Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973 Eliszabet Ferrars: Ssfnísriis i dsuriann ur í sambúðinni við Rakel hafði gert það að verkum, að hitt var orðið einna likast draumsýn truflaðrar sálar. Var það hugs- anlegt, að hann hefði einu sinni verið sá, sem hafði sagt eða gert þetta ofsafengna, sem honum fannst hann muna, og samtimis elskað af ástríðu manneskju, sem hafði gert honum annað eins eða verra? Hann vissi fyrir víst, að hann sjálfur hafði verið slíkur maður, og hann vissi líka, að milli upp- þotanna höfðu lika veríð timabil sætleika sem var jafnvel ennþá erfiðara að gera sér grein fyrir, vegna sársaukans, sem endur- minningin um það olli. En nú var hann orðinn allt annar mað- ur. Hann elskaði friðinn. Hann vildi gjarna vera nokkum veg- inn viss um, að eftir svo sem hálftíma mundi hann hvorki finna til einhverrar himnaríkis- sælu né helvítisógnar, heldur mundi hann bara vera að fást við það, sem hann hafði sett sér fyrir að gera. — Gott og vel, gott og vel, sagði hann hranalega, við tilhugsunina um Mary, og veif- aði hendi um leið og hann sagði þetta. — Mér skjátlaðist í hvi- vetna — ég hafði alltaf á röngu að standa — það játa ég fúslega — já, fúslega. En i rauninni var hann ekki aðeins að játa að sér gæti skjátl- azt. Hann var lika að játa, að Rakel ætti rétt á því að láta sér skjátlast, að vild, og án þess að hann kæmi þar nokkurs stað- ar nærri. Hann játaði ennfrem- ur, að úr því hún væri ákveð- in í að láta sér skjátlast um Bri- an Burden, þá væri ekk- ert unnið með neinum afskipt- um af þvi, annað en sársauki og missir, sem var helmingi þung- bærari en það að missa hana, en það mundi gifting hennar auð vitað hafa í för með sér. Jæja, svona var það þá, hugs- aði hann. Var þetta ekki upp- gjöf, ef út í það var farið? Var þetta ekki það að játa uppgjöf- ina með góðu, og það áður en hann væri farinn að hugsa eitt hvað upp, sem gæti hjédpað? En einmitt á þessu augnabliki, datt honum í hug, að ekkert gæti ver ið jafnhressandi og eitt glas ,og nú var hann einmitt að koma að kránni, og gekk þar inn. Það var aðeins einn maður fyr ir á bamum, þegar Paul kom þar inn. Hann sat rétt við olíu- ofninn, en hann var eina upp- hitunin, sem frú Dunn, húsxnóð- irin, unni gestum sínum í morg- unmáiið. Maðurínn leit við um leið og Paul kom inn, og Paul sá, að þetta var Creed fulltrúi. >eir kinkuðu kolli hvor til annars, en frú Dunn var í miðri sögunni af þvi, hver hefði myrt ungfrú Dalziel og hvemig og hvers vegna, svo að hvor- ugur þeirra Paul dirfðist að ávarpa hinn. Hún var risavax inn kvenmaður með kringlótt andlit, sem hvíldi ofan á nokkr- um undirhökum og þær aftur á láréttum barmi, og hún var vön að ráða öllum umræðum við gest ina og þoldi engum að grípa fram í fyrir sér. Það lá alveg i augum uppi, sagði frú Dunn, að annað eins og þetta gat ekki verið nein til- viljun. Og það rnundu allir hér í nágrenninu lika segja hr. Creed. Þeir vissu allir, hvað gerzt hafði, og þurfti ekki að segja þeim það. Sjálf hefði hún vitað það frá upphafi vega, og hún vissi líka, hvað hún mundi gera, fengi hún tækifæri til þess, af því svona gæti þetta ekki gengið, að enginn kvenmað- ur gæti verið óhultur um sig. Sjálf var hún alis ekki óhult að þurfa að vera hér ein síns liðs hálfan daginn, og enginn svo mikið sem í kallfæri, ef þessi piltur kæmi og skæri hana á háls og tæmdi skúffuna. Því að auðvitað var það hann, og all- ir hefðu búizt við þvi versta, í þýóingu Páls Skúlasonar. þegar það fréttist, að hann væri kominn heim aftur. Svo að þetta lægi í augum uppi, eða hvað? Hún var komin aftur að upp- hafi máls síns, þegar Paul kom inn og hefði áreiðanlega haldið áfram hringinn, ef ketillinn hefði ekki farið að flauta, frammi í eldhúsi. Hún afsakaði sig og gekk hátignarlega inn í eldhús- ið. Paul sneri sér að Creed með skakkt bros á andlitinu. — Svo að fólkið hefur þá komið sér sam an um Applin litla? — Já, undantekningarlaust, sagði Creed. — Ef þetta hefur verið morð, þá hefur Applin litli framið það, og allir virðast hafa verið að búast við því, eða einhverju álika. Og það eitt, að við höfum verið að leita honum lúsa, virðist hafa styrkt það í trúnni. Og fólkið veit — allt með tölu — hvað það mundi gera við hann, ef tækifæri byðist. — Þér eruð ekki alltof sann- færður sjálfur? sagði Paul. S Séruerzlun moð óklsoði og klæðningor á húsgögnum Húsgagnakögur, kögur á bmpaskerma og borðdúka. Snúrur, leggingar og dúskar. HVERFISGÖTU 82 SIMI 13655 2Z2222222Z KAUPUM hreinar og stórar léreftstuskur prentsmiðjan velvakandi Velvakandi svarar í simá 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. 0 Enn um fiskveiðar i Faxaflóa „Gunnar Jónsson, stýrimaður sendir mér kveðju sína í gær 17. apríl og mælir þar með „takmörkuðum veiðum með botnvörpu" í Faxaflóa. Ekki þekki ég manninn Gunnar Jónsson, né hvort um starfandi stýrimann er að ræða, en ein- hvem veginn finnst mér að nefndur Gunnar hafi hagsmuna að gæta í þessu máli. Ekki er laust við að sá grunur læðist að mér, að stýrimaðurínn sé einmitt einn af þeim mönnum sem skafið hafa botninn i fló- anum undanfarin ár. Gunnar talar um takmarkaðar veiðar. Ég á dálítið erfitt með að átta mig á hvað felst í orðinu „takmarkaðar". Á hann við tak markaðan árstíma, eða á hann við takmarkaðan bátafjölda; ef til vill leyfi til handa 8 eða 10 bátum? Nú er ég ekki að halda því fram að Gunnar sé bátseig andi og eða útgerðarmaður, en ef svo væri mundi hanm þá vera jafri fylgjandi þessum veiðum ef hann lenti utangarðs við þá leyfisveitingu. Það er dálitið hjákátlegt að hlusta á þá menn, sem maður skyldi ætla að fylgzt hafi með þess- um málum, halda því fram, að ungfiskadráp sé þjóðhagslega hagstætt, eins og virðist spegl- ast úr þessum línum Gunnars. Ég ætla ekki að færast svo mik ið í fang að svara fyrir þá Jón Árnason á Akranesi og Finn- boga Guðmundsson frá Gerð- um; til þess eru þeir mér miklu fremri. Þó að ég sé einungis leikmaður í fisköflun hér í fló- anum, þá leyfi ég mér að undir strika þá fullyrðingu rhina, að hvers konar botnvörpuveiðar hér 1 Faxaflóa ættum við ekki að leyfa og er ég viss um að þeir „stundarhagsmunaimenn" taka undir þau orð, er tímar llða og fiskurinn fær að vera í firiði fyrir þessum veiðum." Læt ég svo lokið þessum skrifum mínum um þessi mál. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Álftanesi 18.4. 1973. Einar Ólafsson." 0 Heiðarlegir viðskiptahættir? Maður nokkur sagði Velvak anda frá biturri reynslu sinni af fasteignaviðskiptum. Fast- eign hafði verið auglýst til sölu og sá maðurinn í hendi sér að hún var einmitt það, sem hann hafði lengi verið að leita að. Hann hafði samband við fast eignasala og setti íbúð sem hann á sjálfur, í sölu og sneri sér siðan að því að kanna hversu mikið fé hann gæti lagt fram í útborgun á fasteigninni eftirsóknarverðu; sem sé kann- aði lánsmöguleika sina og ann- að sem að gagni mætti koma. Allt þetta „vesen" kostaði manninn bæði fé og tíma. Að lokum gerði hann tilboð í marg nefnda fasteign og beið síðan átekta. 1 fyllingu tímans kom í ljós, að eignin hafði verið seld öðrum á sömu kjörum og maður þessi hafði boðið í tilboði sínu. Sá sem keypti var kunningi eigandans. Meiningin hafði nefnilega alltaf verið sú, að kunninginn gengi inn í hsesta tilboð. Spuirði nú vinur vor: „Eru þetta heiðarlegir við- skiptahættir?" 0 Umhverfi Hrafnistu Inga Gunnarsdóttir, Sólheim um 40, hringdi. Hún vildi vekja athygli á hversu óhrjálegt væri um að litast í næsta ná- grenni Hrafnistu. Þar norðan til væri stórgrýtisurð, þar sem einnig væri talsvert um víra- rusl og annað, sem væri til leið inda og gæti auk þess reynzt háskalegt. Dvalarfólk á Hrafn istu færi oft um þetta svæði og það gæfi auga leið, að allt aldr að fólk væri ekki jafn vart um sig gagnvart nánasta umhverfi sínu. Sagðist Inga vona, að hægt væri að lagfæra þetta sem fyrst. Velvakandi hafði samband við Pétur Hannesson hjá Hreinsunardeild Reykjavikur borgar. Pétur sagði, að umrætt svæði væri á vegum Dvalar- heimilisins og hefði, af hálfu borgarinnar, verið gengið á eft- ir 'þvi, að lóðin yrði lagfairð og gengið frá henni. Ælta mætti, að svo yrði gert á sumri komanda. Bnghb Fubure vinyl gólf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.