Morgunblaðið - 20.12.1972, Page 28

Morgunblaðið - 20.12.1972, Page 28
28 MORGU.NBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1972 PÍ* * Hfíngl cftif (niðncctti M.G.EBERHART Haan var alltaf formlegur 5 framkomu. Hann hafði enga ástæðu til að gera grein fyrir þarveru sinni við Jenny, en gerði það samt. Hann stóð upp og rétti fram höndina. — Ég kom undir eins og ég frétti þetta. Hvernig líður þér, Jenny? Hún tók í hönd hans. — Gaman að sjá þig aftur, sagði hann kurteislega. — En þó varla gaman, eins og á stend ur. Hún léit í áttina til bókastof nunnar, en þaðan heyrðist manna mál. Art sagði: — Pétur er inni í bókastofunni. Lögreglan er að tala við hann. Ég býst við, að hún vilji tala við þig aftur. Já, undir eins og ég heyrði um þetta sorglega atvik, þá kom ég auðvitað strax, ef Pétur skyldi þurfa á mér að halda. Ekki svo að skilja, að ég geti mikið gagn gert sem lögfræðingur. Hef aldrei fengizt neitt við sakamál. En Pétur þarf nú sennilega held ur ekki neitt á lögfræðingi að halda. Ég er ekki enn farinn að sjá hann. Ég kom heim úr borg- inni i gærkvöldi. Blanche hringdi til mín klukkan hálí- tólf. Svo sleit hún snögglega sambandið, en mér datt ekki i hug, að neitt alvarlegt væri að. Cal sagði mér, að þá hefði Fi- oru verið sýnt fyrra banatilræð ið. — Þú ert þá búinn að hitta Cal? — Já, já. Og Blanche rétt sem snöggvast. En mér skilst þeir ekki vera enn búnir að ná í morðingjann. Hræðilegt! — Já! — Afskaplegt. — Já, Henni datt í hug, hvort hann færi ekki að verða uppi- skroppa með lýsingarorð. — Óskaplegt! — Já, fyrir Fioru, sagði Jenny og fann um leið til með aumkunar. Aumingja Fiora með rika eiginmanninn og loð- kápurnar þrjár. Art var að taka upp snjó- hvítan vasaklút, en stanzaði og leit á hana hvössum — en varkárum — augum. Já, já, já. Það er meira en hræðilegt. En einhvern veginn finnst mér ég ekki hafa búizt við, að þú bær- ir neitt hlýjan hug til hennar. Þama kom það. Ofurlítill broddur sem virtist detta eins og óviljandi út úr Art. Hann sagði: — En auðvitað má nú margt á milli vera að vera litið um hana gefið eða óska henni feigðar. — Ég óskaði henni ekki feigð ar. — Mér þótti það dálítið skrít- ið, að Pétur skyldi biðja þig að koma hingað. — Það fannst mér líka, sagði Jenny. — Hvers vegna gerði hann það? Þetta var ekki í eina skiptið, sem Jenny var spurð þessa, en hún átti ekki nema eitt svar við því. — Pétur var órólegur og úr jafnvægi. Hann vildi, að við Cal kæmjum bæði. — Afsakaðu, Jenny en — eins og ég sagði, þá varð ég hissa á þessu. — Hvers vegna það? Fólk get ur verið góðir vinir, þó að það hafi skilið. — En mér hefði ekki dottið i hug — nú jæja, ekki kernur mér þetta við. Pétur hefði heldur átt að kalla á mig. En kannski hef- ur hann haldið, að ég væri í borginni yfir helgina. Cal hefði ekkert getað gert, sem ég hefði ekki getað gert. — Enginn hefði neitt getað gert. Og svo var Fiora ekki al- varlega slösuð. —- 1 fyrra skiptið ... sagði hann. En það hefði nú verið betra að taka þessari fyrri til- raun með meiri alvöru. Það er hægast að vera vitur eftir á, hugsaði Jenny, en hún jánkaði þessu bara. Dymar að bókaherberginu opnuðust og Blanche kom fram. Blásvart hárið markaði umgjörð um andlitið, og hvert hár var þar á sinum stað, hún var snyrti leg og glœsileg í gráu dragtínni sinni, og hún bar armbandið sitt og perliufesti; líktist einna helzt seiðkonu. Fallegur litarháttur hennar var eins og þurrkaður út, and- litið var hvitt eins og kerti, jafn vel grænu augun virtust hafa fölnað og varaliturinn stekk ein kennilega í .stúf við allt hitt. Hakan var eins og innfallin og það voru dálitlir pokar undir augunum. Hún sagði: — Nú þú ert þá hérna ennþá, Art? Art leit á Blanehe dálítið ólundarlega og Jenny skipti um fyrri skoðun sína á þeiim. Ein- hvem veginn hafði hún alltaf haldið, að þau Blanche væru í þýðingu Páls Skúlasonar. beztu vinir. Ekki svo að skiija, að Blanche færi ^nokkum tíma að kasta sér út I kæruleysislegt ástarævintýri með neinum! En nú skipti hún sem sagt um sikoð- un, sem hlaiut að hafa verið röng því að nú fannst henni eins og þau umgengjust hvort annað aí ýtrustu varkárni, og kuldaíega, Art sagði: — Já, auðvitað vildi ég taiia við Pétur! Blanche sneri sér að Jenny. — Þeir vilja tala við þig. 1 bókastofunni. Ég er hrædd um, að ég hafi hlaupið á mig. En ég gat bara ekki að mér gert. Enn blikaði rauða ljósið. — Hvað gerðirðu ? Blanche neri augun með hend inni. — Ég er ekki með sjálfri mér. Ég gat ekki hugsað. Þeir hríðuðust í mér. —Þessi Parenti kafteinn og ... Hann hélt áfram að spyrja mig um allt ... öll smá velvakandi Velvakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi tií föstudags kl. 14—15. • „Til hvers er lögreglan?“ Smári Karlsson, flugstjóri skrifar: ,,Til hvers er lögreglan? Spyr sá sem ekki veit. Konan mín segir mér eftir- farandi sögu: — „Sunnudaginn 10. þ.m. I vonda veðrinu, átti ég að mæta til hjúkrunarstarfa að Sólvangi við Hafnarfjörð. Þenn an morgun reyndi ég hvað ég NILFISK pegar um gæotn er að tefla.... ■=wmi imc SUÐURGÖTU 10, REYKJAVÍK, SÍMI 24420 gat til þess að fá leigubíl og sagði ég stöðinrii frá ástæðun- um, en það reyndist ómögulegt að fá bíl. Þá hringdi ég loks á Lögreglustöð Kópavogs. Sagði ég þeim hvernig ástatt væri fyrir mér og bað þá um akstur, en þeir sögðu blátt nei. Ég vissi varla hvað ég ætti til bragðs að taka, en taldi að ef ég gæti gengið út á lögreglustöð, þá mundu þeir varla neita mér. Þegar svo þangað kom sagði ég ástæður mínar aftur og bað um akstur en þeir sögðu nei. Fór ég þá niður á „Strætóbíl- skýli“. Beið þar lengi. Bað þá svo enn um liðveizlu, en fékk neitun. Loks kom svo Volks- wagen-bifreið á bensínstöðina og bauðst sá góði maður til að aka mér.“ • Skylda eða riddara- mennska Eftir að hafa hlustað á þessa sögu konu minnar hringdi ég til bæjarfógeta Kópavogs. Spurði ég hann, hvort lögregl- an tilheyrði hans starfssviði. Kvað hann svo vera. „Gott," sagði ég, „því ég ætla að segja þér ófagra sögu um einn lög- reglu-bumbara úr þínu starfs- liði.“ Ég hélt, að bæjarfógetinn tæki þessu þannig, að hann mundi formæla þessum manni og hans aðgerðum, en það fór á annan veg, sagði sem sagt, að þeir færu samkvæmt sínum fyrirmælum, þ. e. a, s. mættu ekki fara út fyrir bæjarmörkin. Ég spyr: „Er þetta hægt, Ólaf- ur?“ Maður les í blöðum um ridd- araskap iögreglumanna Reykja víkur þá er þeir keyra heim fólk af böllum og milli hverfa. Einnig les maður, að fólk og yfirvöid hjálpi hjúkrunarfólki yfir ófæra fjallvegi og öræfi þegar á þarf að halda. Sjálfur þekki ég til hvernig þetta hef- ur gengið fyrir sig hjá flugfólk- inu. Þegar veita þarf aðstoð, þá ekki spurt um bæjarmörk. Þess vegna sagði ég bæjar- fógeta, að ég skildi ekki svona ráðstafanir. Hann sagði þá, að hann og hans lið hefði öðrum hnöppum að hneppa en að aka konu minni eða öðrum, jafnvel tæknum, þótt þeir kynnu að leita á náðir þeirra um slíkt í neyðartilifellum, ef það væri akstuir „út fyrir bæjarmörkin". Það væri aðeins ein undan tekning, nefnilegá, þá er þyrfti að keyra menn til Reykjavíkur í tukthúsið. Einnig sagði bæjar fógetinn: „Hvað heldurðu að fólkið segði, ef eitthvað stórt mundi ske og menn og bíll væru utan bæjarmarkanna?" En ég segi þá líka: „Hvað mundi fólkið segja, ef eitthvað mundi ske vestast i Vesturbæn- um, þegar menn og bíll væru austast í Austurbænum, eða á leiðinni í tugthúsið í Reykja vik?“ Smári Karlsson. Velvakandi hafði samband við Sigurgeir Jónsson, bæjar- fógeta í Kópavogi og tjáði hon- um efni bréfs Smára. Hér kem- ur svar bæjarfógeta við bréf- inu: • Löggæzlumenn fari ekki út fyrir umdæmið „Ég þakka Velvakanda fyrir að gefa mér kost á að svara bréfi Smára Karlssonar. Það er rétt, að Smári Karlsson hafði simasamband við mig á heim- ili mínu á síðkvöldi einu ný- lega, og var lýsing hans og hneykslun þá svipuð og kemur fram í bréfinu. Svar mitt í sím- talinu var það, að þó að ég vissi ekki um málavexti, ve- fengdi ég á engan hátt frásögn hans. Þau viðbrögð iögreglunn- ar, sem hann lýsti, væru í sam ræmi við mín fyrirmæli, þ.e. að láta lögregluliðið eða tæki lögreglunnar aldrei fara út fyr- ir umdæmið, nema tryggt væri að nægur liðskostur og bifreiða kostur væri fyrir hendi í um- dæminu. Ég sagði honum jafn- framt frá því, að við hér þyrft- um að leita til Reykjavíkur á slysavarðstofu og fangelsi, og væru óhjákvæmilegar ferðir þangað, einu undantekningar frá þessari reglu. Þegar í Ijós kom, að Smári gat ekki skilið réttmæti þessarar reglu, o>g hótaði blaðafrásögn, sagði ég honum, að við það hefði ég ekk ert að athuga, en ég vildi síður eiga á hættu gagnrýni, ef slys eða eldsvoði kæmi upp i um- dæmi lögreglunnar í Kópavogi, en ekki hefði verið hægt að sinna því vegna fjarveru lög- regluliðs og bifreiða í öðrum umdæmum, jafnvel þótt verið væri að sinna svo mikilvægu verkefni sem þvi að aka eigin- konu hans til þýðingarmikilia starfa. Að lokum skal þess getið, að morgun þann, sem marggreind- uir atburður átti sér stað, var ófærð svo mikil, að lögreglan í Kópavogi varð að fá leigða hjá bílaleigu Loftleiða, bifreið, með drifi á öllum hjólum til þess að geta komizt um götur bæjarins, og leiðin milli Kópavogs og Hafnarfjarðar var meira og minna lokuð. Virðingarfyllst, Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti, Kópavogi." • Útvarpsefni tekið upp í gegnum síma G. H. skrifar: „Kæri Velvakandi! Kannski er það að bera í bakkafullan lækimn, að gagn- rýna útvarpið, en það er nú bara svo með „garminn hann Ketil", að hann er alþjóðareign og ætlazt er til að sem flestir hafi gagn og gaman af. Enda segi ég það satt, að marga ánægjustundina hefur útvarp- ið fært mét um dagana. Tilefni þessara skrifa er það, að stundum er útvarpað viðtöl- um, sem tekin eru upp í gegn- um sirna; meira að segja hefur stundum komið fyrh, að heil erindi hafa verið flutt þannig. Ég er viss um, að ég er ekki einn um að láta þetta fara í taugarnar á mér, en sl. fimmtu diag var útvarpað löngu viðtali, sem haft var við rnann austan úr sveitum, en það fór fyrir of- an garð og neðan hjá mér; það var svo óþægiLegt að hlusta á allt suðið og sóninn. Þarna hefði verði miklu heppilegra fyrir viðræðandann að segja bara í stuttu máli frá samtali sínu og mannsins. Ég get vel faMizt á, að nauð- synlegt geti verið að hafa þenn an hátt á, til dæmis eí um er að ræða stutt fréttaviðtöl við fólk í útlöndum, eliegar þá úti á landi, en að boðið skuli vera upp á silikan „hallærisiflutning" á útvarpsefni á timum háþró- aðrar tæknii, það fininst mér ekki nógu sniðugt. G. H.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.