Morgunblaðið - 04.05.1972, Side 32

Morgunblaðið - 04.05.1972, Side 32
IGNIS ÞVOTTAVÉLAR RAFIÐJAN — VESTURGOTU 11 S(MI: 19294 RAFTORG V/AUSTURVÖLL I SÍMI: 26660 I FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1972 nucivsmcnn £|*-"*22480 Teknir með hasspípur TVEIR piltar úr Reykjavik voru í fyrrinótt teknir á Keflavikuir- flugvelli með 2 pípur, sem grun- ur lék á að þeir hefðu reykt úr hass. Voru piltamir í gæzluvarð- haldi í gær, og hafði annar ját- að í gærkvöldi að hann hefði reykt hass með útíenduan hljóm- listarmönnum, sem þeir voru í heimsókn hjá. 1 fyrrinótt sögðu piltarnir hvar þeir hefðu verið og var leit- að hjá hljómlistarmönnunum, en ekkert fannst. Piltarnir eru báðir innan við tvítugt. Málið var enn í ranrsókn hjá lögreglunni á KeflavíkurfJug- velli í gærlrvöidi. SEGJA UPP Á VlFILSSTÖÐUM Vilja að allar séu deildarh j úkrunarkonur HJÚKRUNARKONUR á Vífils- eiga fund i dag með hjúkrunar- stöðum eru nú hver á fætur konunum. annarri að segja upp störfum - Mótmælendur hindra, að bifreið William Rogers komist ieiðar sinnar. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) „Harma að ekki var hægt að sýna Rogers handritin6í — segir Einar Ágústsson Stöðvaðir á leið til Bessastaða Vopnaðir bensínsprengjum og naglaspjöldum sínum, en þær hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest. Að sögn Georgs Lúðvíkssonar, forstjóra ríkisspítalanna er það þrennt, sem þær setja fyrir sig. 1 fyrsta lagi vilja þær fá dag- heimiii fyrir böm hjúkrunar- kvenna, sem starfa á Vífilsstöð- um. 1 öðru lagi að ráðnar verði fleiri hjúkrunarkonur, þar sem vinnuálag sé of mikið og í þriðja Jagi að allar hjúkrunarkonur, sem þangað verða ráðnar, verði á launum deildarh j úkru nar- kvenna, þ. e. fari í 19. flokk í stað 16, þar sem að öðrum kosti fáist ekki hjúkrunarkonur á svo af- skekktan stað sem Vífilsstaðir eru. 1 byrjun marz fék'kst heimild til að ráða tvær hjúkrunarkonur tii viðbótar og var auglýst eftir þeim, en engin fékkst. Telja hjúkrunarkonumar að útilokað verði að fá nýjar hjúkrunarkon- ur nema á deildarhjúkrunarkonu- launum. Alar hj úkrunarkonur, sem nú eru á Vífilsstöðum, eru ráðnar deildarhjúkrunarkonur, eða 10 talsins, en utan þeirra eru tvær farsitöðu konur. Saigði Georg að hann mundi RÓTTÆKIR stúdentar og félag- ar úr Fylkingunni vörnuðn Willi am Rogers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, inngöngu í Árna garð í gærmorgun, þegar hann ætlaði að skoða þar Handrita- stofnunina og íslenzk handrit. Varð ráðherra frá að hveri'a víð svo búið, en þegar aka átti bif- reið hans frá Árnagarði, reyndi liópur ungmenna að hindra för hans, og kom þá til nokkurra stimpinga milli þeirra og iög- regiu. Það var lauist fyrir kl. 13 í gær, að bamdarísiki utajirikisráðheinr- auin kom ásamt fylgdarliði sínu að Árnagarði. Þegar ráðherrann hugðist ganiga inn í byigginguna, hafði hópur unigs fólks — 150 að sögn lögreglu, en fleiri að sögn mótmælenda — tekið sér stöðu á göngurn og i fordyri Árnagairðs og neitaðd ráðherran- um og fylgdarliði hans um inn- göngu. Þá átti að vísa ráðherr- anum inn um suðurdyr hússins, en þá kom í l'jós að mótmæliend- ur höfðu bundið hurðir þar aft- ur, og meinnðu forstöðumönnum Handritastofnunarinnar aðganig till að opna fyriir gestinum. Utan rikisiráðhierra, Einar Ágústsson gekk þá þar að og spurði þá sem voru í forsvari fyrir mótmæl endum, hvort þeir ætluðu í raun og veru að neita gestinum um innigöngu að stofnuninni. Hann fékk þau svör, að morðingjar færu þar ekki inn. Þegar hér var komið var afráð ið að hætta við heimsóknina, en þegar aka átti Rogers frá Árna- giarði, þyrptist hópur ungmenna að bíl hans og varnaði því að hann kæmist ileiðar siinnar. Ung- ur piltur í hópnum tók sig til, stökk upp á vélarhiífina, þaðan: upp á þakið og niður á faramg- ursgeymsluna og dældaði með þessiu bilinn. Lögreglunni tókst þó fljótlega að dreifa hópnum. Meðan þessu fór frarn fl'utti unig ur maður, Jón Ásgeir Sigurðs- son að nafnii, ræðu og fordæmdi þátttöku Bandaríkjanna í styrj- öldinni í Vietnam. Frá Árnagarði hélt Rogers og fyligdarlið til Bessaistaða, þar sem hann snæddi hádegiisverð í boði f orse tahj óna nn a. Mótmælendur Framhald á bls. 31 Seldi fyrir 35 kr. kg. TOGARINN Daigný seldi afla sinn í Bretlandi og var meðalverð kr. 35,00 á kg. Dagný seldi 175 ilestir af fiski fyrir samtals 27.073 sterlingspund. Akranes: Sj úkrahúslækn ar segja upp 25 uppsagnir komnar sjúkrahúslækna um kaup Sorp- tunnur fyrir 3,2 millj. kr. EITT tilboð barst vegna út- boðs á 1500 sorptunnum fyrir hreinsunardeild Reykjaví'kur- borgar. Var ákveðið að fallast á tilboðið og semja við Stái- umbúðir h.f. Tilboðið var að upphæð 3.525.000,00. kjor þeirra hafa staðio yfir frá í janúar og miðað lítið í sam- komulagsátt. Hafa sjúkrahús- læknar nú byrjað að segja smám saman upp störfum sínum og munu 17 þegar hafa sagt upp á sjúkrahúsum rikisins og 7—8 hjá Reykjavíkurborg. Læknarnir hafa tveggja mán- aða uppsagnarfrest. Byrjuðu upp sagnimar 12. apríl og munu því hefjast erfiðleikar á sjúkrahúsun um um miðjan júní af þessum sökum. Samningar sjúkrahúslæiknanna runnu út um áramót, og lögðu læknar fram sínar kröfur i lok janúar. Er málið í höndum sátta- semjara rikisins, en miðar hægt til samkomuiags. Ekki hefur feng izt upplýst hverjar kröfur lækn- anna eru. Fá lán til viðgerða á dráttarbrautinni en heldur lítið LIÐNAR eru nær 15 vikur síðan óhappið varð í dráttarbraut Þor- geirs og Ellerts á Akranesi, og nú lítur út fyrir að loks verði hægt að hefjast lianda um við- gerðhia. Hefur fyrirtækinu verið gefinn kostur á 23 milljón króna láni, sem ríkissjóður (tekur og endurlánar því. Jósep H. Þorgieirsson, fram- kvæmdastjóri, kvaðst ekki aliLt of ánægður, en nú skipti mestu máli að komasit í ganig aftur efitir þennan langa tíma, þótt það verði minna í sniðum en ætlað var. Lánið er mun minna en farið var fram á, og hafði hann orðið fyrir vonbrigðum með það. Sagði Jósep að þeir teldu siig þurfa 36 milljónir kr. ög hefðu farið fram á það. Hefðu þeir þá miðað við að kaupa fjögur ný spi'l og fjölga spiilunum, sem hífa upp lyftupal'linn í dráttar- brautinni úr 8 í 12, og þá haft i huga meira öryggi. Nú byðust 23 milljónir og gerði hann þá ráð fyrir að kaupa aðeins tvö ný spil, fjölga þeim úr 8 í 10. Lánið er með 8y2% vöxtum, afibargunar- laust í ei'trt ár, en endurgreiðist svo á 12 árum, sem Jóisep sagði að sér þætti æði stutt. Reiiknaði hann þó með að að taka þessu og reyna svo að berjast áfram. Ekki væri hægt að bíða lengur með við- gerðir, því liðnar væru 15 vikur frá óhapþinu og það hefði skap- að mikla erfiðleika. Lögfræðingur Fischers væntanlegur Alþjóðaskáksambandið hef- ur gefið keppendum um heimsmeistaratitilinn í skák, Boris Spassky og Robert Fischer, frest tii laugardags- ins 6. maí klukkan 10 árdegis tii að gefa svar við því, hvort þeir tefli í Reykjavik eða ekki. Svari þeir neitandi, missa þeir rétt til keppni. Guðmundur G. Þórarinsson skýrði Mbl. frá þvi í gær að lögfræðingur Bobby Fischers, Paul Marshall væri væntan- legur til Islands. Dr. Max Euwe, forseti Alþjóðaskák- samhandsins óskaði eftir því í skeyti til Skáksambands ís- lands í gær að það tæki á móti lögfræðingnum. Ekki var vitað í gær, hvenær Paul Marshall kæmi til Islands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.