Morgunblaðið - 29.12.1972, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DiESEMBER 1972
HOWARD HUGHES
FLIJÐI MANAGUA
Fer nú huldu höfði 1 Bretlandi
London, 27. des. — AP.
MIIX.IÖN AMÆKIN GLRINN
heimskunni, Howard Hughes,
kom til London í nótt, að því er
bandariska sendiráðið þar i borg
hefur staðfest, en honum tókst
að komast burt af Gatwick-flug-
velli, án þess að fréttamenn
feng'ju fylgt honum eftir. Veit
nú enginn hvar haiui dvelst í
Bretlandi. Hughes mun hafa flú-
ið aðseturstað sinn í Managua,
höfuðborg Nicaragua, eftir jarð-
skjálftann, sem olli skemmdum
á Intercontinental gistihúsinu,
þar sem hann hafði lagt undir
sig tvær efstu hæðirnar.
Hughes kom til London án
þess að hafa vegabréfsáritun.
Hafði bandaríska sendiráðið feng
ið um það fyrirskipanir frá
Washington, að útvega honum
öll nauðsynleg skilriki og af-
henda honum, þegar er hann
kæmi á Gatwick-flugvöll.
Hughes kom í einkaþotu sinni
laust eftir miðnætti og beið
hans á flugvellinum bílalest, er
hann og fylgdarlið hans fóru þeg
ár upp i. Misstu fréttamenn strax
sjónar af henni, er hún hvarf í
náttmyrkrið. Fyrst var talið, að
Hughes mundi gista hjá banda-
ríska sendiherranum Walter Ann
anberg eða oliujöfrinum Paul
Getty, sem á stórhýsi rétt hjá
London en hann reyndist á hvor-
ugum staðnum, er fréttamenn
spurðust þar fyrir. Þeir héldu
einnig uppi fyrirspurnum á öll-
um helztu gistihúsum i London
og öðrum hugsanlegum stöðum,
en hvergi var þennan fræga
mann að finna.
Hughes hafði um hríð dvalizt I
Intercontinental gistihúsinu I
Managua en haft er fyrir satt, að
hann hafi farið þaðan strax eftir
jarðskjálftann aðfararnótt Þor-
láksmessu og fyrst haldið til
Bandaríkjanna, en síðan áfram
um Nýfundnaland og Irland.
Hughes er 66 ára að aldri og
hefux um langt árabil farið huldu
höfði. Ekki hefur verið birt af
honum ljósmynd frá þvi árið
1956 og hafa jafnan siðan verið
uppi getgátur um það, hvort
hann sé lífs eða liðinn.
Nefnd
til útfærslu
landhelginnar
K aupmantnahöfai,
23. desejnber NTB.
NEFND hefur vcrið stofnuð í
Kaupmannahöfn, sem hefur
það að markmiði að vinna að
því, að Gænland, Færeyjar og
Noregnr fylgi fordæmi ís-
lands og færi út landhelgi
sina í 50 mílur.
Að þessari nefnd standa
ýms græMletnzk, færeysk og
ísQenzk félög, sem aðsetur
hafa í Kjaiuprnaamahöfn. Nefnd
in hefur þar að auki teng.sl
við stiarfshópa í Óstó, Þórs-
höfn, Godthaab og Reykjavík.
Unditr nafiniiniu „Nefndin til
varðveizlu fisksitofin.annia á
Norður-Atlan'tshafi“, vill
nefrudin vinnia að stærri land-
helgi.
Flugeldar
Úrvalið aldrei fjölbreyttara.
FALLHLÍFARAKETTUR, rauðar, grænar,
Tungiflaugar, eldflaugar,
sólir, stjörnugos,
Bengal-eldspýtur,
rauðar, grænar,
jokerblys,
fallhlífarblys,
stjörnublys,
tvær stærðir.
Opið til kl. 10 á laugardag og frá kl. 9—2 gamlársdag.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt.
VERZLUNIN ÁLFHÓLL,
Álfhólsvegi 9 — sími 41585.
FLUGELDASALA
ÞRDTTAR
ÍBÚAR VOGA-, HEIMA-, SUNDA- OG
LANGHOLTSHVERFA
Við minnum yður á flugeldasölu Þróttar
í Vogaborg vð Holtaveg.
Opið frá kl. 1-10 til gamlársdas en frá
9-5 á gamlársdag.
Mikið úrval flugelda, blys, stjörnuljós,
bengaleldspýtur, sólir, gos, ýlur o. f.
Fjölskyldupokar á 500,00 og 1000,00.
Sendir heim ef óskað er, SÍMI 82817.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
ÞRÓTTUR.
BtZT ú auglýsa í Morgunblaðinu
Hjálparsveitir skáta um land all.t,
standa nú fyrir flugeldamörkuðum.
Hvergi er meira úrval!
FLUGELDAR, BLYS, STJÖRNULJÖS, GOS,
SÖLIRO. M. FL.
UtsölustaÓir:
Flugeldamarkaðir eru undirstaða
reksturs Hjálparsveitanna.
Við hvetjum því fólktil að
verzla eingöngu við okkur.
REYKJAVÍK
Skátabúðin, Snorrabraut
Skátabúðin, Bankastræti
Volvosalurinn, Suðurlandsbraut
Sýningarsalurinn við Hlemm
Við Breiðholtskjör.
KÓPAVOGUR
Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7
Bílasala Kópavogs, Nýbýlavegi 4
GARÐAHREPPUR
Goðatún 2
í Kaupfélaginu Garðaflöt
SUÐURNES
Aðalútsalan
Skátaheimilið, Njarðvík
einnig víðs vegar á Suðurnesjum
ÍSAFJÖRÐUR
Skátaheimilið
VESTMANNAEYJAR .
Skólavegur 13
Skólavegur 1
Brynjólfsbúð
AKUREYRI
Hafnarstræti 105
BLÖNDUOS
Gengið í hús