Morgunblaðið - 24.10.1973, Side 19

Morgunblaðið - 24.10.1973, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973 19 Albert Guðmundsson borgarfulltrúi: Stórátak nauðsynlegt í málefnum aldraðra Vandamál gamla fólksins njóti forgangs hjá Reykjavíkurborg Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavfkur f síðustu viku var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Albert guðmundssyni (S): Borgarráð Ieggur til við borgarstjórn, að samþykkt verði, að ákveðn- um hundraðshluta af álögðum útsvörum í Reykjavík, samkvæmt nánari ákvörðun við gerð fjárhagsáætl. 1974, skuli varið til bygging- ar nýrra íbúða, dvalarheimila og I iúkrunarheimila f þágu aldraðra í Reykjavík eða til endurgreiðslu á sfórlánum, er tekin yrðu til að hraða framkvæmdum, og skipuð verði 3ja manna nefnd til að annast. undirbúning og sjá um byggingarframkvæmdir f samráði við borgar- stjóra. Nefnd þessi verði skipuð fólki með starfsreynslu f málefnum aldraðra. Albert Guðmundsson(S): öllum er það löngu ljóst, að gera þarf átak f byggingarmálefnum aldr- aðra sem allra fyrst, til þess að bæta úr þeirri brýnu þörf fjrir elli- og hjúkrunarheimili, sem nú erí borginni. Oft hefur verið bent á þessa brýnu þörf en jafnan hefur verið daufheyrst við henni og þeim mönnum, sem helgað hafa sig þessu málefni. Tillögu þeirri, sem ég flyt hér, er ætlað að leysa þessi miklu vandamál til frambúðar og slikt verður ekki gert nema þvf aðeins, að varið verði verulegu fjármagni til þessara mála. Þeir menn, sem við málefni aldraðra fást og ég hefi átt tal við, segja jafnan, að „pólitíkusarnir“ hlusti ekki á þá og vilji ekki sinna þessu málefni af þeim stórhug, er til þarf. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að æskunni og þvi fólki, sem tekið hefur við þvf þjóðfé- lagi, sem gamla fólkið hefur nú fengið því í hendur, beri skylda til þess að búa vel að gamla fólk- inu. Tillaga mfn fjallar ekki um neinar sérstakar framkvæmdir heldur á hún aðeins að tryggja, að nægilegt f jármagn verði til staðar svo unnt sé að ganga að þeim verkefnum, sem fyrir liggja og leysa þau. Ég held, að ef þessi tillaga verður samþykkt og kemst í framkvæmd muni hún einnig leysa stóran vanda hjá spítölun- um, sem nú verða að hafa fjölda langlegusjúklinga innan sinna veggja, sem svo taka upp rúm fyrir fólki með bráða sjúkdóma, sem nauðsynlega þarf að komast á spftala. Mér finnst að við borgar- fulltrúar eigum að standa að þvf að fegra lífið i borginni og þá ekki síður líf gamla fólksins. Steinunn Finnbogadóttir (Sfv) kvaðst fagna áhuga Alberts Guð- mundssonar á málefnum aldr- aðra. Jafnframt sagðist Steinunn vilja endurflytja tillögu minni- hlutans í borgarstjórn frá 21. des- ember i fyrra um stórátak í mál- efnum aldraðra. Sigurlaug Bjamadóttir (S): Hér Iiggja nú fyrir tvær tillögur svipaðs efnis. Og vil ég í því sam- bandi taka fram að tillaga minni- hlutans frá því í desember hefur verið í athugun hjá félagsmála- ráði og hefur það skilað ýtarlegri umsögn um hana. Mér finnst hins vegar nauðsynlegt að leggja áherslu á þá skoðun okkar sjálf- stæðismanna, að ekki beri að leysa vandamál aldraðra með þvf að safna gamla fólkinu saman á einhverjum stofnunum, sem það kærir sig e.t.v. ekkert um að vera á. Það er skoðun okkar, að gera eigi því kleift að vera sem lengst í heimahúsum við eðlilegar aðstæð- ur. Og í þessu sambandi vil ég drepa á heimilishjúkrun þá, sem fram hefur farið á vegum borgar- innar og hinn mikla vöxt f þvf starfi. Árið 1969 nutu 59 heimili aðstoðar, 1970 100 heimili, 1971 var 181 heimili veitt aðstoð og 1972 voru 220 heimili aðstoðuð og varið til þess samtals 45710 vinnu- stundum. Hjúkrunarvandamálið í heima- húsum, á spítölum og elliheimil- um, er þó mjög erfitt viðfangs bæði vegna skorts á menntuðu fólki og vegna þess, að launakjör þeirra er við heimahjúkrun starfa eru til háborinnar skammar. Við bindum þó nokkrar vonir við B-á.mu Borgarspftalans í þessu efni, en því miður bendir margt til þess, að ríkið muni þar láta sinn h!ut eftir liggja en lög- um samkva mt á það að greiða lang stærsti hlutann af bygging- arkostnaðinum. Adda Bára Sigfúsdóttir (K) kvaðst í samræmi við jákvæða umsögn félagsmálaráðs um til- lögu minnihlutaflokkanna frá 21. desember, sem fjallaði um stofn- un lítilla vistheimila f. aldraða, vilja leggja þá tillðgu aftur fyrir borgarstjórn. Hún sagðist leggje á það ríka áherslu að kannaðir yrðu allir möguleikar á því að stjfna slík heimili sem víðast og þá t.d. á heimilum þar sem e.t.v. væri að- eins eftir ein manneskja, hugsanl. ekkja, eða einhver annai aðili, sem taka vildi að sér að hu. sa um nokkrar gamlar manneskji , sem þó gætu að einhverju leyti verið sjálfbjarga. Það er hins v.gar einnig alveg ljóst, sagði Adda Bára, að nauðsyn ber til að koma á fót opinberum elliheimilum f viðbót við slík lítil einkaheimili. Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri: Vandamál aldraðra ber daglega á góma hjá Reykja- víkurborg, sífellt er verið að óska eftir aðstoð við að koma gömlu fólki á elliheimili eða hjúkrunar- stofnanir. Ekki eru menn hins vegar allir sammála um það hvar vandinn felist þ.e. hvort frem- ur vanti langlegudeildir eða dval arheimili. En á síðari tímum hef- ur það þó orðið æ algengara að blanda saman t.d. á hjúkrunar- heimilum fólki, sem þarf að dvelja þar um áraraðir og svo þvf sem kemur aðeins til stuttrar end- urhæfingardvalar. Þetta er t.d. gert á Grensásdeildinni. Ég kemst ekki hjá því vegna þeirrar gagn- rýni, sem Steinunn Finnbogadótt- ir hefur haft uppi í sambandi við ráðningu hjúkrunarfólks á Grens- ásdeildina, að minna hana á það hversu lengi ýms mikilvæg mál, m.a. hennar vegna, lágu óaf- greidd f félagsmálaráðuneytinu þann tíma sem Steinunn var þar aðstoðarráðherra. Þá vil ég og geta þess, að sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum hef ég það fyrir satt, að í fjárlaga- frumvarpinu, sem nú er til um- ræðu, sé ekki gert ráð fyrir neinni fjárveitingu til B-álmu Borgar- spftalans. Að lokum ætla ég svo að ræða lítillega um tillögu Alberts Guð- mundssonar, sem ég er að öllu leyti fylgjandi, þó með þeirri breytingu, sem flutningsmaður hefur fallist á, sem er sú, að ekki verði hér og nú ákveðin prósenta af útsvarstekjum, sem verja á til þessara mála, heldur verði sú ákvörðun látin bíða fjárhags- áætlunar. En ég er vissulega sam- mála þvf, að hér er um málaflokk að ræða, sem þarf að hafa for- gang. Björgvin Guðmundsson (A) fagnaði tillögu Alberts en tók undir það með borgarstjóra að skynsamlegt væri að láta ákvörð- un um fjárhæðir f þessu sam- bandi bíða afgreiðslu fjárhags- áætlunar. Kristján Benediktsson (F) taldi tillögu Alberts einbera sýnd- armennsku og yfirdrepsskap, sem eingöngu ætti að nota i áróðurs- skyni. Albert hefði verið látinn flytja þessa tillögu til þess að meirihlutinn gæti sett upp eitt- hvert sjónarspil en engin alvara lægi að baki. Tillögur minnihlut- ans frá þvf f desember væru hins vegar raunhæfar og framkvæm- aalegar. Sigurlaug Bjarnadóttir (S) sagðist ekki geta skilið hvers vegna ekki væri hægt að ræða þær till., sem fyrir lægju efnisl. Hvort það skipti endilega öllu máli hver bæri tillöguna fram og hvers vegna það þyrfti að vekja slfka hneykslun minnihlutans að borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins bæri fram djarfa og stórhuga tillögu. Markús öm Antonsson (S) kvaðst vilja benda Kristjáni Benediktssyni á í sambandi við mannaráðningar að Grensásdeild inni, að heilbrigðismálaráð hefði ekki á nokkurn hátt reynt að skjóta sér undan ábyrgð f þvf máli. Það hefði fylgst vel með öllu, sem gert hefði verið til þess að afla starfsliðs og lýst yfir stuðningi sinum við þær aðgerðir, er forstöðufólk Borgarspítalans hefði haft í frammi í því sam- bandi. Það væri hins vegar ekkert fólk að fá og mér þætti gaman, sagði Markús Örn, að sjá hvaða töfrabrögð þau Kristján og Stein- unn Finnbogadóttir vijja hafa i frammi til þess að ná I þetta hjúkrunarfólk, sem svo sárlega vantar. Adda Bára Sigfúsdóttir (K) tók til máls og sagðist vilja leiðrétta þann misskilning borgarstjóra, að ekki væri gert ráð fyrir neinum framlögum til B-álmunnar í fjár- lögum. Þetta væri rangt, f fjár- lagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir slíkum framlögum en það hefði ekki verið í fyrsta uppkasti þess. Birgir tsleifur Gunnarsson, borgarstjóri kvaðst fagna þess- um upplýsingumöddu Báru. Að lokum tók Albert Guð- mundsson til máls og fagnaði þeim miklu umræðum, sem til- laga hans hefði valdið. Hins vegar kvaðst hann ekki skilja særindi minnihlutans i þessu máli og dylgjur þeirra um að áhugi sinn fyrir velferðarmálum aldraðra væri sýndarmennska og leikara- skapur. Slíkur málflutningur sýndi eingöngu óhreinan hugsun arhátt þeirra sjálfra. Tillaga Alberts var síðan sam- þykkt með 8 samhl jóða atkvæðum en tillögum Steinunnar og öddu Báru var visað til nefndar þeirrar er annast á framkvæmdir á til- lögu Alberts og borgarráð mun tilnefna. Stríðið getur spillt fundum NATO og Rússa Brussel, 19. október. NTB. STRlÐ Araba og Israelsmanna getur valdið þvf, að fresta verði viðræðunum um gagnkvæman samdrátt herja ( Evrópu er eiga að hefjast ( Vfn 30. október að sögn talsmanna Atlantshafs- bandalagsins f dag. „Ef Rússar halda áfram vopna- flutningum með loftbrú sinni til Araba fram yfir 30. október, mun það torvelda viðræðurnar um samdrátt herja,“ sagði talsmaður inn. Talsmaðurinn sagði, að NATO vildi ekki dragast inn I stríðið og að bandalagið mundi allt gera sem hægt væri til þess að slökkva ófriðarbálið. „NATO vill að endi verði bund- inn á stríðið sem allra fyrst. Ef átökin dragast á langinn getur það orðið mjög hættulegt," sagði talsmaðrinn. Hann sagði að aðildarlönd NATO mundu ræða ástandið við Rússa og sin á milli. \ BOSCH FRYSTI- KISTUR Foröabúr heimilisins Stæróir: 2101 2601 3301 4001 BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SIMI 38820

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.