Morgunblaðið - 18.10.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.10.1973, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1973 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Frétta stjóri . Augiýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, slmi 10-1 00. Aðalstræti 6, sfmi 22-4-80. Áskriftargjald 360.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 22,00 kr. eintakið. I^íkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar hefur nú lagt fram 'sitt þriðja fjár- lagafrumvarp. Þetta frum- varp ber glöggt vitni um það stjómleysi, sem ríkir hér á landi við stjórn efna- hagsmálanna. Þó að sýni- legt hafi verið, þegar á fyrstu mánuðum á valda- tíma þessarar ríkistjórnar, að hún hafði lítinn skilning á fjármálastjóm ríkisins, hefur sennilega fáa órað fyrir, að niðurstöðutölur fjárlagafrumvarpsins yrðu komnar í 27,4 milljarða við framlagningu þess nú, og líklega í um 29,5 milljarða, þegar það verður afgreitt sem lög fyrir áramót. Sú verður niðurstöðutala þeirra, ef reiknað er með samsvarandi hækkun á frumvarpinu nú í meðför- um þingsins og varð á frumvarpinu fyrir þetta ár á þinginu í fyrra. I umræðum á Alþingi 1969 spáði Halldór E. Sig- urðsson því við umræður um fjárlagafrumvarp.að með sama áframhaldi yrðu fjárlög komin upp í 19í4 milljarð árið 1975. Tveim- ur árum siðar tók þessi sami maður við embætti fjármálaráðherra og hefði nú einhver haldið, miðað við fyrri yfirlýsingar hans, að nú yrði gert stórátak til að sporna við þenslunni í rfkisbákninu. En það var nú öðru nær. Síðustu fjárlög Viðreisn- arstjórnarinnar, þ.e. fjár- lögin fyrir 1971, hljóðuðu á 11,3 milljarða, en nú er fyr- irsjáanlegt, eins og áður getur, að fjárlög ársins 1974 muni hljóða á um 29,5 milljarða. Halldór er því þegar kominn 10 milljörð- um fram úr hrakspá sinni á hendur Viðreisnarstjórn- inni, en á þó eitt ár eftir til aðbæta um betur. Þessi hækkun fjárlag- anna frá 1971 til 1974 nem- ur u.þ.b. 160%. Til saman- burðar má taka, að á tíma- bilinu 1968 til 1971 hækk- uðu fjárlögin úr 6,2 I 11,3 milljarða eða um 82%. Nið- urstöðutölur fjárlaganna hafa því hækkað tvöfalt hraðar í tíð vinstri stjórn- arinnar heldur en áður. Og hverjar eru svo ástæðurnar fyrir þessum gífurlegu hækkunum fjár- laganna frá ári til árs hjá vinstri stjóminni. 1 fyrsta lagi má hér um kenna al- gjörum skorti ríkisstjórn- arinnar á allri heildaryfir- sýn yfir efnahágsmál þjóð- arinnar.Gripiðer af handa- hófi til alls konar ráð- stafana, sem enginn gerir sér neina grein fyrir, hvaða afleiðingar hafi þetta hefur fyrst og fremst haft þær afleiðingar, að verðbólguhjólið hefur snúizt hraðar í tíð nú- verandi stjórnar en dæmi eru til áður. Það er ekkert nýtt, að verðbólga sé á Islandi, en aldrei hefur nokkur ríkisstjórn staðið jafn gjörsamlega ráðþota gagnvart henni. Er ekki annað sjáanlegt en að stjórnin hafi endanlega gefizt upp við að sporna við verðbólgunni, þrátt fyrir yfirlýsingar I stjórnarsátt- málanum um að stefna ætti að svipaðri verðbólgu hér og I nágrannalöndunum. I annan stað er útþensla rfkisbáknsins yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar, og hefur það að sjálfsögðu haft sín áhrif á fjárlög ríkisins. E.t.v. má segja, að eina stefnan, sem unnt er OSTJORN í EFNAHAGSMÁLUM að greina hjá ríkisstjórn- inni í efnahagsmálum, og allir stjórnarflokkamir virðast vera sammála um, sé að stefna að stórauknum ríkisafskiptum. Þetta hef- ur komið fram á mörgum sviðum. en þó líklega hvergi eins greinilega og í afstöðu ríkisstjómarinnar og þingmeirihluta hennar til sjálfsákvörðunarréttar sveitarfélaganna. 1 tíð vinstri stjórnarinnar hafa umfangsmikil verkefni verið dregin frá sveitar- félögunum og færð á hendi ríkisins, jafnframt því sem tekjustofnar sveitar- félaganna til frjálsra fram- kvæmda á sínum eigin veg- um hafa verið stórskertir. Til þess að mæta þessum auknu umsvifum sínum hefur orðið að grípa til þess ráðs að þyngja vem- lega skattaálögur á fólkið I landinu, eins og enn kemur fram í þessu fjárlagafrum- varpi. fíú er ráðgert að hækka söluskatt um 2% og lækka fjölskyldubætur og niðurgreiðslur. Tekju- skattur á einstaklinga og félög mun á sama tíma hækka um 1,8 milljarða frá yfirstandandi ári. Fjárlagafrumvarpið, sem nú hefur verið lagt fram er talandi vitnisburður um frammistöðu þessarar ríkisstjórnar í efnahags- málunum. Sá vitnisburður er I samræmi við það, sem raunar áður átti öllum að vera kunnugt: algjör óstjórn ríkir í efnahags- málunum. VARANLEG BYLTING Eftir C.L. Sulzberger Mao Tse-tung Chou En-lai PEKING — Örlögin haga því þannig, að blaðamaður fer eftir ráðleggingu, sem Teilhard de Chardin fékk hjá vini sínum í Shanghai: „Skrifaðu um Kfna áður en þú hefur dvalizt þar of Iengi; seinna brýturðu pennann." Eiiginn Vesturlandabúi, sem er illa undir búinn, kann ekki málið og þekkir ekki baksviðið, menningarræturnar og jafnstórkostlega sögulega arfleifð og þjóðarþjáningu, getur skilið, svo nokkurt gagn sé að, geysilega víðáttu þessa lands, arfleifð þess, vonir þess. En þess er krafizt af blaðamanninum, þótt það sé ógerningur. Stjórn Mao Tse-tungs hefur nýlega minnzt þess, að hún hefur drottnað yfir elzta og fjölmennasta þjóðríki veraldar í 24 ár. Október er afmæli kínversku byltingarinnar, mikilvægustu afleiðingar síðari heimsstyrjaldarinnar, nákvæmlega eins og rússneska byltingin var helzta afleiðing fyrri heimsstyrjaldarinnar. Báðar höfðu marxisma að leiðarljósi, báðar voru mannskæðar og hvorug varð sigursæl fyrr en eftir blóðugt borgarastrfð og hugmyndafræðilegar hreinsanir, sem sigldu i kjölfarið. Leiðir þeirra urðu einnig ólíkar. Draumar og þarfir smá- bænda urðu jafnmikilvægur hornsteinn byltingarinnar í Kína og vonir iðnverka- manna urðu hornsteinn rússnesku byltingarinnar. Illdeilurnar, sem hafa gosið upp með þessum tveimur byltingarstórveldum um ólíka drauma þeirra, nágrannakrytur þeirra og togstreita þeirra um áhrif í heiminum eru ef til vill orðnar mikilvægasta staðreynd síðari helmings þessarar aldar. Þótt mótsagnarkennt sé, er mikilvægi hins nýja Kfna fyrst um sinn fólgið í því umf ram allt, að viðleitnin til þess að koma til leiðar breytingum hefur verið stöðug og forystumennirnir hafa haldizt lengi við völd. Mao formaður og helzta hjálparhella hans, Chou En-lai, tóku völdin eftir stöðuga valdabaráttu, sem stóð I rúma tvo áratugi. Mao er áttræður, Chou er 75 ára gamall og ennþá hægri hönd hans, og enn ráða þeir örlögum þessa stórbrotna lands. Þetta er eins og Lenín, sem fyrstur manna framkvæmdi kenningar Marx með frá- bærum árangri, hefði enn verið við völd í JfeUr fJorkStmes: /V\>> +ám Sovétríkjunum 1941, þegar þýzkir nasistar réðust inn í landið. Þegar Mao formaður tók við stjórninni f Klna fyrir tæpum aldarfjórðungi, voru erfiðleikamir ennþá meiri en blöstu við Rússum, þegar keisaranum hafði verið steypt af stóli. Þjóðareining var ekki til í Kfna. Kína var land ættbálka, léns- höfðingja og herforingja. Hugmynda- kerfið, sem uppreisn Sun Yat-sen 1911 lét í arf, var sundurlaust og ruglingslegt. Arið 1949 var Kína Iand hungursneyðar, betlara, flóða og þurrka, taugaveiki, far- sótta og umfram allt lítilsvirtra, gjald- þrota bænda, sem voru þjakaðir af spillingu lénskerfis í upplausn, eymdar, vesældar, undirgefni og erlendrar yfir- drottnunar. Bylting maoista sópaði burtu þessum rotna arfi og færði f staðinn þjóðarstolt, reisn og virðuleika. Aðeins lausleg at- hugun staðfestir vizku vinar Teilhard de Chardins. Þetta er hægt að skrifa um Kína án þess að brjóta pennann. Þegar maoistar tóku við stjórninni, var Kfna fátækara en Pakistan, Indland og Indónesfa, matvælaneyzlan á mann var einn fimmti neyzlunnar i Frakklandi og meðalaldur rúmlega helmingi lægri en f Bandaríkjunum. En nú f dag eru Kín- verjar fullir af lífsþrótti og berjast hægt en bítandi fyrir því að skapa betra mann- líf. Landsmenn eru f fyrsta skipti vel klæddir og fæddir, stoltir af áhrifum sín- um f heiminum, fullir sjálfstrausts um eigið öryggi, vel að sér og hraustir. Þessi afrek hafa kostað mikið blóð og mikla þjáningu, það gjald sem leiðir af fjöldabyltingum og umróti. En Kína Maos hefur staðfastlega fetað eigin veg og efna- hagsmál, andlegt líf og stjórnmál stærsta lands jarðarinnar hafa verið endurskoðuð án þess að gengið hafi verið í smiðju til Vesturlanda, þar sem velsæld situr í önd- vegi, eða til Rússlands, þar sem kreddur ráða. Þess vegna eru Kínverjar að taka í sínar hendur forystuhlutverkið meðal van- þróaðra ríkja þriðja heimsins og virða að vettugi valdablokkir beggja risaveldanna; þeir eru ennþá þjóð á reiðhjólum, en þeir hafa fengið nasasjón af leyndarmálum kjamorkualdar og eldflaugaaldar. Tvö veigamestu nýmæli Maos voru sú ákvörðun hans að grundvalla kínverskt þjóðfélag á smábændum en ekki tækni- fræðingum, verkamönnum eða hefð- bundnum menntarnönnum, og viður- kenning hans á þörfinni á viðvarandi byltingu, sem endurnýjast með óregluleg- um blóðgjöfum. Sfðari kenningin er róttæk í hæsta máta og hafin yfir þá trú Thomas Jefferson, sem hefur ekki verið sannprófuð, að tré byltingarinnar verði öðru hverju að endurnærast á blóði harðstjóranna. Mao formaður lítur svo á, að sigursælar byltingar móti sínar eigin forréttinda- og valdastéttir, það sem Júgóslavinn Milovan Djilas kallaði hina nýju stétt. Því hefur Mao komizt að þeirri niður- stöðu, að uppræta verði hverja nýja stétt jafnóðum og kasta henni fyrir róða, hvenær sem það sé nauðsynlegt. Eða eins og hann sagði albanskri sendinefnd fyrir sex árum: „Uppbygging sísíalisma kemst ekki I framkvæmd með einni, tveimur, þremur eða fjórum menningarbyltingum. Þær verða að vera miklu fleiri.“ Kfnverjar hafa því minnzt byltingar, þótt-þeir séu á kafi I byltingu og hún eigi langt í land. Byltingarnar verða nánast endalausar og hver einasti Kínverji stend- ur í byltingu. En endalaus bylting ber með sér hættu á endalausri áhættu. Kínverjar vita líka, að þetta gjald verða þeir að greiða fyrir stórstígari framfarir en heim- urinn hefur hingað til kynnzt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.