Morgunblaðið - 05.12.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.12.1972, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1972 „SOLFAXI“ Ný barnabók eftir Ármann Kr. Einarsson og Einar Hákonarson í TENGSLUM við og í tilefni af 100 ára afmæli Bókaverzl- unar Sigfúsar Eymundssonar byrjar samnefnt forlag verzl- unarinnar barnabókaútgáfu •að nýju. Fyrr á tímum gaf bókaverzlunin út ýmsar sí- gildar barnabækur og má þar t.d. nefna: Bláskjá, Hróa hött, sögur af Gulliver, þrautir Herkúlesar og sagnasöfn sr. Friðriks Hallgrímssonar. Er í ráði að endurútgefa einhverj- ar af þessum bókum, þegar fram líða stundir. Þegar barnaibókaútgáfain hefst að nýju er ekki ráðizt á garð- iinn, þar sem hann er lægstur, því að óhætt er að fullyrða, að útgáfa bókarimnar um folaldið Sólfaxa marki á ýmsan hátt þáttaskil í íslenzkri bamabókaút- gáfu. Höfundar bókarinnar eru tveir: Ármann Kr. Einarsson, rit- höfundur, og Einar Hákonarson, listmálari. Hafa þeir unnið bók- iná sameigimlega frá upphafi og lagt á það áherzlu, að listgrein hvprs um sig fái að njóta sín sem bezt. Nú hefur þróuninni í islenzkri bamabókaútgáfu síð- ari ára verið snúið við á þann veg, að með Sólfaxa er fullunn- in á íslandi af islenzkum lista- mönnum og bókagerðarmönnum bók í þeim flokki, sem einungis hefur komið út í samvinnu við erlenda útgefendur. Hyggjast út- gefendur Sólfaxa reyna að snúa dæminu við og selja íslenzka barnabók tii útgáfu erlendis. AH- ur frágangur bókarinnar er þann ig, að hann stenzt fyllsta saman- burð og ströngustu kröfur á al- þjóðlegum markaði. Höfundana Ármann Kr. Ein- arsson og Einar Hákonarson er óþarft að kynna mörgurn orð- um. Þeir hafa báðir áunnið sér viðurkenndngu og vinsældir fyr- ir störf sín, hvor á sínu sviði. Saga Ármanns af Sólfaxa grein- ir frá samskiptum tveggja bama við folaldið og munum þess, þeg- ar það villist frá mannabyggðum inn í óbyggðir íslands. Einar málaði myndimar í vatnslitum auk kápu og titilsíðu. Eru mynd- imar prentaðar í fjórum litum og textinn síðan sérstaklega inn á þær, en hver mynd spannar opnu í bókinni. Bókin Sólfaxi er í stóru broti 32 sm á hæð og 24 sm á breidd. Li'tbrá Utgreindi myndimar og offsetprentaði bókina, prent- smiðjan Oddi setti textann og Félagsbókbandið batt bókina inn. (Fréttatiílíkynning frá Bóka- verzlun Sigfúsar Eymunds- sonar). tóngæói sem tilheyra yður T3200 LW MW, FM stereo móttaka. STUTTBYLGJA 1 og2 (bátabylgjur) 2x15 sinus watt a X? psfsinristseki Ss Jónas St. Lúðvíksson Sjómennska og innrás í Rússland ÆGISÚTGÁFAN hefur sent frá sér tvær bækur: „Um borð í Sig- urði“ eftir Ásgeir Jakobsson og „t heijarklóm rússneska vetrar- ins“ eftir Leonard Cooper í þýð- ingu Bárðar Jakobssonar. Um borð i Sigurði er 168 blað- siður og segir Ásgeir þar frá vem sinni um borð í togaranum Sigurði og viðkomu í Grimsby. Bókina prýða ljósmyndir og teikningar eftir Gísla Sigurðs- son. í heljarklóm rússneska vetrar- Á svalköldum sævi Sjöunda bók Ægisútgáfunnar um minnisverða atburði á sjó „Á SVALKÖLDUM sævi“ heitir nýútkomin bók er Jónas St. Lúð- víksson hefur tekið saman, þýtt og endursagt. Er þetta sjöunda bók Jónasar frá því á árinu 1963 en allar hafa þær fjailað um sjð- mennsku og atburði tengda sjó, hetjudáðir og karlmennsku. Það er Ægisútgáfan sem gef- ur út þessa bók sem Jónas hefur búið til prentunar, eins og hinar fyrri sex. „Á svalköldum sævi“ skiptist í 6 kafla. Hreysti og karlmennskuþrek segir frá viðureign brezka beiti- skipsins Rawalpindi og orrustu- skipa Þjóðverja, Scharnhorst og Gneisenau. Fangaskipið segir frá flækingi birgðaskipsins Alt- marks um heimshöfin með farm hertekinna manna innanborðs. Stórslys á Saxelfi lýsir þeim ótrú Iega atburði er 3600 tonna skip fórst á Saxelíi. Vitasidpið Elbe I ferst segir frá svipuðum atburði, þá er skip fórst á lægi sínu á fljótinu. Öriaganóttin segir frá mörgu sem ekki hefur áður ver- ið kunnugt um þann atburð er Andrea Doria og Stockholm rák ust á og Hetjuleg orrusta segir frá sjóorrustu Bandamanna og Japana á stríðsárunum. Bókin er 224 bls. Snjósleði Til sölu snjósleði. Sími 85301. Jóludúknr og jólolöberor fyrirliggjandi. KR. ÞORVALDSSON & CO., Grettisgötu 6, símar 24478—24730. - > - Dásamlegur staður Fallegir skápar og borð allt klætt — • aðeins að strjúka hreint með rftkum klút • engar áhyggjur af blettum • aidrei að mála Óteljandi litir og viðarmynstur til að velja úr. G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON HF.f Ármúla 1 — Sími (92) 2-42-50. ins segir frá þremur sögulegum innrásum i Rússland, þar sem á ferðinni eru Karl tólfti, Napole- on og Hitler. Herjum þeirra allra varð rússneski veturinn endan- lega að falli. Bókin er 224 blað- síður. Morð- gáta PRENTSMIÐJA Austurlands hefur sent á markaðinn bókina „Scotland Yard“, Jeynilögreglu- sögu eftir J. W. Brown. Sagan greinir frá Sinclair lög- regluforingja í Scotland Yard eftir að rödd í símanum hafði til kynnt honum að innanríkisráð- herrann hefði verið myrtur. Bókin er 137 blaðsíður, prent- uð hjá Prentverki Oddis Björns- sonar h.f. Nýr skáld- sagna- höfundur BÓKAFORLAG Odds Björnsson- ar hefur sent frá sér fyrstu skáldsögu Rögnvalds S. Möllers, kennara: „Á miðum og mýri“. Rögnvaldur S. Möller er fædd- ur í Siglufirði 1915. Eftir hann hafa birzt greinar og kvæði i blöðuim og tímaritum. Á miðum og mýri er 168 blaðsíður og segir á bókarkápu að þarna sé á ferð- inni „ástríðuþrungin og berorð ástarsaga, sem segir frá ástum dugmikils íslenzks sjómanns og saklausrar sveitastúltou, sem' verður óstjómlega ástfangin af hon'um, því hann var fyrsti karl maðurinn, s©m vakið hafði kven- eðli hennar.“ SELURINN SNORRI BÓKAÚTGÁFAN Björk hefur sent frá sér tvær barnabækur: „Selinn Snorra“ og Kötu litlu og brúðuvagninn“. Selurinn Snorri kom fyrst út hér á landi 1950, en höfund'ur er norskuir, Frithjof Sælen og þýddi Vilbergur Júlíusson bók- ina. Sagan segir frá Snorra litla og heimkynnum hans í Norður- íshafinu og þess fjölbreytta dýralííi. Á annarri hverri síðu eru litmyndir tengdar efni sög- unnar. Kata litla og brúðuvagninn er eftir Jens Sigsgaard, höfund bók arinnar Palli var einn í heimin- uim, og er myndskreytt af Arne Ungermann, þeim sama og myndskreytti söguna af Palla. Stefán Júliusson, ritlhöfundur, þýddi söguna, en bókin hefur verið gefin út i 30 þjóðlöndum til bessa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.