Morgunblaðið - 18.08.1972, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.08.1972, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGOST 1972 Við Melhaga glæsileg séreign, sem er efri hæð og ris alls 8 her- bergi ásamt bílskúr. Á hæðinni eru 4 svefnherb., eldhús og bað, en í risi 4 herb., salerni og geymsla. Hér er um sérstaklega góða eign að ræða. FASTEIGNASALAN, Eiríksgötu 19, sími 16260. Sfúlkur óskast til afgreiðslustarfa í sælgaetisverzlun á eftirtöldum tírrum: 1. frá kl. 8—1 alla virka daga nama laugardaga. 2. frá kl. 1—6 alla virka daga nema taugardaga. 3. frá kl. 1—12 annan hvem laugardag og 9—1 annan hvem sunnudag. 4. frá kl. 1—12 annan hvem sunnudag, 8—1 annan hvem laugardag og annan hvem föstudag frá kl 6—12. Til greina getur komið að sameina einhvem þessara liða eftir samkomulagi. Umsóknir merktar „2295", með eftirfarandi uppfýsingum leggist inn á afgreiðslu blaðsins: nafn. aldur. heimilisfang. simanúmer, fyrra eða núverandi starf og hvaða Hð viðkomandi óskar eftir. Fró Bridgesambandi íslands Ársþing Bridgesambandsins verður sett í sam- komusal Domus Medica við Egilsgötu, föstudaginn 29. september kl. 20. Fulltrúar eru beðnir að mæta stundvíslega með kjörbréf sín ef þau hafa ekki verið send áður til stjómar Bridgesambandsins. Laugardaginn 30. september og sunnudaginn 1. októ- ber fer fram tmdankeppni vegna val á landsliði bæði í opnum flokki og kvennaflokki. Keppni þessi verður í tvímenningsformi og er opið öllum með- limum sambandsins. Tilkynningar um þátttöku þurfa að hafa borizt til stjórnar Bridgesambands- ins í síðasta lagi viku áður en keppni hefst. María Einarsdóttir — Minningarorö FYRIR 28 árum bar fundum okkar Maríu Einarsdóttur fyxst saman. Þrátt fyrir það að margt væri erfitt og óaðgengilegt, bæði launakjör og starfsskilyrði, tók. Maria að sér ráðskonustarf I heimavist Heymleysingjaskólans og var ráðskona skólans með- an heilsa og kraftar entust, eða í 20 ár. 1 heimavist Heymleysingja- skólans búa þeir nemendur, sem þangað verða að sækja sína fræðslu og eiga heima úti á landi. Oftast hafa verið milli 20 og 30 böm á ýmsum aldri í heimavistinni. Það gefur þvi auga leið að þar er stórt heimili og mörgu að sinna, enda hefir ráðskona heimavistarinnar ærið að starfa og æði margt viðvikið utan hennar skyldustarfa fellur oft óhjákveamitega I hennar hlut, enda þarfir og ósk- ir nemendanna margvís- legar og margar. öll þessi ár sinnti María eftir því sem hún framast gat óskum nemendanina og alitaí á sinn hógværa og hljóðláta hátt án þess að hafa nokkum tíma orð á því að það væri ekkl í hennar verkahring Erlend vikublöð og dagblöð Eftirfarandi blöð fáum við daglega eða vikulega í flugpósti VIKUBLÖÐ L'Express Time Newsweek Der Spiegel New Statesman Guard<an Weekly Punch. DAGBLÖÐ Herald Tribune Guardian Times Daily Telegraph The Sunday Times Sunday Express Sunday Telegraph Sunday People The Observer News of the World Ekstra Bladet B.T. Berlingske Tidende Politiken. Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar Austurstræti 18. Tilkynning um lögtaksúrskurð Þann 16. ágúst s.l. var úrskurðað, að löktök geti farið fram vegna gjaldfallins en ógreidds sölu- skatts fyrir mánuðina maí og júní 1972, nýálögð- um hækkunum vegna eldri tímabila og nýálögð- um hækkunum þinggjalda, allt ásamt kostnaði og dráttarvöxtum. Lögtök fyrir gjöldum þessum fara fram að liðnum átta dögurn frá birtingu auglýsingar þessarar, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. eða kvartaði undan ónæði af þeim sökum. Hún var þeim allt- af hollráð og velviljuð og reiðu- búin að leysa úr hverjum vanda þeirra eftir mætti. Þó margs væri að minnast um samskipti Maríu og nemendanna, nefni ég hér aðeins eitt sem lýsir vel hug hennar til þeirra. Fyrsta árið sem María var ráðskona í skólamum, kom 4 ára drengur í skólann. Hann hafði mest af sinni stuttu ævi verið á barnaheimilum og átti ekki ann- að athvarf i sumarfrrum en það sem skólinn gat útvegað honum hverju sinni. Námið gekk honum mjög erfiðtega og vegna þess að hann átti hvergi höfði sinu að að halla þegar hann gat ekki tengur verið við nám í skólan- um, var fengim sérstök undan- þága fyrir harm til að búa áfram í heimavist skólans og stunda þaðan þá virmu, sem hann væri fær um. Þó kom þar að, að ekki var hægt að hafa þennan hátt á lengur og var honum þá útveg- aður annar dvalarstaður. María var sjaldan margorð um hlutina, en þegar þessi piltur varð að flytja, var hún ekki myrk í máli um það að hún hefði áhyggjur af hvemig um hann yrði hugsað og vildi sjálf sjá hinn nýja dvalarstað hans og athuga hvemig að hanum værl búið. 1 mörg ár eftir þetta teit- aði harm jafnan til Maríu þeg- ar hann átti erfitt og það var því miður oft. Maria var ætíð mæm fyrir því hverjir ættu erfið- ast og því fúsari til að rétta hjálparhönd því meiri sem þörf- in var. María var óvenju vandvirk og ég minnist þess aldrei að hún skilaði neinu verki öðruvísi en vel un nu. Útför Maríu Einarsdóttur fór fram sl. fimmtudag. Hún fsedd- ist að Steinsstöðum í Öxnadal 6. okt. 1899. Foreldrar hennar voru hjónin Rósa Loftsdóttir og Ein- ar Jónsson. Sá, sem þetta ritar er ekki nógu kunnugur til að rekja ættir Maríu, enda var hún jafnan fámál um sig og sína. Hún átti 7 systkini. Eitt þeirra var Steingrímur Eyfjörð læknir á Siglufirði. Hann vair, sem kunnugt er, þjóðkunnur haigyrð- ingur og María mun einmig hafa verið vel hagorð, en um það vissu ekki aBrir en þeir, sem þekktu hana bezt. Eftir að María hætti störfum sem ráðskona Heymleysmgja- skólans átti hún jafnan athvarf hjá Huldu dóttur sinni og manni hennar Einari Jónssyni. Heilsu- litil var hún um árabil síðustu æviárin og önnuðust þau hjónin og dætur þeirra hana af alúð og hlýju. Þegar heilsan teyfði dvaldi hún einnig hjá Einari syni sínum og Áslaugu konu hans, en þau eru búsett á Stokkseyri. Þessi orð mín veröa ekki fleiri. Ég vil að endingu þakka Mariu allt okkar samstarf og fyrir hönd þeirra bama, sem kom I okkar hlut að annaist, flyt ég henni hugheilar þakkir og alveg sérstaklega þakka ég henni góðvild hennar og hjálp- semi við þá, sem erfiðast áttu. Ég lýk svo þessum línum með innilegustu samúðarkveðjum frá mér og rninni fjölskyldu til bama hennar, Einars og Huldu, tengdahama, barnabarna og artnarra aðstandenda. Bratidur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.