Morgunblaðið - 05.12.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.12.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGIJR 5. Dfc'SEMBER 1972 17 Fer f y rir b j örg o g brotnar ekki u 99 Árni Óla: AUlaskil. Setberg prentaði. Reykjavik 1972. Árni Óla er maður kominn á nírœðisaldur. Oft segir hann frá ýmsum furðum, en máski er hann sjálfur mesta og sögu- legasta furðan Hann ' hefur eins og flestir aðrir „siglt hann nokkuð brattan stundum," en ekki virðist neitt lát á áhuga hans, starfsorku eða færni til rit staría. Þegar ég um daginn fékk í hendur bókina Aldaskil, sem er 28. bók hans og sú 27. síð- an 1940, og hvorki meira né irúnna en 323 stórar blaðsiður, datt mér í hug það úr gamalli gátu, sem er fyrirsögn þessa gremarkorns. Bókin skiptist í tvo höfuð- hluta. Annar heitir Að kvöldi gamla tímans, hinn Huliðsheim- ar. I stuttum formála minnist Árni á þá byltingu, sem orðið hefur í þjóðlífi og atvinnuhátt- um hér á landi á þessari öld, og telur hann vel farið, hve langt þjóðinni hafi miðað til bættra kjara og lífshátta. „En,“ segir harnn, „þjóðin má þó ekki taka þau loftköst, að hún stökkvi frá sögu sinni.“ Hann skírskotar til þess, sem Einar Benediktsson kvað: „Án fræðslu hins liðna sést ei, hvað er nýtt.“ Binar var rnikill áhuga- maður um hvers konar framfar- ir, en samt lét hann svona um mælt. Og var hann þar sammála dr. Forna, sem hlaut ekki að ófyrirsynju þetta heiti með þjóð sinni, og Árni minnir á þessi orð úr kveðskap hins virðulega unnanda þjóðlegra hátta og menningar: „Mikill er í minning unni meginstyrkur vorri þjóð.“ Árni segir ennfremur: „Á blaða mennskuferli mínum taldi ég það skyldu mína að ganga á fjörur minninganna og reyna, ef ég gæti, að bjarga þar ýmsu mori, „svo það kæfði ekki allt í sand. Meðal annars leitaði ég uppi aldrað fólk, sem ég treysti til þess að segja rétt frá seinasta skeiði hinnar gömlu aldar og kjörum almennings fyrir alda- skilin. Árangur þeirrar viðleitni er efni þessarar bókar og er- indi hennar." Nú mundi margur segja, að nóg væri komið af frásögnum frá öldinni, sem leið, en hvort tveggja er, að af miklu er að taka ög að Árni hefur verið fundvís á góða sögumenn og kunnað jafnvel að spyrja og að skrá frásagnir sögumannanna, því að sannarlega er bókin bæði fróðlegt og oftast skemmti legt lesefni. Meira að segja eru furðusögurnar margar svo sér- stæðar, að lesandanum finnst alls ekki, að þarna sé verið að bera í bakkafullan lækinn, en heimildamenn að þeim sog- um eru átta. Þar eru einna for- vitnilegastar sögurnar Drauga- skipið i Siglufirði og Hvað skal mennskra manna afl? sögumað- ur beggja Bjarni Kjartansson, og svo frásögnin af vitrunum og heyrnum Halldórs Sigurðssonar úrsmiðs, en þær eiga vart sinn líka og eru þeim mun merkari sakir þess. hversu vitur, grand- var og vel virtur Halldór Sig- urðsson var. Slíka menn treysti ég mér ekki til að segja ljúga, frekar en Árni Óla. Mikill meiri hluti bókarinnar — eða 210 — blaðsiður, er frá- sagnir um lífsháttu og lífsbar- áttu hinnar stritandi alþýðu í byggðum landsins — og eru sögumenn þar tólf, þar af tvær konur, og kennir þar margra grasa. Helmingur þessa fyrri hluta er „Frásagnir Jóns Sverrissonar" úr Meðallandi, sem bjó tvo áratugi í Álftaveri. Er þar meðai annars greinileg lýsing á húsagerð í Meðallandi, og sagt er þar frá margvísleg- “ j um svaðilförum, sem Skaftfell- ingar urðu á sig að leggja vegna kaupstaðar- og verferða yfir stórfljót eða fjöll og heiðar, en einnig sjósóknar við hina hafn- lausu strönd. En i slíkum ferð- um, hvort heldur var á sjó eða landi, varð oft hörmulegt mann- tjón — og þó sjaldnar en ætla mætti, og var það sakir þess, hve menn voru hættunum vanir og að saima skapi harðfengir. Einna eftirminnilegast verður mér þrennt úr þessum fjöl- breytta og vel ritaða þætti. Fyrst nefni ég beituferð ungl- ingsins Jóns Sverrissonar í Hval fjörð á útvegi Gvendar á sæ- trjánum, sem var fullur æðis- gengin skepna. Þá er næst hrakningur Álftavers- og Skaft- ártungumanna með tvö hundruð kinda fjárhóp um Fjallabaksveg í hörkustormi, ófærð og hríðar- byl. Þá er hið þriðja. Sagt var í fáfiski vestur í Fjörðum: „Einn er hver einn, og enginn fæst á landi,“ en þetta átti ekki við austur í Skaftafellssýslu. Brim- rekinn stórþorskur var þar mik ið bjargræði. Risu menn úr rekkju eftir sunnan ofsastorm á undan hrafni og svartbaki og gengu á reka, og eitt sinn tíndi Jón Sverrisson upp úr lóni, sem brimið hafði myndað, hvorki fleiri né færri en 97 golþorska, sem allir voru spilifaindi og hin- ir erfiðustu viðfangs. Margt er í öðrum þáttum bók- arinnar, sem festist í minni. Furðuleg mun virðast nú- tíðarmanni koma Stefáns í kot eitt í Staðarhverfi í Grindavík — og þá ekki siður frásögn, sem Árni hefur valið heitið Jólakýr- in. Furðuleg, en dagsönn, er frásögn Barðstrendingisdins Magn úsar Péturssonar, sem varð fyrir snjóflóði einni stundu eft- ir nón og hafði sig lifandi und- an dyngjunni klukkan tvö um nóttina. Og svo var þá eftir að komast berhöfðaður og staflaus til manna í brunaírosti stormi og hríðarhreytingi! Tvær konur eru sögumenn Árna, svo sem áð- ur getur. Önnur þeirra, Kristin Ólafsdóttir, lítil vexti og fötl- uð, var munaðarleysingi, en stundaði sjó í Bjarneyjum á Breiðafirði í níu ár, en á vetr- um, þegar ekki var róið, varð hún að hirða kú og kindur og vinna eldhúsverk, en þess á milli sitja og prjóna. Kaup var einn fatnaður á ári, og ekki átti Kristín eftir níu ára vist svo mikið sem koddableðil. Hin konan er Guðrún Benónýsdótt- ir frá Skagaströnd. Hún segir fyrst og fremst frá hinum mikla mannskaða, sem varð á Skaga- strönd hinn 3. janúar 1887, en þá fórust þaðan fimm bátar með tuttugu og fjórum mönnum, og var einn af þeim faðir Guðrún- ar. Sumarið áður höfðu verið hin mestu harðindi á láði og legi, enda fluttu þá til Ameríku héðan aí Islandi tvö þúsund manns. Og svo byrjaði næsta ár á því á Skagaströnd, að þaðan fórust fimm bátar, sem á var hálfur þriðji tugur manna! Ekki er það að efa, að slíkar bækur sem Aldaskil eru með öllu ósýnilegar úr hásæti þess sænska hæstaréttar, sem Árni Óla nú mun talinn óskeikull meðai helztu heimsflakkara og sterti- menna í hópi fræðimanna og „tungutalara" á sviði íslenzkra bókmennta En það er trúa mín, að Aldaskil og þeirra líkar þyki islenzku þjóðinni það fróðleg og skemmtileg enn um sinn, að ekki þurfi að brenna neitt af upp- laginu eða fleygja á hauga til þess að rýma fyrir nýjum bók- um útgefandans. Mér þykir meira að segja liklegt, að svo muni aldir líða, að ýmsir muni glugga í Aldaskil, — Árna Óla sem sé verða að þeirri von sinni, að þjóðin taki ekki þau loftköst, að hún stökkvi frá sögu sinni! Guðmundur G. Hagalín skrifar um BÓKMENNTIR PARÍSARLÍF Francoise Sagan: SÓL Á SVÖLU VATNI. Þýdd úr frönsku af Guðrúnu Giiómiindsdóttur. Iðunn, Reykjavik 1972. YFIRLEITT fer ekki vel á þvi að þeir, sem skrifa um bækur, rekji efni þeirra til hlítar. En til þess að gefa lesendum dálitla innsýn i hina nýju skáldsögu eftir Francoise Sagam er rétt að geta þess að hún fjallar um lífs- þreyttan franskan blaðamann, sem er orðinn taugaveiklaður og getulaus til kvenna aðeins hálffertugur að aldri. Hasnn heitir Gillés. Sagan er látin ger- ast 1967. Gilles leitar læknis, sem tjáir honum að hann fái fimmtán álíka sjúklinga til meðferðar í hverri viku, sjúkdómur hans sé aðeins tímanna tákn. Gilles fer út á !and til systur simnar í þeirri von að læknast. Hann yf- irgefur glæsilegar konur París- arborgar og samkvæmdslífið þar. Systirin býr ásamt manni sínum á fögru heimili í Limoges og fyrr en varir er blaðamaðurinn ungi orðinn miðdepill samkvæmis- lifsins þar, enda hittir hann óvenjulega konu, sem vekur karlmanninn í honum.til lífs. Um samband hans og konunnar, sem er gift og heitir Nathalie, fjallar sagan. Francoise Sagan er töluverður sálfræðingur, næm á samskipti karls og konu. Sól á svölu vatni hefur beinan söguþráð, en gerist einkum í hugarfylgsnum þeirra Gilles og Nathalie, lýsir innri átökum þeirra og hvernig kröf- ur daglegs lífs varpa skuggum sínum inn i sæluríki ástarinnar. Hún lýsir vel lífi Parísarbúans, ekki síst drykkjusiðum hans, matarvenjum og skemmtunum. Sól á svölu vatni er fiull af lífi, umhverfislýsingar sögunnar eru i fyílsta máta trúverðugar og í eðlilegu samhengi við sálfræði- lega niðurstöðu höfundarins. Það er gáfuð skáldkona, sem semur slika sögu, enda hefur verið bent á að skáldsögur Francoise Sagans hafi með árun- um vaxið að bókmenntagildi. Við það hafa þær kannski misst einhvað af upprunalegum fersk- leika sínum, en ég held að les- endur Sagans megi vel við una. Sól á svölu vatni er að mínum dómi skrifuð af kunnáttu og innsýn. Hún sýnir okkur vel hve franskar skáldsögur bera af skáldsögum annarra þjóða hvað varðar léttleika og gott hand- bragð. Það er ekki nóg, að skáld- sagnahöfundur hafi mikið að Francoise Sagan segja. Hann verður að hafa hæfi- leika til að segja sögu á óþving aðan hátt. Þann hæfileika hefur Francoise Sagan í ríkari mæli en margir aðrir skáldsagnahöfund- ar, sem um þessar mundir eru taldir henni meiri að skáldlegu atgervi. Þýðing Guðrúnar Guðmunds- dóttur virðist mér vel af hendi leyst. Leiklist, stríð og glæpir Hammond Inncs: KAFBÁTiVHELLIRINN. Kristin R. Thoriacius þýddi. lðunn. Valdimar Jóhannsson. Reykjavik 1972. Alistair MacLean: BJARNAREY. Andrés Kristjánsson islenzkaði. Iðunn. Valdimar Jóhannsson. Reykjavík 1972. Skáldsögur þeirna Haramonds Inrneis og Alistairs MjacLeams byirja vemijulega eins og góðum æsisöguim eir títt. f upphafi er frá sögnin með ósköp rólyndislegum hætti, memn eru leiddir inin á sögusviiðið; síðlain taika óvæntir hlutiir að genast og undiir lokin nær spenmian hármairki. Þetta á ekki síst við uim Hairmmiond Innes, sem styðst alttiaf að visisu manki við staðreyndir í sögum sinum. KafbátaheUirinin fjalliar um kaflbátastöð, sem Þjóðverjar hafa komið fyrir við Cormvall- strönd. Leiklistargaignirýn.andt nokkur er á ferðalagi á þessúm slóðum þegar sáðari heknsstyrj- öldin sikellur á og fyrr en varir er hanin orðinrn þátttakandi í æðis- genignum leik. Á tilviljunar- kemndan hátt kemst hainn á snoð- ir um ferðir Þjóðverja. Hann er teldiun til faniga ásamit fiski- manninium Lógian, en Lógan er áreiðanlega í hópi skemmtileg- ustu persóna, sem Innes hefur skapað. Þeir dveljast í kafbáta- stöðinmi og komiast að raun um, að Þjóðverjar eru líka menn, Gestapó verður jaínivel að sætta sig við að lúta í lægra háldi fyrir skymsömum flotaforinigja. Það út af fyrir sig er nýjumg í æsisögu. Lei'klistargagnrýnaindinn hefur fulliain hug á þvi að verða þjóð siinni að gagni í baráttu við óvin- inm og honium tekst það að lok- urn á eftirmiinnilegan hátt. 'Reyndar er sagan tvísikipt. Síðari Framhald á bls. 30 Alistair MaeLean

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.