Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 12
1 o n/rrkorTT^Tm a r^Tr^ t'Pí a pttp ok a tjt> f t io'tq Jörð óskast Óska eftir að kaupa jörð á svæðinu frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss. Hugsanleg skipti á íbúð í Reykjavík. Margt kemur til greina. Tilboð sendist blaðinu fyrir 10. mai merkt: „Jörð — 8290". Hjálparstofnunin veitti 2,6 millj. kr. í styrki — innanlands og erlendis á árinu 1972 Hestamannafélugið Hörður Aðalfundur félagsins verður að Fólkvagni, Kjalar- nesi sunnudaginn 29. apríl kl. 15. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. Aðalfundur Hjálparstofnunar kirkjunnar var haldinn miðviku dagfinn 11. apríi sl. Söfnunarfé og g:jafir til Hjálparstofnunarinn ar á sl. ári námu kr. 2.105.950.10, en styrkir til ein- stakling'a, fjöiskyldna, stofnana og verkefna innaniands og ut- an námu kr. 2.638.589.30. Til erlendra verkefna var var ið kr. 2.266.589,30; til Bangla- desh, til hjálpar holdsveikum, vegna boðs írsku barnanna til Islands og vegna jarðskjálftanna í Managua. inna Bjarkarás í Reykjavík. Þessi ofn mun koma til lands- ins innan tíðar. Það sem af er þessu ári hafa nokkrir styrkir verið veittir inn anlands, söfnunarfé hefur verið sent til Managua og talsvert fé hefur safnazt vegna ýmissa at- burða innanlands, slysa og sjó- skaða. Þá hefur safnazt mikið fé vegna Vestmannaeyjagossins og nema útgjöld Hjálparstofnunar- innar vegna þess nú um 10 millj- ónum króna. 1 stjóm Hjálparstofnunar kirkjunnar eiga sæti 17 aðilar skipaðir af Kirkjuráði. Bisk- up Islands er sjálfskipaður i stjórnina sem varaformaður hennar. Á aðalfundinum var Jón Kjartansson forstjóri endurkos- inn sem formaður og Hermann Þorsteinsson sem ritari. 1 fram- kvæmdanefnd voru kjörnir séra Jónas Gíslason, Ottó A. Michel- sen, forstjóri og Pétur Svein- bjarnarson, framkyæmdastjóri. Framkvæmdastjóri Hjálpar stofnunar kirkjunnar er Páll Bragi Kristjónsson. BEZT ú auglýsa í MorgunblaiHnu UTANLANDSFERÐIR Á ÞÚS. KRÓNUR HVER Innanlands voru veittir samtals 18 styrkir til einstaklinga og stofnana, 2 í Hafnarfirði, 7 í Reykjavík, 2 í Rangárvallasýslu og 1 á hverjum eftirtal- ínna staða, Gullbringu- sýslu, N-Múlasýslu, Dalasýslu, Keflavik, Bildudal, Isafirði og styrkur til Sambands bindindis- félaga í skólum. Þar að auki var tekin ákvörðun um að gefa kera mikbrennsluofn til dagvistunar- heimilis Styrktarfélags vangef- Aðalfundur Dagsbrúnar AÐALFUNDUR Verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar var haidinn í Lindarbæ sunnudaginn 8. april 1973. 1 upphafi minntist formað- Hef til sölu 220 fm raðhús við Bræðratungu í Kópavogi. Möguleikar á tveimur íbúðum. Hitaveita. 4ra herb. glæsileg íbúð í Fossvoginum. Uppl. á skrifstofu SIGURÐAR HELGASONAR, IIRL. Þinghólsbraut 53, Kópavogi. Sími 42390. FASTEIGNAURVALIÐ SÍ MI:13000 Okkur vantar góða 3ja—4ra herb. íbúð strax fyr- ir eldri hjón sem verða á götunni um mánaða- mótin. Mikil útborgun. Atiðunn Hermannsson, sími 13000, heima 86221. ur, Eðvarð Sigurðsson 69 félags- manna, sem látizt höfðu frá síð- asta aðalfundi. Þá voru lesnir upp reikningar félagsins, og formað- ur flutti skýrslu stjómar. Á starfsárinu höfðu 328 nýir félags menn verið samþykktir inn í fé- iagið. Formaður skýrði i stórum dráttum frá tekjum og gjöldum félagsins, en allir sjóðir félags- ins höfðu eflzt á árinu. Heildar- sjóðsaukning allra sjóða félags- ins, að lífeyrissjóðnum undan- skildum, nam 7.101.104,00. Á árinu 1972 nutu 398 félags- menn bóta úr Styrktarsjóði Dagsbrúnarmanna og nam heild- arupphæð bóta kr. 4.298.198,00. Skrifstofa Dagsbrúnar annað- ist greiðslur á eftirlaunum til aldraðra á vegum iifeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar. Á árinu 1972 fékk 251 Dagsbrún- armaður greidd eftirlaun, og nam heildargreiðslan til þeiira kr. 9.800.000,00. Hagur Lifeyris- sjóðs Dagsbrúnar og Framsókn- ar batnaði mjög á árinu 1972, en 1. janúar 1973 eru iðgjöldin kom in í hámark, 4% og 6% eða sam- tals 10% af kaupi. Umsóknum sjóðsfélaga um fasteignalán hafði fjölgað verulega, en hámark ein- stakra lána hefur verið 250.000, 00. Fundurinn samþykkti, að ár- gjald félagsmanna á árinu 1973 skyldi vera óbreytt frá árinu 1972, þ. e. kr. 2.400. Aðeins einn listi kom fram til stjórnarkjörs í janúar sl. og var stjómin þvl sjálfkjörin, en hún er nú þannig skipuð; formaður . Eðvarð Sigurðsson; varaformað uir: Guðmundur J. Guðmunds- son; ritari; Halldór Björnsson; gjaldkeri: Pétur Lárusson; fjár- málaritari: Andrés Guðbrands- son og meðstjómendur; Baldur Bjarnason og Pétur Pétursson. Varastjórn skipa: Ólafur Torfa- son, Högni Sigurðsson og Guð mundur Sveinbjömsson. Eftirfarandi tillaga var m. a. samþykkt á fundinum: „Aðalfuindur Dagsbrúnar, hald inn 8. aprii 1973, staðfestir þá ákvörðun stjórnar og trúnaðar- ráðs að greiða úr Styrktarsjóði Dagsbrúnarmanna kr. 200 þús- und í sjóð hjá Alþýðusambandi Islands til styrktar verkalýðsfé- lögunum í V estmannaey j um, vegna eldgossins á Heimaey.“ Þá skoraði aðalfundur Dags- brúnar á alla íslenzku þjóðina að standa trúan vörð um 50 mílna fiskveiðilandhelgina. IESIÐ __ jfeffimlilnhib wKniarV#nif á vmuri V laBamma DRCLECH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.