Morgunblaðið - 27.10.1971, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIEWJKUDAGUR 27. OKTÓBER 1971
SÖLUSÝNING
Guðrún Einarsdóttir, heldur sölusýningu á
verkum sínum að Amtmannsstíg 2.
Sýningin opnuð miðvikudag 27. þ.m. kl. 9.
1 Athugasemdir
Skrifstofustarf
Stórfyrirtæki vill ráða ungan, röskan og reglusaman pUt
tB afgreiðsiustarfa á skr'rfstofu.
Umsóknir á3amt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist Morgunblaðinu fyrir 1. nóvember, merkt: „Skrif-
stofustarf — 3186".
Til sölu
er mjög vel með farín Merdes Benz fóiksbifreið, árgerð
1966, með benzínhreyfli, ekið 86.000 km. Leðuráklæði.
Þeir, sem hefðu áhuga á að kaupa brfreiðina leggi nöfn sin
inn á afgreiðsiu Morgunblaðsins fyrir faugardagskvöld 30.
október, merkt: „Góð brfreið — 3185".
SÍMASKRÁIN 7972
SÍMNOTENDUR í REYKJAVÍK,
SELTJARNARNESI, KÓPAVOGI,
GARÐAHREPPI OG HAFNARFIRÐI.
Vegna útgáfu nýrrar sknaskrár eru símnotendur góðfúslega
beðnir að senda breytingar skriflega fyrir 1. nóvember n.k.
til Bæjarsimans auðkennt: Símaskráin.
Bæjarsíminn.
Húsnæði óskost
fyrír vörugeymslu
Stærð: 3—500 fermetrar.
Upplýsingar í síma 17373.
BYGGINGAREFNI H/F.,
Laugavegi 103.
Aðalfundur
Verzlunaráðs fslands verður haldinn að Hótel Sögu, fimmtu-
daginn 28. og föstudaginn 29. október.
Fyrri daginn hefst fundurinn kl. 15 og ftytur Dr. Jóhannes
Nordal, bankastjóri, þá erindi.
Srðari daginn hefst fundurinn kl. 12,15 og þá með ræðu
Lúðvíks Jósepssonar, víðskiptaráðherra.
vegna ummæla rækjufram-
leiðenda á Suðurnesjum
f SUNNUDAGSBLAÐI Morgun-
blaðsins birtist viðtal við 2 rækju
framleiðendur á Suðumesjum, þá
Þórð Jóhannesson og Hörð Fals-
son. Þar sem untmæli þeirra
verða að túlkast sem hávært tal,
þar aem mjög hallar réttu málí,
þykir mér rétt að benda á það,
sem sannara er.
Tvímenningamir býsnast mjög
yfir því, að Baldur h.f., Keflavik
„njóti góðs af banninu", eins og
Hörður Falsson kemst að orði.
Þar að lútandi verður að taka
fram, að skip það, sem Hafrann
sóknastofnunin tók á leigu, mb.
Glaður, var í tilraunum áður en
baraníð skall á. Vegna tilraun-
anna varð afli skípsin-s mun minni
en ella hefði orðið, og þar sem
skipið leggur upp hjá Baldri h.f.,
verður ekki annað séð en sú stöð
hafi fengið minna hráefni, á með
an veiðarnar voru leyfðar. Virð
ist því ekki nema sanngjamt, að
úr því verði bætt nú.
Hörður bendir einnig á, að Jón
Erlingsson h.f. í Sandgerði njóti
enn fremur góðs af veiðibaraiinu
vegna þess að Hafrannsóknastofn
unin hefur gert samning við bát,
sem leggur upp hjá þeirri stöð.
Nú er vant að sjá, hvers vegna
séður beri að semja við bát, sem
leggur upp hjá þeirri stóð en ein
Skoðið
ATLAS
FRYSTI-
KISTURNAR
Skoðið vel og
sjáið muninn í
efnisvali
-$ír frágangi
-Jf tækni
litum og
^ formi
3ÍMI 2 J4 2.0 — SUÐURGOTU 10
SI0USI
XZ
Plastlagðar spónaplötur,
12, 16, 19 og 22 m/m.
Plastlagt harðtex.
Harðplast.
SÖLUAÐILAR:
Akureyri: Byggingavörudeild KHA.
Reykjavík: Asbjöm Ólafsson. timbHrafgr.
ÍP
Skeifan 13 — Sími: 35780.
hverri annarri. Hítt er svo annað
mái, að bæði Hörður Falsson og
Þórður Jóhannesson vita vel, að
Hafrannsóknastofmmin falaðist
upphaflega eftir bát, sem lagði
upp hjá „Olsen og Herði“. Reynd
ar var það nú ekki gert, vegna
þess að bátur þessi lagði upp hjá
„súperstöð", sem þarf tvöfalt hrá
eíni á við aðrar, heldur vegna
þess að undirritaður þekkti til
skípstjóra bátsins og vissi, að
hann er traustur maður og örugg
ur.
Eftir enn eina árangurslausa
tilraun til að fá bát, sneri undir
ritaður sér tii rækjuframieiðanda.
Hringdi hann fyrst til Harðar
Falssonar og síðan til Þórðar Jó-
hainnessonar, reiðu mannanna.
Þar sem hvorugur þeirra var við,
tókust samningar við eiganda
mb. Erlings fyrir milligöngu Jóns
Erlingssonar. Undirritaður tekur
þó skýrt fram, að það var hend-
ing ein í hverri röð hann hringdi
í rækjuframleiðendurna, enda
verður ekki séð, hvaða áhrif það
hefur á gang tilxaunanna hjá
hvaða stöð tilraurabátamir
leggja upp.
Sú tillaga Þórðar Jóhannesson
ar að hafa einn bát írá hverri
stöð við tílraunir, strand-
ar á mannskapsleysi af
háifu Ha fran nsóknastof n un ar-
iranar. Þórður bendir á, að
með því móti yrðu bátamir 6,
einn frá hverri xækjustöð. Þórð
ur gleymir þó 2 stöðvum í Reykja
vík, eða álítur þær réttminni.
Yrðu bátamir þá minnet
8 og er þá býsna hæpið orðið
að tala um veiðibaran. Þar fyrir
utan er ekki fyrirhugað, að til-
raunimar standi nema fram á
fimmtudag. Mun þá væntanlega
þegar á föstudag liggja ljóst fyr
ir með hvaða hætti veiðarnar má
stunda áfram.
Þórður Jóhanneseon leggur til
að svæðið vestan við misvísandi
norðurstefrau frá Eldey verði opn
að að nýju og telur það reyndar
ejálfsagt. Þessi tillaga er út í
hött og myndi leiða til áfram-
haldandi stórfelldrar rányrkju á
ýsu, eins og reyndar allir vita,
sem fylgzt hafa með veiðum
þessum. Þórður fullyrðir enn-
fremur, að seiðamagn tilrauna-
veiða okkar hafi orðið lítið sem
ekkiert. Ég geri ekki ráð fyrir, að
Þórður trúi þessu sjálfur, eða
hvernig í ósköpunum hefði Haf-
rannsóknastofiniunin og Fiskifé-
lag íslands lagt til veiðibann, ef
tSIraunaskipin hefðu engin ýsu
seiði veitt? Hins vegar er það
rétt, að seiðamagn var litið einn
dag, þegar verið var suðvestast
á bannsvæðinu.
Rétt þykir mér að taka fram,
að talsmenn rækjuverkenda á
Suðumesjum lögðu fram skrif-
lega beiðni um það, að einn bát
ur frá hverri stöð mætti halda
áfram veiðum á bannsvæðinu.
Þessi beiðni náði ekki fram að
ganga, enda hefðu bátarnir þá
orðið 8, eins og fyrr er rakið.
Undirrtaður fékk því þó til leiðar
komíð, að mb. Erlingur fékk
leyfi til að athuga útjaðra bann
svæðisins. Gerði hann það í
þeirri trú, að það vseri í þágu
rækjuframleiðenda og sjómanna
og bjóst vart við því að fá skít
kast fyrir.
Að síðustu vill undirrítaður
taka fram, að Hafrannsóknastofn
unin óskar eftir viðræðum við
rækjukaupendur, útgerðarmenn
og sjómenn, áður en endanlega
verður gengið frá tilhögun veið-
anna í framtíðinni svo og vænt-
anlegu eftirliti. Slíkar umræður
gætu átt sér stað næstkomandi
föstudagsmorgun og erum við
Ingvar HaQIgrímsson reiðubúnir
til að koma til Keflavíkur, ef
óskað verður.
Reykjavik 25/10 1971,
Guðiti Þorsteinsson.
f BLAÐI yðar siðastliðinn sunnu
dag er frétt um gagnrýni á rækju
rannisókmr. Þar sem félagar ok'k-
ar velja þá leið, að blása þessi
mál upp í blaði yðar, og sneiða
þar talsvert að Baldri h/f í Kefla
vík, óska ég, að þér birtið eftir-
farandi skýringar og leiðrétting-
ar í blaðinu.
Hafrannsóknastofnunin hetfur
haft m/b Glað til þess að gera
tílraunif með rækjuvörpur, sem
dregið gætu úr „seiðadrápi" frá
Framhald á bls. 20.
Verkstjóra
vantar í hraðfrystihús.
Tilboð ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist
Morgunblaðínu fyrir 15. nóv. n.k. merkt: „nr. 3187".
i óskast
öskum að taka á leigu hús. eða húshluta 2—3 íbúðir,
mætti þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar i síma 40000 eftir kt. 7.
1
Fosfeignir í Kópovogi
Hef til sölu eftirfarandi:
•A Sérhæð við Reynihvamm, 6 herbergi og eldhús í Tví-
býlishúsi. Hiti og inngangur sér.
if Jarðhæð 3 herbergja við Lyngbrekku
Ar Hef kaupanda, með góða útborgun, að 90 ferm. íbúð.
Má vera rishæð.
SIGURÐUR HELGASON,
Digranesvegi 18, Kópavogi — Sími 42390.
Einbýlishns í Kópnvogi
Hetf til sölu glaesilegt einbýlishús á væntanlegu hrtaveítu-
svæðii við Hlaðbrekku. Húsið er 144 ferm. að stærð ásamt
70 ferm. bílskúr, þvottahúsi og geymslu á jarðhæð.
Eignin selzt fokheld.
SK3URÐUR HELGASON.
Digranesvegí 18, Kópevogi — Sími 42390.