Morgunblaðið - 12.11.1972, Page 25

Morgunblaðið - 12.11.1972, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1972 Fischer teygir makindalega úr sér heima hjá Sæma og hhist- ar á plötuspilarann. verið, en h-ann bar miMa virð- ingu fyrir Spassky. Svaí alltaf yfir sig Oftast var ekki farið til kojs fyrr en á tímabilinu 4—7 á morgnana og Bobby svaf allt- af til kl. 4,30 á daginn. Það var þess vegna sem hann kom aíltaf of seint, það gekk svo illa að vekja hann. Stundum kom ég inn til hans ki. 4 tii þess að vekja hann, en þá bað hann um að fá að lúra svolítið lengur og stundum kom það fyrir að hann var svo seinn að honum vannst ekki tími til þess að fá sér eitthvað í svang inn. Þetta er ástæðan fyrir því að hann kom of seint, en ekki sú, eins og sumir héldu, að hann væri að reyna að taka Spassky á taugum. Þá daga sem ekki var beflt svaf hann oft langt fram á kvöld. í skrafstuði á hvíldardeginum Á hvíldardegi hans, föstu- deginum, hreyfði hann sig mjög Htið frá sólarlagi til sólarlags á laugardegimim og þá ræddi hann alls ekki um neina samn- inga eða slíkt. Hins vegar var hann oft í miklu skrafstuði á þessum dögum og þá var ég oft með honum. Það var mjög gam an að ræða við hann og hann var ákafflega fljótur að setja sig inn í hlulina, en mest var að sjálfsögðu rætt um skák- ina. Land og fólk vann hug Bobbys Eftir því setm á leið líkaði honum alltaf betur og betur við land og þjóð og sérstáklega hreif loftslagið hann og þetta hávaðalausa umhverfi. Rign mgu líkaði honum vel við og ekki gekk hann minna í rign- ingunni. Honum fannst hann geta slappað vel af héma. Bobby bárust margar gjafir á meðan hann dvaldi hér, en Bkfega þótti honum vænst um teppi með ofnum hestshaus á. Keypti hann nokkrar slíkar myndir áður én hann hélt utan til þess að gefa kunningjum og vinum. Bobby var mlkiTl dýra- vinur og talaði hann stundum um þau mál. Oft var ætlunin að fara í reiðtúr, en aðeins einu sinni gafst taskifæri til þess. Var það dag einn í úðarign- ingu að Bobby reið um Sel- tjamarnesið þvert og endi langt. Geller sló Cramer út Þegar kvörtunarbréf Gellers barst skáksambandinu um ímynduðu rafeindatækin, sem kynnu að trufla Spassky, hló Fxseher eins og svo margir aðr ir. Oft höfðu menn að vísu hleg ið að kvörtunarbréfum Cram- ers, sem með sinni miklu rit- gleði kom upp með furðuleg atriði, sem Fischer hafði aldrei minnzt á, en bréf Gellers sló allt út og gerðí hugmynda- auðgi Cramers að engu. Ann ars var Cramer bezti karl. Mér fannst Fisöher hafa mjög næma heym, óvenju næma, og kom það oft fram. Ég var til dæmis í bakherbergjum LaugardalshallarÍJinar í hverri skák og færði bæðl Spassky og Flscher að drekka. 1 einu herberginu var skni og vöfðum við hann í klæði þannig að við Sæmundur Pálsson, lögregluþjónn, segir frá dvöl sinni með Fischer, heima og heiman heyrðum varia í honum sem vómm við hlið taekisins, en Fischer kvartaði. Hann heyrði i honum í gegn um vegginn inn á sviðið. Þetta þötti okk- ur furðulegt, en það stóðst, síminn hafði hrlngt þegar Fisöher kvartaði. Einnig kvart- aðí hann oft yfir þvl að hann heyrði fólk frammi I salnum vera að tala saman og segja ákveðnar setningar. Aðrir greindu ekkert. í boði á Bessa- stöðum - Fischer fyrstur í hlað Boð Forseta Islands, herra Kristjáns Eldjárns og konu hans frú Halldóru, eftir lok einvígisins var ákaflega hátið- leg og ánægjuleg stund. Skemmtu menn sér hið bezta. Ég tók það ráð boðsdaginn að flýta klukkunni minni, en Fischer spurði alltaf um ttm- ann, því að hann gengur ekki með klukku. Þegar hann spurði svaraði ég tímanum sem var á minni klukfcu, 15 mínút- um á undan, en Fisóher hafði sofið fram eftir að vanda. Á leiðinni til Bessastaða sagði ég honuim sem var og brosti hann þá bara en sagði efcfcert. Við renndum í hlað á Bessastöðum 10 mín. fyrir boðsttmann og komuim fyrstir af gestunum. Þá sagði forsetinn að liMega væri Fischer nú búinn að setja ann að heimsmet með því að mæta fyrstur. Fischer var mjög hrifinn af Bessastöðum. „Hérna væri gott að tefla," sagði hann þegar hann sat undir þakglugganum í vinnustofu forsetans. Skömmu siðar komu hinir gestirnir og voru umræður hin ar fjörugustu. Spassky spurði Fischer m.a. að þvi hvort að hann myndi taka áskorun um einvígi að ári liðnu. „Ef pen- ingar verða í þoði,“ svaraði Fischer og hló, en Spassky klappaöi þá á öxl mér og sagði: „Þá hef ég Sæma fyrir aðstoð- armann". Ekki virtist Fischer llka sú hugmynd vel. I boðinu vatt Fischer sér einu sinni að rússneska sendi- herranum og sýndi honum rúss neskt dagblað, sem hann hafði komið með með sér, en hann var alltaf með einhver blöð eða bækur i vösum sínum. Benti Fischer sendiherranum á hvern ig sagt væri frá úrslitum ein- vigisins í rússneskum blöðum. Þetta var eitt af stórbK>ðunum og sagt var frá úrslitunum i eindálka frétt, nokkrum iinum. Ekki er hægt að segja að sendiherrann hafi verið mjög kampakátur. Annars var Fischer mjög leiður þegar hann frétti hvernig tekið hefði verið á móti Spassky í Rúss- landi þegar hann kom þangað eftir einvígið. „Hann á þetta ekfci skilið, þetta er ekM drengilegt," sagði hann. Fischer haíði engin breytt viðhorf þegar hann var orð- inn heimsmeistari. Hann var mjög ánægður, en það kom greinitega fram að hann mat Spassky mjög miMls og taldi hann bæði vera góðan dreng og gððan skákmann, þann sterkasta á eftir sér. Hreifst af Þjóðminjasafninu Brottfarardaginn frá Islandi gekk á með snörum handtök- um, Nóttin hafði fariö I að pakka og eitt og annað hafði dreigizt. Þegar við ókum frá Hótei Loftteiðum eftir að Fischer hafði kvatt alla, leyft myndatökur og skrifað þakkar bréf til starfsfólksins, ók ég sem leið lá vestur i bæ. „Hvert ertu að fara nú, Sæmi,“ spurði Fiscáier. „Að gera nokkuð, sem við megum ekki gleyma,“ svar- aði ég, „það á eftir að árita keppnisborðið í Þjóðuninja- safninu,“ „Alveg rétt," svaraði Fischer, „þvi verðum við að ljúka.“ Fischer var hrifinn af uppsetningu borðsins. Nokkuð töföumst við i Þjóð- minjasafninu vegna þess að Fischer var mjög hrifinn af ýmsu þar, en okfcur var ekki til setunnar boöið, Loftleiða flugvélin var farin að bíða á Keflavikurflugvelli. Frá íslandi - Lindsay bauð einkaþotu Lindsay borgarstjóri í New York hafði boðið Fischer að senda 9 manna einkaþotu eft- ir honum, en Fischer spurðl hvað við vildum. Hringt hafði verið tfl mín frá skrifstofu Lindsays og ýtt á að við þægj- um boð borgarstjórans og kæm um í einkaþotu hans, en ég lagði áherzlu á að við flygjum með Loftleiöum og kona mín vildi það einnig. Okkur þótti ástæða til þess að fljúga með íslenzka flugfélaginu. Fischer lét okkur ráða. Fischer var var mjög hress, þegar hann var að fara héðan og lét í ljós mikla ánægju með fólkið, vel- vild þess, og aHa þjónustu. Kveðjur til íslendinga frá Lindsay Þegar við komum til New York beið fulltrúi frá Lind- say eftir okkur og bifreiðar borgarstjórans. Það var ekið í gegnum borgina í lög- regiufylgd, en á flugvelliming hafði verið mikið um biaða- menn. Ég var í bil Fischers ásamt fulltrúa borgarstjórans, en í öðrum bílum voru Lom- bardy, kona mín og fleiri úr fylgdarliði Fischers. Eftir nokkra daga í New York hélt Lindsay móttöku í opinberu móttökuhúsi borgarinnar. Var veizlan haidin utan dyra og var mjög hátíölegt þar. I ræðu Lindsays þakkaði hann sérstak lega fyrir veitta aðstoð við Fiseher og bað fyrir sérstakar kveðjur til íslendinga. Berast þær hér með. Bandaríkjamenn irnir voru mjög ánægðir með þá aðstoð sem Fiseher hafði verið veitt. Þá voru þeir einn- ig mjög þakklátiir og ánægðir yfir því að ísienzka lögregian skyldi hafa neynzt svo hjálp- söm, sem raun bar vitni. Það var mjög ánægjulegt hvað all- ir voru þakklátir. Fischer sjáLfur var ekkert spar á að lýsa því yfir að án mín hefði hann verið ilia staddur í þessu einvígi. „Ég hefði staðið illa án Sæma,“ sagði hann. „Spyrjið Sæma“ - góðir vinir Annars vikiu margir meina að sá sem gæti uimigengizt Frainhald á bls. 26. Físcher leikur við eina ftf dætruin Sæniundftr á heiniiU Sæni uudar og Ásgerðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.