Morgunblaðið - 18.10.1973, Síða 32

Morgunblaðið - 18.10.1973, Síða 32
sólargeislinn írá Florida pJn>r0íWinMíiIfciit> Fékkst þú þér TROPICANA ■ i morgun? MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973 Hitaveita 1 Hafnarfjörð — Samningurinn tekinn fyrir í dag: 600 milljóna framkvæmd Hitaveitu Reykjavíkur 1 dag verður lagður fram til afgreiðslu f bæjarstjórn Hafnar- Guðbjörn Jensson skipstjóri sýn- ir Birgi Isleifi Gunnarssyni borg- arstjóra, og Halldóri E. Sigurðs- syni fjármálaráðherra, bró Snorra Sturlusonar. A efri mynd- inni er togarinn í Reykjavfkur- höfn. Snorri Sturluson kom til landsins í gærdag Skuttogarinn Snorri Sturluson RE 219 kom til heimahafnar f Reykjavík f gær frá Spáni, en þar var skipið afhent Bæjarútgerð Reykjavíkur fyrir tveimur vikum. Var skipið 5 daga á leiðinni heim og reyndist skipið vel í alla staði að sögn Marteins Jónassonar framkvæmdastjóra Bæjarútgerðar Reykjavfkur. Gekk allt að óskum og vélar og annar bónaður reyndist vel að sögn áhafnarinnar. Skipstjóri á Snorra Sturlusyni er Guðbjörn Jensson, I. vélstjóri er Ölafur Torfason og I. stýri- maður Jóhann Sigurgeirsson. Allir þessir menn voru á Þorkeli mána, en nó er bóið að selja hann og var honum siglt til Skotlands í brotajárn. Söluverð Þorkels mána var 3,5 millj. kr. Snorri Sturluson er þriðji stóri Spánartogarinn, sem kemur til landsins. Hinir voru Bjami Benediktsson og Júní, en fjórði togarinn mun verða afhentur um jólaleytið og hefur Bæjarútgerð Reykjavíkur ákveðið að hann beri nafnið Ingólfur Arnarson. Þessir stóru togarar eru þannig búnir, að hægt er að renna vara- trollinu strax út á meðan gert er við rifna trollið og er Ut- búnaðurinn þannig, að það borgar sig að taka varatrollið í notkun ef bæting tekur meira en 5 mínútur. Er þetta nýmæli á skipum hér- Iendis og getur munað mjög miklu á veiðitíma. Þegar samningar um kaupverð á þessum togurum voru gerðir, var kaupverð um 150 millj. kr., en eitthvað mun bætast við þá upp- hæð vegna breytinga i peninga- málum. Snorri Sturluson fer á veiðar eftir nokkra daga, en eftir er að ganga frá veiðarfærum um borð í skipið og öðrum búnaði. Utvarpsumræður um stefnu stjórnarinnar Geir Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen tala af hálfu SjálfstæðLsflokksins I KVÖLD verður útvarpað frá Alþingi umræðum um stefnu- ræðu rfkisstjórnarinnar, sem Ólafur Jóhannesson, fosætis- ráðherra, flytur. Ræðumenn af hálfu Sjálfstæðisflokksins verða þeir Geir Hallgrfmsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Gunnar Thoroddsen, for- maður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, og tala í 15 mfnútur hvor. tJtvarpsumræðurnar hefjast kl. 20. Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra, fær fyrst 30 mfnútur til umráða til flutn- ings stefnuræðunnar. Röð flokkanna er annars þessi: Framsóknarflokkur, Alþýðu- flokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samtök frjálslyndra og vinstri manna og Alþýðubandalag. Bjarni Guðnason fær 15 mfnut- ur til umráða í lok fyrri um- ferðar, en umferðirnar verða tvær og hefur hver flokkur til umráða samtals 30 mfnútur. Af hálfu Alþýðuflokksins verða ræðumenn Gylfi Þ. Gfsla- son og Benedikt Gröndal. Af hálfu Samtaka frjálslyndra og vinstri manna verða ræðumenn Björn Jónsson og Magnús Torfi Ólafsson. Af hálfu Alþýðu- bandalagsins verða ræðumenn Lúðvfk Jósepsson og Magnús Kjartansson. Auk Ölafs Jóhannessonar talar af hálfu Framsóknarflokksins Vil- hjálmur Hjálmarsson. fjarðar samningur milli Hita- veitu Reykjavfkur og Hafnar- fjarðar um gerð hitaveitu f Hafnarfirði. Morgunblaðið sneri sér til Arna Grétars Finnssonar bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna og innti frétta af málinu. „Samningurinn,“ sagði Ámi Grétar, „er um að Hitaveita Reykjavfkur taki að sér að leggja og reka hitaveitu í Hafnarfirði. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að hitavéita verði komin í allan bæinn á árunum 1976 og 1977, en reiknað er með að fram- kvæmdir hefjist næsta ár. Hita- veita Reykjavíkur fær með þessu samningi rétt til að hagnýta hita- orku í landi Hafnarfjarðar í Krísuvík til húsahitunar. Heita vatnið verður selt á sama verði í Reykjavík og Hafnarfirði, en í dag er áætlað, að hita- kostnaður Hafnfirðinga sé um 100 millj. kr. á ári, en væri miðað við gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur í dag, um það bil 48 millj. kr., þannig að Hafnfirðingar myndu spara sér 1 millj. kr. á viku i Einn í gæzlu- varðhald á Sauðárkróki RANNSÓKN er langt komið á orsökum dauða Skarphéðins Eiríkssonar, bónda, á Sauðár- króki sl. föstudagsmorgun, en eins og áður hefur verið skýrt frá, voru talsverðir áverkar á líkinu, er það fannst við hús f bænum. Einn maður var á þriðjudag úr- skurðaður f gæzluvarðhald vegna rannsóknar málsins. Jóhann Salberg Guðmundsson, bæjarfógeti, sagði f viðtali við Mbl. f gær, að allmargir menn hefðu verið yfirheyrðir, og sumir ftrekað. Vitnaleiðslum væri þó senn að ljúka. Krufningarskýrsla hafði ekki borizt honum f gær, en hann taldi, að e.t.v. gæti hún orð- ið tilbúin f dag eða á morgun. kyndingarkostnaði miðað við nú- verandi verðlag. Mál þetta hefur verið lengi á döfinni og sérstak- lega hefur komið fram andstaða við málið frá fulltrúum Alþýðu- Framhald á bls. 18. Olíusamningarn- ir við Rússa eru „óhagstæðari,, SAMNINGANEFND olfufélag- anna er samdi um kaup á olfu frá Sovétrfkjunum kom heim f gær frá Moskvu og leitaði Morgun- blaðið frétta um gang mála hjá Indriða Pálssyni forstjóra Skelj- ungs, en hann var einn samninga- manna. „Þessir samningar, sem við gerðum nú, eru okkur óhagstæð- ari en síðast af tveimur ástæð- um,“ sagði Indriði. „Sú fyrri er, að heimsmarkaðsverðið hefur verið að hækka á þessu ári, en okkar samningar hafa verið bundnir heimsmarkaðsverði á al- þjóðlegum skráningum. Sfðari ástæðan er sú, að nú var samið um minni afslátt en áður, en hins vegar tel ég það hagstætt að við höfum tryggt landinu olíu og samningana tel ég hagstæða mið- að við aðstæður." 300 milljónir fyrir ónýt hús í Eyjum UM 300 millj. kr. mun Við- lagasjóður greiða n.k. laugardag fyrir ónýt hús f Vestmannaeyjum og er það M af brunabótamati þeirra. Er þetta fyrsti áfangi f að greiða brunabótamatið, en það verður gert f fjórum áföngum. Næstu gjalddagar eru 1. jan. 1974, 1. apríl og 1. júlf sama ár. Mikil fundahöld um skýrslu forsætisráðherra — en inni- haldið er trúnaðarmál FORSÆTISRAÐHERRA gaf f gærmorgun rfkisstjórninni skýrslu um viðræður sfnar við forsætisráðherra Breta um land- helgisdeiluna og lagði fram þær tillögur aðila, sem fram komu f viðræðunum til lausnar deilunni. Sfðar um daginn gaf svo Ólafur Jóhannesson utanrfkismálanefnd Alþingis skýrslu um viðræðurnar en að þvf búnu var málið kynnt f öllum þingflokkunum. Farið er með efni skýrslunnar sem trúnaðarmál, og þvf vörðust leið- togar stjórnmálaflokkanna allra frétta um afstöðuna til hennar, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við þá f gær. 1 viðtali við Morgunblaðið f gærkvöldi sagði Ólafur Jóhannesson: „Við bfðum eftir því að heyra álit flokkanna áður en næsta skref f málinu verður ákveðið." Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að fundur hefði verið haldinn í utan- ríkismálanefnd kl. 3 f gær og hefði forsætisráðherra þar gert grein fyrir viðræðum sínum við brezka forsætisráðherrann. Síðan hefði málið verið kynnt innan þingflokkanna, m.a. þingflokks sjálfstæðismanna, en þess hefði verið óskað, að farið væri með skýrsluna sem trúnaðarmál og þess vegna væri ekki meira um hana að segja á þessu stigi. I sama streng tók Gylfi Þ. Gíslason, for- maður Alþýðuflokksins. Hann kvað þingflokk Alþýðuflokksins, hafa byrjað að kynna sér efni skýrslunnar í gær, en fjallað yrði frekar um málið í dag. Að öðru leyti vildi hann ekkert um málið segja. Þá leitaði Morgunblaðið einnig álits Björns Jónssonar, ráðherra, á skýrslunni en fékk áþekk svör. Hann kvað menn vera enn að bræða með sér hvað fælist i skýrslunni. Forsætisráðherra hefði gefið ráðherrunum skýrslu um málið á ríkisstjórnarfundi, en menn hefðu þar ekki tjáð sig um efni hennar heldur tekið hana til nánari athugunar innan sinna flokka. Kvað hann þingflokk og framkvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna eiga eftir að fjalla um málið, en bjóst við að menn gæfu sér góðan tfma til þess. Ragnar Arnalds, formaður Al- þýðubandalagsins, sagði að þing- flokkur Alþýðubandalagsins hefði komið saman til fundar eftir að forsætisráðherra hafði gefið skýrslu sfna fyrir utanríkis- málanefnd. Hefði á fundi þessum verið fjallað um skýrsluna, og gerð um hana samþykkt, en Ragnar kvað hann ekki til birting- ar á þessu stigi málsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.