Morgunblaðið - 24.10.1973, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR24. OKTÓBER 1973
SAI B Al N 1 Ed McBain: I ó heljorþröm
20
„Alan. Og hann dró hníf Ur vasa
sínum og gat rétt hendina inn
fyrir og skorið á snærið.“
„Og þá opnaðist hurðin án við-
náms, ekki rétt?“
„Jú.“
Og hvað svo?“
„Þeir kölluðu á Roger og báðu
hann að hringja á lögregluna."
„Hreyfði nokkur við neinu í
herberginu?"
„Nei, þeir snertu ekki einu
sinni tengdapabba."
„Fór enginn þeirra einu sinni
að tengdaf öður yðar?“
„Jú, þeir skoðuðu hann, en
snertuhannekki. Þeir sáu strax, að
hann var dáinn. David taldi ráð-
legast, að þeir hreyfðu hann
ekki.“
„Hvers vegna?“
„Vegna þess, að hann var dá-
inn.“
„Nú?“
„Hann . . . hann vissi, að það
kæmu lögreglumenn, geri ég ráð
fyrir.“
„En hann vissi líka, að faðir
hans hafði framið sjálfsmorð,
ekki rétt?“
„Jú ... jú ég býst við því.“
„Hvers vegna var hann þá að
vara hina við því að snerta Ifkið? “
„Hef ekki hugmynd um það,“
svaraði Christine stuttí spuna.
Carella ræskti sig. „Hafið þér
þá hugmynd um, frú Scott hvers
virði tengdafaðiryðar var?“
„Virði? Hvað eigið þér við með
virði?“
„I eignum,“ svaraði hann. „I
peningum."
„Nei, það veit ég ekkert um.“
„Htthvað hljótið þér nú að vita
um það, frú Scott Þér hljótið að
vita, að hann var mjög auðugur
maður.“
„Já, auðvitað veit ég það.“
„En ekki hversu auðugur er
það?“
„Nei.“
„Vitið þér, að hann lætur eftir
sig 750 þúsund dollara, sem skipt-
ast eiga jafnt milli sona hans
þriggja. Svo ekki sé nú minnzt á
iðnfyrirtækjasamsteypuna og
ýmis hlutabréf."
„Hvað eruð þér að gefa í skyn,
herra Carella?"
„Gefa I skyn? Ekkert. Eg er
aðeins að fara með fáeinar
staðreyndir varðandi arfskipt-
inguna. Það er allt. Finnst yður
einhverjar aðdróttanir fólgnar I
þvf?“
„Nei.“
„Eruð þér vissar um það?“
„Jú, fjandinn hafi það, þetta
eru aðdróttanir. Þér látið að þvf
liggja, að einhver hafi af ásetn-
ingi . . . það eru bölvaðar aðdrótt-
anir eða hvað?“
„Það eruð þér, sem eruð með
aðdróttanir, frú Scott. Ekki ég.“
„Farið til helvítis, herra Car-
ella.“
„Hmmm,“ svaraði Carella.
„Þér gleymið dálitlu, er það
ekki?“
„Hverju?"
„Tengdafaðir minn fannst lát-
inn I gluggalausu herbergi og
hurðinni hafði verið læst innan
frá með loku. Þér vilduð kannski
fræða mig á, hvernig aðdróttanir
yðar um morð..."
„Yðar aðdróttanir, frú Scott.“
„ . . . um morð koma heim og
saman við þessar augljósu stað-
reyndir? Eða er öllum rann-
sóknarlögreglumönnum svo farið
að leita ósjálfrátt að einhverjum
skít? Er það yðar starfi, Carella?
Að leita að skít?“
„Minn starfi er að sjá um, að
lögum sé framfylgt. Að rannsaka
glæpi."
„Það hefur enginn glæpur verið
fraininn hér. Og engin lög
brotin."
„Sjálfsmorð er brot á lögum,“
svaraði Carellaum hæl.
„Nú, sjálfsmorð. Þér viður-
kennið þá, að þetta hafi verið
sjálfsmorð."
„Það lítur helzt út fyrir, að svo
sé. En fjöldinn allur af morðum,
lítur við fyrstu sýn út eins og
sjálfsmorð, en reynist síðar vera
manndráp af ásetningi. Yður er
sama þótt ég tali hreint út, er það
ekki?“
„Mér er sama um allt nema
ruddalega framkomu yðar. Svo
framarlega, sem þér gleymið ekki
því, sem ég gat um áðan.“
„Hvað varþað?"
„Að hann fannst látinn í læstu
og gluggalausu herbergi. Gleymið
því ekki, herra Carella."
„Frú Scott,“ svaraði Carella
einlæglega, „það vildi ég að ég
gæti.“
Attundi kafli.
Alf Miscolo lá sem hrúga upp
við dyr karlasalernisins.
Það voru ekki liðnar 30 sek-
úndur frá því, að kúlan hæfði
hann i bakið. Fólkið í salnum var
í stirðnuðum stellingum, það var
II þýóingu
Björns Vignis,
engu lfkara en hvellurinn frá
38unni hefði lamað það, það mátti
hvorki mæla né hreyfa sig. Púður-
agnir svifu innan um grábláan
reykinn frá byssunni. Virginia
Dodge stóð eins og skuggamynd
inni í gráum reyknum, hún var
allt I einu orðin yfirþyrmandi,
áþreifanleg ógnun. Hún snarsner-
ist frá hliðinu um leið og Cotton
Hawes stóð upp frá borði sínu í
salarhorninu.
„Á þinn stað aftur!" sagði hún.
TÍMARITIÐ „HUS S HIBYU'
Nýtt tölublað af „Hús &
hlbýli" er nú komið í allar
helztu bókabúðir og nokkrar
blaðsölur 1 Reykjavlk, Kópa
vogi og Hafnarfirði — og er á
leiðinni I bókabúðir I öllum
öðrum kaupstöðum og flestum
stærri kauptúnum landsins.
ÚTGEFANDI: NESTOR,
AUSTURSTRÆTI 6,
REYKJAVÍK. SÍMI 10678.
velvakandi
Velvakandi svarar í sfma 10-
100 kl. 10.30—11.30. fri
mánudegi til föstudags.
0 Staksteinar
og ferðamálin
Valdimar Kristinsson skrif-
ar:
„Þar kom að því, að Morgun-
blaðið tók að leita sænskra fyrir-
mynda. 1 skætingslegum tóni I
Staksteinum, 17. október s.l., sem
kann að hæfa pólitíkinni en ekki
málefnalegum umræðum I virðu-
legu blaði um atvinnuvegi og
nytjar lands, var skýrt frá þeirri
niðurstöðu Svía, að ferðamanna-
straumurinn væri að færa þá í
kaf, og þeir væru að verða horn-
rekur í eigin húsi. Var að skilja á
Staksteinum, að í þessu máli
ættum við að láta niðurstöður
frændanna okkur að kenningu
verða.
Ekki var þess getið, að við
skyldum hætta að hjálpa til að
fylla Majorku, ásamt Svfum og
öðrum Norður-Evrópubúum.
Myndu margirsegja, að Spánverj-
ar vildu fá gestina sér til viður-
væris. En Svíar hafa lengi reynt
að hafa vit fyrir fjarlægari þjóð-
um en Spánverjum, og gætu nú
ásamt fórnfúsum og heimakærum
Islendingum sýnt það vit f verki.
0 Kostir ferða-
mennsku fyrir
landsmenn sjálfa
I umræddum Staksteinum er
hnýtt I ferðamálaráðstefnu, sem
nýlega var haldin, en þar komu
fram áhyggjur af hreinlætisað-
stöðu á heiðum uppi. Nú vill svo
til, að landsmönnum hefur fjölg-
að mjög, og fara þeir nú miklu
vfðar um landið en áður. Ekki
hentar því á öllum sviðum að fara
lengur f spor dýra merkurinnar.
Þarna erum við einmitt komin að
einum aðalkostinum, sem fylgir
hæfilegum fjölda ferðamanna.
Þeir skapa eftirspurn og aðstöðu,
sem landsmenn njóta góðs af.
„Auknar framkvæmdir út og
suður um Iandsbyggðina" ættu
heldur ekki að halda vöku fyrir
Staksteinahöfundi, þar sem þær
koma byggðamálunum til góða.
Þama er annar kostur ferðamál-
anna. Þau stuðla að ýmiss konar
starfsemi í byggð, þar sem fá-
mennt er og væri annars allt árið
utan alfaraleiðar. Borgarbúum
kann að henta að geyma sér staðn-
aða byggð til að leita uppi stöku
sinnum til tilbreytingar, en fáir
vilja búa i slfkum „lifandi
söfnum“ til þess að þéttbýlisfólk-
ið geti brugðið sér í þykjustuleik
frumstæðra lifnaðarhátta.
0 Skýrsla
Sameinuðu þjóðanna
Þeir, sem ræða vilja um
ferðamálin á málefnalegan hátt,
ættu að kynna sér nýútkomna
skýrslu sérfræðinga Sameinuðu
þjóðanna. Fólki kann að sýnast
sitt hvað um hugmyndir þeirra og
niðurstöður, en þeir gera vissu-
lega ekki ráð fyrir neinu „ferða-
mannapakkhúsi“ hér á landi,
enda höfum við lægðirnar og
loftslagið með okkur í þeim
efnum þótt ekki kæmi annað til. I
annan stað verða lífskjörin vænt-
anlega það góð á Islandi, að hér
verður alltaf dýrt að ferðast. Ödýr
ferðamannalönd eru aðeins þau
lönd þar sem fólkið er fátækt.
Vilji menn hins vegar beita sér
fyrir fækkun erlendra ferða-
manna, verða þeir hinir sömu að
stuðla að róttækum aðgerðum,
annars er hætt við að árangurinn
verði rýr. Ahrifamest af öllu væri
að fækka flugferðum til og frá
landinu, þá komast bókstaflega
ekki eins maigir hingað. Þetta
hefði einnig þann kost, að við
troðum ekki eins mörgum um tær
erlendis.
Margt fleira bæri að athuga. Til
dæmis er hætt við, að leiðin undir
Vatnajökli freisti fleiri en Mör-
landans eins þegar Skeiðará
hefur verið brúuð. Framfarir er
svo erfitt að hafa fyrir sig eina nú
á dögum.
Víst viljum við öll hafa rúmt
um okkur, en íslenzka þjóðin
hefur ekki valið leið einangrunar
og fásinnis, og því viljum við
ekki, og getum reyndar ekki
heldur, látið sem við séum ein í
veröldinni. Island er ekki lengur
sá „staki steinn“, sem það var um
margar myrkar aldir.
Valdimar Kristinsson."
% (Jtvarpsráðið
framtakssama
Sigurður Gunnarsson skrif-
ar:
„Furðulegt mál í sögu frjálsrar
fréttamennsku á Islandi kom upp,
þegar hið vinstri sinnaða útvarps-
ráð undir stjórn Njarðar P. Njarð-
víkur ætlaði að taka af skarið, og
koma í veg fyrir, að landsmenn
fengju hlutlausar fréttir af
heimsviðburðum, en nýlega sam-
þykkti meirihluti ráðsins vítur á
þrjá beztu fréttamenn Ríkisút-
varpsins fyrir hlutdræga túlkun á
stjórnarskiptunum í Chile, svo
sem kunnugt er.
Nú er það engin nýlunda, að
Nirði og skoðanabræðrum hans
takist að kúga starfsmenn til að
fara eftir skipunum hins heilaga
útvarpsráðs.
En nú keyrir svo sannarlega um
þverbak. Hvorki meira né minna
en þrír fréttamenn fengu yfir sig
harðan dóm vegna þess, að þeir
höfðu sagt satt og rétt frá stjérn-
arskiptunum I Chile, á algerlega
hlutlausan hátt. Þeir sögðu ein-
faldlega frá göllum stjórnar1
Allende, en hældu á engan hátt
ríkir. Þetta er nú sjálft hlutleysið!
ríkir. Þetta er nú sjálft hlutleysiðl
Vonandi verða dagar þessa út-
varpsráðs brátt taldir, þannig að
skynsamlegar verði stjórnað á
eftir.
Sigurður Gunnarsson,
Alfaskeiði 75,
Hafnarfirði."
Skrllstofuhúsnædl
Til leigu 80 — 110 fm. skrifstofuhúsnæði að Skóla-
vörðustíg 12.
Upplýsingar í síma 3021 9 og 23371.
lófllp vlfl Llndargðtu
Lóðirnar nr. 31, 35 og 37 við Lindargötu í Reykjavík, eru
til sölu. Lóðirnar eru samliggjandi. 1030 fm að stærð.
Nánari upplýsingar veitir lögfræðingur bankans, Stefán
Pétursson, hrl.
Landsbanki íslands.
TIL SÖLU TIL SÖLU
Við LÖNGUBREKKU i KÓPAVOGI, parhús 2x70 fm Á hæðinni er
forstofa, hol, saml stofur, eldh. og snyrting Á efri hæð 4 svefnh.
geymsla og bað BÍLSKÚRSRÉTTUR.
í VESTURBÆ, 3ja herb íbúðá jarðhæð LAUS
í HAFNARFIRÐI 4ra herb ibúð BÍLSKÚR.
Fasteignamiðstöðin, HAFNARSTRÆTI 11,
símar 20424— 14120.
Tlmarltlfl „Hús & hfbýll” í áskrift
„Hús og híbýli" er eina islenzka tímaritið um hús og híbýli. 4 blöð á ári, offsetprentuð, full af
hugmyndum og myndum. 20—25 efnistitlar í hverju tölublaði
Áskrift er ódýr, 1973 aðeins 250 krónur fyrir 4 blöð og þó fylgja 2 blöð frá 1972 í kaupbæti.
Gerist áskrifandi nú þegar:
^ Sendið greiðslu í gíró frá næsta pósthúsi, banka, bankaútibúi eða sparisjóði. Póstgírónúmer
INJestors er 10678. „ y
0 Sendið greiðslu í strikuðum tékka, ásamt meðfylgjandi pöntunarseðli útfylltum — í almennu
bréfi.
0 Pantið í póstkröfu í síma 91-1 0678.
Þér fáið þegar send 4 blöð og síðan hin 2, sem ókoniin eru út á árínu, jafnóðum og þau koma út.
ÚTGEFANDI. NESTOR, AUSTURSTRÆTI 6, 2. HÆÐ, REYKJAVIK. SÍMI 10678
NESTOR — AUSTURSTRÆTI 6 — REYKJAVÍK
Undirr. óskar eftir að gerast áskrifandi að timaritinu
„Hús & híbýli" . . .
Nafn og heimilisfang:
. og sendi hér með áskriftargjaldið 1 973, kr. 250.00.