Morgunblaðið - 24.12.1972, Blaðsíða 17
Frumsýnmg 1 Þjóöleikhúsmu um jólin
Ljosmyndir Mbl. Kr. Ben
S,\C1.V drottninganna Maríu
Stúart og Elísabetar I. er wgg-
laust hugstæð mörgum fslend-
ingum, sérstaklega vegna þess
að svo skammt er liðið siðan
sjónvarpið sýndi þn>ttina um
Elísabetu I. og þar kom María
Stúart að sjálfsögðu talsvert
við sögu. Þá birti Morgunblaðið
einnig ítarlegar greinar um eitt
og annað forvitnilegt úr tið
drottninganna.
Fólk gengur því ekki að því
gruflandi hvert viðfangsefnið
er i Þjóðleikhúsinu þegar jóla-
leikritið verður frumsýnt. Saga
Maríu Stúart er saga mikilla ör
laga.
Við fylgdumst með æfingu á
Maríu Stúart i Þjóðleikhúsinu
eitt kvöldið og það var auðséð
að ekki var langt í frumsýn-
ingu. Allt var að komast í fast-
mótað form og leikurinn rann
svo til snurðulaust í gegn.
Margir af beztu leikurum
Þjóðleikhússins námu leiklist á
sínum tíma í stórveldi leikhúss
lífsins, Bretlandi. Þessir leikar-
ar hafa verið burðarásinn i ís-
lenzku leiklistarlifi um langt
skeið. Það er því skemmtilegt
að sjá svo marga af þessum
leikurum leika í Maríu Stúart,
leikriti, sem krefst feikilegrar
nákvæmni.
Það eru snörp tilþrif I þessu
verki og spennandi augnablik í
þeirri valdabaráttu og þeim ör-
lagaleik sem leikritið fjallar
um.
Það er hið kunna skáld Fried
rich von Jþ-hiUer, sem hefur
gert þetta f ikrit, en þýðinguna
gerði Alexander Jóhannesson.
Þorsteinn frá Hamri fór yfir
verkið fyrir þessa uppfærslu
og gerði nokkrar breytingar.
Leikstjóri er Ulrich Erfurth
frá Þýzkalandi, en aðstoðarleik
stjóri er Geirlaug Þorvaldsdótt
ir. Leikmyndir gerði Gunnar
Bjarnason og búningateikning-
ar gerði Lárus Ingólfsson.
Leikstjórinn, Ulrich Erfurth,
er fæddur árið 1910. Faðir hans
var prófessor i guðfræði, en
móðirin þekktur píanókennari.
Starfaði fyrst við leikhús árið
1931. Árið 1934 var hann ráð-
inn leikstjóri við Ríkisleikhúsið
í Berlín, en þar var þá hinn
þekkti leikhúsmaður Gustaf
Grúndgens leikhússtjóri. Er-
furth starfaði síðan mikið með
honum. Var hermaður í síð-
ustu heimsstyrjöld, en eftir
stríð 1946 til 1949 er hann aðal-
leikstjórinn við Hamburger
Kammerspiele. Siðar varð hann
þar leikhússtjóri. Ennfremur
var hann leikstjóri i Frankfurt
am Main og viðar. Erfurth hef-
ur að undanförnu stjórnað leik
sýningum (Festival) í Hersfeld
og mun gera það næsta sumar.
Erfurth hefur einu sinni áð-
ur komið til Islands, en það var
árið 1937. Þá ferðaðist hann
ásamt konu sinni um landið.
Þau fóru m. a. til Akureyrar og
ferðuðust yfirleitt á hestum.
Titilhlutverkið, María Stúart,
er leikið af Kristbjörgu Kjeld,
en Bríet Héðinsdóttir fer með
annað aðalhlutverkið, Elísabet
I. Eftirtaldir leikarar fara með
stór hlutverk í leiknum: Gunn-
ar Eyjólfsson, leikur Róbert
Dudley, greifa af Leicester, Ari
ar Jónsson er Mortímer, Rúril
Haraldsson, leikur Wilhelm Ce
ciel, barón af Berleigh, Róber
Arnfinnsson, Georg Talbot
greifa af Shrewsbury, Guð
björg Þorbjarnardóttir, leikui
Hönnu Kennedy, fóstru Maríu
Valur Gíslason er Amías Paulet
riddari, gæzlumaður Maríu
Baldvin Halldórsson er Melvil
heimilisbryti Maríu. 1 minn
hlutverkum eru leikararnir
Ævar Kvai'an, Benedikt Árna
son, Gísli Alfreðsson, Brynj:
Benediktsdóttir, Sigmundur öri
Arngrímsson, Jón Gunnarssoi
og fleiri. — á.j.
t MORGUNÖLAÖIÐ, SUNNUDAGUR 34. DESF/MBER 1972
Maria Stúart í t*jódleikhúsinu:
Leikur örlaga o g spennu