Morgunblaðið - 20.12.1972, Page 8
8
MORGUNBLA.ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1972
Landspltalinn - Geðdeild
— vistunarrýmisþörf á heilbrigðisstofnunum
Eftir Pál Sigurðsson lækni, ráðuneytisstjóra
í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
í Morgunblaðlnu 15. þ.m. birt
ist grein rituð í nóvember 1972
undirrituð af 10 læknum, sem þá
voru við framhaldsnám eða störf
í Bretlandi. Sama dag birtist í
dagblaðinu Tímanum grein eftir
ritstjóra þess. Báðar þessar
greinar voru að mestu gagnrýni
á byggingu geðdeildar við
Landspítalann og var sú gagn-
rýni studd ýmsum fullyrð-
ingum, sem ekki hafa við rök
r að styðjast.
Af þessum sökum telur heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyt-
ið nauðsynlegt að gefa stutt yf-
irlit um þetta mál sérstaklega
og störf þau, er unnin hafa ver-
ið i ráðuneytinu eða á þess veg-
um, til könnunar á vistunarrým-
isþörf á hinum ýmsu heilbrigð-
isstofnunum.
INNGANGUR
Um árabil hafa verið starf-
andi tvær byggingarnefndir.
sem hafa átt að sjá um bygg-
ingamálefni annars vegar Land
spítalans á lóð Landspítala, hins
vegar læknadeild Háskóla Is-
lands á lóð Háskólans.
Byggingamefnd Landspítal
ans er skipuð af heilbrigðisráð-
herra og sitja nú í henni þess-
ir menn:
Sigurður Sigurðsson, fyrrv.
landlaeknir, formaður Snorri
Hallgrímsson, prófessor, Sigurð
tir Samúelsson, prófessor, Davíð
Davíðsson, prófessor, Jón Thors,
deildarstjóri, Jón Ingimarsson,
skrifstofustjóri og Hólmfrið-
ur Stefánsdóttir, forstöðukona
Landspítalans.
Bygginganefnd læknadeild
ar starfar á vegum háskólans og
menntamálaráðuneytisins og hef
ur heilbrigðis- og tryggingaráðu
neytið að sjálfsögðu ekki haft
nein afskipti af málefnum henn-
ar né hefur upplýsingar um
störf hennar.
Bygginganefnd Landspítal-
ans hefur haft yfirstjórn bygg-
ingamálefna, þ.e. stjórnað undir
búningi verka og haft eftirlit
með framkvæmdum. Þegar ráðu-
neyti heilbrigðis- og trygginga-
*&iála tók til starfa 1. janúar
1970, lá ekki fyrir frá bygging
arnefnd formleg áætlun um for-
gangsröð byggingarverkefna
við Landspítalann. t>á hafði ári
áður af þáverandi ráðherra og
ríkisstjóm verið tekin ákvörð-
un um, að næsta legudeild við
spítalann yrði fæðinga- og kven
sjúkdómadeild og var undirbún
ingur þeirrar byggingar hafinn.
Formaður byggingamefnd-
ar, dr. Sigurður Sigurðsson,
fyrrv. landlæknir, hefur
hins vegar tjáð mér, að sú skoð-
un hafi verið innan nefndarinn-
ar, að geðdeildarbygging við
Landspítalann hefði orðið næsti
^áfangi, hefði kvensjúkdóma- og
fæðingadeild ekki fengið þann
forgang, sem fyrr greinir.
Skipulagsmál Landspitalalóð
ar voru á döfinni á áratugnum
1960—70, en varð ekki lokið og
sú niðurstaða fékkst I árslok
1969, að nauðsynlegt væri að
stækka lóðina suður fyrir núver
andi Hringbraut og færa um leið
þá götu nokkuð suður á við. í
desember 1969 var gerður samn
ingur milli heilbrigðismálaráð-
herra, menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra annars vegar,
fyrir hönd ríkisins og borgar-
stjórans í Reykjavík, fyritr hönd
borgarsjóðs hins vegar, um lóða
mál Landspítalans og stofnana
háskólans og um tilfærslu Hring
brautarinnar. í þessum samningi
afsalaði borgarstjóm sér 38 þús
und fermetrum lands til stækk-
unar á lóð Landspítalans, en auk
þess skuldbatt borgarstjóm sig
til að úthluta ríkissjóði, til af-
nota fyrir Landspítalann og
stofnanir háskólans, sem spítal-
anum eru tengdar, um 14 hekt-
ara svæði sunnan nýrrar Hring
brautar. Þá var og heim-
ild í þessum samningi til
að tengja saman lóðir norðan og
sunnan götu með göngum eða
brú. í stað þessara lóða afsal-
aði ríkissjóður til borgarinnar
lóðum I miðborginni, þ.e. Arnar-
hóli öllum og hluta af lóð stjórn
arráðsins við Lækjargötu.
Þegar hér var komið sögu
hafði þáverandi landlæknirfor-
göngu um, að fá þekkt brezkt
arkitektafyrirtæki, Llewelyn-
Davies Weeks Forestier-Walker
and Bor Architects, til að taka
að sér skipulagningu lóðarinnar
allrar. Það verk stendur enn, en
mun lokið í janúar n.k.
Enda þótt fyrrgreindur samn
ingur væri gerður, sem gerði
ráð fyrir sameiginlegum af-
notum Landspítala og lækna
deildar háskólans á lóð Land-
spítalans, var ekki tekið til við
undirbúning samstarfs þess-
ara aðila fyrr en á þessu ári.
Sú niðurstaða fékkst af viðræð-
um fulltrúa ráðuneytanna og
byggingamefnda, að sett var á
laggirnar sérstök byggingar-
stjóm, sem hafa skal með hönd-
um yfirstjórn allra þessara
mála.
Þessi byggingarstjórn er
nýlega fullskipuð og hefur þeg-
ar tekið til starfa en formlega
tekur hún við af fyrrgreindum
byggingamefndum 1. janúar n.k.
Það samkomulag um fyrir-
komulag þessara mála, sem ráð-
herrar heilbrigðis- og mennta-
mála hafa komið sér saman um,
er svohljóðandi:
1. „Menntamálaráðuneytið og
heilbrigðis- og tryggingamála.
ráðuneytið hafa sameiginlega
stjórn um mannvirkjagerð fyr
ir Háskóla • íslands og Ríkis-
spítalana á Landspítalalóð
inni.
2. Menntamálaráðherra skipar
tvo menn I stjórnina og skal
annar vera prófessor við
Læknadeild H.l.
Heilbrigðis- og tryggingamála
ráðherra skipar tvo menn I
stjórnina og skal annar vera
yfirlæknir við Landspítalann
eða Rannsóknarstofu Háskól-
ans.
Ráðherrar geta komið sér
saman um að skipa fimmta
mann, sem þá yrði formaður
nefndarinnar.
3. Stjómin skal koma sam-
an eigi sjaldnar en einu sinni
í mánuði. Hún skal hafa yfir-
umsjón með allri mannvirkja
gerð á lóðinni, gera tillögur
um forgang verkefna, og
fylgja eftir teknum ákvörðun
um. Stjórnin skal I tíllögugerð
um og starfsemi leitast við að
samræma aðstöðu til lækninga
starfa við aðstöðu til rann-
sókna og kennslu.
4. Byggingastjöri, tilnefndur
sameiginlega af ráðherrum i
samráði við framkvæmdadeild
Innkaupastofnunar rikisins,
(sbr. lög nr. 63/1970) hef-
ur I umboði stjórnar daglega
umsjön með allri mannvirkja
gerð, situr fundi stjómarinn-
ar, kemur ákvörðunum henn-
ar í framkvæmd, og starfar
Páll Sigurðsson.
sem tengiliður milli hennar
og þeirra hönnunarnefnda,
starfshópa og tæknilegra ráð
gjafa, er kvaddir verða til I
samráði við hlutaðeigandi
heilbrigðismála- og háskólaað
ila, varðandi þá mannvirkja-
gerð, sem er á hönnunar- eða
framkvæmdastigi hverju
sinni.
5. Innkaupastofnun ríkisins hef
ur á hendi allt reikningshald
vegna framkvæmda- og
stjórnunarkostnaðar, og fram
kvæmdadeild þeirrar stofn
unar annast útboð hönnunar-
vinnu og útboð verklegra
framkvæmda. Kostnaður við
starf stjórnarinnar, svo og
byggingarstjóra og starfsliðs
hans telst til stofnkostnaðar.
6. Núverandi byggingamefndir
starfa áfram að verkefnum
sínum, á þeim sviðum, er þær
vinna nú á, þar til tilnefnd-
ar hafa verið þær hönnunar-
nefndir og starfshópar, er um
getur í 4. grein.“
1 byggingarstjórn eiga nú
sæti:
Jónas Haralz, bankastjóri, til
nefndur af ráðherrum sameig
inlega, Davíð Daviðsson,
prófessor og Torfi Ásgeirs-
son, deildarstjóri, tilnefndir
af menntamálaráðherra. Ólaf-
ur Jensson, yfirlæknir, og
Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri, tilnefndir af heilbrigð-
ismálaráðherra.
Nefndin hefur þegar komið
saman og meðal annars rætt við
formann núverandi byggingar-
nefndar og Mr. Weeks, arkitekt,
frá fyrrgreindu skipulagsfyrir-
tæki.
2. rAdstafanir
NÚVKRANDI RÍKIS-
STJÓRNAR f MÁLEFNUM
GEDS-IÚKRA OG
DRVKKJUMANNA
í málefnasamningi núverandi
ríkisstjómar er það eitt af meg-
inatriðum l sambandi viö heil-
brigðismál, þau er varða sjúkra-
hús og heilbrigðisstofnanir sér-
staklega, að ráðin verði bót á
ófremdarástandi I málefnum geð
sjúkra og drykkjumanna. Hér
var raunar um að ræða mál, sem
allir stjórnmálaflokkar tóku
upp á stefnuskrár sínar fyrir
síðustu kosningar og virtist ein-
hugur um að leysa þá. Núver-
andi heilbrigðisráðherra skipaði
því fljótlega, eftir að hann tók
við starfi, tvær nefndir til að
annast undirbúning mála í sam-
ræmi við málefnasamninginn,
byggingarnefnd geðdeildar við
Landspitalann og byggingar-
nefnd lokaðrar deildar fyr-
ir drykkjusjúklinga (og eitur-
lyfjasjúklinga).
í byggingarnefnd geðdeildar
Landspítalans eru þessir menn:
Tómas Helgason, prófessor,
formaður, Adda Bára Sigfúsdótt
ir, aðstoðarm. ráðherra, Ásgeir
Bjarnason, forstjóri, og Guðrún
Guðnadóttir, yfirhjúkrunar-
kona.
Síðar bættust I nefndina Jó-
hannes Bergsveinsson, lækn-
ir, og Þórunn Pálsdóttir, for-
stöðukona.
í byggingarnefnd deildar fyr
ir drykkjusjúklinga eru þessir
menn:
Adda Bára Sigfúsdóttir, að-
stoðarm. ráðherra, formaður,
Þórður Möller, yfirlæknir og
Sveinn Ragnarsson, félagsmála-
stjóri Reykjavíkurborgar.
Jón Ingimarsson, skrif-
stofustjóri, hefur verið rit-
ari beggja nefndanna.
Ráðherra ákvað, að kostnað-
ur við byggingu deildar fyrir
drykkjusjúklinga skyldi greið-
ast úr Gæzluvistarsjóði. En á
fjárlögum þessa árs er gert ráð
fyrir 4,5 milljónum króna til
þessa verkefnis, þ.e. undirbún-
ings að byggingu geðdeildar við
Landspítala.
Báðar þessar nefndir hafa
starfað mjög ötullega að sínum
málefnum. Deild drykkjusjúkl-
inga, sem ákveðinn hefur verið
staður á landi Vífilsstaða og
verður því í framtíðinni deild I
Vifilsstaðaspítala, er tilbúin til
útboðs og geðdeild við Landspi-
tala er búið að samþykkja af
ráðuneyti, skipulagsnefnd og
bygginganefnd Reykjavikur og
er nú til athugunar hjá fjárlaga
og hagsýslustofnun, I samræmi
við lög um opinberar fram-
kvæmdir. Vonir standa til,
að málið hljóti afgreiðslu þeirr-
ar stofnunar og samstarfsnefnd
ar um opinberar framkvæmdir
fyrir lok ársins og mun þá tak-
ast að ljúka öllum undirbúningi,
sem til þarf, þannig að fyrri
hluti verksins verði tilbú-
inn til útboðs á næsta sumri eða
á næsta hausti.
Ráðuneytið gerði I upphafleg
um tillögum sínum tillögu um
framlag á fjárlögum næsta árs
til þessa verks. Samkomulag hef
ur nú orðið milli fjárveitinga-
nefndar, ríkisstjórnar og Seðla-
banka Islands um, að I fjárlög-
um næsta árs verði lánsheimild
um 30 millj. króna, og verði
þessi heimild notuð, ef undir-
búningi verksins miðar eins og
ráðgert er.
Auk þessa, sem hér hefur ver
ið talið, hefur verið unnið að
málefnum geðsjúkra á ððr-
um vettvangi. Þannig hefur ver
ið Iokið við að byggja viðbygg
ingu við Kleppsspítaiann, sem í
er aðstaða fyrir göngudeildir
spítalans, vinnuherbergi lækna,
fundaherbergi, bókasafn,
kennslustofur og rannsóknastoí
ur.
Þá hafa verið keypt og leigð
hús, þannig að snemma á næsta
ári verður hægt að loka gamla
Kleppsspítalanum, sem ekki er
lengur nothæfur til vistun-
ar sjúklinga.
Við Kleppsspítalann hefur
einnig verið byggður vinnuskáli
fyrir sjúklingana og breyting-
um og endurbyggingum á deild-
um, sem staðið hafa nokkur ár,
er nú að ljúka. Gert var ráð
fyrir, að kjallari spitalans yrði
endurbyggður á þessu ári,
en það hefur ekki tekizt og verð
ur það væntanlega gert á næsta
ári. Þar er gert ráð fyrir eld-
húsi, matsal og aðstöðu fyrir
starfsfólk auk geymslna ýmiss
konar.
1 athugun er að gera aðeins
minni háttar eldhús, en nota hið
stóra eldhús Landspítalans, sem
tekur til starfa í ársbyrj-
un næstkomandi og flytja mat á
allar deildir spítalans, sem, í
bænum, þ.e. á Landspitalann
sjálfan, deildina við Laugarás-
veg, deildirnar við Hátún og á
Bjarg á Seltjarnarnesi.
Er byggingarnefnd geðdeildar
var skipuð, ritaði ráðuneyt-
ið byggingarnefnd Landspít-
alans og óskaði eftir, að við það
skipulagsstarf, sem þá var í
gangi, yrði tekið tillit til stað-
arvals fyrir geðdeild við Land-
spítalann. Byggingarnefnd
Landspítala og Mr. Weeks, verk
stjóri skipulagsstarfsins, var
þvi frá byrjun ákvörðunaraðili
um, hvar á lóð spítalans geð-
deild yrði, og ákvörðun um stað
inn var í raun gerð af Mr.
Weeks, sem taldi, að svæðið vest
an fæðingadeildar, sem nefndar-
önnum þótti fýsilegra, væri
ekki hentugt, bæði vegna stærð
ar þess lóðarhluta, aðkeyrslu og
tengsla við aðalbyggingu og eld-
hús.
Það er því alrangt, sem fram
hefur verið haldið I blaðagrein
lækna frá Bretlandi og víðar, að
tveir aðilar hafi haft með hönd-
um skipulagsmál Landspítalalóð
ar. Hitt er svo annað mál, að
ráðuneytið hefur ekki óskað að-
stoðar Mr. Weeks í sambandi við
ákvörðun um þarfir eða stærð
geðdeildar, enda hefur hann
heldur ekki haft með höndum
könnun eða tillögugerð um
stærðarþörf neinna legudeilda
yfirleitt, hvorki legudeilda á
Landspítalanum eða legudeilda-
þörf fyrir landið allt.
3. ÁÆTLANIR UM ÞÖRF
FYRIR VISTUNARRÝMI Á
HEILBRIGÐISSTOFNUNUM
I frumvarpi þvi til laga um
heilbrigðisþjónustu, sem lagt
var fyrir þing á síðastliðnu vori
og lagt verður fram að nýju á
þessu þingi, sem nú situr, er
gert ráð fyrir, að ráðherra láti
gera áætlun um sjúkrahús og
heilsugæzlustöðvar til 10 ára i
senn og framkvæmdaáætlun
byggð á slíkri heildaráætlun
skuli árlega leggja fyrir þing
við gerð fjáriaga.
Þar sem gert var ráð fyrir,
að þessi lög tækju gildi á þessu
eða næsta ári, hófst ráðuneytið
handa á síðastliðnu vori og
fékk dr. Kjartan Jóhannsson til
að hefja könnun á þessu verki.
Það liggja nú fyrir drög að
slikri áætlun og nokkur könn-
un á vistunarrýmisþörf, miðað
við mannfjöldaspár fram til árs
ins 1990.
Þessi könnun á vistunarrým-
isþörf verður væntanlega birt í
heild snemma á næsta ári, en
hér verða teknar úr henni
nokkrar upplýsingar, sem að
gagni mega koma.
Þannig hafa í samráði við
ráðuneytið verið gerð drög að
staðli fyrir vistunarrýmisþörf á
hinum ýmsu stofnunum innan
heilbrigðiskerfisins.
FranUiald á bts. 2L