undirbúningi
Búendatcils Eyjafjarðarsýsiu, og
voru mynduð öll hjón, sem náðist
í í Grímsey. Einnig tók Ijósmynd
arinn margar aðrar myndir fyirir
Grimseyinga og vakti þessi heim
sókn hans mikla ánægju.
— Fréttaritárj.
Yfirgaf slysstaðinn
- og skildi slasaðan farþega eftir
SAUTJÁN ára stúlka handleggs-
brotnaði og meiddist á höfði og
fæti, þegar bíl var ekið út af
Hafnarfjarðarvegi, rétt norðan
Sléttnvegar í fyrrinótt. Ökumað-
urinn — 23 ára — yfirgaf bíl-
flakið og reikaði um í Fossvogs-
kirkjugarði, þar til slökkviliðs-
menn. sem kom á slysstað, sáu til
hans og tóku hann. ökumaðurinn
reyndist vera undir áhrifum
áfengis.
Ökumaðurinn sagði við yfir-
heyrslu, að hann gæti ekki gert
«ér grein fyrir því, hvað yfír
hann hefði komið við slysið.
Hann segist hafa farið iinn í
kirkjugarðinn og lagzt þar fyrir
skamma stund, en þegar sann-
leikurinn rann upp fyrir honutn,
varð hann hræddur og segist
hann þá hafa reikað um í garðin
um, án þess að vita, hvað hann
settí. að taka til bragðs. Þá komu
slökkvUiðsmenmimir auga á
hann við kapelluma og tóku með
sér til lögreglunnar.