Morgunblaðið - 29.12.1972, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1972
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
T5? 21190 21188
14444^25555
CWmmi
BRALUG^HVfRSG0T9JÐ^^j
14444 ** 25555
f LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
- SÍMI 4260C
STAKSTEINAR
Sprútt
Eitt af fyrstu verkum
vinstri stjórnarinnar var að
taka að nýjn inn í kaupgjalds-
vísitölu áhrif vegna hækkun-
ar á áfengi og tóhaki. Var
þetta enda eitt af því, sem nú
verandi stjórnarsinnar fundu
viðreisnarstjórninni mest til
foráttu. Stuttu síðar var á-
fengi hækkað, og rökstuddi
fjármálaráðherra þá ákvörð-
un sína með því, að hækkun-
in ætti annars vegar að draga
úr neyzlu áfengis, en hins veg
ar að færa ríkissjóði auknar
tekjur. Þá þegar var á það
bent, að þær hækkanir á kaup
gjaldi i landinu, sem leiddu af
hækkun áfengis, væru þvílík-
ar, að frekar borgaði sig fyrir
atvinnureksturinn í landinu
að greiða beint í ríkissjóð það,
sern Halidór ætlaði að hagn-
ast á minnkandi drykkjuskap.
enda yrði vín þá í sama verði.
Nú skömrnu fyrir hátiðar
var áfengi hækkað á nýjan
leik. Báðherrann segir, að á-
stæðan sé sú, að afla þurfi
rikissjóði meira fjár. Ekki er
lengur minnzt á bindindissjón-
armiðin, enda sannast sagna
erfitt fyrir ríkisstjórn, sem
svo mjög treystir á tekjur af
áfengissölu, að vonast eftir
minnkandi áfengisneyzlu
skattborgaranna. Eða hvernig
færi um afkomu ríkissjóðs,
ef landsmenn hefðu nú tekið
upp á þvi til hátíðarbrigða að
smakka ekki deigan dropa
yfir hátíðarnar?
Magnús Jónsson, fyrrver-
a:i-Ji fjármálaráðherra, benti
á það í sjónvarpsþætti
skömmu fyrir jól, að meðan
áfengi og tóbak væri í vísi-
tölugrundvellinum, gæti það
ekki talizt ýkja skynsamleg
ráðstöfun að hækka fyrr-
greindar vörur i tekjuöflunar-
skyni fyrir ríkissjó'5. Atvinnu
vegirnir þyrftu að greiða að
minnsta kosti jafnháa upp-
hæð í hærri laun til starfs-
manna sinna og ríkissjóður
ætlaðl að hagnast á með hækk
nn verðsins, og ef hins vegar
halda ætti vísitölunni
óbreyttri, færi allur hagnað-
urinn af hækkun áfengis og
tóbaks til þess eins að greiða
niður vísitöluhækkunina.
Fjármálaráðherra, sem var
til andsvara Magnúsi Jónssyni
sagði þá, að nú væri í ráði að
fara þess á leit við verkalýðs-
hreyfinguna, að hún féllist á
að nema brott úr vísitölu-
grundvellinum áhrif áfengis
og tóbakshækkana ráðherr-
ans. Enda sagði ráðherrann,
að það væri fráleitt að láta
vörur eins og áfengi og tóbak
hafa áhrif til breytinga á
kaupgjald í landinu.
Nú geta menn út af fyrir
sig fallizt á þessa skoðun ráð-
herrans. En þá vaknar aftur
spurningin: Hvers vegna var
hann þá að gefa út sérstök
bráðabirgðalög til þess að
koma áfengi og tóbakshækk-
unum aftur í vísitölugrundvöll
inn.
Bormann
Ef marka má blaðafréttir,
virðist enginn núlifandi mað-
ur hafa undirbúið flótta sinn
betur en Martin Bormann.
Einn mesti fjársjóður seinni
tíma hefur frá stríðslokum
verið í vörzlu þessa harðsvír-
aða manns. Sjóðinn hefur
hann notað til þess að tryggja
sér öryggi í Suður-Ameríku
og virðist það hafa tekizt
furðu vel hingað til. En Mar-
tin Bormann hefur bersýni-
lega ekki þótt þetta nóg til
þess að tryggja líf sitt og
limi. Ef marka má síðustu
fregnir hefur hann verið svo
forsjáll að skilja höfuðkúpu
sína eftir í Þýzkalandi til þess
eins að villa um fyrir fjand-
mönnum sinum!
spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og bið.jið um I.esendaþjónustu Morg tinblaðsins.
BILALEIGAN
jX 11 MíjlÍ.
8-23-47
w sendum
BlLALBTGAH VAG
leigi
HÓPFEBBH
Til leigu í lengri og skemmrí
ferði. 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
sími 32716.
IfflDIR JÓLASTJÓRN
Árni Kristjánsson, Hjálm-
holti 7 spv r:
a) Hver samdi þáttinn, sem
Örnólfur Árnason og Páll
Heiðar Jónsson fluttu í út-
varprnu á annan dag jóla?
b) Gerði útvarpsráð enga
athugasemd við flutning þessa
þáttar — þótti hann ef til vill
i anda jólanna?
c) Ef útvarpsráð samþykkti
þennan þátt, án athugasemda,
má þá telja hann mælikvarða
á skopskyn þeirra, sem eiga
þar sæti?
H.jörtur Pálsson dagskrár-
stjóri svarar:
a) Höfundar þáttarins voru
Örnólfur Ámasoti og Páll
Heiðar Jónsson.
b) Útvarpsráð samþykkti
tillögu um, að þeir félagar
tækju saman skemmtiþátt og
stjórnuðu honum á annan í
jólum, en útvarpsráðsmenn
höfðu ekki hlustað á þáttinn
fyrirfram og ráðið hefur ekki
komið saman til fundar síð-
an hann var fluttur.
c) Síðasta lið spurningar-
innar get ég að sjálfsögðu
ekki svarað fyrir hönd út-
vrrpsráðs.
KEEEAVÍKUB-
SJÓNVABPIÐ
Hans Konrad Kristjánsson
Borgarholtsbrant 1, Kópavogi:
Hvers vegna birtir Morg-
unblaðið ekki dagskrá Kefla-
vikursjónvarpsins eins og is-
lenzka sjónvarpsins?
Eyjólfur Konráð Jónsson,
ritstjóri svarar:
Sjónvarpið á Keflavíkur-
flugvelli er rekið fyrir vam-
arliðið þar og sér Morgun-
blaðið enga ástæðu til að
birta dagskrá þess.
FJÖLSKYLDUBÆTUR OG
NAFNSKÍBTEINI
Margrét Sæmundsdóttir,
Reynimel 74 spyr:
Er það rétt, að giftar kon-
ur þurfi frá að hverfa, þeg-
ar þær sækja fjölskyldubæt-
ur, ef þær hafa ekki nafnnúm
er eiginmanna sinna? Ef svo
er, hvers vegna nægir ekki
nafnnúmer eiginkvennanna?
Ilaukur Haraldsson, fulltrúi
í greiðsludeild Trygginga-
stofnunar rikisins svarar:
Giftar konur þurfa ekki frá
að hverfa, þó þær hafi ekki
nafnnúmer mannsins. Þeim
er þá vísað á lífeyrisdeild
stofnunarinnar þar sem þær
sýna skirteini sitt og eftir því
er fundið nafnnúmer manns-
ins. Eiginmenn eru skrifaðir
fyrir fjölskyldubótunum og
spjöldunum raðað eftir nafn-
númerum þeirra. Annan hvorn
aðilann verður að skrifa fyr-
ir þessum bótum og hefur
alltaf tíðkazt að eigLnmenn-
irnir væru skrifaðir fyrir
þeim. Nafnskírteina er kraf-
izt til öryggis svo að hver sem
er geti ékki komið og farið
fram á að fá bætur útgreidd-
ar.
HÖRÐUfl ÓLAFSSON
hœstBrétta riögmaður
skjalaþýðandi — ensku
Austurstræti 14
sfmar 10332 og 35673
ÓLAFUR ÞORLAKSSON
■A ii If I u tn i ngss k rif stof a
Laugavegi 17 — simi 11230.
GULLSMIÐUR
Jöhannes Leifsson
Laugavegi 30
TRÚLOFUNARHRINGAR
viðsmíðum þérveljið
Látið ekki sambandið við
viðskiptavinina rofna
— Auglýsið —
Kodak I Kodak í Kodak I Kodak « Kodak
Kodak I Kodak ■ Kodak ■ Kodak ■ Kodak
J. S. Bach
JÖLAORATORÍA
Flytjendur: Pólýfónkórinn, Kammerhljómsveit,
flytjendur samtals 140.
Einsöngvarar: Neil Jenkins, tenór,
Sandra Wilkes, sópran,
Ruth Magnússon, alto,
Halldór Vilhelmsson,
bassi.
Stjórnandi: Ingólfur Guöbrandsson.
Flutningur oratoríunnar fer fram í Háskólabíói föstu-
daginn 29. desember kl. 21.00 og laugardaginn
30. desember kt. 14.00.
Uppselt föstudaginn 29. des. — Vinsamlegast vitjið
ósóttra pantana 28. des. fyrir kl. 17.00.
Aðgöngumiðar að síðari tónleikunum 30. des. kl.
14.00 seldir hjá Ferðaskriðstofunni ÚTSÝN og Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
PÓLÝFÓNKÓRINN.