Morgunblaðið - 18.10.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. OKTÖBER 1973
3
Norðursjórinn:
100 millj.
í vikunni
Ekkert lát er á sfldarsöltun I
Danmörku, og með sama áfram-
haldi er hreint ekki ólfklegt, að
fslenzku sfldarveiðibátarnir selji
fyrir 100 milljónir f þessari viku.
Ef það tekst, verður um nýtt met
að ræða, en til þess, að svo megi
verða verður veðrið og veiðin á
Norðursjávarmiðum að vera gott,
a.m.k. fram á fimmtudagskvöld. 1
gær seldu sjö bátar f Hirtshals og
Skagen, og meðalverðið var sem
fyrr í kringum 30 krónur.
Eítirtaldir bátar seldu í Hirts-
hals: Loftur Baldvinsson EA 2326
kassa fyrir 2.7 milljónir, Isleifur
VE 1246 kassa fyrir 1.4 milljónir,
Fífill GK 1383 kassa fyrir 1,6
milljónir, Héðinn ÞH 2119 kassa
fyrir 2,5 milljónir og Grindvíking-
ur GK 2229 kassa fyrir 2.6
milljónir. I Skagen seldu tveir
bátar Skirnir AK 2090 kassa fyrir
2,5 milljónir og Sveinn Svein-
björnsson NK 1573 kassa fyrir 1,9
milljónir.
Vitað er um fimm báta, sem
eiga að selja i Danmörku i dag,
þeir Isleifur 4. VE með 1350
kassa, Eldborg GK með 1100
kassa, Óskar Magnússon AK með
2100 kassa, Helga 2. RE með 1900
kassa og Tálknfirðingur BA 1400
kassa.
Dani sigraði
í orgelleik
NORRÆNA tónlistarkeppnin fór
fram í Stokkhólmi fyrr f þessum
mánuði. Keppt var f orgelleik.
Aðeins einn fslenzkur þátttak-
andi var með í keppni þessari,
Marteinn Friðriksson, organisti f
Háteigskirkju.
Dómarar af tslands hálfu voru
Ámi Kristjánsson, tónlistarstjóri,
og Ragnar Björnsson, dómorgan-
isti. Fyrstu verðlaun hlutu að
þessu sinni Daninn Fleming
Dreisig og önnur verðlaun Hans
Fafius frá Svíþjóð. Keppnin fór
mjög vel fram, og leiddi fram f
sviðsljósið mikla listamenn á sviði
orgelleiks, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Norræna félaginu.
44 sátu sam-
bandsþing Norr-
æna félagsins
SAMBANDSÞING Norræna
félagsins var haldið í Norræna
húsinu hinn 5. október sl. Þingið
sátu 44 fulltrúar frá 12 félags-
deildum. Helztu umræðuefni
voru störf félagsins á sfðasta
starfsári og væntanleg störf þess
á tveimur næstu árum.
Þingið gerði tvær samþykktir.
Ákveðið var að senda bræðra-
félögunum á hinum Norðurlönd-
unum árnaðaróskir og þakkir
fyrir mikilsverða hjálp vegna eld-
gossins í Heimaey. Einnig var ein-
dregið varað við skerðingu
kennslustunda i norrænum
málum I kjarnanámsskrá mennta-
skólanna
I stjórn voru kosnir; Gunnar
Thoroddsen, formaður, Helgi
Bergs, varaformaður og auk
þeirra Hjálmar Ólafsson, Gunnar
Ólafsson, Guðmundur Björnsson,
Sverrir Pálsson og Þóroddur Guð-
mundsson.
Keflavík
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Keflavíkur verður haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu í Keflavík í kvöld
kl. 20.30. Eins og sagt hefur veíið
frá f Morgunblaðinu, halda Sjálf-
stæðisfélögin I Reykjaneskjör-
dæmi aðaifundi sína í þessum
mánuði. Þingmenn flokksins í
kjördæminu sækja fundina eftir
því, sem við verður komið.
Frú Bima
og hr. Björn
flytjast
búferlum
FRU Birna og hr. Björn hafa
jafnan verið mjög ógestrisin og
tekið öllum heimsóknum illa þau
þrjú ár, sem þau hafa verið búsett
í plássi einu sunnan við Hafnar-
fjörð. Þau hafa búið í húsnæði,
sem hefur verið af lakara taginu,
þröngt og litlir möguleikar á eðli-
legu einkalífi.
Ráðamenn í plássinu hafa haft
af þessu áhyggjur og létu því
verða sitt fyrsta verk, er peningar
fengust, að láta steypa upp nýtt
húsnæði handa frú Birnu og
herra Birni. En Birna og Björn
hafa lítinn áhuga sýnt því að
skipta um aðsetur og ekki verið til
viðræðu um flutninga. Ráða-
mennirnir hafa ekki getað sætt
sig veið slíka þrjózku og fengu þvi
í gærmorgun mikið lið einvala
manna til að flytja hjúin milli
bústaða með valdi, Var sérfróður
maður fenginn til að skjóta svæf-
ingarsprautum í hjúin og þau sið-
an hífð í miklu neti upp á bilpall
og flutt á milli bústaða. Eru þau
nú komin í nýja húsnæðið og virð-
ist líka vel, en hafa þó ekki viljað
láta neitt uppi um skoðanir sínar
i því efni. Stolt þeirra hjóna leyfir
slíkt ekki.
Brynjólfur Sandholt, dýralækn-
ir, skaut þremursvæfingarspraut-
um i dýrin, en þó sofnuðu þau
aldrei alveg. Hr. Björn reyndi eft-
ir megni að veita konu sinni
vernd og stillti sér upp við vegg,
þrýsti afturendanum að veggnum
og reyndi að forðast að síga niður.
Á endanum voru þau þó orðin það
dauf í dálkinn, að óhætt þótti að
fara inn til þeirra og koma netinu
utan um þau. Er þáu lágu á bil-
pallinum, áttu Brynjólfur og
Björn tal saman og fór vel á með
þeim, eins og ein myndanna sýn-
ir.
Þess sakar ekki að geta, að er
dýrin komu til safnsins, bæði á
fyrsta aldursári, fylgdu þær upp-
lýsingar, að bæði væru kvendýr.
En siðar fór að bera á því, að
annað dýranna kastaði af sér
vatni á óvenjulegan hátt, miðað
við kyn, og atferli þess var einnig
sérstætt. Fór menn að gruna
ýmislegt, en áttu þess aldrei kost
að kanna málið almennilega fyrr
en i gær, að grunur manna var
staðfestur: Annað dýrið er karl-
dýr. Vonast menn nú til þess, að
þessari uppgötvun fylgi ánægju-
leg tíðindi síðar meir, þ.e. um
f jölgun i fjölskyldunni. — Sveinn
Þormóðsson tók myndirnar.
Vestur-íslenzk gift-
ist forsætisráðherra
Nýfundnalands
FYRIR skömmu voru gefin
saman í hjónaband í Fyrstu
Iúthersku kirkjunni í Winnipeg
þau Janis Guðrún Johnson frá
Winnipeg og herra Frank
Moores forsætisráðherra Ný-
fundnalands. Myndin er tekin
við það tækifæri.
Forsætisráðherrafrúin er is-
lenzk í báðar ættir, dóttir
þeirra hjóna Dorisar Marjorie
(Blöndal) og Georgs Johnsons
læknis í Winnipeg. Georg lækn-
ir var um Iangt skeið heil-
brigðismálaráðherra Manitoba-
fylkis og síðar menntamálaráð-
herra. Georg læknir á ættir að
rekja til séra Benedikts Vigfús-
sonar á Hólum i Hjaltadal.
Kona hans Doris er dóttir
þeirra hjóna Ágústs Blöndal
læknis og Guðrúnar (Stefáns-
dóttir) Blöndal.
Það má með sanni segja. að
forsætisráðherrafrúin í Ný-
fundnalandi hafi sýnt sinum ís-
lenzka arfi ræktarsemi. Hún
nam íslenzku og íslenzkar bók-
menntir við Manitobaháskóla
og átti sæti í ritstjórn tímarits
ins The Icelandic Canadian. A
háskólaárum sínum lagði frúin
leið sína til tslands og dvaldist
þar sumarlangt við störf i
Landsbanka Islands. Sfðar rit-
aði hún greinaflokk um tsland í
stúdentablöð Manitobaháskóla.
Hin unga forsætisráðherra-
frú í Nýfundnalandi hefur full-
an hug á því að efla sem mest
samskipti Nýfundnalands-
manna og granna þeirra á Is-
landi.