Morgunblaðið - 24.12.1972, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.1972, Blaðsíða 18
MOWGtíWÖLAÖlÐ, StJMfWDAGtJ'R 24. DESEMBBR 1972 18 Sölumannadeild V.R. SÖLUMENN Vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verður að fresta aðal- fundi deildarinnar til 4. janúar n.k. Stjórn sölumannadeildar V.R. RA UM jöm FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVfKUR Rafmagnsveitunni er það kappsmál, að sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um jól- in sem endranær. Til þess að tryggja öruggt raf- magn á aðfangadag, jóla- og gamlársdag, vill Raf- magnsveitan benda notendum á eftirfarandi: IReynið að dreifa elduninni, þ. e. jafna henni yfir daginn eins og kostur er. Forðizt, ef unnt er, að nota mörg straumfrek tæki samtímis, t. d. rafmagnsofna, hraðsuðu- katla og brauðristar — einkanlega meðan á eldun stendur. Farið varlega með öll raftæki til að forðast bruna- og snertihættu. Illa meðfarnar lausa- taugar og jólaljósasamstæður eru hættuleg- ar. Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar af viðurkenndri gerð. Eigið ávallt til nægar birgðir af varatöppum („öryggjum"). Helztu stærðir eru: 10 amper, Ijós 20—25 amper, eldavél 35 amper, íbúð. Ef um viðtækari straumleysi er að ræða skul- taldar ráðstafanir: Takið straumfrek tæki úr sambandi. Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúð, (t. d. eldavél eða Ijós), getið þér sjálf skipt um vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör fyrir íbúðina í aðaltöflu hússins. Ef um síðtækari straumleysi er að ræða skul- uð þér hringja í gæzlumenn Rafmagnsveitu Reykjavíkur. b Bilanasími er 86230 I skrifstofutíma er sími 86222. 1RAFMAGNS 3 VEITA ^ REYKJAVÍKUR Vér flytjum yður beztu óskir um GLEÐILEG JÓL og FARSÆLD Á KOMANDI ÁRI, með þökk fyrir sam- starfið á hinu liðna. 80 ára annan jóladag: Jón Gestur Vigfússon JÓN Gestur Vigfússon fyrrum sparisjóðsgjaidkeri er 80 ára á annan dag jóla. Jón Gestur er einn þeirra manna, er sett hafa mikinn svip á bæjarlifið hér í Hafnarfirði, því segja má, að hann hafi starf- að að þjónustustörfum fyrir bæj arbúa allt sitt líf. Innan búðarborðsins var Jón Gestur hvort tveggja í senn traustur og húsbóndahollur, sem þó jafnframt bar hag viðskipta- vinarins fyrir brjósti. í Spari- sjóði Hafnarfjarðar var Jón Gest ur gjaldkeri um 18 ára skeið, unz hann varð að láta af störfum sök um aldurs. Rækti hann það starf með mikilli prýði. Jón Gestur hefur víðar komið við í sögu bæjarins okkar, en í atvinnulífinu. Hann var um margra ára skeið einn virkasti kraftur í leiklistarlífi bæjarins og söng i kariakómum Þröstum og kirkjukór Hafnarfjarðar- kirkju. Ræktunarstörf Jóns Gests munu þó hvað lengst verða í minnum höfð. Hinn fagri skógar- lundur hans í Sléttuhlið ber Jóni Gesti fagurt vitni. Þar hefur hann með ótrúlegri seiglu unnið á fokinu. Á sólbjörtum sumar- degi er unun að ganga um þenn- an fallega skógarlund, sem skart ar dásamlegu litaskrúðí. Slíkt starf verður seint fullþakkað. Jón Gestur hefur á margan hátt verið gæfumaður. Hann og kona hans, Sesselja Magnúsdóttir frá Skuld geta nú litið stóran fjöl- skylduhóp 12 bama þeirra er upp komust, sem allt er hið ágætasta fóik. Jón Gestur er em vel, þó að sjóndepran bagi hann, en bjart- sýni og trú hafa verið hans góðu eiginleikar öðru fremur og nýtur hann þeirra nú. Ég sendi Jóni Gesti og fjöl- skyidu hans beztu afmæiis- og jólakveðjur og veit að undir það tekur með mér fjöldi Haínfirð- inga. Matthias A. Mathiesen. farsælt komandi ár. Innilegt þakklæti til allra, sem styrkt hafa basar félagsins og aðra starfsemi þess á liðnu ári. Félag austfirzkra kvenna. aðstoðum Þeir bændur, sem ætla að kaupa nýja dráttarvél á næsta ári, geta fengið til þess lán frá Stofnlánadeild land- búnaðarins, ef þeír sækja um lánið nú fyrir næstu áramót. Við aðstoðum þá, sem þess óska, við frágang umsóknarinnar og afhendingu. Umsókninni þurfa að fylgja veðbókarvottorð, búrekstrarskýrsla og upplýsingar um hvaða tegund dráttarvélar ætlunin sé að kaupa. Hafið samband við okkur sem fyrst í síma eða bréfleiðis. MF Massey Ferguson -hin sigilda dráttarvél J^JVjÓUbtjCLhLÁ/ SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK*SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.