Morgunblaðið - 16.01.1973, Blaðsíða 10
10 í
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1973
Boðið í grín og söng
í Valhöll
Islenzka leikritið Loki fer í
l æfingu hjá Leikfélagi Reykja
víkur nú um helgina. Leik-
stjóri verður Stefán Baldurs-
son.
Allt unga fólkið í Iðnó
verður í hlutverkum og við
leyfum okkur þar með að
álykfca að allir leikarar Leik-
féiagsins verði í þeim hópi,
þvi að við vitum ekki til þess
að nokkur leikari féiagsins
sé dottinn út úr ungra manna
tölu.
Loki er ekki háal varlegt
leikrit eins og margur myndi
ætla. Leikritið er bráðsmell-
ið, grín og songvar í háveg-
um, enda fjalJar það um ævin
týri í>órs og Loka í Valhöll
og kemur þar að sjálfsögðu
margt til.
Loki veiður frumsýndur í
lok febrúar.
Gengur vel að
manna leikritin
á Húsavík
Leikfélag Húsavikur er nú
að byrja æfingar á Skugga-
Sveini. „Það er svona til bess
að uppfylla kröfur fóiksins
um Skugga-Svein á minnst
20 ára fresti,“ sagðí Ingi-
mundur Jónsson einn af for-
kólfum leiklistarMfsins á
Húsavik þegar við slógum á
þráðinn til hans í gær.
Sýningar munu hefjast
seinni hluta febrúar, en leik-
stjóri verður Sigurður Hall
marsson heimamaður á Húsa-
vík.
Húsvíkingar hafa nú haft
þrjá tékkneska tónlistar-
menn til þess að stjóraa tón-
lifi staðarins og er sá þriðji
á Húsrvík nú. Sá síðasti, Lad
isiav Vojta, samdi forleik
Gísli HaUdórsson og Guðniundur Pálsson með öskastein-
inn góða i einni af gömlu revi untun.
Ljósmyndir Mbl. lír. Ben.
að Skugga-Sveini upp úr lög
unum i verkinu og er forleik-
urinn saminn fyrir 4 blástu rs
hljóðfæri og pianó.
Ingimundur kvað nóg af
leikurum á Húsavik og geng-
ur ávallt vel að manna stykk
in. Leiktjöldin i Skugga-
Svein fá Húsvikingiar léð frá
Sauðárkróki.
í áttina að
atvinnuleikhúsi
I>eikfélag Akureyrar er nú
að æfa Kardimommubæinn,
en hann verður frumsýndiur
um mánaðomótm. í gær
hófst leiklistamámskeið hjá
féliaginu og er það annað nám
skeiðið á leikárinu að sögn
Magnúsar Jónsisonar leikhús-
stjóra. Á námskeiðiniu í haust
voru 15 þátttakendur og lík-
lega verða ekki færri á
þessu. I haust sýndi leikfélag
Akureyrar leikritið Stundum
bannað og stundum ekki.
Gekk það vel, en leikritið
sýndi LA m.a. í Reykjavík við
göðar undirtektir.
Næsta verkefni leikfélags-
ins er óráðið þar til næstu
daga, en þar næsta verkefnið
verður skrifað fyrir leikfélag
ið í vetur og sett upp i sam-
vinnu við leikarana. Enn-
þá er það á huldu hver höf-
undurinn verður, en von er á
honum til Reykjavíkur.
Magnús kvað nóg af leik-
kröftum á Akureyri og hann
kvað það hafa lyft undir teik
starfsemina að ríkisvaldið
veitti á fjárlögum eina og
hálfa milljón kr. í styrk tíl
leikhússins. „Með því getum
við stigið stærri skref í áttima
að atvinnuleikhúsi hér
nyrðra,“ sagði leikhússtjór-
inn.
Kynna verk Hagalíns
á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks er
um þessar mundir að undir-
búa næsta verkefni, en eftir
hélgina verður ákveðið hviað
verður fyrir valinu. Leikfé-
lagið er einnig að undirbúa
bókmenntákynningu á verk-
um Guðmundar G. Hagalíns.
Er skáldið væntanlegt til
Saiuðárkráks síðar í vetur á
vegum Safniahússins tíl þess
að flytja erindi um bökmenint
ir og verður kynningin á
skáldinu um þær mundir á
vegum Leikfél'agsins.
Litli leikklúbburinn
á (safirði
Litli leikklúbburinn á Isa-
firði er um þessar miundir að
æfa Sandkassan"i. en leik-
stjóri er Brymdís Sebram.
Sýningar hefjcist í jamúartok
að sögn Trausta Hermanns-
sonar formanns Litla leik-
klúbbsins. Leikklúbburinn
setti í haust upp leikriitóð
Húrra krakki og gekk það
vel. Ætlunin er að setja
Gullna hliðið upp í vor, en
leikritið verður tekið tíl æf-
inga í april.
Ekki er allt of mikið af
leikurum á boðstólum fyrir
starfsemina, en það gengur
með þeim mun meiri áhuga
þeirtra, sem í brasinu standa.
Litli leikklúbburinn reynir
ávallt að fara með verk sin
um Vestfirðina, en oft grípur
veðrið inn í og eru áætianir
þá fljótar að breytast. Að-
staða til sýninga á tsafirði er
ekki góð, en voniir standa ti'l
að ekki Líði á lörigu þar til
hægt verður að sýna á hinu
glæsilega sviði í nýja félags-
heimilinu i Hnífsdal.
Pétur og Rúna
á svið í Iðnó
Leikriifcið Pétur og Rúna
eftir Birgi Sigurðsson verður
tekið til æfinga í Iðnó innan
skamms. Leikstjóri verður
Eyvindur Erlendsson. Birgir
hlaut verðlaun fyrir þetta
leikrit í verðlaunasamkeppni
Leikfélagsins í tilefni 75 ára
afmælis félagsins. Steinþör
Sigurðsson gerir leikmynd-
ina, en 9 hlutverk eru í verk
inu. Verður það sefct á svið í
marz.
Atriði úr 9 revíum
Á morgun, mánudug, hefj-
asit sýningar á Gullkormun
úr gömlum revíum, en ieikar-
ar og starfsfólk I.eikfélags
Reykjavikur stainda að þess
um sýningum. Verða þser í
Austurbæjarbíói á laugar-
dagskvöldum að öliu jöfnu.
Mönnum er bent á að betra
er að hafa vel undirbúna
þind fyrir þá leikhúsför.
Sýnd verða atriöi úr 9 göml-
um revíum, en efnið er að
sjálfsögðu jafn ferskt og glæ
ný ýsa.
Allur ágóði ren.nur til bygg
ingar borgarleikhúss í nýja
miðbænuim.
- á.j.
Borgar Garðarsson leikstýrir
Gullkornum úr gönilum reví-
um.
Landhelgissamningum Kan-
ada við önnur ríki er nú lokið
Samningurinn við Spán undirritaður 18. des.
í FRÉTTATILKYNNINGU
frá utanríkisráðuneyti Kan-
ada er skýrt frá því að hinn
18. desember síðastliðinn hafi
verið undirritaður samning-
ur milli Kanada og Spánar
um að spænsk fiskiskip muni
í áföngum hætta veiðum á
hafsvæðum sem iiggja að
austurströnd Kanada. Tilkynn
ingin fer hér á eftir í laus-
legri þýðingu:
Kanadiska þingið breytti
árið 1970, landhelgislögunum
til að færa landhelgi Kanada
frá 3 út í 12'mílur, og friða
algerlega til eigin afnota viss
svæði á hafinu að ströndum
landsins. Frá og með 10. marz
1971 var vissum veiðisvæðum
lokað fyrir erlend fiskiskip,
þar á meðal St. Lawrence
flóa.
Vegna þessara lagabreyt-
inga hóf stjórn Kanada samn-
ingaviðræður við þær þjóðir
hverra fiskimenn hafa hefð
bundið stundað veiðar á þess-
um svæðum. Kanada hefur ný
lega lokið samningum við
Bretland, Danmörku, Noreg
og Portúgal. Það hefur einnig
undirritað nýjan samning við
Frakka, sem hafði veiðirétt-
indi samkvæmt eldra sam-
komulagi.
Með samningum við Spán
er þessum samningaviðræð-
um við aðrar þjóðir lokið. 1
öllum samnirxgunum hefur
þeim fiskibátum sem stund-
að hafa veiðar á umræddum
svæðum verið gefinn nægur
timi til að snúa sér að nýj-
um fiskimiðum. Við Bandarík-
in er einnig samningúr en
allt annars eðlis. Samkvæmt
honum hafa löndin gagn-
kvæman rétt til veiða innan
landhelgi hvors annars.
1 samningum við Spán, sem
nú hefur tekið gildi, sam-
þykkir Spánn að hætta öllum
veiðum í St. Lawrence flóa
frá 31. júlí 1976 og í ytri níu
mílum kanadisku landhelginn-
ar frá 30. nóvember 1978. f
samningnum eru einnig
ákvæði um hvernig skuli fara
með deilur sem kynnu að
rísa milli spánskra og kana-
diskra fiskimanna á aðlögun-
artímabilinu.
Að lokum skal þess get-
ið að samningurinn var gerð
ur í vinsemd og með miklum
samningsvilja og við gerð
hans var tekið tillit til
áhyggjuefna beggja aðila,
sem lýst var meðan viðræð-
urnar stóðu yfir. Þetta er enn
eitt dæmi um tilraunir Kan-
ada til að vernda fiskimið sín
og á sama tíma er tekið
fullt tillit til efnahagslegra
örðugleika sem erlendir fiski-
menn gætu orðið fyrir ef
hefðbundnar veiðar þeirra
væru stöðvaðar of snemma
og oí snögglega.
*
2 Skotar og Islend-
ingur í varðhaldi
- grunaðir um innbrotsþjófnaði
TVEIR Skotar, 20 og 19 ára, og
18 ára íslenzkur piltur voru í
gær úrskurðaðir i allt að 20 daga
gæzluvarðhaid, á meðan rann-
sókn fer fram á þætti þeirra í
tnnbroti i verzlun í Kópavogi í
fyrrinótt. Eru þeir einnig grun-
aðir um fleiri innbrot að undan-
förnu.
íslenzkur piltur kom tíl lög-
reglunnar í fyrrinótt og sagði,
að piltarnir þrír hefðu ásamt
þriðja Skotanum, komið til sín
þá um nóttinia og beðið sig að
geyma þýfi. Neitaði harrn og
greip íslenzki pilturuin þá riffil
undian rúmi hans, hlóð og miðaði
á piltinn og ógnaði honum. Er
piltarnir vora farnir, fór piltur-
iinn til lögreglunnar. Játaði hann
um leið að hafa ásamt íslenzka
piltinum, sem heimsóttí hann þá
um nóttinia, brotízt inn í verzlun
við Skúlagötu í haust og stolið
þar fimm rifflum, og vísaði hann
á þá heima hjá sér. Yfirheyrslur
stóðu yfir Skotunum og íslend-
ingunum í gær, en Skotamir
harðneituðu öllu og sá íslenzki
var tregur mjög.
Spánarflugið:
Óbreytt út janúar
Viðræður um framhald
SPÆNSK flugmálayfirvöld
hafa nú fallizt á óbreytt lend-
ingarréttindi Flugfélags Islands
á Spáni þennan mánuð, að því
er Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóri sagðl þegar Mbl.
hafði samband við hann í gær.
Síðar í þessum mánuði mun
svo koma sendinefnd frá spænsk
um flugmálayfirvöldum til við-
ræðna við íslenzk um framhald
Spánarflugsins.