Morgunblaðið - 18.10.1973, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. OKT0BER 1973
Tíðar áætlunarferð-
ir milli Reykjavíkur
og Stykkishólms
Stykkishólmi 16. október.
Undanfarið hafa sérleyfis- og
hópferðabílar Helga Péturssonar
h.f. annazt áætlunarferðir milli
Reykjavíkur og Snæfellsness. I
sumar voru daglegarferOir, og var
það mikil samgöngubót. I vetur
verða svo þrjár ferðir í viku frá
Reykjavík og vestur þ.e. farið
verður frá Reykjavík kl. 10 að
morgni þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardaga, en frá Stykkis-
hólmi kl. 9.30 á sunnudögum, mið-
Álvktanir HÍP;
Skattar lækki,
visitala reikn-
uð mánaðarlega
Morgunblaðinu hafa borizt eft-
irfarandi ályktanir frá Hinu fs-
lenzka prentarafélagi, sem gerðar
voru á fundi 10. þessa mánaðar.
Fundur í Hinu íslenzka
prentarafélagi, haldinn 10. októ-
ber 1973 bendir á, að þær breyt-
ingar, sem gerðar voru á skatta-
löggjöfinni í upphafi valdatíma-
bils núverandi ríkisstjórnar. urðu
síður en svo til þess að rétta hlut
launastéttanna, það er því vonum
seinna að þau stjórnvöld, sem bor-
in voru til valda af launastéttun-
um, framkvæmi gagngerar breyt-
ingar á skattalöggjöfinni, breyt-
ingar, sem tryggi verulega lækk-
un skatta hjá launafólki og að
tryggt verði að eignamenn og at-
vinnurekendur greiði skatta í
samræmi við raunverulegar tekj-
ur og eignir.
Fundir í Hinu íslenzka
prentarafélagi, haldinn 10.10.
1973 bendir á að á meðan vísital-
an er reiknuð á þriggja mánaða
fresti, bíður launafólk bótalaust i
3 mánuði eftir verðlagsuppbót,
það er því eindregin skoðun
fundarins að reikna beri kaup-
gjaldsvisitöluna mánaðarlega.
Fjórðungsþing
Norðlendinga
15. fjórðungsþing Norðlendinga
verður haldið á Húsavik dagana
21.—23. okt. nk. Auk vanabund-
inna þingstarfa verða flutt fjöl-
mörg erindi og Björn Jónsson,
félagsmálaráðherra, og Páll
Líndal, formaður Sambands ísl.
sveitarfélaga, ávarpa þingið.
Magnús G. Björnsson, arkitekt,
flytur erindi um áætlana- og
skipulagsgerð, Bjarni Bragi Jóns-
son, forstöðumaður áætlana-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins, fjallar um framvindu
áætlunargerðar á Norðurlandi,
Guðmundur Guðlaugsson, verk-
fræðingur, um samgönguáætlun
Norðurlands, dr. Ólafur Ragnar
Grímsson, prófessor, um dreif-
ingu opinberrar þjónustu,
Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri, 'um ferðamál og
ferðamálaáætlun, og Steingrímur
Hermannsson, alþingismaður, um
störf byggðanefndar.
Síldarsöltun
í dag er verið að salta síld hér á
Eskifirði. Það er vélskipið Faxa-
borg frá Hafnarfirði, sem kom
með síldina úr Norðursjó. Síldin
vérður söltuð hjá söltunar-
stöðinni Auðbjörgu. Faxaborg
kom með 850 kassa af sfld.
— fréttaritari.
vikudögum og föstudögum. Þessi
þjónusta hefur verið með
ágætum, enda góðir menn og
liprir, sem að henni standa.
Oftast nær þegar bifreiðarnar
koma, er hópur manna viðstadd-
ur, og minnir þetta að nokkru á,
þegar strandferðaskipin komu
áður fyrr og fólk fagnaði þeim
með því að mæta á bryggjunni.
Fréttaritari.
Kandídatar fá
prófskírteinin
Afhending prófskírteina til
kandftata fer fram við athöfn 1
hátíðasal Háskólans nk. laugar-
dag og hefst kl. 14. Vararektor,
Ólafur Björnsson, prófessor,
ávarpar kandfdata, en deildar-
forsetar afhenda prófskfrteini.
Eyjabændur eru nú byrjaðir að flytja sauðfé sitt aftur út f Eyjar og þessi mynd var tekin, þegar
mótorbátur kom þangað I þessari viku fullskipaður kindum sauðfjárbænda. Kindurnar verða á Stórhöfða,
en á myndinni sjást Óskar f Höfðanum og Magnús f Dölum t.h. Mynd Mbl. Sigurgeir.
Um 130 umsóknir um lóðir á nýja
byggingasvæðinu 1 Vestmannaeyjum
Byggingaframkvæmdir hefjast á næstunni vestur á Hamri
Á fundi byggingarnefndar
Vestmannaeyja f gær lágu fyrir
um 130 lóðaumsóknir á nýja
byggingarsvæðinu vestur f
Hrauni og var ákveðið á fundin-
um að framkvæmdir hæfust fyrst
vestur á Hamrinum næst sjónum
en byggingarsvæðið er tilbúið.
Hægt verður að hefja fram-
kvæmdir á næstu vikum, en lóða-
umsækjendum verður tilkynnt
með bréfi um það. Morgunblaðið
ræddi f gær við Valtý Snæbjörns-
son byggingarfulltrúa Vest-
mannaeyja og fékk hjá honum
ýmsar upplýsingar varðandi
ástand húsnæðismála f Eyjum.
Valtýr hefur að undanförnu iðnaðarmenn í Eyjum um að
kynnt sér ástand allra húsa í bæn-
um, sem eftir eru, 800 talsins.
Sagðist hann hafa skipt þessum
húsum í fjögur hverfi, en Viðlaga-
sjóður hefur nú samið við
ganga þannig frá þessum húsum
að þau verði öll glerjuð og raf-
magni komið í lag.
Alls er nú 801 íbúðarhús í bæn-
um. Búið er í 342 íbúðum, 83 hús
Lóð fyrir veitinga-
*
hús í Arbæjarhverfi
Ákveðið hefur verið að auglýsa
lausa til umsóknar lóð fyrir
veitingahús í Árbæjarhverfi, að
sögn Þórðar Þorbjarnarsonar
borgarverkfræðings. Ldðin fyrir
veitingahúsið er við Rofabæ þar
sem verið er að byggja stóra U-
álmu. Búið er að byggja einn
hluta álmunnar, íbúðarblokk og
kjallara annars hluta, en áformað
er að byggja þriðju álmuna skjótt.
Lóðin undir veitingahúsið er inni
í U-álmunni og er grunnflöturinn
180 fm, en reiknað er með að
húsiðverði átveimur hæðum.
eru lokuð, en ekki er búið í 459
húsum alls rafmagn er komið á f
393 húsum og hiti í 554 hús, en
ókominn í 247 hús. Gler er heilt í
666 húsum, en skemmdir eru enn-
þá á 135 húsum. A svæðinu aust-
an Kirkjuvegar, sem er meðtalið
hér, eru aðeins eftir 75 hús og
ennþá er búið í aðeins einu húsi
þar, en fyrir gos voru á fimmta
hundrað hús austan Kirkjuvegar.
Viðlagasjóður ákvað s.l. sunnudag
að taka aftur upp viðgerðir á hús-
um í Eyjum þ.e. að koma raf-
magni í lag og setja gler í þar, sem
rúður höfðu brotnað, en áður
hafði verið lýst yfir að hús væru
víðast hvar á ábyrgð eigenda eftir
1. okt. Valtýr kvað mat húsa nú
ganga vel og væri gott hljóð í
mönnum. Þó kvað hann mikinn
hörgul á iðnaðarmönnum.
INNLENT
Lægra fiskverð
i Þýzkalandi
Frá góðaksturskeppni BFÖ á Akranesi.
Góðaksturskeppni
BFÖ á sunnudag
Bindindisfélag öknmanna efnir
til sjöttu góðaksturskeppni
sinnar f Reykjavfk nk. sunnudag.
Að venju verður haft samstarf við
lögreglu og Bifreiðaeftirlitið um
framkvæmd hennar. BFÖ varð 20
ára á þessu ári og þess vegna er
góðaksturinn hafðnr venju
fremur viðamikill.
Lagt verður af stað frá nýju
lögreglustöðinni við Hverfisgötu
og ekið víða um borgina, m.a. upp
í Árbæjarhverfi og Breiðholts-
hverfi, en endastöð verður við
Rauðarárvík. Akstursleiðin
verður um 24 km og verður þraut-
unum dreift á hana og einnig fara
fram nokkrar hæfniþrautir við
Rauðarárvík.
VERÐ á fsfiski hefur lækkað á
v-þýzka markaðnum í vikunni.
Ekki er vitað, hver ástæðan er,
menn geta sér til, að framboðið
hafi verið of mikið, en þó þarf
það ekki að vera. Ingimar Einars-
son, framkvæmdastjóri Félags fs-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda,
sagði f samtali við Morgunblaðið f
gær, að íslenzk togveiðiskip
myndu selja 1000 lestir af ísfiskif
V-Þýzkalandi f þessari viku. Fisk-
urinn væri annaðhvort stórufsi
eða blandaður fiskur.
Hann sagði ennfremur, að
menn vonuðu, að fiskverðið
hækkaði aftur á næstunni, en það
hefur fallið um tæpar 10 kr. að
meðaltali í þessari viku.
Tvö íslenzk togskip seldu í
Bremerhaven i gær. Maf frá Hafn-
arfirði seldi 130 lestir fyrir
152.550 mörk eða 5,3 milljónir.
Meðalverðið er 40,10 kr. Skuttog-
arinn Brettingur frá Vopnafirði
seldi 134 lestir fyrir 154 þúsund
mörk eða tæpar 5,4 milljónir.
Meðalverðið hjá Brettingi var
einnig 40,10 krónur.
SIGLINGAAÐSTADA
VIÐ GELDINGANES
Siglingafélag Reykjavíkur
hefur sótt um að fá aðstöðu í
f jörunni norðan eiðisins, sem
liggur út í Geldinganes. Að sögn
Þórður Þorbjarnarsonar borgar-
verkfræðings hefur borgarráð
heimilað að fram fari líffræðileg
rannsókn á svæðinu þarna, en
náttúruverndarráð fór fram á
i slíka athugun þar sem f jölbreytt
fugla og sjávarlíf er á svæðinu.
Siglingafélagið reiknar með að
engir vélbátar verði á svæðinu.