Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973
5
„Snillingur fullur
af mannást”
SÝNING Alfreðs Flóka i Boga-
salnum var fjölsótt, og yfir
helmingur myndanna seldist.
Myndirnar á syningunni gerði
Flóki aðallega á þessu ári, en þó
var nokkuð af myndum, sem hann
gerði eftir sfðustu sýningu sína
einvörðungu myndum eftir
Alfreð Flóka. Ég er mjög hress.“
„Ertu ánægður með viðtökurn-
ar?“
„Já, mjög ánægður. Þetta er
eflaust sú sýning, sem hefur
hlotið beztar viðtökur og farið
bezt í fólkið. Svo fór Björn Th.
Björnsson ákaflega vinsamlegum
orðum um mig í sjónvarpinu um
helgina, enda er Björn kúltur-
maður. Ekki hef ég orðið var við
aðra kritikkera, en hins vegar
Framhald á bls. 18
1970.
Við sátum í Bogasalnum á
sunnudaginn og röbbuðum saman
við Flóki. Mannmergð var í saln-
um að skoða myndir, og um hann
fór ljúfur kliður. Konurnar á
veggjunum, ævintýraverurnar,
voru hljóðar, en töluðu þó sínu
máli og áhugi streymdi úr augum
áhorfendanna.
Sýningargestur kom til okkar
og spurði listamanninn, af hverju
hann teiknaði ekki einnig þjóð-
legar myndir úr atvinnulífinu og
þjóðlífinu.
Flóki sagði, að það gæti vel
verið, að næsta sýning sln yrði öll
í þeim dúr. „Annars skal ég segja
þér,“ sagði Flóki, „þótt enginn
trúi þvi, að ég vann í eina tið tvö
sumur hörðum höndum hjá
Eimskip og var meira að segja oft
tekinn í eftirvinnuslag á kvöldin
vegna vinnuhörku minnar. Mér
finnst alveg nóg að sofna á kvöld-
in með blóðbragð í munninum, þó
að ég fari nú ekki að rifja upp
þessa vinnuhörku."
Sýningargesturinn gaf sig ekki
og Flóki Iétti undir með honum og
sagðist rejmdar vera að hugsa um
að snúa sér meira að íslenzkum
þjóðsögum og huldustelpum.
„Annars held ég mig við efnið,“
hélt listamaðurinn áfram, „en
legg þó meiri áherzlu á klassíska
uppbyggingu en ég hef áður
gert. Mótívin eru þó gegnumgang-
andi ákaflega rómantísk. Ég geri
yfirleitt blíðar myndir við hæfi
taugaveiklaðra barna á öllum
aldri.“
„Hvernig er vinnuaðstaðan?"
„Ég er nú fluttur í Grana-
skjólið, og þar hef ég ágætis
vinnustofu, og svo hef ég íbúð í
Kaupmannahöfn, þar sem ég hef
einnig ágæta vinnustofu."
„Þú myndskreyttir nýlega
ljóðabók dansks skálds.“
„Einmitt, ljóðabók Ulfs
Gudmundssen og þar er áfram-
haldandi ráðabrugg á döfinni.
Við erum báðir miklir aðdáendur
Jack the rippers, Jakobs líkskera,
en Ulfur er að skrifa bók um
hann og ég myndskreyti."
„Hvað finnst þér um mynd-
listaráhuga íslendinga?"
„Hér er geysilegur áhugi fyrir
myndlist, ég held alveg einsdæmi
í heiminum. Að mínum dómi er
mjög mikil gróska hjá mörgum
ungum myndlistarmönnum hér.“
I þessu kom einn sýningar-
gestur og spurði Flóka, af hverju
myndirnar hans væru verðlagðar
svona lágt, en sú dýrasta kostar 35
þús. kr. „Eg verðlagði myndirriar
i geðveikiskasti," svaraði Flóki,
„það hljóp í mig æðiskast og ég
fylltist af mannást, og því er þetta
svona lágt, en maður skyldi aldrei
fylla sig af mannást, annar eins
snillingur."
„Nokkur verkefni ádöfinni?"
„Mitt stóra plan er, að heimur-
inn verði svo góður við mig, að ég
geti einbeitt mér að því eftir-
sóknarverðasta, sem er að safna
TriStar lætur nágrennið í friði.
Lockheed L-1011 TriStar hefur verið valin
af sex af tíu afkastamestu flugfélögum heims.
Það eru góð tíðindi fyrir þá, sem eiga heima
í nánd við flugvelli. TriStar er nefnilega hljóð-
látasta risaþotan í heimi að því er sameigin-
legt flugráð Bandaríkjanna hefur vottað. Það
er Rolls-Royce RB. hreyflunum að þakka.
I RB. 211 frá Rolls-Royce eru færri
hlutir sem snúast og valda hávaða. Dregið er
úr vélarhljóðinu með lofthjúps-einangrun
og að öðru leyti er það dempað með
sérstakri lokun inni í hreyflinum.
TriStar minnkar hávaðasvæði kringum flugvelli
um 92%
Enn eitt stuðlar að góðum friðí TriStar
við nágrennið Hún tekur tvöfalt fleiri farþega
en eldri þotur. Svo að um allan heim verða
flugtök hávaðaminni og færri. Að minnsta
kosti færri en yrði, ef einungis smærri
hávaðameiri þotur væru á ferðinni.
TriStar kemst lengri leið í einum áfanga.
Rolls-Royce eru að auka hestöflin í RB.
211 hreyflunum. Það þýðir, að TriStar mun
komast í einum áfanga allt að 5300 mílur.
Til dæmis frá London til Chicago, eða
Singapore til Sidney.
Hávaðasvið hjá L-1011 við flugtak.
Hávaðasvið hjá eldri fjögurra hreyfla þotum við flugtak.
Flugbraut.
Flugvéladynur angrar þegar hann verður
hærri en þau hljóð sem venjulega heyrast í
borgum og bæjum. Eldri fjögurra hreyfla
þotur hafa þannig áhrif á um það bil 160 fer-
kíiómetra svæði. Þegar TriStar tekur sig á loft
gerist það hins vegar á um 13 ferkílómetrum.
(Skýringarmyndin hér að ofan sýnir þennan
mikla mun á TriStar og eldri þotum.)
En jafnvel þó að fólk kunni að búa á
því takmarkaða svæði sem heyrist í TriStar,
nýtur það þess að þær gefa frá sér helmingi
minna hljóð en eldri þotur.
Lockheed L-1011 TriStar
Hljóðlátasta risaþotan