Morgunblaðið - 27.10.1971, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1971
31
Fyrsta ársþing
knattspymudómara
X. ÁRSÞING Knattspyrnudóm-
arasambands íslands verður
haldið hinn 21. nóvember, i Hót-
el Loftleiðum, og hefat kl. 13.30.
Samkvaemt 3. grein laga
KDSÍ, eru öll knattspymudóm-
arafélög, sem starfandi eru á
itegum KSÍ, aðilar að Knatt-
spyrnudómarasambandi fslands.
Samkvaemt 5. grein laganna,
aitja þingið fulltrúar þeirra
knattspyrnudómarafélaga, sem
mynda sambandið og fulltrúa-
fjöldi hvers aðila fer eftir tölu
virkra dómara, þannig að fyrir
Hellas
tapaði
SÆNSKU meistararmir í hand-
tonattleik, Hellas, töpuðu fyrir
svissnesku meiaturunum, St. Ot-
imar frá St. Gallen, í sáðari leik
liðainna í Esmópubikarkeppnimni,
en leikurimn fór fram í Sviss um
sáðustu helgt Svisslendingamir
sigruðu með 11 mörfcum gegn 9
og komu þau únslit mjög á
óvart. Hellaat varm hins vegar
fynri Leitoinn með 18 mörkum
gegn 13 og heldur því áfnam í
keppninni með betra marka-
hlutfall, 27:24.
Það var aðeinis í byirjun leiks
inis í Svias, sem Svíamir höfðu
ftxrystun,a, en snemmia í leikn-
um náðu Svisslendingar svo for
ystu sem þeir héldu til leiks-
loka. í hálflefk var staðan 7:4
fyrir St. Otonar.
Danir
sigruðu
DANIR og Norðcmienn léku ný-
lega landsleilloi í körfutonattleik,
bæði í karia- og kvenin.aflokki og
fóru leikLrnir fram í Noregi. —
Danrnnir sigruðu í báðum leikj-
unum, í karlaflokki með 75:66
og í kvennaflokki með 57:28.
Urðu |
stranda-
glópar
Á MORGUN fer fram í Pairía
síðari leikur FH og frönaku
meistaranina, US IVRY, í Evr-
ópubikarkeppnmni í hand-
tonattleik, en fynri leik lið-
anma, sem fram fér í Laug-
ardaLshöllinmi fyrir skörmmu,
lauk með sex martoa sigri FH,
þanmag að liðið ætti að eiga
góða miöguleika á að komast
áfram í keppninni.
FH-iegar hugðust halda ut-
an í gærimorgun, og voru
kommir suður á Keflavíkur-
flugvölí, þar sem þeir ætluðu
að taka Loftleiðaflugvél til
Luxemborgar, en þaðan ætl-'
uðu þeir svo að fljúga til
Parísar. En vegna veðuire
flaug Loftleiðavélin yfir, og
FH-ingamiir sátu eftir með
sárt ermið, ekki sízt vegna
þess að skonwnu síðar fór
þota frá Flugfélagi fslands
eem nóg rúm var í aí atað
til Englands. Það var svo
ætlun FH-inga að fara utan,
með Flugfélaginn í morgun
til London og fljúga sáðan
með BEA til Parísar.
allt að 10 virka dómara, kemur
eion fulltrúi, og síðan einn full-
trúi fyrir hverja virka 10 dómara
eða brot úr 10, ef það nemur
fimm eða fleiri.
Þar sem dómarafélög eru ekki
starfandi, hefur viðkomandi
íþróttabandalag eða héraðssam-
band, rétt til að senda einn full-
trúa á þingið.
Hver þingfulltrúi fer með eitt
atkvæði, en auk þesa getur hann
farið með eitt atkvæði annað.
Allir þmgfulltrúar skulu hafa
kjörbréf.
Tillögur um iagabreytingar og
skipulagsmál, sem óskaat fyrir
dómaraþing skulu sendar
stjóm Knattspymudómaraaam-
bandsins, 15 dögum fyrir þingið.
Staxfsskýrslur knattspymu-
dómara þurfa að berast til stjórn
ar KDSÍ ekki seinna en 7 dög-
um fyrir þingið.
(Frétt frá stjórn Knattspymu
dómarasambandi Íslands).
f flestu er hægt að setja heimsmet. í Bandaríkjunum keppa menn í því að stökkva á mótor-
hjóli yfir bifreiðar, og maður að nafni Evel Knievel setti nýlega nýtt heimsamet í þeirri grein
í keppni sem fór fram innanli úss í Portland. Stökk hann yfir 14 bifreiðar. — Samtímis heims-
metinu fékk hann svo dvöl i sjúkrahúsi, þar sem gera varð að öðrum handlegg hans
brotnaði illa þegar hann kom niður úr metstökkinu.
Ákveðnir í að reyna á
samstarfsgrundvöllinn
• • A
— sagði Orn Eiðsson, f ormaður FRI,
eftir leiðtogafund í Gautaborg
Danir koma hingad með
unglingalandslið næsta sumar
1 SÍÐUSTU viku var haldið
þing norrænna frjálsíþröttaleið-
toga í Gautaborg. Þingið sátu af
íslands hálfu þeir Örn Eiðsson,
formaénr FRf og Þorvaldur
Jónasson, einn af stjórnarmönn-
um sambandsins. Þeir konm
heim i fyrradag, og í gær hafði
Mbl. samband við Öm og innti
hann eftir því, hvaða mál hefðu
verið tekin fyrir á þinginu, sem
fsiand áhrærðu:
— ÞaS mál sem við lögðum
mesta áherzlu á var unghnga-
landskeppni allra Norðurlanda-
þjóðanna, er fram færi hérlend-
is dagana 10. og 11. júlí 'n. k.
Við höfðum skrifað öllum sam-
böndunum á Norðurlöndunum út
af þessari keppni, og ætluðum
með henni að reyna á það í síð-
asta sinn hvort það væri grund-
völlur fyrir FRf að halda áfram
samstarfi við samböndin á hin-
um Norðurlöndunum. Á undan-
fömum árum hafa málin þróazt
þannig að við höfum ævinlega
orðið að fara út til keppnl, en
þegar við höfum svo ætlað að
fá keppendur frá Norðurlönd-
unum hingað, hefur því alltaf
verið kennt um að samböndin
væru fjárvana.
Eina þjóðin sem gaf áikveðið
svar á þessum fundi voru Danir.
Þeir höfðu ákveðið að koma
með unglingalið sitt hingað og
þiggja þar með boð okkar. Hjá
hinum þjóðunum voru nokkrar
vöflur, en ég vil samt sem áð-
segja, að þær hafi verið okkur
óvenjulega velviljaðar, þannig að
ég heí trú á því að lið þeirra
muni einnig koma til keppninn-
ar. Frá því verður endanlega
gengið á fundi Evrópusambands-
ins sem haldinn verður í Osló
um næstu helgi, en þangað mun
FRÍ senda tvo fulltrúa.
— Eins og ég sagði áðan,
sagði öm, — þá Lögðum við
áherzlu á það að við gætum
ekki séð að grundvöllur væri
landsliða úr Norður-Noregi,
Norður-Svíþjóð og Norður-Finn-
landi. Þessi keM>ni á að fara
fram í Noregi næsta sumar, og
ég fór þess á leit að Isiendingar
gætu orðið aðilar að þessari
keppni, þar sem ég held að hún
myndi henta okkur mjög vel
Fulltrúar sambanda viðkomandi
þjóða tóku þessari málaleitan
vel, en gátu þó ekki ákveðið á
staðnum, hvort unnt væri að
verða við henni, þar sem þeir
þurftu að hafa samband við
viökomándi aðila. Þetta mál mun
einnig skýrast á Evrópusam-
bandsþinginu.
Að lokum sagði Örn Eiðsson,
að stjórn FRl legði mikia
áherzlu á að reyna að hafa verk-
efni frjálsiþróttafóLks sem flest
og fjölbreyttust næsta sumar I
tilefni afmælis FRl.
— Við vonum að unglinga-
keppniin hér heima geti orðið
einn stærsti liðurinn í þeim
hátíðahöidum, sagði Öm, — en
auk Norðuriandaþjóðanna munu
írar koma til þeirrar keppmi.
Bregðist það að Norðmenn,
Svíar og Finnar komi til hemn-
ar, munum við leita til annarra
þjóða, og höldum fast við þau
áform okkar, að þarna geti
orðið um sex landa keppni að
ræða.
Happ-
drætti FRÍ
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Frjálsíþróttasambands
íslands og komu vinningar, sem
eru ferðir til Maliorka, á eftir-
talin númer: 1909 — 2517 og
1316. Vinningshafar geta fengið
upplýsingar hjá Svavari Mark-
ússyni, c/o Búnaðarbanka fs-
Xands. (Vinningsnúmerin eru
birt án ábyrgðar).
Örn Eiðsson, formaður FRl
fyrir þvi að Island tæki þátt í
þessu norræna samstarfi, ef við
yrðum alltaf að láta Okkur
nægja orðin tóm, en sem betur
fer virðist mér hinar þjóðirnar
leggja töluvert upp úr þvi að
ísland verði áfram með í hópn-
um.
— Annað mál sem þama var
tekið fyrir var svokölluð Callott-
landskeppni, en það er keppni
1 Aftur stórsigur
VESTUR-ÞÝZKA liðið Borusaia
Mönchen Gladback, sem sigraði
ítalska liðið Inter Milan með 7
mörkum gegpi 1 í Evxópubikar-
keppminni á dögunum, lék við
eitt sterkasta iiðið í V-Þýzka-
iandi um síðustu heigi og «igr-
aði með 7 mörkum gegn engu.
Leikur þessi var í þýzku 1. deild
ar keppninm, eti þessi tvö lið
höfðu haft forystu í keppninni
og hafði Schalke 04 aðeins tap-
að einuim leik af 11, sem liðið
hafði leikið í 1. deiidar kepptv
inni í ár.
Ármann — Víkingur
— leika um 1. deildar sætið
Fyrri leikurinn á morgun
í KVÖLÐ fara fram í Laugar-
dalshöllinni tveir handknatt-
leiksleikir, sem báðir eru hinir
þýðingarmestu. Þar mætast f
meistaraflokki kvenna KR og
Breiðablik og í meistaraflokki
karla leika Víkingur og Ár-
mann.
Báðir þe3sir leikir eru keppni
um 1. sæti í 1. deild íslandsmóts-
ina í vetur, en á siðasta ársþingi
HSf var sú ákvörðun tekin að
f jölga um eitt lið í 1. deild karla,
og þar var jafnframt ákveðið að
liðið sem varð neðst í 1. deild í
fyrra, Víkingur, og liðið, sem
wn varð í öðru sæti í 2. deild,
Ármann, skyldu leika tvo Leiki
um sætið.
Völsungar frá Húsavík unnu
2. deildar keppni kvenna I fyrra,
eftir jafnan úrslitaleik við Breiða
blik úr Kópavogi. Af óviðráðan-
legum orsökum verða Vöslungar
að afsala sér sætinu og fer því
fram úralitaleikur miili Breiða-
bliks og þess liðs, sem neðst /ar
í 1. deild i fyrra, KR.
Leikir þessir eru sem fyrr seg
ir mjög þýðingarmiklir, einkum
þó leikur Ármanns og Vikinga,
þar sem reginmunur er á tekj-
um af leikjum í 1. deild og 2.
deild, auk þess sem 1. deildar-
liðin hafa mun meiri möguleika
til tekjuöflunar af auglýsingum
á búningum en 2. deildar liðin.
Leikimir I kvöld hefjast kL
20.15 og má í báðum tilvikum
búast við harðri viðureign. Ár-
mann og Vikingur mættust fyric
skömmu í Reykjavíkurmötinu og
gerðu liðin þá jafntefli í allgóð-
um leik.
Víkingar hafa sótt Jón H.
Magnússon til Svíþjóðar til þessa
leiks, og eru Ármenningar að
vonum óánægðir með þá ráðstöf
uo, og munu vera að kynna sér
hvort það sé löglegt að maður
leiki með tveimur liðum á sama
keppnistimabilinu, jafnvel þótt
annað liðið sé erlent. Munu
vera skýr ákvæði um þetta í íög-
um HSÍ.
Síðari leikir liðanna fara m
fram á sunnudaginn og hefjast þá
kl. 16.00.