Morgunblaðið - 20.05.1972, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.05.1972, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1972 ið er um veika punkta. Líkleg- ast er, að tónlistin verði síðar meir fyrst og fremst hátt metin fyrir það, hversu samstæð hún er og vel gerð, en ekki fyrir einstaka frábæra kafla eða meistaraverk, sem skera sig úr. Óperan hefur verið sviðsett á Broadway, eins og áður er getið. Leikstjóri sýningarinnar var Tom O'Horgan, sem hafði áður vakið athygli fyrir útgáf ur sínar af „Hárinu“. Hann þykir sérstaklega fær í að finna upp sérstök tæknibrögð í sýningarnar, eins og not á lyftum og lyfturum, til að lyfta upp bæði leikurum og sviðs- myndum. Hann hefur ekki far- ið troðnar slóðir í leikaravali sínu: Jesús er að vísu hvitur, en Júdas svartur og Maria Magðalena Kínverji í aðra ætt- ina. En það er ekki útlit leikar anna, sem skiptir máli, heldur hæfileikar, ekki sizt á söng- sviðinu. Óperuhlutverkin eru sum hver talsvert erfið og þurfa söngvaramir að búa yfir verulegri tækni i hljóðnema- söng, svo að vel eigi að vera. Glingur Óperan hefur vakið athygli og umtai, og þótt skiptar skoð- anír séu um efni hennar og meðferð, þá eru flestir sammála um að hún hafi gert sitt til að vekja unga fólkið til umhugs- unar um trúmál, og það er tals verður ávinningur. Hitt er öllu verra, að i kjölfar áhuga ungs fólks á trúmálum hefur komið ótrúlega stór flóðbylgja alls kyns glingurs, sem framleitt er í hagnaðarskyni — tengt nafni Jesú Krists. Framtaks semin hefur þó lildega hvergi náð hærra en hjá höfundum þessarar útvarpsauglýsingar: „Hæ, kra'kkar, þetta er ég, Jesús. Sjáið hvað ég er með á úlnliðnum. Það er úr með fimm lita mynd af mér á skífunni og visa festa á fjólublátt hjarta!“ Ragnheiður Steindórsdóttir: — Ég hef ekki trú á þvi að þetta sé neins konar bylting. Þetta er að ég held aðeins i nösunúm á þessum krökkum, — þetta er einhvers konar út- rás. Krakkarnir reykja, drekka, neyta hass og annars sliks, stoppa Rogers upp í Ámagaröi, tiibiðja Jesú. Þetta á ailt rætur sinar að rekja til innri óánægju. Ég hef ekki trú á því að trú á Jesú Krist geti komið i slíkri fjöldahreyfingu. Hver og einn verður að finna slíkt hjá sjálf- um sér. E.t.v. skilur þó þessi vakn- ing eitthvað eftir sig í hugum sumra, og ég vona að svo sé. Þessi hreyfing er vissuiega mun jákvæðari en margar aðr- ar fjöldahreyfingar. Hún vek- ur kannski marga til umhugs- unar, —- þar sem fólk hugsar um að reyna að bæta sjálft sig, en ekki að reyna að leita eftir fróun utan frá. Baldvin Steindórsson: — Ég lít þannig á, að þetta sé í raun og veru engin bylt- ing, heldur sé hér um að ræða geysilega sterk áhrif frá litlum hópi fólks, sem stóð að samn- ingu og útgáfu plötunnar „Jes us Christ Superstar“. A.m.k. held ég að því sé þannig farið, en standi ekki í beinu sam- bandi við trúmál, þ.e. kristna trú hér á landi. Þetta er bara ein af þessum dægurflugum sem grípur um sig meðal ungs fólks, enda get ég fuilyrt að áhrifa „Jesúbylt- ingarinnar" svokölluðu var ekkert farið að gæta hér á landi fyrr en platan kom hér á markað. Þessi Jesúbyitig er að mínu mati einungis nýtt gildis- mat unigmenna á þessum fornu trúarbrögðum. Það litur ekki á Jesú sem neinn Guðsson, held- ur einungis mann, sem lifði liku lífi og það lifir nú, hafði svipað útlit, ferðaðist um og lifði á því sem til féll, og það sem mest er um vert lét gott af sér leiða. Trúin á Guð er þó alls ekki að aukast, enda er ekkert tal- að um himnaríki, englana, Guð og slíkt. — Nei, ég held að Jesúbylt- ing geti aldrei orðið hér á landi svo neinu nemi. Maður tekur mest eftir þessu í skrif- um blaða, en meðal kunningj- anna og fóíks, sem maður um- gengst er ekkert um þessi mál rætt. Kristinn Björnsson: — Ég held að þessi Jesú- bylting hljóti að vera mjög já- kvæð fyrir trúarlif á íslandi. Þessi hreyfing virðist hafa orðið mörgum umhugsunarefni t.d. var eitt af ritgerðarefnum á stúdentsprófi í MR „Trúar- leg vakning ungs fólks á Is- landi." Hér á landi eru það helzt þeir krakkar, sem jafnan hafa sýnt trúmálum áhuga, sem mér virðast taka réttan pól I hæð- ina. Hins vegar held ég að það sé grynnra á trúnni hjá þorra ungmenna, en e.t.v. fær þessi bylting einhverju breytt þar um. Hjörleifur Kvaran: — Jesúbylting? Ja, guð hjáipi mér. Ég hef nú ekki orð ið var við neina Jesúbyltingu, 13 hvorki hjá sjálfum mér né mín um kunningjum, reyndar alls ekki orðið var við hana nema í blöðum. — Jú og í einum fár ánlegum sjónvarpsþætti. Ég var mest hissa á því hvernig Ölafur Ragnar Gríms- son gat grafið upp alla þessa menn svona frelsaða og fina. Ef um einhverja byltingu er að ræða, þá hefur hún algjör- lega farið fram hjá mér. Stefanía Ólafsdóttir: — Ég held að það sé ekki um neina byltingu að ræða hér á landi, hvorki Jesúbyltingu né annað. Mér finnst þetta allt hálf vitlaust, og ég hef ekki trú á því að unga fólkið sé farið að sinna trúmálum meir en það hefur áður gert. Þetta er bara eitt af þessum tizkufyrirbrigð- um, sem alltaf skjóta upp koil- inum öðru hverju. Það getur þó svo sem vel ver ið, að eítthvað sitji eftir í sum- um krakkanna, og það er sjálf sagt ósköp jákvætt. Jesú- bylting? mmm uhiochHH. KRISTJÁNSSON H.f. SUDURLANDSBRAUT 2 SÍMI 3 53 00 FORD BRONCO er farartæki, sem hentar við allar aðstæður. Jafnt á breiðstrætum borgarinnar, sem torfærum óbyggðanna. FORD BRONCO er farartæki, sem sameinar kosti fólksbíts og jeppa. Ford Bronco 1972

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.