Morgunblaðið - 29.09.1971, Qupperneq 7
MORGUiNBLAÐIÐ, MIÐVIKIJDAGUR 29. SEPTEMBER 1971
7
LAUSAMENNSKAN VAR
STÓRHÆTTULEG
Spakmæli dagsins
Leyf mér að vinna verk mitt
á degi hverjum. Og ef hinar
myrku stundir örvæntingarinn-
ar yfirþyrma mig, lát mig þá
ekki gieyma þeim huggunar-
styrk, sem mér gafst, þegar ég
áður var yfirgefinn. Gef mér að
minnast hinna björtu stunda,
þegar ég í bernsku reikaði um
hæðirnar eða lét mig dreyma á
bökkum hins lygna fljóts og ég
var sem uppljómaður hið innra
og hét þvi Guði æsku minnar að
láta ekki hugfallast, hvernig
sem viðraði á komandi árum. . .
Frelsa mig frá beiskju og frá
ofsa ástríðnanna, þegar ég stend
berskjaldaðastur fyrir. Lát mér
ekki gleymast, að fátækt og auð
legð eru andlegs eðlis. Megi
hugsanir mínar og gerðir vera
þess eðlis, að ég sé sáttur við
sjálfan mig, þó að heimurinn líti
ekki við mér. Lyft augum mín-
um frá jörðu, og iát mig ekki
gleyma stjörnunum. Lát mig
ekki henda að dæma aðra, svo
að ég fordæmi ekki sjálfan mig.
Lát mig ekki hiaupa á hróp
heimsins, en feta hljóður götu
mína. Gef mét fáeina vini, sem
unna mér eins og ég er, og leyf
mér að þræða minn ógreiða veg
við hið Ijúfa Ijós vonarinnar.
Og þó að elli og hrörnun nái
tökum á mér, áður en ég kemst
1 sjónmál við draumaborgir mín-
ar, þá lát mig vera þakkiátan
fyrir iífið og Ijúfar og góðar
minningar liðinna daga. Og með
undirgefni heilsa ég rökkrinu.
— Max Ehrman.
GAMALT
OG GOTT
Um kyndilmessu (2. febrúar)
er svo kveðið:
Ef í beiði sólin sést
á sjálfa kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest,
maður, upp frá þessu.
(Úr bókinni Ég skal kveða við
þig vel eftir Jóhann Sveinsson
irá Flögu).
FRETTIR
Dómkirkjan
Viðtalstimi séra Þóris Stephen-
sen er mánudaga til fimmtudaga
kl. 4—5 e.h. í kirkjunni. Sími
12113. Þar eru m.a. afgreidd
vottorð úr kirkjubókum. Auk
þessa er viðtalstími eftir sam-
komulagi á heimili hans að Haga
mel 10, s. 13487. Vinsamlegast
ið þetta inn á minnisblað
...! rárinnar.
Árið 1831 kvað lögreglurétt-
ur Skagafjarðarsýslu upp sekt-
ardóm yfir þremur ungmennum
fyrir lausamennsku. Hin sekt-
uðu voru Ólafur Ólafsson
í Hvammi, Guðmundur Jónsson á
Miklahóli og Jórunn Jónsdóttir
á Ásgeirsbrekku. Voru piltarnir
dæmdir hvor um sig að þola 10
vandarhagga refsingu, en hún
15 vandarhögg, en sameiginlega
skyldu þau greiða allan máls-
kostnað. Um sakargiftir er þetta
sagt:
Ölafur hafði ráðið sig í vist
krossmessuárið 1830—31, með
því skilyrði, að hann fengi sig
lausan um haustið, ef hann gæti
útvegað mann í sinn stað. Þetta
fór svo, að hann gat útvegað
mann í sinn stað í september,
en þá þóttist bókbindarinn ekki
geta kennt honum þann vetur,
þvert ofan í vilyrði, svo Ólafur
dvaldist hingað og þangað um
veturinn, en bauð sig hvergi i
vist; það var sökin. Gísli hafði
aftur á móti farið úr vist að
áliðnu sumri, með leyfi hús-
bónda síns, og til þess að vera
sjálfum sér ráðandi. Jórunn
hafði árið á undan verið i lausa-
mennsku, en þetta ár hafði hún
ráðið sig í vist að hálfu og bar
við heilsuleysi að hún þyldi
ekki meiri vinnu; því var ekki
trúað.
Þau áfrýjuðu öll þrjú þessum
dómi til yfirréttar og var dóm-
ur þar kveðinn upp í desember.
Á forsendum dómsins má sjá, ið
yfirréttardómararnir hafa talið
lausamennsku stórhættulega.
Þar segur svo:
— Eins og norskulög, tilskip-
anir, kóngsbréf, ásamt mörgum
eldri og yngri fyrirskipunum,
harðlega fyrirbjóða vistfæru
fólki alla lausamennsku, undir
þungt straff, ella og skipa yfir-
völdum nákvæma eftirgrennsl-
an hennar og ákærur gegn því-
líkum, svo hafa lausamenn um
aldur og ævi reynzt og virzt
atjórnvitrum mönnum að vera
átumein þessa lands (sem ann-
arra) velmáttar, aðalorsök til mót
þróa, ósvífni og eklu vinnufólks,
ÁHEIT OG GJAFIR
Guðmundur góði
Birna Ólafsdóttir 500.
Áheit á Strandarkirkju
G. 500, Ragnheiður 100, N.N. 30,
S.Ó. 1000, A.J. 100, Gússý 300,
Á.J. 200, O.E. 500, Þuríður Guð-
mundsdóttir 500, E.S. 300, V.l.
100, G.S. 500, H.P. 300, Elia 200,
frá Kalla 1000, M.G. 200, M.A.Ó.
100, Gunnar 100, x-2 200, S.Æ.
500, A.F. 200.
en hnignunar góðrar hússtjórn-
ar, eyðileggingar og níðslu
jarða, þar sem verkafólk skortir
til að sitja þær vel og vinna
upp, og til þar af leiðandi pen-
inga- og atvinnuskorts og útörm
unar búenda, sem þó einir hljóta
að bera öll opinber þyngsli, en
einkum — hvað vorra daga
reynsla hér í landi fullsannar —
má álíta lausamennsku, með
henni samfara iðjuleysi, lausung
og kostavendni, efni til spillis
almenns siðgæðis, svo og meðal
þessara lima leita megi einkan-
lega að stofningum til hættuleg-
ustu glæpamanna, hvers vegna
full nauðsyn virðist til að yfir-
völd, samkvæmt þeirra laga
skyldu, láti sér annt um vera að
fækka og stökkva þessum hættu
lega flokki, ekki sízt á þessum
dögum, hvar of mörg illvirki
finnast af þessum framin, en
skortur vinnufólks hefir leitt
fjölda manna til að hafna vistum
nema með afarkostum, undir
hverjum búendur fá ei risið. —
Með þvílíku tilliti virðist nú lög
sókn af viðkomandi yfirvaldi að
vera í héraði höfuð gegn þrem-
ur hér ákærðum lausingjum. —
Dómendur litu samt svo á, að
Ólafur hefði málsbætur miklar,
hann hefði ekki farið úr vist-
inni til þess að gerast lausamað-
ur, en yfirsjón hans hafi verið
að hann bauð sig ekki aftur í
sömu vist, eða í aðra, né heldur
tilkynnti hreppstjóra að kennsl-
an hefði brugðizt sér og bað
hann eða sýslumann að lögum að
útvega sér aðra vist. Hann var
þvi ekki dæmdur til refsingar
fyrir lausamennsku, heldur að-
elns til að greiða málskostnað að
sínum hluta.
Um Guðmund Jónsson væri
allt öðru máli að gegna, hann
hefði farið úr vist, til þess að
vera lausamaður eftir sjálfs sín
sögn, og þess vegna væri hann
réttilega dæmdur til að hýðast
10 vandarhöggum og greiða
málskostnað að sínum hluta.
Um Jórunni sé það sannað, að
hún hafi vistað sig að hálfu um
krossmessu, en verið að hálfu I
lausamennsku, þó að henni byð-
ust tvær vistir. „Líka er það með
vitnum sannað, að hennar
heilsuveiki, sem hún færði sér
til afsökunar frá að ganga í vist
ir, ei er nema fyrirsláttur einn,
hvers vegna hún virðist rétti-
lega dæmd til að líða 15 vand-
arhagga refsingu og ásamt hin-
um in solidum til að borga máls-
ins kostnað."
HÉR
ÁÐUR
FYRRI
HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti, 30 stk. á 300 kr. Þvott ur, sem kemur í dag, tihbúinn á morgun, Þvottahúsið Eimir Síðumúla 12, simi 31460. BROTAMALMUR I Kaupi allan brotamáim lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91.
ATVINNA ÓSKAST SÓFASETT
Húsimóðir óskar eftir vinnu alfain dagiinn, upplýsingar i sima 23969. í gömilum stíl, vel með farið, ti'l sölu. Upplýsinigaf i síime 14893.
HERBERGI ÓSKAST Einhleypur meður utan af iarvdi óskar eftir að taka her'bergi á leigu fró 1. okt. Náiniari uppl. í sirna 9G-8179. S. A. KERAMIK nýkoimið. Miikið úrval af skélum á borðstofuborð. Blómaglugginn Laugavegi 30 sími 16625.
MÓTATIMBUR Ti-I sölu nok'kurt mag-n af mótatimibri. Upplýsingar í siima 18323 eftir kii. 7.30. PlANÓKENNSLA Kemnsla mín i píenóspihi byrjar 1. o'któber. Katrin Viðar s'iimi 13704, Laufásvegi 35.
VERKAMIENN Verkaimenn óskeist í bygg- ingarvinmi. Upplýsingar í síma 36862. Jón Hannesson. LÆRIÐ AÐ VEFA Námtskeið befst i byrjun október á Akurgerði 38. Agnes Daviðsson vefnaðarkennari, sími 33499.
GÓEHJR BlLL TM sö'iu Volvo A.mazon, árgerð 1966. Veltir hf, S'uðurl'aindsbreut 16. 4—5 HERBERGJA IBÚÐ Háskóiakennari vill take á leigu ibúð, 4—6 herbergja, nú þegar eða í október. Sirni 15547 eftir kl. 18.
HUSEIGN við Skóhavörðustig tii söiu, eigmarlóð. Sverrir Hermannson, S'kóla- vörðustig 30. sími 14600, kvöldsími 24615. ATVINNA ÓSKAST Ung stúlka óskar eftir vinnu fyrri híuta dags, er vön af- gneiðslustörfum, hefur emsku- og vélritunarkunnátu. Uppl. í síma 35888.
NANKIN bneidd 1,40 á 138 kr., og þýkikara, breidd 90 sm, á 140 k,r. Sængurveraléreft raut, einlitt léreft. Verzl. Anna Gurtnlaugsson Laugavegi 37. ÉG ER RÚMLEGA ARSGAMALL Vil) ekki eimihver berngóð kona passa mig fimm dage vikunnar kl. 9—5, meðan mamma min vinrnur úti? Simi 16801 fyrir kl. 17 — 14378 eftir kf. 17.
IESI0 Jflovjjunlilaþiþ DRGLECn KONUR 1 FOSSVOGSHV ERFI Kona óskast ti) að taka að sér 2 drengi 3ja og 7 ára, 1-—2 daga vikunnar. Uppl. i síma 83266.
Fimleikadeild flrmanns
tekur til starfa í þróttahúsi Jóns Þorsteinssonar föstudaginn
1. okt. og mánudaginn 4. okt. i íþróttasal Breiðagerðisskóla.
DEILDIN STARFRÆKIR: AHALDALEIKFIMI KARLA OG
KVENNA, OLD BOYS-FLOKKA OG FRÚARLEIKFIMI.
Æfingatafla fyrir veturinn 1971—72 verður sem hér segir:
íþróttahús Jóns Þorsteinssonar:
I. fl. karla mánud. kl. 8.00—9,30, miðvikud. kl. 9.00—10.00
og föstud. kl. 9.00—10.00.
Kennari Ingi Sigurðsson.
II. fl. karla mánud. kl. 7.00—8.00 og miðvikud. kl. 8.00—9.00.
Kennarar: Ingi Sigurðsson og Guðni Sigfússon
I. fl. kvenna þriðjud. kl. 8.00—10.00 og fimmtud. kl. 7.00—8 00.
Kennari: Þórey Guðmundsdóttir.
II. fl. kvenna þriðjud. kl. 7.00—8.00 og fimmtud. kl. 8.00—9 00.
Kennari: Margrét Jónsdóttir.
Old Boys (I) miðvikud. kl. 7.00—8.00 og föstud. kl. 8.00—9.00.
Kennari: Magnús Gunnlaugsson.
Old Boys (2), nýr flokkur, föstud. kl. 7.00—8 00.
Kennari: Magnús Gunnlaugsson.
Ath.: Old Boys flokkar eiga kost á gufubaði eftir allar aefingar.
Innritun og upplýsingar um Old Boys flokka er í síma 23083.
Breiðagerðisskóli:
Frúarleikfimi (I) mánud. kl. 8.00—9.00 og fimmtud.
kl. 8 00—9.00. — Kennari: Dóra Jóelsdóttir.
Frúarleikfimi (2) mánud. kl. 9.00—10.00 og fimmtud.
kl. 9.00—10.00. — Kennari: Dóra Jóelsdóttir.
Innritun og upplýsingar um frúarleikfimisflokka er í sima 33187.
Innritun og upplýsingar um aðra flokka en að ofan greinir,
verður í skrifstofu Ármanns Lindargötu 7 miðvikudaginn 29.
sept. kl. 8.00—9,30 og fimmtudaginn 30. sept. kl. 8.00—9,30
i sima 13356 baeði kvöldin.
FJÖLMENNIÐ. TAKIÐ ÞATT I ÆFINGUM FRA BYRJUN.
FIMLEIKADEILD ARMANNS.
—