Morgunblaðið - 08.10.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.10.1971, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1971 BREYTINGA cr að vænta í Hæstarétti Bandaríkj- anna, þar scm cinn elzti dómarinn, Hugo Black, er látinn og annar, John Har- Jan, hefur hætt störfum af heilsufarsástæðum. Val eftirmanna Blacks og Har- Jams getur haft afdrifarík- ®r afleiðingar, því að við það getur afstaða Hæsta- réttar breytzt, áreiðanlega í hægri átt, þar sem Nix- ©n forseti ræður valinu, þótt þingið verði að stað- festa það. Vald Hæstarétt- ar er geysimikið, og oft hafa úrskurðir hans bein áhrif á líf fólks í Banda- ríkjunum. Val nýrra dómara í Hæsta- rétt Bandaríkjasma vekur jaln an tnikla eftirtekt, og ferill þeirra er jafnan þaulrannsak aður í blöðum, af þingmönn «m og af mannréttindasam tökum. Sumum er í fersku minni, að Nixon varð fyrir miklum álitishnekki í fyrra, þar sem Öldungadeildin neit aði að samþykkja tiilnefningu tveggja íhaldsmanna frá Suð urríkjunum, siem Nixon hafði mælt með að yrðu skipaðir í dómarasæti, sern hafði losnað. Nixon hefur aldrei dregið dul á það, að hann teiur Hæsta rétt of frjálslyndan í viðhorf- lykta, að forsetinn geti vexið viss hvemig dómararnir, sem hann velur, greiða atkvæði, þegar þeir hafa tekið sæti í Hæstarétti, þar sem sjálfstæði í skoðunum hefur jafnan setið í öndvegi. VÍÐTÆK ÁHRIF Fyrri störf og menntun eru oft viliandi. Black dómari kom frá svörtustu Suðurríkjunum. Hann var fæddur og uppalinn í Aiabama. Faðir hans var Suðurríkjahermaður í þræla- stríðinu. Hanm var sjálfur um skeið félagi í Ku Klux Klan. Samt greiddi hann alltaf at- kvæði með því að mannrétt- indi og væru tryggð og efld og á móti aðgreiningarlögum. Trú Blacks á bókstaf stjóm arskrárinnar gerði að verk- um, að Agnew varaforseti mundi segja að skoðanir hans bæru keim af „frj álslyndis— róttækni“ í sumum málum, en hann var íhaldssamur í öðr- um málum. Býsna erfitt var að draga Black og Hartlan í diilka, því fáir dómarar eru sjálfum sér svo samkvæmir í dómum sinum að hægt sé að stimpla þá svo óyggjandi sé „frjáislynda*1 eða „íhalds- sama“ í öllum málum. Hart'lan var yfirleitt talinn heyra til hinum síðarnefndu, þótt frjáís lyndur væri í ýmsum málum. Heimspekileg afstaða Hæsta réttar kemur seint fram. Úr- skurðir Hæstaréttar nema Nixon breytir Hæstarétti um og að ætlun hans sé að breyta þessu. Þetta var eitt af baráttumálum hans í kosninga baráttunni 1968, en þá hélt hann því fram, að vaxandi giæpir í Bandaríkjunum stöf uðu af linkind dómara Hæsta réttar. Barátta fyrir „lögum og reglu“ var lika eitt aðal mál Nixons í þingkosningun- um í nóvember í fyrra. Síaukn ir glæpjr og vaxandi ofbeldi i bandariskum fangelsum, «em uppreiisnin í Attica-fangelsi ber gleggst vitni um, sýnir að „lög og regla“ verða áreiðan lega mikilsvert mál í forseta kosningunum á næsfa ári. Nixon hefur kennt fráfar- andi stjórnum demókrata um Harlan dómari glæpaaukninguna, en ólíklegt er að hanm haldi því áfram. J ohn Mitchell dómsmálaráð- herra hefur raunar reynt að sanna með tölum, að ástandið hafi eitthvað batnað undir stjórn repúblikana eða öllu heldur að ástandið versni ekki eins mikið og það hefur gert áður. Nixon gæti haldið þvi fram, ef hann skipaði mál- svara laga og reglu í Hæsta rétt, að það sýndi að hann berð ist fyrir þvi, að ástandið héldi áfram að skána. Ef nýi dómar inn verður þar að auki frá Suðurrikjunum, er þess að vænta að það verði repúblik önum að liði í þeim viðleitni þeirra að auka fylgi sitt í Suð urríkjunum. MEÐ MÁLFRELSI Skipun dómara í Hæstarétt mótast þó síður en svo ein- vörðungu af pólitískri hlut- drægni og von um pólitískan á viinning. Dómarar Hæstarétt ar eru skipaðir ævilangt. Þeir gegna embættinu unz þeir falla frá eða segja af sér. — Franklin D. Roosevelt skipaði Black dómara árið 1937, hann gegndi dómarastörfum í 34 ár og hafði geysimikil áhrif á líf fólks í Bandaríkjunum. Black dómari lézt aðeins fáeinum dögum eftir að hann sagði af sér. Black dómari greiddi at- kvæði með þeim hæstaréttar dómum, sem hafa leyst upp aðgreinda skólakerfið í Suður rtikjunum. Þegar þúsundiir barria aka í hópferðabílum, þar sem hörundslitur skiptir ekki máli, til náms í skólum, þar sem aðgreining eftir kyn þáttum þekkist ekki, þá staf- ar það af þessum hæstarétt- ardómum. Áhrif Blacks áttu sinn þátt í því, að bænir voru bannað af í ríkisskólum og að fátækir sakbonningar í alvarlegum málum fengu ókeypis lög- fræðiaðstoð. En það sem mest mun halda nafni Blacks á lofti var afdráttarlaus barátta hans fyrir því, að ákvæði stjórnarskrárinnar um mál- frelsi væru höfð í heiðri. Síð asta verk hans i Hæstarétti var að greiða atkvæði gegn til raun stjómarinnar til að meina blöðum að birta leyni skjöl úr landvarnaráðuneyt- inu um Víetnam-striðið. Black gerði grein fyrir skoð unum sínum í siðustu greinar gerð sinni á eimfaldan ótví- ræðan hátt: „ í fyrsitu breyt- ingunni við stjórnarskrána veittu feður lýðveldisins frjálsum blöðum þá vemd, sem þau verða að njóta til þess að rækja lífsnauðsynlegt hlutverk sitt i lýðræði okkar. Blöðin áttu að þjóna þeim sem var stjórnað, ekki þeim sem stjórnuðu. Vald stjórnar innar til þess að ritskoða blöð in var afnumið, svo að blöðun um væri frjálst um eilífð að vita stjórnina. Blöðunum var veitt vernd, svo að þau gætu afhjúpað leyndarmál stjómar innar og frætt fó'lkið". „TVIBURARNIR" Dómararnir eru níu, og at- kvæði þeirra í þessu máli skiptust þannig, að sex greiddu atkvæði með því að blöðin fengju að birta úr leyniskjöl unum, en þrír á móti. Tveir úr minnihlutanum voru þeir tveir dómarar, sem Nixon for seti hefur skipað í Hæstarétt, Burger, forseti Hæstaréttar, og Blackmun dómari. Þedr eru kallaðir „Minnesota-tví- burarair", því að þeir eru frá sama ríki og kjósa jafnan eins. Skipun þeirra hefur óneitan- lega sett meira íhaldsyfirbragð á Hæstarétt miðað við þann frjálslyndisblæ, sem ríkti und ir stjórn fyrrverandi forseta Hæstaréttar, Earl Warren. — Þegar forsetinn skipar í þær stöður, sem nú hafa losnað, má gera ráð fyrir að hann ýti undir þessa þróun. Því fer fjarri, að Burger og Blackmun taki við fyrirmæl- um frá Hvíta húsinu. Forset- inn var þvi andvígur, að börn væru flutt í hópferðabifreiðum til þess að tryggja að skólar væru reknir án tillits til hör- undshtar nemenda. Þrátt fyr ir það greiddu bæði Blackmun og Burger atkv. með því að staðfest væri umdeild áætlun í Norður-Karólínuríki, sem miðaði að því að koma í veg fyrir kynþáttamismunun í skól um og fól í sér víðtækar ráð stafanir um hópakstur nem- enda. Forseti Hæstaréttar gaf að visu út yfiriýsingu skömmu síðar til þess að útskýra, að úr skurðurinm gerði hópakstur ekki að skyldu í öllum tilvik um. En kjánalegt væri að á- mörgum hundruðum á ári. Smátt og smátt mynda þeir ákveðinm farveg. Breytist far vegurinn, þótt breytingin láti lítið yfir sér, hefur það víðtæk áhrif, því að það sem Hæsta- réttur ákveður, leiðir oft til breytimga, sem gætir um öll Bandaríkin. Á næsta starfstímabili, sem er nýhafið, má vera að Hæsti réttur úrskurði loksins, hvort líflátsrefsing er leyfileg sam- kvæmt stjómarskránni, eða hvort hún er „grimmileg og óvenjuleg refsing“ og þar af leiðandi ólögleg. Rúmlega 600 miamns, meðal annars nokkrar konur, bíða þess í dauðaklef- Framhald á bls. 39 Black dómari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.