Morgunblaðið - 11.02.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.02.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1973 23 Minning; Eva Sigurðardóttir frá Vestmannaeyjum Fædd 19. marz 1915. Dáin 2. febrúar 1973. Það var í æskunnar árdegissól, er auðnan lét velta hin kviku hjól. IHér varð okkiar vordags kynning. Þú namst hennar orð við unnar- hy), sem aleinn i heim nú ég man otg skil. Gnæfandi hamar, hér finn ég til. 6, horfinna vordaga minning. E. B. Eva min. Árið 1940 lentum við á sambýli á Vifilsstöðum, oig hvað við voruim ungar með 'trú á lífið og allt það góða, hvað við töluðum lítið um framtíðina, nama í gleði, hvað við ætlUðum að gera margt þegar við kæmum út í lífið á ný. Nú skulum við rifja upp allt það góða. Manstu hvað við nutum þess að heyra Sólon Islandus lesinn fyrir okk- iur, sjá hraunið gróa, margar ferð ir í hraunið, drukkið kaffi hjá Hauki og margt —margt. Hvað mér var kait á fótunum og alltaf gazt þú hlýjað mér, eða þegar þú varst að kenna mér að prjóna og ég missti altltaf fram af prjón unutm. Ég fór 1946, en þú varðst eftir. Þú kvartaðir aldrei. Ég rifja ekki upp þina sjúkrasögu, það er ekki atí þinu skapi. Ég man hvað aílt lék í höndum þér, og ég man llka hvað þú varst vel klædd, þótt efni væru ekki alltaf mikil, Kannski varst þú stundum hrjúf, em var það ekki til að dyl'ja þá harma að ná aldrei fuilri heilsu? Ég man þina sérstöku hæfi- leika að finna það, sem var sér- kenni'legt fyrir hvern einstakling. Þú varst svo ung þegar þú veikt ist, en hversu vel hefðir þú ekki motið þin nú á þessum tímum, ef þú hefðir verið ung og hraust. Og hvað þú varst glöð, þeigar þú fórst að vinna hjá S.I.B.S., þar var þitt starfssvið, hver átti að vita það betur en þú, hvers virði sá ifélagsskapur va-r. Þú varst búin að búa þér ynd- isllegt heimili, þú nauzt alls sem íagurt var. Ég veit lika að S.l.B. S. mat þina velvirkni. Eva mín, þakka þér fyrir síð- ustu stundirnar, sem við áttum saman, föstudaginn miili jóla og nýárs. Við rifjuðum margt upp frá Vífilsstöðum, allt gott, enga hryggð, bara gleði. Þú stóðst á meðan stætt var, eins og Vest- mannaeyingi sæmir. Við töiuð- um sjaldan um trúmál, en ég veit og vona að þegar ég kem þá tak- ir þú á mótl mér, og segir: Loksins ertu komin. Innileg samúð til þinna. Vinkona i fjarliegð. Foreldrar Evu voru hin víð- kunnu sæmdarhjón, Sigríður Jónsdóttir og Sigurður Sigurðs- son, trésmíðameistari og útvegs- bóndi að Lögbergi í Vestmanna- eyjum. Bjart var yfir æskudög- um þessarar fríðu og glaðlyndu meyjar. Eftirlætisbarn foreldra sinna og arinarra varidamianna, á glaðværu fyrirmyndarheimili. Þar bar ekki skugga á. Þar blasti við framtíðin með sin fögru fyrirheit. En skyndilega IESI0 IncLEcn morgfnldar morkoð yðor dró dimmt ský fyrir sólu, og þetta ský vék ekki frá og sól- in hætti að skína á lífsbraut hennar. Tvítugri að aldri náði berklaveikin tökum á henni og sleppti ekki. Hún varð því að slást í för með hinum fjölmenna hópi útffllýtjenda úr Vestmanna- eyjum, sem á þeim árum streýmdu til Vífilsstaðahælis. Svo virtist sem væri það illvig- ur stofn berklasýkla, sem í þann tima herjaði í Vestmannaeyjum, svo mikið var mannfallið af völd um þeirra og svo margir hlutu ævilöng örkuml. I þeim flokki var Eva. Hún átti ekki aftur- kvæmt til fagurra bernsku- stöðva, nema sem skyndigestur. Æskublóminn fölnaði, þrekið þvarr og draumarnir rætt- ust ekki. Þess í stað upphófst fádæma löng og ströng barátta fyrir lífinu, þar sem Eva lék hlutverk hetjunnar svo vel og sannfærandi að áhorfendur munu aldrei gleymia. Þó að sigur fengist loks- á berklaveikinni, með hjálp undralyfja, þá gekk hún af iþeim hólmi s vo hart leik- in, að verjur hennar voru ail- ar brostnar, nema lífsþráin. Við slík lífsskilyrði er fæstum unnt að skila eftirminnilegu lifsstarfi. Þó gerði hún allt sem hún mátti til þess. Þegar af henni bráði vann hún í skrifstofu Reykja- lundar, þótt hörfa yrði hún á ný til sjúkrahússins. Síðustu 7—8 árin vann hún að símavörzlu í skrifstofu S.I.B.S. x Reykjavík, meira af vilja en mætti. Þó vann hún starf sitt við bezta orðstír. Var til þess tekið hve góða síma vörzlu sú skrifstofa veitti. Vissu þó fáir að röddin sem svaraði í þann sima, svo kurteis og glað leg, var rödd deyjandi konu. Mikið þrek þarf til'að varðveita reisn í fasi, ljúft viðmót og glæsi brag, mitt í þrotiausum hörm- ungum. Það tókst henni þó svo vel, að hún varð aldrei einmana, sem oft vill verða um lífstíðar- sjúklinga, þá sem bugast láta andlega. Við samstarfsmenn hennar, sem kvöddum hana að kvöldi, ^íannst það ekki ólíklegt að það væri hinzta kveðja, og svo var það um margra ára skeið. Með ofurmannlegri seiglu og vilja, heilsaði hún þó aftur að morgni og skilaði sínu dagsverki óað- finnanlega, brosandi, virðu- leg og jafnframt hlý í viðmóti. Svo kom að þvi að hún kom ekki að morgni. Um nótt- ina hafði hún verið flutt á sjúkrahúsið til að deyja. Síðasta virkið var fallið. Þetta er ís- lenzk hetjusaga, því miður illa sögð. S.l.B.S. þakkar Evu vel unn- in störf og löng og ljúf kynni. Færum aðstandendum henn- ar hugheilar samúðarkveðjur. Þórður Benediktsson. Timburverzlun Árna Jónssonar & Co. hf. Plöturnarfast hjá okkur Venjulega er fyrirliggjandi: KKOSSVroUK: STÆRÐIR ÞYKKTIR Furukrossviður ......................... 122X220 cm. 4—5—6—8—10—12 mm Beykikrossviður......................... 122x220 cm, 3—4—5—6 mm VATNSÞOLINN KROSSVTOUR: WBP „water boil proof“ til alhliða nota — margar 150X150 cm. 3—4—6,5—9 mm stærðir. Viðurkenndur af skipaskoðun ríkisins til 120x240 cm. 4—6,5—9—12—15 mm nota í báta og skip. 150X300 cm. 9—12—15—18 mm Do. m/phenol filmu — brúnn.................. 120X260 cm. 4—6,5—9—12—15—18 mm Ðo. m/phenol filmu — brúnn ............ 150X300 cm. 12—15—18—24 mm Do. ENSO—NOVA: Hvít plasthúð beggja megin og/eða brún phenol- faced öðru megin........................ 120X240 cm. 6,5—9—12 mm GÓLFKKOSSVroUR: Plægður................................. 50X150 cm. 12—15 mm OREGONPINE KROSSVTOUR Vatnsþolinn............................. 122X244 cm. y4"—Vz"—7*' Do. í utanhúsþiljur . ................. 122X244/274/305 cm. %" Do. eldvarinn krossviður................ 122X244 cm. 5/16" Do. sandblásinn í inniþiljur............ 122X274 cm. 5/16" GABOON—PLÖTUR—HÚSGAGNAPLÖTUR: Finnskar — birki....................... 150X300 cm. 16—18—22 mm Tékkneskar — beyki — limba o. fl.......... 122X220/244 cm. 16—19—22—25 mm SPÓNLAGÐAR SPÓNAPLÖTUR: „OKAL“......... 122X220 cm. 14—18—20 mm SPÓNAPLÖTUR — NORSKAR „ORKLA“ Með fölsuðum köntiun.................... 122x250 cm. 10—12 mm Með sléttum köntum................... 122/124x250 cm. 8—10—12—16—19—22—25 xwm VATNSÞOLNAR SPÓNAPL. NORSKAR „ELITE“ 124x250 cm. 12—16—18 mm Do. gólfspónaplötur.................... 62X242 cm. 22 mm Plasthúðaðar spónaplötur hvítar ........ 122x244 cm. 12—16—19 mm Do. teak-viðarlíking.................... 30x250 cm. 12 mm SPÓNAPLÖTUR TÉKKNESKAR „LIGNA“ ......... 170X270 cm. 12—16—18 mm HAMPPLÖTUR TÉKKNESKAR „LIGNA“........... 122x244 cm. 9—12—16—18—20—22—26 mm PLASTHÚÐAÐAR HVÍTAR HÖRPL. „LIGNA“ . .. 120X240 cm. 12—16—18 mm HARÐTEX PLÖTUR ......................... 122x210/274 cm. 2 mm HARÐTEX PLÖTUR.......................... 122X274 cm. %" HARÐTEX PLÖTUR vatnSþolið (phenol)...... 122X274 cm. %" HARÐTEX PLÖTUR olíusoðið Masonite....... 122X274 cm. %" TRÉTEX PLÖTUR........................... 122X244 cm. %" Timburverzlun Árna Jónssonar & Co. hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.