Morgunblaðið - 12.04.1973, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1973
Alliance Francaise
Skemmtifundur verður haldinn í Hótel Sögu (Átt-
hagasalnum) í kvöld og hefst kl. 8.30.
Dr. EINAR ÓL. SVEINSSON prófessor les nokkur
kvæði úr „Ljóðum“ sínum. CATHERINE EYJ-
ÓLFSSON fer síðan með sömu kvæði í þýðingu á
frönsku eftir RÉGIS BOYER.
HJÁLMTÝR HJÁLMTÝSSON syngur við undir-
leik ELlSABETAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Dansað verður til kl. eitt.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn og gesti
þeirra.
STJÓRNIN.
Útgerðarmenn — skipstjdrnr
Höfum fyrirliggjandi netadreka á hagstæðu verði.
VÉLSMIÐJAN MAGNI H.F.,
(Vestmannaeyjum)
Melabraut 20, Hafnarfirði
Sími 53312.
KAUPMENN - VERZLUNARSTJÓRAR
HARÐFISKUR
Höfum aftur fyrirliggjandi nægar birgðir af okkar
góðu vöru.
HJALLUR H.F., simi 40170.
Tilkynning
um aðstöðugjald í Reykjavík.
Ákveðið er að innheimta í Reykjavík aðstöðugjald
á árinu 1973 samkvæmt heimild í V. kafla laga
nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð
nr. 81/1962 um aðstöðugjald.
Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar verður gjald-
stigi sá sami og fyrir árið 1972, eða eins og hér
segir:
0.130% Rekstur fiskiskipa.
0.325% Rekstur flugvéla. Matvöruverzlun í smásölu.
Kaffi, sykur og kornvara til manneldis í
heildsölu. Kjöt- og fiskiðnaður. Endurtrygg-
ingar.
0.650% Rekstur farþega, og farmskipa. Sérleyfis-
bifreiðir. Matsala. Landbúnaður. Vátrygg-
ingar ót.a. Útgáfustarfsemi. Útgáfa dag-
blaða er þó undanþegin aðstöðugjaldi.
Verzlun ót.a. Iðnaður ót.a.
0.975% Sælgætis- og efnagerðir, öl- og gosdrykkja-
gerðir, gull- og silfursmíði, hattasaumur,
rakara- og hárgreiðslustofur, leirkerasmíði.
Ljósmyndun, myndskurður. Verzlun með
gleraugu, kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri,
snyrti- og hreinlætisvörur. Lyfjaverzlun.
Kvikmyndahús. Fjölritun.
1.300% Skartgripa- og skrautmunaverzlun, tóbaks-
og sælgætisverzlun, söluturnar, blóma-
verzlun, umboðsverzlun, minjagripaverzlun.
Listmunagerð. Barar. Billjarðstofur. Per-
sónuleg þjónusta. Ennfremur hvers konar
önnur gjaldskyld starfsemi ót.a.
Með skírskotun til framangreindra laga og reglu-
gerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfarandi.
1. Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og
eignarskatts, en eru aðstöðugjaldsskyldir, þurfa
að senda skattstjóra sérstakt framtal til aðstöðu-
gjalds, sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 81/1962.
2. Þeir, sem framtalsskyldir eru í Reykjavík, en
hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi
í öðrum sveitarfélögum, þurfa að senda skatt-
stjóranum í Reykjavík, sundurliðun er sýni, hvað
af útgjöldum þeirra er bundið þeirri starfsemi,
sþr. ákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 8/1962.
3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykjavíkur,
en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starf-
semi í Reykjavík, þurfa að skila til skattstjórans
í því umdæmi, þar sem þeir eru heimil'sfastir,
yfirliti um útgjöld sín vegna starfseminnar í
Reykjavík.
4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að
útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks,
samkvæmt ofangreindri gjaldskrá, þurfa að
senda fullnægjandi greinargerð um, hvað af út-
gjöldunum tilheyri hverjum einstökum gjald-
flokki, sbr. 7. gr. reglugerðar nr 81/1962.
Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra
fyrir 25. apríl n.k., að öðrum kosti verður aðstöðu-
gjaldið, svo og skipting í gjaldflokka áætlað, eða
aðilum gert að greiða aðstöðugiald af öllum útgjöld-
um skv. þeim gjaldflokkí. sem hæstur er.
Reykjavík, 11. apríl 1973.
SKATTSTJÓRINN I REYKJAVÍK.
Einbýlishús á Hellu
Til sölu er 136 ferm. steinsteypt einbýlishús. Húsið
er allt á einni hæð 4 ára gamalt. 950 ferm. falleg,
ræktuð lóð. Góð lán áhvílandi. Verður selt á sann-
gjörnu verði. Tilboð óskast.
Upplýsingar í sima 99-5803 eftir kl. 19 á kvöldin.
ÚRIN
ERU
VONDUÐ ÚR
-)< Höggvarin
-K Vatnsþétt
Sjálfvindur
Bezta
fermingargjöfin
Kornelíus Jónsson
úra- og skartgripaverzlun
Skólavörðustíg - Bankastræti.
merkið
trygrgrir
græðin
HALLDÓR JÓNSSON HF.,
Hafnarstræti 18, sími 22170.
Guð-
mundína
Jónsdóttir
í DAG verður til moldar borin
frá Fossvogskirkju frú Guð-
mundína Jónsdóttir, Laugavegi
147, sem lézt á Landspítalanum
6. apríl sl. eftir 10 mánaða legu
þar.
Ég heimsótti Guðmundínu
nokkrum smmunri á sjúkrahúsið
og dáðist að hvað hún bar vei
sjúkdóm sinn til siðustu stundar.
Guðmundina var fædd 19. apr-
íl 1889 í Þaralatursfirði i
Grunmavíkurhreppi, Norður-ísa-
fjarðarsýslu og var því nærri 84
ára er hún dó. Móður sína miissti
hún á fyrsta eða öðru aldursári
og föður sínum hafði hún
aldrei neitt af að segja. Ólst
hún því upp á ýmsum bæjum í
hreppnum við þröngan kost og
kröpp kjör, eins og aigengt var
í þá daga, enda fátækt mikil í
hreppnum. Nú eru æskustöðvar
hennar allar í eyði og Grunna-
víkurhreppur allur ásamt Jökul-
fjörðum. I Grunn-aivíkurhreppi
dvaldist hún til 34 ára aldurs,
flyzt þá í Vatnsfjörð til“ séra
Páls Ólafssonar og dvelur þar
sem kaupakona. Þar kynntist
hún eftirlifandi eigmmanni sin-
um, Sigurði Halldórssyni, og
giftist honum 30. des. 1929.
Þegar Guðmundina kom i
Vatnsfjörð þá var hún svó fá-
tæk að hún átti varla föt til að
klæðast i, því kaup var ekkert
greitt á æskustöðvum hennar i
þá daga. Sigurður keypti svo
litla jörð í Mjóafirði er hét
Galtahryggur, húsalaus að
mestu. Varð því Sigurður að
byggj-a upp öii peningshús og
endurbæta baðstofu svo hægt
væri að reka þama bú, sem not
hæft væri til að lifa af. Þama
bjuggu þau í 15 ár, en fluttust
svo til Reykjavíkur 1952.
Nú fyrir nokkrum árum
keyptu þau sér íbúð á Lauga-
vegi 147, mjög góða fyrir þau
tvö og voru búin að koma sér
upp fallegu heimili.
Guðmundína var mikil starfs-
kona, vann sér inn peninga við
búðarþvott þar til hún var um
áttrætt, og Sigurður maður henn
ar vann hjá Reykjavíkurborg
svo afkoma þeirra var góð síð-
ustu árin. Sambúð þeirra Guð-
mundínu og Sigurðar var afar
góð. Þau 'tóku sér oft göngutúra
þá gott var veður, notuðu aldrei
strætisvagna, enda bæði létt til
Framh. á bls. 21
Imruiilegafr þa-kkir færi ég þeim
mörgu nær og fjær, sem
glöddu mliig á 75 ára afmæM
mimu hiinn 16. marz si. með
heimsóknum, gjöfum og
heiflilaskeytum.
Guð blessi ykkur öll
Anna Sigmundsdóttir,
Hvanneyrarbraut 17,
Siglufirði.