Morgunblaðið - 24.10.1973, Page 23

Morgunblaðið - 24.10.1973, Page 23
 kost á langskólanámi. Sjálfur var hann visindamaður að eðlisfari og eflaust hefði hann getað náð langt á braut vísinda, ef mál hefðu þannig skipazt. Á s.l. ári má segja, að draumur hans um vísindastörf hafi að nokkru rætzt, þegar hann hóf störf við raunvísindadeild Há- skólans sem skrifstofustjóri. Hann mun hafa gengizt mjög upp í þessu starfi, og mér hafa tjáð yfirboðarar hans í Háskólanum, að hann hafi reynzt framúrskar- andi vel í þessu starfi og mikið skarð sé nú fyrir skildi við fráfall hans. Það eru óvæg örlög, að hann skyldi ekki fá að njóta þessara starfa í lengri tíma. Og nú er Einar Pálsson allur. Á fögrum haustdegi, þegar dýrð himinsins endurspeglaðist í sjá- varfletinum skammt frá heimili hans, er hann kallaður burtu. Fagurt ferðaveður, en ástvinir standa þrumu lostin. Þannig er lífið, það er alltaf að koma mönnum á óvart. Og hafið, sem hér hefur verið minnzt á, getur á vissan hátt verið samlík- ing við umrót hins daglega lífs. Við sjáum -hafið í hinum breyti- legustu myndum. Sjaldan sjáum við hafið spegilslétt. Oftar eru bárur á haffletinum og ekki ósjaldan sést Ægir í illskuham, þegar hvítfyssandi öldur berja hafflötinn eða brotna með ofur- þunga við klettótta strönd. Yfir- borð sjávarins breytist stöðugt. Stundum er það spegilslétt og kyrrt, en á öðrum tíma ólgandi og ofsalegt og stynur undan veðra- hami. En er það ekki athyglisvert, að þegar vindur og stormur berja og ýfa hafflötinn og mynda hvít- fyssandi öldurót, þá er að finna algjöra kyrrð í djúpi hafsins. Niðri í dýpinu ná hvorki stormar né öldurót að trufla þá miklu kyrrð, sem þar rfkir. Silencia ræð- ur þar ríkjum. Einar Pálsson átti sitt hugar- djúp. Það var gæfa hans að geta leitað þangað í kyrrðina og velt fyrir sér hinum miklu gátum mannlegs lffs. Og nú fær hann trú lega ráðningu á þessum gátum í nýjum heimkynnum. Forfeður vorir töluðu um Gimli, salinn, sem væri allra fegurstur, þar sem dyggvar dróttir byggja. Ég óska Einari Pálssyni fararheilla til slíkra heimkynna, þar sem skráð er gullnu letri: „Excelcior — hærra, — hærra minn guð til þín.“ Guðlaugu, börnunum og öðrum ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Erlendur Einarsson MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR24. OKTÖBER 1973 23 Guðjón Gíslason Garði — Minning F. 1.11.1905. D. 17.10.1973. Sælir eru hjartahreinir, þvf að þeir munu Guð sjá. GUÐJÖN Gíslason var borinn og barnfæddur Suðurnesjamaður og var hið ágætasta dæmi um dugn að þeirra og eljusemi. Foreldrar hans voru hjónin Gísli Eyjólfsson og Þuríður Jóns dóttir, lengi búandi á Þórodds- stöðum í Miðneshreppi, en sfð- ustu æviárin til heimilis f Sand- gerði. Guðjón ólst upp í föðurgarði, elztur ellefu systkina sem öll hafa reynzt atorkufólk. Hann hóf ung- ur almenna vinnu til Iands og sjávar, bæði við húsagerð, vega- vinnu og þó einkum sjávarútveg. Hafði hann um langt árabil unnið við fiskvinnslu hjá sama fyrir- tæki f Garðinum og starfaði þar allt fram á síðasta dag. Mér er það kunnugt, þar sem ég vann með honum um tima, að hann var hafð ur þar í miklum metum meðal yfirmanna og vinnufélaga, enda gekk hann að störfum sínum af alvöru og trúnaði og var þó einkar skemmtilegur viðræðu, gaman- samur og ungur í anda. Guðjón safnaði ekki miklum veraldlegum auði um dagana, en hús eignaðist hann ágætt, og við það gerði hann sér fallegan garð. Heima við höfðu hans sístarfandi hendur ætíð nóg að gera við að hlynna að garðinum og stunda ýmsar smíðar, sem honum voru hugleiknar, en Guðjón var hág- leiksmaður mikill. Öll umgengni við húseign hans, Gimli í Garði, bar snyrtimennsku hans fagurt vitni. Guðjón var hógvær maður og lét ekki mikið yfir sér. Hann gerði sér ekki títt um að vasast í félags- málum, en var þó hinn bezti félagi þeim, sem hann batt trúnað við, og ágætur húsbóndi heim að sækja. Kom þá í ljós, að hann hafði á grundvelli langrar reynslu myndað sér ákveðnar skoðanir á ýmsum málum og þurfti ekki að láta pólitíska skrumara segja sér til um, hvað landi og þjóð væri hagfelldast. Sönn mannúð kemur ekki sízt fram í viðskiptum manna við dýrin. Guðjón í Gimli var sér- stakur dýravinur og sinnti þeim af óeigingjarnri alúð, bæði hestum, hundum og fleiri dýrum, sem hændust að honum. Hann var ókvæntur og barn- laus, en bjó síðustu 6 árin með Valdfsi Jónsdóttur. Var sambúð þeirra hin ánægjulegasta og miklir kærleikar með þeim alla tíð. Börnum hennar og barna- börnum reyndist hann einnig sem góður faðir. Það leyndi sér þá ekki, hvílíkum mannkostum hann var búinn, enda átti Valdís hjá honum hamingjusöm ár. Hún kveður hann vú með mikilli ástúð og virðingu og þakkar honum allar velgjörðir við sig. Heslamannafélaglff Rauffur heldur fyrsta fund sinn á þessum vetri, miðvikud. 24/ 1 0 kl. 8.30 að Fríkirkjuvegi 11. R. Efni: Kynnt verður vetrarstarfsemi félagsins og Friðþjófur Þorkelsson sýnir hestamyndir úr ýmsum áttum. Með Guðjóni Gíslasyni er genginn einn þeirra nýtu þjóð- félagsborgara, sem rækta sinn garð f hljóðlátri önn og brjótast gegnum lífið af eigin rammleik, en ætlast ekki til, að aðrir leggi þeim allt upp i hendurnar. Hann er hin ágætasta fyrirmynd um grandvarleik og trúmennsku, en slíkar dyggðir spretta einungis af hreinu, kristilegu hjartalagi. Og sannarlega var hann hógvær mað- ur og af hjarta lítillátur. Því er það von mín og trú, að fyrirheitin miklu, sem lofað er í Sæluboðun Krists, rætist á þessum trúa verkamanni í víngarði Drottins. Megi Guðs blessun fylgja hon- um. Jón Valur Jensson. t Jarðarför konunnar minnar LOUISU TÓMASDÓTTUR Öldugötu 54 fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25, okt kl 1 3 30 Fyrir mlna hönd, barna okkar, tengdabarna, barnabarna og annarra aðstandenda Ásgrímur Gislason. NOTAÐIR BÍLAR Sellum I dag 21.10.73 Saab 99 '72 Saab 99 71 Saab 96 '73 Saab 96 '72 Saab 96 '71 Saab 96 '70 Saab 96 '69 Saab 96 '68 2T Saab 96 '67 V 4 og 2 T Saab 96 '65 Datsun 1 200 '73, ekinn 18 þús. VW 1600, fastback '67 Vauxhall Viva '72 Landrover Benz '70 Bronco V 8 '70 Volvo 144 '67 ekinn 50 þús. B3ÖRNSSQN&CO. SKEIFAN 11 SÍMI 81530 Keflavík - Suffurnes Til sölu m.a.: í Keflavík, nýleg 2ja herb. íbúð. Allt sér. 4ra herb. glæsileg íbúð, ásamt bílskúr. 5 herbergi, eldhús og bað. Lágtverð. í Yrti-Njarðvík, 136 fm. einbýlishús, ásamt bílskúr. Ræktuð lóð. í Grindavík, fokhelt raðhús, 4 svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Bílskúr. Teikningar liggja frammi. í Sa.ndgerði, 2ja, 3ja, og 4ra herb. íbúðir. í Garðinum, 5 herbergi, eldhús og bað, í eldra húsi. Nýtt plastklætt timburhús 1 32 fm. Bíla- og fasteignaþjónusta Suðurnesja, sími 1 535, heima 2341. Fjöibreytt úrval at barnatatnaot Pðstsendum Vezl. Val, Linnetstíg 1, HafnarfircJi Sími 52070

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.