Morgunblaðið - 25.09.1973, Síða 5

Morgunblaðið - 25.09.1973, Síða 5
MORGUNBLAÖIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1973 5 Vindhraðinnl 108hnúta — þegar lægðin „Ella“ gekk yfir landið MEÐALVINDHRAÐI hefur aldrei mælzt meiri í Reykjavík en í ofviðrinu i fyrrinótt, þegar geysikröpp lægð gekk yfir vest- anvert landið. Tíu mínútna meðal vindhraði mældist 72 hnútar og er það jafnt því er mældist i ofsa veðri í Reykjavík árið 1948. 1 mestu hrynunni mældist vind- hraðinn 108 hnútar og hefur að- eins einu sinni áður mælzt meiri hryna — brezld herinn mældi 109 hnúta árið 1942. Hins vegar er þessi veðurofsi einsdæmi í september í samtíili við Morgunblaðið sagði Knútur Knudsen veður- fræðingur, að ofviðrinu hefði valdið mjög kröpp lægð sem gekk yfir vestanvert landið á tímabiliinu frá um miðjan dag á sunnudag og fram á mánudags- morgun. Upphaflega var lœgðin felldibyluriinn Elilen, sem kom sunnan úr höfum. Sagðist Knút- ur fyrst hafa orðið haras var fyr- ir fjórum sólarhrimgum nokkuð fyrir sunnan veðurkortið, sem hér er notað, eða á svæðinu um 30 gr. norður breiddar og um 55 gr. vestur lengdar. Stefndi felil- bylurinn þá í norð-norð-vestur og fór fremur hægt eða með um 10—15 hnúta hraða. Siðan tók fellibylurinn stefnu á landið og eftir því sem hanm nálgaðisit það tók hann að breytast i lægð — að vísu í nokkuð öðru visi lægð en við eigum að venjast, mun krappari og tók yfir minna svæði. Sagði Knútur, að það væri til þess að gera fremur sjald- gæft að fellibyljir næðu himgað tn lands á þennan hátt, en þó hefði það komið fyriir nokkrum sinnum. Að sögn Hlyns Sigtryggsson- ar, veðurstofustjóra, komst með- alvindhraðinn miðað við tíu min- útur upp i 72 hnúta og í verstu hrynumum mældisf vindhraðinn 108 hnútar á Reykjavíkurflug veliffl. Eins og fram kemur í upp hafi, hefur aðeiins einu simnd áð ur mælzt jafnmikilll meðalvind hraði í Reykjavík og einu sinni Heimilistrygging bætir ekki tjónið MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Bjarna Þórðarsonar, tryggingafræðings, og spurði hanm hvemig tryggingabótum væri háttað vegna þeirra skemmda, sem urðu í óveðr- inu í fyrrinótt. Bjami svaraði þvi til, að í þeim tilvikum þar sem hús- eigendatryggimg svonefnd væri íyrir hendi, þá yrðu tjón af völdum ofviðrisims að telj ast bótaskyld, svo sem rúðu brot af völdu-m fjúkandi þak járns. Húseigemdatrygging þessi er i sjö liðum, og þar fjallar einn um bætur af völd um foks og önnur um ábyrgð húseigenda. Hins vegar r.æði heimilistrygging ekiki yfir tjón af þessu tagi. Húseigendatryggingin nær hins vegar ekki yfir tjón af völdum jarðhræringa eða elds umbrota, að sögn Bjarma. Til bóta á slikum tjónum er tii sérstök jarðskjálftatrygging, sem einnig nær til e’.dsum- brota. Sagði Bjami, að þessi trygging væri yfirleitt lítið tekin hérlendis, þó hefðu nokkrir húseigemdur í Vest- manmaeyjum tekið slíka trygg ingu eftir Surtseyjargosið en fæstir haldið hemni við og því voru aðeins tveir aðiiar í Eyj um sem fengu eignir sínar þar bættar i eldgosinu í vetur. 1 viðtölum sem Morgunblað ið átti við ýmsa húseigendur í gær vegna ofviðrisins, kom glöggt fram að það kom sem reiðarslag yfir marga, að heimilistrygging bætti ekki tjón sem veðrið olli óbeint, svo sem þegar teppi skemmd ust í íbúðum eftir regmelg, sem átti greiða leið inn í gluggalausar stofur. Virðist ekki vanþörf á að trygginga félögm kynni betur fyrir tryggingatökum sínum hvaða tryggingar séu í boði til bóta á eignum og hversu viðtæk hver trygging sé. A UGL ÝSENDUR ATHUGIÐ Þeir auglýsendur sem eiga myndamót (klissjur) hjá auglýsingadeild blaðsins eru vinsamlega beðnir að hafa samband við auglýsingadeildina sem fyrst. Breyttur opnunartími Frá og með deginum í dag mun auglýsingadeildin verða opin frá kl. 8—18.00 daglega og til kl. 12 á laugardög- um. — Vegna breyttra framleiðsluaðferða við Morgun- blaðíö, sem munu koma til framkvæmda á næstunni, þurfa auglýsingar, sem birtast eiga í blaðinu að berast fyrir kl. 18.00 tveimur dögum fyrir birtingardag. Mun þessi regla ganga í gildi í dag og haldast tyrstu vikurna. meiri hryn-a. f c któber 1948 mæld ist sami meðalvi'ndhraði og árið 1942 mældu Bretar á Reykjavik- urflugvelli 109 hnúta í eitnini vind kviðunni. í desember árið 1948 mældist meðalvindhraðmin 70 hnútar, sami vindhraði mældist árið 1952, og 71 hnútur mældist meðalvindhraðiinn eitt sinn árið 1966. í Vestmannaeyjum mæld- ust 120 hnútar i einni vindhvið- unni í gær, og kvaðst Hlynur ekki muna eftir að meiri vind- hraði hefði mælzt hérlendis. Hlynur sagði hiros vegax, að of- viðrið í gær væri líktegast eins- dæmi miðað við septembermán- uð, og tók hann sem dæmi að í septemberveðrinu mikla árið 1936, þegar Pourquoi Pas fórst við Mýrar, þá mældist 65 hnúta hraði I Reykjavík. Þess má geta, að Veðurstofan telur 64 hnúta og þar fyrir ofan 12 vmdstig. Cudo-gler; Framleiddu upp í skemmdir — ýttu annarri framleiðslu til hliðar STRAX á áttnnda tímanum í gæmiorgim byrjaði síminn að liringja hjá framkvæmda- stjóra Cudo-glers Hilmari Vil- hjálmssyni, það var húseig- andi að biðja um gler í glugga, sem farið hafði t of- viðrinu. Eftír það stoppaði ekki siminn hjá Cudoverk- smiðjunni. Hiimar tjáði Morgunblað- irau í gærkvöldi, að hann gizk aði á að milli 50—70 aðilar hefðu haft samband við verk- smiðjuna og beðið um rúður. Hi'mar sagði, að strax í gær- morgun hefði verið tekin ákvörðun um það að ýta allri annarri framieiðslu verk- smiðjunnar til hliðar og sinna nær einungis þeim pönitun- um sem bærust vegna óveð- ursins. Sagði Hilmar, að um 3 leytið í gær hefði verksmiðj an verið búin að framteiða fyrir um 300 þúsund krónur og það afflt verið vegna skemmda i óveðrinu. Hilmar sagði, að mjög mis- munandi hefði verið hversu margar rúður hver panitaði, en tóik sem dæmi, að einn húseigandi í Hafnarfirði hefði orðið að fá sex rúður hjá verksimiðjunni i gær. Kenivood mini ódýr og afkastamikil heimilishjálp Kenwood Mini er létt hrærivél og þeytari, sem hafa má í hendi sér og færa yfir í pottana. Með skál og standi, sem hægt er að kaupa sér, vinnur Kenwood Mini öll venjuleg hrærivélaverk. Einnig fæst nú með henni skurðkvörn, sem sneiðir og rífur hvers konar grænmeti og ávexti. Kenwood Mini vinnur öll þau verk, sem við erum vön að fela hrærivél — og meira til. Kostar kr. 2346,00. Skál ög síandur 1584,00. Skurðkvörn 1790300. i Kjenwood HEKLA hf. Laugavegi 170 — 172. Sími 21240 og 11687.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.