Morgunblaðið - 24.10.1973, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973
Minning:
Einar Pálsson,
skrifstofustjóri
Minning:
Fanng
Karls-
dóttir
Fædd 25. ágúst 1888.
Dáin 16. október 1973.
Þegar við systkinin, ásamt
nokkrum vinum, stóðum við
sjúkrabeð Fanrýjar á 85 ára af-
mæli hennar 25. ágúst s.l., duldist
engum, að leiðin var senn á enda.
Hún hafði verið rúmiiggjandi í
nokkra mánuði og kunni því mjög
illa, enda hafði hún verið sérlega
heilsuhraust langa ævi.
Andlát hennar kom okkur því
ekki á óvart, og víst mun henni
hafa verið hvíldin kær. Samt er
það svo, að skarð hefur myndazt í
fjölskylduhringinn, og nokkurn
tíma tekur að átta sig á breyt-
ingunni.
Það er ekki ætlun mína að skrá
hér æviminningu eða rekja ævi-
feril Fannýjar Karlsdóttur,
stjúpu minnar. Ég vil aðeins I
nafni okkar systkinanna færa
henni örfá þakkarorð. Fyrst og
fremst þökkum við henni fyrir
það ágæta heimili, er hún bjó
föður okkar í 40 ára hjónabandi.
Þau gengu í hjónaband árið
1931 og áratugur kreppunnar
varð þeim, eins og mörgum fleiri,
erfiður, en dugnaður Fannýjarog
bjartsýni áttu áreiðanlega mikinn
þátt I að létta þeim lffsbaráttuna,
og það mun ekki hvað sízt hafa
verið fyrir hennar tilstuðlan, að
nokkru eftir 1940 eignuðust þau
litla húsið á Grímsstaðaholtinu,
Þrastargötu 8, og þar lifðu þau
sína sælustu daga, þótt nokkurn
skugga bæri á síðustu árin vegna
langvarandi veikinda húsbónd-
ans.
Aldrei gat faðir okkar nógsam-
lega lofað þá stund, er hann náði í
„kellu sina“, eins og hann orðaði
það, og við systkinin vorum hon-
um hjartanlega sammála.
Oft var gestkvæmt á „Holtinu"
eins og við kölluðum það, en þar
var aldrei þröngt, þótt húsið væri
lítið, þannig var heimilisbragur-
inn.
En nú er þetta heimili ekki
lengur annað en minning, að vísu
ákaflega hugljúf minning, minn-
ing, sem er órjúfanlega tengd
stjúpu okkar, er við nú kveðjum
hinztu kveðju með þakklátum
huga.
Gunnar Ölafsson.
F.5. aprfl 1914
D. 16. október 1973
IBÚAR höfuðborgarinnar hafa á
þessu hausti fengið að njóta
margra fagurra haustdaga. Sdl-
skin og stillur hafa í rikum mæli
sett svip sinn á veðráttuna.
Geislar sólarinnar hafa varpað
flóði sínu yfir borg og sund, og
gullroðinn fjallahringur hefur
verið stórkostleg umgjörð um
hina dýrlegu mynd.
Einn slíkur sólskinsdagur rann
upp hinn 16. október s.l. Skerja-
fjörðurinn var spegilsléttur og
heiðríkjan endurspeglaðist á haf-
fletinum líkt og dýrð himinsins
hefði stigið niður til jarðarinnar.
Á þessum fagra haustmorgni
dró skyndilega ský fyrir sólu að
Lynghaga 15. Húsbóndinn veikt-
ist heiftarlega og að fáum mínút-
um liðnum hafði hjartaslag lagt
hann að velli. Dökkt sorgarský
grúfði yfir þessu heimili. Eigin-
kona og börn voru harmi lostin.
Einar Pálss. varfæddur5. apríl
1914 f Reykjavík. Foreldrar
hans voru Páll Magnússon járn-
smfðameistari og kona hans Guð-
finna Einarsdóttir. Þau Páll og
Guðfinna áttu 8 börn og var Einar
næst elztur en systirin lézt 1940.
Einar ólst upp í foreldrahúsum,
lauk gagnfræðaprófi 1931 og hóf
þá störf hjá Landssfma Islands og
starfaði þar til ársins 1936 að
hann hélt til Noregs, þar sem
hann innritaðist f Oslo Techniske
Höjskole. Þaðan útskrifaðist hann
þremur árum sfðar, eða 1939 sem
tæknifræðingur með 1. ágætis-
einkunn. Hélt hann þá heim til
Islands og hóf aftur störf hjá
Landssfmanum. Þar starfaði hann
til ársins 1960, síðustu árin sem
skrifstofustjóri.
Einar mun hafa dreymt um að
taka stúdentspróf og fá tækifæri
til þess að stunda háskólanám og
myndi hugur hans þá eflaust hafa
staðið til raunvísinda. Árið 1959
tók hann stúdentspróf utan skóla,
þá 45 ára. 1962 — 1965 kenndi
Einar stærðfræði við Iðnskólann í
Hafnarfirði og 1965 — 1966 var
hann kennari við Iðnskólann f
Reykjavík, en hóf þá jafnframt
störf hjá fyrirtækinu Sindra h.f. í
Reykjavík. Þar starfaði hann til
ársins 1972, er hann réðst sem
skrifstofustjóri til Raunvísinda-
stofnunar Háskóla Islands.
Hinn 17. febrúar 1940 kvæntist
Einar eftirlifandi konu sinni,
Guðlaugu A. Valdimarsdóttur,
Sigurðssonar útgerðarmanns frá
Eskifirði og konu hans Hildar
Jónsdóttur ljósmóður, sama stað.
Þau Einar og Guðlaug eignuð-
ust 3 börn: Valdimar, starfsmann
hjá Reykjavíkurborg, kvæntan
Þórdísi Richter, læknaritara, Ein-
ar Pál, rafvirkja, kvæntan Eddu
Steinunni Erlendsdóttur og Hildi,
gifta Erni Kjærnested rafvéla-
virkja. Barnabörnin eru nú orðin
sex, hinn fríðasti hópur.
Það var mikið gæfuspor í lífi
Einars, þegar hann stofnaði til
hjúskapar með Guðlaugu. Hún
reyndist framúrskarandi húsmóð-
t
Frændi okkar
BJARNI SÍMONARSON,
sem lézt að Hrafnistu 18 þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26 okt kl 10 30
Ásta Sighvatsdóttir, Þorbjörn Þórðarson.
Til sölu
V/B Sæbjörg VE 56, 67 rúmlesta eikarbátur með 425
ha. Caterpillar vél. Togveiðarfæri geta fylgt með.
Landssamband ísl. útvegsmanna.
Sími 16650.
t Móðir okkar, tengdamóðir og systir
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Suðurgötu 37,
andaðist í Landakotsspítala 22 þ.m.
Ástdís Guðjónsdóttir, Haraldur Theódórsson,
Sigurður Guðjónsson, Sigurdís Sigurðardóttir. Camilla Sæmundsdóttir,
t
Eiginmaður minn
ÞORSTEINN TYRVINGSSON
lézt að Vífilsstöðum 22. okt.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún Pálsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð og vínáttu við andlát og jarð-
arför
SIGURBJARNAR
KRISTJÁNSSONAR,
frá Finnsstöðum.
Vandamenn.
t t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, konu minnar. móður okkar, tengdamóður og ömmu.
VALGEIR EIRÍKSSON,
frá Gestsstöðum, Fáskrúðsfirði, KRISTÍNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Kárastíg 8.
andaðist á Hjúkrunar- og endurhaefingarstöð Borgarspítalans laugar- Halldór Oddsson,
daginn 20 október, síðast líðinn Jarðarförin fer fram frá Fossvogs- Guðrún Halldórsdóttir, Þorsteinn Björnsson
kirkjunni, mánudaginn 29 október. kl 10,30á d Ásta Oddsdóttir, Hans Blomsterberg Sigríður Oddsdóttir, Gunnar Ásmundsson
Bræður, börn og barnabörn hins látna. Oddur Halldórsson, Magnús Oddsson
og barnabörn.
+
+ 1 Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
1 EIRÍKS BJÖRNSSONAR,
GUÐJÓN GÍSLASON, Vesturbraut 8,
Gimli, Hafnarfirði,
Garði, sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Sólvangi, Hafnarfirði fyrir
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 24 október kl góða hjúkrun.
13 30 Fyrir hönd vandamanna
Fyrir hönd ættingja Valdís Jónsdóttir. Guðfinna Jónsdóttir.
ir, enda óvenjumikil mannkosta
kona. Hún bjó eiginmanni og
börnum fagurt heimili, þar sem
ylur og birta réðu rfkjum. Ást
hennar og umhyggja fyrir eigin-
manni og börnum var einstök, og
varð m.a. til þess að tengja fjöl-
skylduna sterkum tryggðabönd-
um. Má með sanni segja, að þau
Einar og Guðlaug hafi ekki aðeins,
reynzt börnum sínum góðii
foreldrar f venjulegum skilningi,
heldur reyndust þau þeim bæði
einlægir vinir.
Einar Pálsson var óvenju mikl-
um og fjölbreyttum gáfum gædd-
ur. Hugur hans beindist mjög að
vísindastörfum. Má þar fyrst
nefna fjarskiptatækni, en frí-
stundastarf hans var m.a. á því
sviði, þar sem hann náði ótrúleg-
um árangri. Með tækjunum, sem
hann sjálfur setti saman, var
hann f daglegu fjarskiptasam-
bandi við fólk í hinum ýmsu
heimshlutum. Meðal samtaka frí-
stundamanna á sviði fjarskipta
(Radio Amateurs) hlaut Einar
viðurkenningu fyrir framúrskar-
andi árangur.
Þá var Einar mjöglistrænn. Um
skeið fékkst hann nokkuð við
málaralist i frístundum, nokkrar
myndir eru til eftir hann, og bera
þær vott um listrænt handbragð.
Gekkst hann mjög upp í málara-
listinni og má segja, að það hafi
einkennt.Einar, að þegar hann tók
sér eitthvað fyrir hendur, þá
sökkti hann sér niður í verkefnið
af öllu afli. Ahuginn var brenn-
andi og svo virtist sem hann fyndi
ekki frið nema unnt yrði að brjóta
málin gjörsamlega til mergjar.
Það aftur á móti kostaði mikla
vinnu, lestur, mikið sjálfsnám og
margar vökunætur. Það var ekki
að skapi Einars að fljóta ofan á og
láta strauminn bera sig áfram 1
lífinu. Hann sökkti sér niður 1
málefnin að sið vísindamannsins.
Kann þessi eiginleiki stundum að
hafa valdið Einari mótlæti og
a.m.k. vonbrigðum.
Áður hefur verið minnzt á, að
hugur Einars myndi hafa staðið
til raunvísinda, ef hann hefði átt
t
Alúðar þakkir fyrir auðsýndan
vinarhug við andlát og jarðgrför
HALLDÓRU KRISTÍNAR
JÓNSDÓTTUR,
Snorrabraut 40,
Fyrir hönd vandamanna,
Eirfkur Jónsson.
t
Alúðar þakkir sendum við öllum
þeim, er vottuðu okkur samhug
við fráfall mannsins míns, föður
okkar og sonar,
SIGURÐAR
NIKULÁSSONAR,
Birkihvammi 8,
Hafnarfirði.
Þórunn Jónsdóttir
Helgi Sigurðsson
Jón Sigurðsson
Karl S. Sigurðsson
Valgarð Sigurðsson
Kristín Sigríður Magnúsdóttir