Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRlL 1973 sarnúð í þeirra röðum. Slík svigurmæli bíta ekki á ís- lenzkri sjómannastétt. Forsætisráðherra kann að telja sig yfir það hafinn að svara málefnalega bréfi ís- lenzku skipstjóranna. En ef svo er, þá hefði átt að mega ætlast til þess af honum, að hann þegði þunnu hljóði, reyndi að leiða málið hjá sér. Raunar lýsti vinstri stjórnin yfir því við valdatöku sína, að hún hygðist hafa sem nánast samráð við „hinar vinnandi stéttir“. Það yfir- „MÆTTI GJARNAN BERAST TIL ÞEIRRA“ JltofgwitlrfaMfe Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthfas Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastióri Arni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstraeti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80. Askriftargjald 300.00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. Á reiðanlega hefði maður fundið meiri þunga liggja á bak við bréfið frá þessum 18 skipstjórum, ef í því hefði verið klykkt út með, hvað þeir og þeirra áhafnir hefðu lagt í Landhelgissjóð. Þetta mætti gjaman berast til þeirra.“ Þetta var orðrétt sú sum- ar- og hátíðarkveðja, sem Ólafur Jóhannesson, forsæt- ráðherra, sendi íslenzkum sjómönnum fyrir páskahátíð- ina, og þessi ummæli við- hafði hann á sjálfu Alþingi Íslendinga. Hann var þar að fjalla um bréf það, sem 18 skipstjórar höfðu sent ríkis- stjórninni með umkvörtun- um yfir ágangi erlendra veiðiþjófa og framkvæmd landhelgismálsins yfirleitt. Forsætisráðherra telur sig hafa efni á því að vera með svigurmæli við íslenzka sjó- menn og hann lætur þau ekki nægja heldur er síðasta setningin: „Þetta mætti gjarn an berast til þeirra,“ augljós- lega ögrun í þeirra garð. Víst er um það, að Ólafur Jóhannesson þekkir lítt hug íslenzkra sjómanna, ef hann heldur að slíkt háttarlag vinni honum og stjórn hans bragð hvarf nú raunar fljótt af ásjónu hennar, en þó bjuggust menn ekki við, að hvenær sem „vinnustéttirn- ar“ létu til sín heyra, yrði haft í hótunum. Kannski heyra sjómennimir heldur ekki til „hinum vinnandi stéttum“, þegar þeir eru rík- isstjórninni ekki leiðitamir. En forsætisráðherranum ferst allra rnanna sízt að ásaka aðra fyrir það að leggja ekki nægilegt fé til landhelgisgæzlunnar. Sjálf- ur er hann sem dómsmálaráð herra yfirmaður hennar. Þó hefur þessi ríkisstjórn ekk- ert gert til að efla landhelg- isgæzluna, þótt hún sé nú í erfiðari aðstöðu en nokkru sinni fyrr, kannski að undan- skildu fyrra þorskastríðinu. Og tillögur um eflingu land- helgissjóðs em látnar liggja á Alþingi óafgreiddar frá því að það fyrst kemur saman og allt til þingslita. Sjómenn- irnir geta því sent kveðjur forsætisráðherrans heim til föðurhúsa. OGNANIR BRETA Cíðustu fréttir af framferði ^ brezkra og vestur-þýzkra togaraskipstjóra á íslands- miðum eru vissulega ógn- vekjandi. Ljóst er nú orðið, að sumir erlendu skipstjór- arnir a.m.k. eru reiðubúnir til að hætta lífi áhafna sinna, ef þeir jafnframt geta siglt niður íslenzk varðskip. Þess vegna geta líkamsmeiðingar og manntjón orðið hvenær sem er. En hverjir bera ábyrgðina ? Að sjálfsögðu munum við íslendingar refsa þeim brezku togaraskipstjórum, sem til kann að nást og brot- legir hafa gerzt. En hin raun- verulega ábyrgð hvílir þó á brezkum stjórnvöldum. Þau hafa beinlínis hvatt brezka útgerðarmenn og skipstjóra til að stunda ólöglegar veiðar á íslandsmiðum, og þau hafa sent skip á sinn kostnað þeim til verndar. Ástæða er til að benda hér á, hver grundvallarmunur er á afstöðu brezku stjórn- arinnar og hinnar bandarísku í tilvikum sem þessum. Þeg- ar Suður-Ameríkuríkin færðu landhelgi sína út í 200 mílur, mótmælti Bandaríkja- stjórn að vísu, en hún beitti engu ofbeldi til þess að hindra töku bandarískra veiðiskipa, sem fiskuðu inn- an hinnar nýju landhelgi við Suður-Ameríku. Bretar beita hins vegar ofbeldi, þrátt fyr- ir það, að við íslendingar höfum boðizt til að gera við þá sanngjarna samninga um veiðar, meðan um víðáttu fiskveiðilandhelgi er fjallað á alþjóða vettvangi. Og enn erum við fúsir til að halda þeim samningaumleitunum áfram, þrátt fyrir þau of- beldisverk sem unnin hafa verið. Vonandi bera brezk stjórn- völd nú gæfu til að gera sér grein fyrir nauðsyn þess að ganga þegar til heilbrigðs samkomulags, því að sú ó- gæfa getur dunið yfir hve- nær sem er, sem slíka samn- inga gerði útilokaða. Gunnar Snorrason form. Kaupmannasamtaka íslands: Að aka seglum eftir vindi... ÞAÐ, sem knýr mig til að taka peaina í hönd, er grein Dagrúnar Kristjánsdót'tur, húsmæðrakenn- aira, í Morgunbtaðinu þann 10. þ.m. með yfirskriftinni: Sjáandi sjáið þér ekki og heyrandi heyr- ið þér ekki. Þetta hátíðlega yfir- bragð á nafná greinarinnar gæti gefið tll kynna sann'Lei'kselskandi hugarfar húsmæðrakennarans, enda ættu kennarar og uppal- endur að ternja sér öðrum frem- ur að fara ekki með fieipur og ramgfærsiiur. Frú Dagrúnu Kiistjánsdóttur, hú.smæðrakennara, eru þessi sannindi ljós í upphafi umræddr- ar greinar, sem hefst á þessari frómu og fögru hugleiðingu: „Það hefur alltaf verið ríkur þáttur í eðlii manna að sjá ekki annað en það, sem þeir viilja sjá — eða heyra ekki annað en þeir vflja heyra og skilja ekki nema það, sem kemur þeim bezt. Þessd eiginileiki hefur komið skýrt 1 Ijós hjá ýmsum þessa siðustu daiga. Ég hef aldrei orðið þess vör, að neitt gott leiddii aif þvi að snúa sannleikanum við, rang- túlka orð eða gerðiir annarra og snúa seglum eftir vindi, eins og margur virðisí gera — viijandi eða óviljamdi. Áf því getur aðeins leitt það eitt að þeim, er þetta gera, er aldrei treystamdi, jafnvel þó að svo vilji tiil að stundum hrjóti þeiim satt orð af vörum. Margt illt hefur af þvi hlotizt að vera ekki sammleikanum trúr og sjálf- um sér.“ Þetta er faigur inngamgur og bendir ótvírætt ti'l þess, að Dag- rún Kristjánsdóttir, húsmæðra- kemnari, sé sanmleikamum trú og gangi á hans vegum í skrifum sinum sem og öðrum háttum. En þegar líður á gremina gæt- ir þess mjög, að húsmæðrakenn- arimn gengur ekki götu sannleik- ans, sem hún hefur þó ásett sér að hennar eigin sögn, heldur röjitir hún hliðarstíga ramgfærslu og viöandi málflutniing.s. Undir lok greinarinnar færir hún fram töluJegt dæmi um verð á nautakjöti til framleiðenda og neytenda og eánnig milliiliiOa- kostnað. Þar er farið svo viillandi með töiur og um leið rekirnn svo ósvífinn áróður, að ég sé mig knúimm titt mótmæla. Að visu er- um við kaupmenm ýmsu vanir, þegar rætt er um viðskipti, en í þessu tilfelli er um svo grófar ramgfærslur að ræða, að leiðrétta verður. Eimin þáttur í húsmæðra- fræðsdiu ætti að vera að kenna verðandi húsmæðrum að gera hagstæð innkaup — kaupa sem mest, af hollri og nærinigarríkri fæðu, fyrlr sem fæstar krónur og leiðbeina hinum á sama hátt. En vegna ákafa kemst ekkert slikt að hjá Dagrúnu. Hún rang- færir kjötverð og hagræðir hiut- unum eims og passar bezt í þá naglaisúpu, sem hún ber á borð. Greim Dagrúnar á að fjalla um dýrtíð og verðbólgu og er fram- hald átaka, sem urðu um þau mál nú nýlega, en hún stýrði þar vopnaburði kvenna sem formað- ur Húsmæðrafélags Reykjavík- ur. Ég ætla ekki að bliamda mér í þær erjur að öðru leyti en því, sem lýtur sérstaklega að smá- sölunni í greim húsmæðrakenn- aranis. Þar segir: „Aðeins frá bóndanum, um hendur heildsala, hækkar t.d. kjötiið um 30%. Hver er mismum- uninm svo, þegar það ér komið í heindur neytandans? Bóndinn fær t.d. 167.47 kr. fyrir kg í úrvalsflokki af nautakjöti. Hvað þarf neytamdinn að greiða fyrir þetta sama kjöt út úr búð? Jú, einar litlar 888 kr. Mismumur frá bónda tiil kaupanda er aðeins litl- ar 720.53 kr. Þetta eina dæmi nægiir til að sýna, að við, sem mótmælum verðhækkunum á landbúnaðarvörum sem öðru, er- um ekki að ráðast á bændur. Það eru miiiliiliðirnir sem bera ábyrgð ina. Það er varla hægt að ímynda sér að það sé samtoæri- leg fyrirhöfn og kostnaður, sem milliill'iðir hafa af því að rétta kjötíið á mililii sin og sú fyrirhöfn og kostnaður, sem bændur hafa af því að ala búpeninginn, afla heyja, kaupa fóðurbæti, áburð á túnin, vélar til að yrkja jörðina og til heyskapar, byggja yfir hann o.s.frv. o.s.frv., en samt fá bændur aðec'ms lítið brot af verði vörummar í sinn vasa.“ Ég er sammáila Dagrúnu um það, að verð á nautakjöti er mjög hátt, en það er ekki hægt að skrifa á reikning okkar kaup- manna. Nú skulum við lita nánar á talnadæmi Dagrúnar. Hún segir, að áiagning i heilidsölu á úrvals niautakjött sé 30% og það muin vera nærri lagi. Næsta tala, sem hún nefniír, er 167.47 kr. til bænda. Hér mun hún eiiga við holdanauítakjöt — úrvalsflokk. Mjög iitið af þvi kjöti er á al- mennum markaði og enn hefur ekki tekizt að ala beinailaus og sinialaus naut, þannig að frá bændum fer kjötið með beinum og er verðið viitainlega mi'ðað við það. Ég bendi á þeíta vegna þess, að næsta tala, sem Dagrún er með, er smásöluverð á file og lundum, sem eru beinlausir bit- ar. Á þvi gefur hún upp töluna 888 kr. og fær þanniig miiismun uppá 720.53 kr. og segir það vera það, sem miiffiiiðirnir hirði í sinn vasa fyrir að „rétta á miillli &ín“ eitt kg. af nautakjöti. Þá vitum við það. Dæmið, sem Dagrún tekur, er sem sagt annars vegar heil- skrokkaverð til bænda og hiins vegar verð á dýrasta smásölu- flokknium, sem veigur aðéins 3—4 Gunnar Snorras»n. kg, miðað vi'ð 110 kg skrokk, og er þannig aðeins 3—4% af skrokkmum. Hún rangfærir þann ig verðiið stórlega og sileppir al- veg beinum, sinum, fitu o-g rýrn- un vegna kjötsafa. Hvers vegrna tók Dagrún ekki dæmi um verð á bógsteik í smá- sölu (352.00 kr. pr. kg) eða súpukjöti (247.00 kr. pr. kg)? Það hefði all'a vega orðúð réttara dæmi, þar sem beimin voru í kjötimu í báðum tilfellum. Nei, hún kýs einis mikla raingfærslu og frekast er hægt að hugsa sér. í fyrra tilfeMnu — hjá basndum — er hún með beiinagrind í kjöt- inu, en í seinma tiiMeilmU er húm með kjötið beimlaust og hreinsað og gefur þamntig airamga hug- mynd um álagniinigu i smásölu á nautakjöti, og þar með verð- laigii og verðlagningu á þessari holiiu og notadrjúgu vöru. Við skulum hafa hugfast, að það eru bein og sinar í kjötinu (um 30— 35%) og að það léttist frá blóð- velli til neytenda um um það btitl 5% vegna vökvataps. Þá rýrir fita kjötið verulega. Þess vil ég einnig geta, að fá má í flestum verzlunum, sem verzla með þessar vörur, AK I eða UN II í y2 skrokkum, til- reitt eftir ósk kaupenda á að- eins kr. 215.00 pr. kg. Dagrún teiur upp alía þá fyriir- höfn og aillan þann kostnað, sem framleiðendur leggja í, og ætia ég ekki að draga úr honum. Jafn framt segir hún, að fyrirhöfn miilliiliðanna sé ekki önnur en að rétta kjötið á miMi sín. Ég ætla ekki að tíunda ailam þann kostn- aö, sem fer í það að hafa á hendii dréifingu matvöru og þá sérstaklega iandbúnaðarvöru í smásölu, en ég viil þó benda á, að kæiiikerfi og kælitæki í með- alstóra kjöx-búð kosta miifliljónir króna, ef sá útbúnaður er á þanm veg, sem hann þarf að vera til þess að hægt sé að hafa óskamimda vöru á boðstólum. Þetta veit ég að flestar hús- mæður gera sér lijóst og einnig veit ég, að þær kunna vel að meta að hafa vel rekna kjöt- og matvöruverzlun hálægt heámili sinu, þar sem þær fá alfla þá þjónustu, sam þær óska efitir og kaiupmaðurinn getur i té látið. Að lokuim viil ég mæiast til þass vitð frú Datgrúmu Kristjáns- dóttur, að hún sem húsmæðra- kennari vinni að þvi að auka leiiðbeininga- og fræðsiliustarf- semi fyrir húsmæður um vörur og vörukaup og þá sér- staklega á nautakjoti, en þar er uim að ræða miarga gæða- og verðflokka og skiptir miklu hvemiig innkaupin eru gerð, ekki sízt nú eftir þær hækkanir, sem orðið hafa. Þar er sanmar- lega að ræða um fteiri verð- fliokka en þann langdýrasta — file og lumdir — sem eru aðeins eims og fyrr er sagt 3—4% af heildarvigt skrokksiims.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.