Morgunblaðið - 11.04.1973, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRlL 1973
- Akurnesingar
framhald af bls. 16.
menn þekkja þaS, að gangi
þorskur á miðin hverfur ýsan.
Þannig var það árið 1970, sem
var eitthvert allra mesta aflaár
í Faxaflóa. Þá kom það i dag-
blöðum Reykjavíkur, að Akra-
nesbátar væru með 6,8 tonn að
meðaltali í róðri, þá fengu tog-
bátar af Breiðafirði gífurlegan
afla hér í flóanum. Stöku bát-
ar komust yfir 400 tonn á rúm-
um mánuði en á sama tima var
Reykjavíkurbátum haldið i
verkbanni. Jafnvel bátur Jóns
Árnasonar, togbáturinn Fram
fiskaði óvenju vel, þá sveik Út-
vegsmannafélag Akraness sam-
tökin eins og svo oft áður. Það
er rétt, að það komi hér fram,
að Útvegsmannafélag Reykja-
víkur vann að þvi að fá friðað
svæði fyrir þorskanetum hér
við flóann, var það svæði inn-
an linu, sem hugsast dregin úr
Þormóðsskeri í Hellnanes. Inn-
an þessarar línu eru þekktustu
hrygningarsvæði þorsksins og
jafnvel síldarir.nar, svo sem
Búðahraun og hörðu blettirnir
norður af Þormóðsskeri. Þarna
er það harður botn að trolli eða
dragnót verður ekki við komið.
Þessu höfnuðu Akurnesingar og
sögðu, að þetta væru þeirra
heimamið og því bein árás á
þeirra útgerð að friða þetta þýð
ingarmikla hrygningarsvæði.
Svipaðar friðunarráðstafanir
hafa Breiðfirðingar gert með
mjög góðum árangri. Skaga-
menn eiga eftir að komast að
þeirri staðreynd að sement er
ekki smjör og taka virkan þátt
í friðunaraðgerðum eins og hér
er lagt til, en vera ekki að ota
mönnum saman i veiðarfæra
stríð. Tími sérréttinda er liðinn
og þeir fáu Skagamenn, sem
enn stunda sjó verða að sætta
sig við að þeir eru ekki lengur
einir í heiminum. Enda munu
það hafa verið þorskarnir á
þurru landi sem Jón Árnason
var að slægjast eftir með lokun
Flóans en ekki þeir sem hafa
sporðinn fram yfir hann.
Opnun Faxaflóa hefði ríkis-
stjórnin^átt að láta fiskveiði-
laganefnd leysa í kyrrþey eftir
tillögum Útvegsmannafélags
Reykjavíkur frá i haust, þar
sem félagið samþykkti, að bátar
allt að 70 rúmlestir og skráðir
eru í höfnum við Faxaflóa
fengju að veiða þar hluta úr ár-
inu. Síðan átti að greiða bátun-
um sannanlegt aflatjón úr Við-
lagasjóði þann tíma sem lokað
hefur verið. Ég vil að lokum
þakka Pétri Sigurðssyni alþing
ismanni og öðrum flutnings-
mönnum frumvarp þeirra um
takmarkaða veiði með dragnót og
botnvörpu í Faxaflóa. Þeir eru
menn að meiri að viðurkenna
að þeir voru blekktir og vilja
nú bæta fyrir það ranglæti sem
reykviskir bátaeigendur og sjó-
menn hafa oiðið fyrir.
Reykjavik, apríl 1973.
— Tómlæti
Frarnhald af bls. 16.
allt nokkur hópur manna, sem
ekki virða lög, reglur né samn-
inga, og munu því brjóta lög og
samninga, og fiska þar sem ekki
er leyft. Við þvi er ekki hægt
að sporna nema með valdi, sem
þeir verða að virða.
Rikisstjórnin og aðrir ráða-
menn okkar verða að varasf að
teygja sig of langt til samkomu-
lags, í trausti þess, að þá fáist
friður um það, sem samið er
um.
Það er óumflýjanlegt að efla
mjög varðskipakostinn. Leita
ætti eftir kaupum, eða leigu á
hraðskreiðum heppilegum her-
skipum frá vinveittum þjóðum.
Hér gætu komið til Bandaríkin,
Sovétríkin, Danmörk, Noregur,
Svíþjóð og ef til vill fleiri. Einnig
kæmi vel til greina, að ríkið
tæki á leigu fullkomnustu togar-
ana okkar. Yrði vitanlega mikill
kostnaður við þetta, en hér er
um svo alvarlegt mál að ræða,
að þjóðin veiður að taka á sig
verulegar fórnir í þessu sam-
bandi.
Kranabíll
Til sölu 20 — 25 tonna kranabíll, amerískur krani
með vökvastýrðum undirstillingum og lengri bómu.
Sérlega góður byggingakrani.
Upplýsingar í síma 34033 á kvöldin.
Nýtt — Nýtt
Úrval af KÁPUM og JÖKKUM tekið fram i dag.
BERNHARÐ LAXDAL, Kjörgarði,
Laugavegi 59, sími 14422.
Útgerðarmenn
Skipstjórar
Flugáhugafólk
Nú er rétti tíminn að panta sandblástur og zinkhúðun
á báta og skip.
RYÐVERK HF.,
Kársnesbraut 104 — Kópavogi,
simar 43277 og 42398.
Framhaldsstofnfundur félags flugáhugamanna verð-
ur haldinn i Snorrabúð Hótel Loftleiðum fimmtudag-
inn 12. apríl kl. 20.30.
Fjölmennið.
UNDIRBÚNINGSNEFND.
5 herb. — Bólstaðarhlíð
5 herbergja mjög rúmgóð íbúð á 4. hæð i blokk við
Bólstaðarhlíð. íbúðin er 2 stofur, 3 svefnherbergi,
eldhús, bað. Góðar innréttingar. Parkett og ný teppi.
Sérhiti. Tvennar svalir. Bílskúrsréttur. Glæsilegt út-
sýni.
Heimasímar: HÍBÝLI & SKIP,
20178 — 51970. Garðastræti 38,
sími: 26277.
Athugið!
Tökum að okkur allan almennan sandblástur
og zinkhúðun.
Sækjum — Sendum.
RYÐVERK H.F.,
Kársnesbraut 104 — Kópavogi
simar 43277 og 42398.
Miðinn. segir sína sögu
VERÐ A KG.
ÞYNGD PAKKANS
VORUMERKt
VERÐ PAKKANS
DAGSETNING
VORUHEITI
INNIHALDSLÝSINQ
VERÐ:
HRÁEFNI:
Kálfakjöt
Kindakjöt
Svinakjöt
Kartöflumjöl
Krydd
NÆRINGARGILDI í 100G
Eggjahvítuefni 9g
Fita 25g
Kolvetni 5g
Hitaeiningar i 10Ög ca 280
MAGN AF NÆRINGAREFNUM
GEYMISTI KÆLI VIÐ 0- +4 C SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
Flestum tegundum GOÐA-vara fylgir þegar nákvæm lýsing
á hráefni og næringargildi, og sífellt bætast fleiri í hópinn.
Viö framleiðslu á GOÐA-vörum eru engin litarefni leyfð.
GOÐA-vörur eru undir stööugu eftirliti eigin rannsóknarstofu.
_ merkið tryggir
gæði og geymsluþol
KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
KIRKJUSANDI SIMI 86366
Samband • Aug ly singadeild