Morgunblaðið - 08.10.1971, Page 6

Morgunblaðið - 08.10.1971, Page 6
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÖBER 1971 Skipstjórinn í brúnni. Um borðíHaja ÞAÐ er sagt að enn sé það svo, að vinnubrögðin við að taka trollið séu ekki eins á neinum tveimur skutskipum. Hefðbund- in vinnubrögð eins og þau, sem tíðkuðust um áratugaskeið á aðuskrpunum hafa ekki enn myndazt. Um áratugi var trollið tekið nákvæmlega með sama hætti á öllum togaraflotaimm. Ekkert handtak ' var frá- brugðið og enginn hlutur öðru- vísi á einu skiprnu en öðru. Van- ur maður var nákvæmlega jafn heima við þetta verk og flest önnur á nýju skipi, sem hann réðst á og þvi, sem hann hafði verið á áður. Það færist óð- fluga í þessa átt á skutskipunum, að minnsta kosti á skipum í sama klassa. Munurinn er ekki orðinn stórvægilegur. Það er helzt að það séu mismunandi að- ferðir við að hífa trollið fram og fer það nokkuð eftir hvemig spilunum er fyrir komið. Á Hája var bara eitt stórt vökva- drifið trollspil, með spilkoppum, trolltrommunum og tveimur litl- um trommum fyrir grannan vír til að hífa grandarana fram á. Trollið esr tekið með þeim hætti, að hlerarnir eru hífðir kloss að skutnum að neðan en jámslár eru við efri brún þeirra og sitja þeir þannig lóðréttir og vel skorðaðir þvi að trollvíramir halda þeim föstum að skipinu. Dauðaleggnum er nú lásað frá og húkkað í lausan vir, sem ligg- ur inn á litlu trommurnar á apil inu. Á þessum vír eru grandar amir hifðir áfram og bakstroffu- leggnum lásað frá, þegar hann kesnur inn á dekkið og síðan híft áfram og rossið híft alveg fast fram að spili. Þá er húkkað lausum vír í vængendana. Hon- um er þannig fyrir komið að bakborðsmegin er hann tekinn í kastblökk og síðan leiddur þvert yfir skipið og í hanafót, en síð- an eru báðir vængendamir hífð- ir á einum legg á koppnum stjómborðsmegin. Þessi vír er látinn tama sig á köppnum, en sá aem er við spilið stjómborðs- megin fer aftur á dekk að hjálpa til þar. Þegar belgurinn kemur upp úr skutrennunni er slegið á hann stroffu og hann hífður fram á foa-gilsinum, þar til pok- inn er kominn allur inn á dekk. Þeir hafa tvo poka til að létta farginu á fiskinum upp skut- rennuna og eins til að létta álag ið á pokanum þegar hann dregst upp bratta rennuna en það er geysilegt, ef mikið er í. Alveg aftur við skutrennuna er lúga með vökvadrifnum lúgu- hlera, sem fellur niður í dekkið. Þegar pokinn er kominn inn fy>r- ir er þessi lúga opnuð og lokar þá Iilerinn jafnframt fyrir skut- rennuna, því hann opnast aftur. Ef vont er að koma stroffurmi á belginn, hann liggur strengdur og þungt á dekkinu, þá lyfta þeir í hlerann og hann lyftir þá belgnum um leið, svo auðvelt er að smeygja stroffunni undir, en annars er lúgan ekki opnuð fyrr en á að fara að losa úr pokanum þvi að niður um þessa lúgu fer fsikurinn niður í kassana á miiii dekkinu. Pokinn er hífður upp á aftur- gilsinum eða taliunni, ef mikið er í. Gilsvímum er slegið á sér- stakan spilkopp á fæti til hliðar við skutrennuna bakborðsmegin. Á þessum kopp er pokinn einnig hífður út á. Eins og áður segir eru ekki nema 5 menn á dekki. Þar af er einn á aðalspilinu við að stjórna hífingum, annar við spilkoppinn aftur á, einn er laus, og húkkar í gilsunum, en tveir eru við vörpuna og hnýta fyrir, sinn fyrir hvorn poka, þegar harvn hefur verið tærndur niður um lúguna, sem þá e.r lokað aftur og um leið opnast skutrennan á ný og dekkið er slétt sem áður. Tóg með sleppikrók á endanum liggur aftur í blökk, sem hangir í litlum gálga eða davíðu ofan og út yfir skutrennuna. Á þessu tógi er pokinn hífður út á og sleppt. Þó að þessi lýsing sé orðin all löng, þá tekur það ekki nema eins og 10 mínútur að taka vörp- una frá því að hlerarnir koma í gálga, þar til pokinn er kominn út aftur og byrjað að kasta fg eru þó Norðmennimir ekkert að flýta sér við þetta verk. Það er hreint enginn yfir- hraði á mannskapnum, eins og hér tíðkast við að taka troll, enda aðstaðan miklu betri. Það þarf ekki að óttast að neitt fari til spillis. Skipið dólar áfram á hægri ferð ailan timann og varp an helzt klár utanborðs, þó að standi á einhverju um borð. Það var aldrei kallað orð úr brúnni aftur á dekk allan túrinn. Það var flautað þegar átti að kasta og flautað þegar átti að hífa upp. Ég býst þó við, að ís- lenzkur togaraskipstjóri hefði þó nokkrum sinnum fengið til- efni til að hóa litilsháttar á mannskapinn. Sjálfsagt hefði honum fundizt rólegheitin full mikil á köflum við að koma út dræsunni, þó að verkið gengi, eins og áður segir í rauninni prýðilega vegna góðra aðstæðna. Auðvitað ganga verk ekki betur þó að argað sé á mannskapinn, og mennimir argi sjálfir hver á annan, en það skapast við þenn- an ákafa ákveðinn vinnumórall — það flýta sér allir eins og þeir geta. — Menn geta fundið þessu öskur- og hlaupakerfi okkaa- allt til foráttu, en það er samt óum- deilanleg staðreynd, að því hafa fýlgt mikil afköst. Með bætt- um útbúnaði og aukinni tækni á , ’ jS / | ólji l. 1k<‘ HNH Hája. nýtizku skipum er liklegt að þetta smáhverfi. Það fór alltaf eitthvað í súginn í hverri upphíf ingu á þessum gömlu skipum, sterturinn ef ekki annað. Þeg- ar verkin fara að ganga snurðu- laust, hverfa köllin. Haja er fimm ára gamalt skip og þar er margt orðið úrelt, til dæmis er spilinu stjómað á nýj- ustu skipum Findusar uppi í brú, en samt er Hája alltaf topp- skip hjá Findusi. Það held ég að stafi af því að nýju skipin þeifra eru of stutt. Hája er fjórum metruim lengra en nýjustu skip- in, eða 50.35 metrar mesta lengd, en ekki nema 9 metrar á breidd, en nýjustu skipin eru 46 metrar á lengd og 9.5 metrar á breidd. Þegar hin aukna lengd kemur fram á dekkinu, stórbætir það vinnuaðstöðuna við þessi stóru djúpsævartroll með 70 feta vængi, 80 feta belg og 50 feta poka, en auk þess liggja löng skip miklu betur á togi en stutt skip. 500 tonna skutskip eru tilval- in skip fyrir okkar grunnslóð en það er hægt að eyðileggja þessa tappatogara með því að hafa þá alla á þv&rveginn. Ég held við ættum ekki að byggja skipin undir 50 metrum á lengd. Annars - er náttúrlega ekki glóra í því að byggja heilan flota slcipa í samræmi við timabundna sjómannasamninga um nauðsyn- legan mannafjölda um borð í skipum, sem eru að hverfa. Við hljótum að miða smíðina við hvaða skip henta okkur bezt á miðunum við þær veiðar sem við ætlum að stunda. Verðum við að koma okkur upp dekkakeðju? Um nokkurra ára skeið heíur það verið á döifinni hjá ýmsum að hér skyidi komið u>pp dekk stöðvum og dekkastaðará>kvörð- unarkerfi. Höfiuðröksemdin gegn þessu hefur verið sú, að slíkt nákvæmnisstaðarákvörð- unarkerfi og dekkakerfið . er, komi útlendum fiskimörmum mest að notuim. Okkar fiski- menn, þeir sem veiða fjær landi e*i svo að ratarinn dugi þeim, segjast geta notazt við lóraninn auk þess, sem þeir ger- þekki fiskislóðina. Þetta var ónei.anlega sterk röksemd og aulk þess kom það til og kemur reyndar enn, hvort sú mikla fjáríesting, sem hér verður um að ræða borgar sig — sé „ökonomisk" eins og það er kallað. Það er ekki nóg að einn hlut- ur sé betri en annar, heldur verður hamn að vera það miklu betri að það svari til verðmun- arins á honum og lakari hlutn- um. Þetta er hin stóra spurn- ing í sambandi við fjárfestingu í vélum og tækjuim. Það kostar nokkur hundruð milljónir að koma hér upp dekkasendístöðv- um (ef þær eru ekki leigðar) og 70—80 milljónir að búa fiski bátana dekkamóttökutækjum Spurning er: aukast afflcöstin, sem þessum kostnaði nemur: Dekkamennimir fuHyrtu að svo hlyti að verða. Það væri alls staðar reynsla fiskimanna. Okátur hérlendis er kunnugt um það áiit norskra fiskimanna að þessi kostnaður borgi sig, en þeir hafa notað kerfið uim nofek urra ára skeið, og islenzkir fiski menn að veiðunn í Norðursjó láta mikið af þessu kerfi, sem er fuUkomnasta staðsetn i n garkerf i á sty.tri vegalengduan, fiyrir ut- an gervihnattakerfið, sem þekk- ist Það verður ekki hægt að óreyndu að sanna, hvort kerfið sé fjárhagslega hagkvæmt á okk ar fiskislóð eða ekki. Við verð- um að byggja átovarðanir otokar á reynsQu nágrarmaþjóðanna. Það er aftur á móti augljósí, að ef við færum ú. fiskveiðilög söguna stórlega eins og land- grunnið segir til uim, þá verðum við að tooma okkur upp staðar- ákvörðunarkerfi, sem gerir otok- ur kleift að taka skip að veið- um innan markanna. Það getum við ekki eins og nú standa sak- ir, ekki einu sinni li-kt því inn- an 50 miílna hringsins. Detokakerfið er ótrúlega ná- kvæmt. Það má nefna sem dæmi að olíuborunarmenn í Norðursjó leika það að sleppa born- uim niður í hoiuna, þegar gerir vond veður, og þeir se;ja ekki út baujur, heldur finna holuna affcur eftir dekka, þó að stöð- ina hafi hrakið langt frá henni. Það er einnig hægt að keyra beint á bauju í tuga sjóimílna fijarlægð, ef menn vita dekka miðunina á henni. Festur og aðr ar hindranir i bo ni geta menn einnig staðsett og þar af leið- andi varazt með dekka. Leit að fiskibleyðum og einnig að skip- um í nauð er miklu auðveldari eftir þessu kerfi en öðrum þetokt um kerfum nema þá eins og áður segir gervihnattamiðunum, sem enn eru svo dýrar, að þær koma ekki til greina á næstu árum um borð í fiskiskipum. Irar eru nú að tooma sér upp dekkakeðjum umhverfis landið. Þeir leigja sendistöðvamar, þær eru Qórar á vesturströndinni og sennilega álika margar á aust- urströndinni — fyrir 750 þús- und sterlingspund á ári til 10 ára og gera að þeim líma liðnum annað tveggja að kaupa stöðvarnar, að mér s'kilst, eða láta Bretana hirða þær aftur. 1 þessari árlegu fjárhæð er fiólginn rekstrartoostnaður auk stofnkostnaðar. Tækin uim borð í skipunum er einnig hægt að leigja og leigan er um 600 sterlingspund á ári fyrir staðar ákvörðunartækið og leiðarrit- ann (navigatorinn og plotter- inn). - ' f ' *-*• » í.~ *•> Dekkakeðjur norövcstur tvf Kanada, sem sýna glöggt nákvæmnina að degi til, en hún er allt niður í 180 metra á um 200 sjóm. radíusi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.