Morgunblaðið - 08.10.1971, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1971
45
Góð aðsókn að byggða- og
minjasöfnum úti á landi
AÐSÓKN að minjasöfiiunum
úti á landi hefur verið góð í
sumar og víða hefur hún auk
izt mjög frá fyrra ári. Morg
unblaðið hafði nýlega sam-
band við safnverði eða for-
stöðumenn safnanna og spurð
ist fyrir um aðsókn, nýja muni
og gjafir til safnanna. Hér fara
á eftir upplýsingar, sem þessír
aðilar gáfu.
Séra Jón Guðjónsson, sem
veitir Byggðasafni Akraness
og nærsveita forstöðu sagði
að aðsókn hefði verið mjög
góð í sumar og mikið af er-
lendum ferðamönnum hefði
komið í safnið. Aðsókn að safn
inu í sumar hefur verið á ann
að þúsund manna. Séra Jón
sagði að mjög mikið af gjöf
um hefði borizt í sumar og'
hefði hann varla við að skrá
munina. Gjafir væru líka of
margar til þess að unnt yrði
að telja þær upp og oft væru
margir aðilar sem stæðu að
sömu gjöfinni. Skrásettir
hafa verið á 4. þúsund munir
í safninu. Húsnæðisskortur
hrjáir safnið, en verið er að
reisa nýtt safnhús og er það
kostnaðarsamt verk.
Mjög góð aðsókn hefur ver
ið að Byggðasafni Borgarfjarð
ar í Borgarnesi í sumar —
sagði Bjarni Bachmann og
munir hafa borizt aafninu. Eru
það mest gamlir munir, sem
jafnvel hafa verið til í safn-
inu áður, en margir hafa bætt
úr. Lítið hefur komið af ferða
fólki í safnið í sumar — ein-
kenndlega lítið sagði Bjarni.
Hann sagði ennfremur að mik
ill áhugi á safninu hefði vakn
að er það var opnað og fólk
er yfirleitt ánægt með það.
Það skoðar ekki aðeins byggða
safnið heldur og listasafnið,
sem nú á orðið gott safn lista
verka — um 100 verk.
Friðjón Þórðarson, sýslu-
maður sagði að Byggðasafn
Snæfellinga í Stykkishólmi
væri að aðaluppistöðu til
Norska húsið þar á staðnum,
en það hús á að geyma safnið.
Fyrsta viðfangsefnið er að
gera húsið upp — gera það
þannig úr garði að það verði
sem upprunalegast og opna
það til sýninga. Húsið var
keypt í fyrra og lagfæringar
fara fram í samráði við Hörð
Ágústsson, skólastjóra og Þór
Magnússon, þjóðminjavörð.
Friðjón sagði að góðar vonir
stæðu til að endurbæt-
urnar á húsinu tækjust vel.
Þegar farið var að hrófla við
siðari tíma innréttingum í því
kom fram upprunalegt
veggfóður undir þiljum, sem
varðveitat hafði ótrúlega vel.
Munir sem safnið á nú eru
geymdir í bókasafninu og enn
hefur ekki verið aðstaða til
þess að hafa þá til sýnis. Dýr-
mætasti munurinn í safninu er
þó húsið sjálft — sagði Frið-
jón Þórðarson.
Aðsókn hefur aldrei verið
ýkja mikil í safnið okkar —
sagði Jón Páll Halldórgson, en
hann sér um Byggðasafn Vest
fjarða á tsafirði. í sumar hef
ur hún verið um 500 manns.
Engar stórgjafir hafa borizt
safninu, en því berast alltaf
annað slagið ýmsir eigulegir
munir. B'jöldi fólks hefur ver-
ið drjúgur í því að draga sam
an góða muni og er safnstjórn
in þessu fólki mjög þakklát.
Hlutur bænda og sveitafólks
hefur þó verið öllu drýgri
sagði Jón Páll, heldur en hlut
ur þeirra, sem starfa við sjáv
arútveg, enda vanhagar safn-
ið um ýmsa góða, gamla muni
Gamli bærinn að Grenjaðarstað.
er að þeirri atvinnugrein lúta.
Einnig vantar marga muni,
sem fram á síðustu tíma hafa
haft eitthvert notagildi, en eru
nú að týna tölunni og missa
notagildi sitt. Aftur á móti
eykst þá söfnunargildi mun-
anna. Þá sagði Jón Páll að
safnið hefði mikinn áhuga á
að koma sér upp munum er
lúta að skíðaíþróttinni. Safn
ið hefur t.d. hug á að eignast
gamlan skíðaútbúnað, þar.
sem skíði voru að fornu not
uð mikið til ferðalaga á vetr
um fyrir vestan.
Ólafur Kristjánsson, skóla-
stjóri á Reykjum i Hrútafirði
svaraði fyrir Byggðasafn Hún
vetninga og Strandamanna á
Reykjum. Ólafur sagði að að-
sókn hefði farið heldur vax-
andi og hefði orðið vel á 3.
þúsund manns i sumar, en hún
var aðeins um 2 þúsund í
fyrra. Alltaf kvað hann meira
eða minna af munum berast
til safnsins en engin gjöf hefði
þó verið það stór að hún verð
skuldaði að verða getið um-
fram aðrar. Húsrými safnsins
er nú að verða of lítið, þrátt
fyrir það að talið hafi verið
að byggt væri við vöxt. Nú-
verandi safnhús var tekið í
notkun í júlí 1967.
Ólina Jónsdóttir í Hátúni
annast Byggðasafn Skagfirð-
inga i Glaumbæ, Skagafirði.
Ólina sagði að engar gjafir
hefðu borizt safninu i sumar,
en aðsókn hefði verið á 7. þús
und manns og er það heldut'
meira en verið hefur. Mikið af
ferðafólki, einkum á vegum
ferðaskrifstofa hefði kornið í
safnið i sumar. Aðaláhugamál
fólks kvað Ólína vera að
skoða bæjarhúsin gömlu. Safn
inu var lokað 15. september.
í Davíðshús á Akureyri
komu í sumar um 1000 manns,
en það er svipaður fjöidi fólks
ög verið hefur. Svipuð aðsókn
hefur verið í Matthiasarhúsið
á Akureyri — Sigurhæðir og
þar er eir.nig um nokkra
fjölgun gesta að ræða. í Nonna
hús hafa komið um 4 þúsund
manns og er það mun meira
en verið hefur áður. Af erlend
um ferðamönnum eru Þjóð-
verjar langmest áberandi. Þess
má geta að aðsóknin í Nonna
hús i júlímánuði nú var meiri
en allt árið í fyrra. Nonnasafn
inu hefur borizt hempa hans
og trefill, svo og einkabréf
hans.
í Minjasafnið á Akureyri
komu um 4000 ma.nns í sumar
og er það fjölgun frá í fyrra.
Alltaí berast alls konar munir
í safnið. Þrengslin í safninu
eru orðin mjög mikil og er að
eins lítill hluti munanna til
sýnis — mikið af mununum
er í geymslu. Þess má geta að
komið hefur verið upp sér-
stakri sýningardeild, sem
helguð er minningu Björgvins
Guðmundssonar tónskálds.
Þar eru sýndir ýmsir munir
úr eigu hans, en deildinni var
komið upp í tilefni 80 ára af
mælis tónskáldsins.
Séra Sigurður Guðmunds-
son, prófastur svaraði fyrir
Byggðasafn Þingeyinga á
Grenjaðarstað. Hann sagði að
lítið hefði borizt af nýjum
munum til safnsins, en aðsókn
in hefði verið mjög góð í sum
ar og farið vaxandi. Ferða-
skrifstofumar beindu nú ferða
mönnum í ríkari mæli en áður-
til safnsins, þaninig að segja
má að erlendir menn hafi
verið í meirihluta safngesta.
Aðaláhugamál fólks er að
skoða gamla bæinn en elzti
hluti hans er reistur 1860, en
siðan var hann byggður upp
að meginhluta á árunum 1880
til aldamóta. Kirkjan, sem er
á annað hundrað ára — reist
1865, er einnig mikið skoðuð
en hún á ýrnsa góða og gamla
muni, svo sem patínu og
gamla stjaka, sem eru gjöf
frá Gísla biskupi Þorlákssyni.
Predikunarstóll kirkjunnar
er fró 1791 og hefur frá upp-
hafi verið í kirkjunni á Grenj
aðarstað.
Byggðasafn Rangæiinga og
Vestur-Skaftfellinga er í Skóg
um. Þórður Tómasson sagði
Mbl. að aðsókn hefði verið
mjög mikil í júlímánuði og
ágúst og mun meiri en und-
anfarin ár. Haía hópar út-
lendinga komið í safnið.
Þórður sagði að tilvist Eddu-
hótelsins hefði haft sitt að
segja með aðsóknina og ferða
menn líta þá gjarnan við um
leið og þeir hafa nætursetu á
Skógum. Opnað var í vor nýtt
hús, þar sem endurbyggð
hefur verið baðstofá frá 1895
og er það hús á Arnarhóli í
Vestur-Landeyjum. Tekjur
safnsins kvað Þórður aldrei
hafa orðið meiri af aðgangs-
eyri en nú, en aðgangseyrir
er sami og í fyrra. Merkileg
dánargjöf barst frá dánarbúi
Markúsar Jónssonar frá Gilj-
um — 100 þúsund krónur og
hefur af því tilefni verið sett
ur upp í safninu skápur sem
minjagripur úr eigu Markús-
ar. Auk safnhússins er á
Skógum gömul skemma frá
Varmahlið undir Eyjafjöllum.
Er hún fyrsti visir að safni
gamalla húsa, sem fyrirhugað
er að koma upp í Skógum.
Þá hefur safnið eignazt sið-
asta róðraskip Þykkvbæinga í
Rangárvallasýslu, sem stend-
ur i nausti utan við safnhús-
ið. Skipi þessu var síðast róið
1955 og er það með hinu
gamla brimsandalagi.
Það er mest aðkomufólk,
sem kemur í Byggðasatn
Vestmannaeyinga — að
sögn Þorsteins Víglundssonar.
í sumar hafa á 3. hundrað
gestir skoðað safnið, en Vest-
mannaeyingar sjálfir eru all-
ir búnir að sjá safnið, því að
á afmæli bæjarins 1969 fengu
allir að skoða safnið ókeypis.
Frá þvi er bærinn fór að
leggja safninu til ríflega fjár
upphæð ár hvert hefuv og
mikið tekið fyrir gjafir til
safnsins — sagði Þorsteinn.
Kjartan Magnússon safn-
vörður Blyggðasafns Árnes-
sýslu á Selfossi sagði að að-
sókn í sumar hefði verið mjög
svipuð og undanfarin sumur,
þó heldur líflegri. Gestir eru
þó innan við þúsund manns.
Engar gjafir hafa borizt safn-
inu, en eitthvað hefur bætzt
við af nýjum munum. Safn-
ið er opið allt árið — aðeins
þó um helgar á vetrum, en
sýni fólk áhuga þá opnum
við alltaf æski menn þess —
sagði Kjartan Magnússon.
Gamli bærinn að Gliumbæ i Skagafirði
Geymsluhusnæði dskosl
Óska eftir að taka á Jeigu 50—100 fm
lagerhúsnæði.
Upplýsingar í síma 12631.
Innheimtustarf
Tryggingafélag óskar eftir að ráða innheimtumann
(karl eða konu) sem fyrst.
Þarf að hafa bifreið eða vélhjól til umráða.
Tilboð, merkt: „3226'' leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir 12. október 1971.
PODGORNV
Á FARAI.DSFÆTI
Moskvu, 30. sept., NTB.
Nikolai Podgorny, forseti
Sovétríkjanina, fór í dag áleið-
is til Indlamds, Burma og Norð
ur-Víetnams. í Moskvu er sagt
að heimsókn forsetans sé farim
með það fyrir augum meðal
annars að draga úr kínversk-
um áhrifum i þessum heims-
hluta og til að leggja áherzlu
á friðarvilja Sovétríkjanma.
Podgorny verður sólarhring
í Nýju Delhi og annað eins í
Rangoon. Búizt er við að hann
dveljist lemgur í Hanoi og
muni þá m.a. itreka sovézk lof
orð um matvæta- og vopnaað-
stoð við Norður-Víetnam.
Sendisveinn óskast
hálfan eöa allan daginn.
Upplýsingar í síma 11644.
Sendisveinn
Tryggingafélag óskar eftir að ráða sendisvein
hálfan eða allan daginn.
Tilboð, merkt ,,3224'’ leggist inn á afgreiðsíu Morgunblaðsins
fyrir 12 október 1971.